Alþýðublaðið - 01.05.1987, Side 11
Föstudagur 1. maí 1987
11
Reykvíkingar!
Mætum í kröfugöngu og á útifund
1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna í
Reykjavík
Safnast verðursaman á Hlemmi kl. 13.30og geng-
ið þaðan kl. 14.00 á Lækjartorg.
Dagskrá:
1. Þröstur Ólafsson, starfsmaður Dagsbrúnar
flytur ræðu
2. Gunnar Eyjólfsson flytur Ijóð
3. Hildur Kjartansdóttir varaformaður Iðju flytur
ræðu
4. Haraldur Hannesson form. S.F.R. flytur ávarp
5. Kristinn Sigmundsson syngur
6. Lúðrasveitverkalýðsinsflyturlnternationalinn
í fundarlok
Fundarstjóri, verður Pálmar Halldórsson starfs-
maður I.N.S.Í.
1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna i Reykjavík
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar fyrir hönd Hita-
veitu Reykjavlkur óskar eftir tilboðum I lögn að færslu
æðar að dælustöð við Sundlaugaveg. Lengd um 800
rnetrar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Frikirkju-
vegi 3, Reykjavlk gegn 15.000.- kr. skilatryggingu. Til-
boðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. mal
n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikírkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavik
1. maí kaffi
1. maí stendurkvenfélag Alþýðuflokksins
í Reykjavík fyrir síðdegiskaffi í Naustinu
milli kl. 15—18.
Jóhanna Linnet syngur nokkur lög við
píanóundirleik Guðna Þ. Guðmundsson-
ar.
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Al-
þýðuflokksins flytur ávarp.
Allir eru velkomnir í 1. maí kaffi.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga I heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustööina á
Patreksfirði.
2. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á
Þórshöfn.
3. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina i
Asparfelli, Reykjavik.
4. Staöa hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöö Mið-
bæjar, Reykjavík.
5. Staða hjúkrunarfræöings við Heilsugæslustööina (
Árbæ, Reykjavik.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustööina í
Reykjahlfð, Mývatnssveit.
7. Hálf staðahjúkrunarfræðingsvið Heilsugæslustöð-
ina á Dalvik.
8. Hálf staða hjúkrunarfræöings við Heilsugæslustöð-
ina á ísafirði.
9. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina (
Ólafsvik, frá 15. júli 1987.
Umsóknirásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við
hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu, Laugavegi 116, Reykjavik.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
30. april 1987.
Árni Gunnars
Framhald af bls. 14.
A ráðstetnu um velferðarríkið,
sem haldin var fyrir skömmu, sagði
ég á þessa leið: „Við verðum að taka
þátt í þeirri umræðu, sem nú á sér
stað um velferðarríkið og framtíð
þess. (Ég skýt því hér inn í, að ég á
alltaf erfitt með að draga marka-
línu á milli velferðarríkisins og
markmiða verkalýðshreyfingarinn-
ar). Eitt er það vopn, sem gegn okk-
ur er beitt, og það er, að velferðin,
tryggingin frá vöggu til grafar, geti
gengið svo langt, að hún svipti
manninn athafnaþrá og framtaki.
Slíkri velferð ætlum við ekki að
stuðla að. En við viljum að sú
mannúðarstefna ríki og að hver
maður beri í brjósti þá réttlætis-
kennd, að arðurinn af vinnunni
skiptist réttlátlega, en safnist ekki á
fárra manna hendur. Þetta mun
takast best með því, að virkja okkar
eigið framtak til þess að hafa áhrif
og völd í atvinnurekstrinum sjálf-
um“
í framhaldi af þessum orðum
spyr ég ykkur á þessum fundi:
Hvernig stendur á því, að Sjálf-
stæðismenn og Framsóknarmenn
eru í forustu fyrir stærstu og vold-
ugustu fyrirtækjum landsins. Get-
ur verið, að það stafi af því að póli-
tísk afsprengi verkalýðshreyfingar á
íslandi, hafi gert sig ber að þeim
glæp að hafa ekki haft tíma til ann-
ars en að berja á bræðrum sínum og
félögum. Getur verið að íhalds-
menn semji við íhaldsmenn um
kaup og kjör íslenskrar verkalýðs-
hreyfingar? Þetta er líka ýkt mynd,
en litirnir eru til.
Gömlu slagorðin
Staða verkalýðshreyfingarinnar
er umræðuefnið. — Ég var að tala
um íhaldið, og ég tala um það sem
verðugan andstæðing í hvaða
flokki, sem það birtist. Það hefur
m.a. haft vit á því, að skjóta öllum
félagshyggjuöflum og Iýðræðis-
sósíalistum ref fyrir rass í heimi
fjölmiðlanna. Staða verkalýðs-
hreyfingarinnar batnar ekki með
því að hún haldi að sér höndum í
þeirri ógnarveröld. Hún á fjármuni
til að taka þátt í fyrirsjáanlegum
slag frjálsra útvarpsstöðva, eða öfl-.
ugri útgáfu dagblaðs. Hver er staða
verkalýðshreyfingarinnar í nútíð og
framtíð á þessu sviði? Veit verka-
lýðshreyfingin ekki hvert vald henn-
ar er?
Félagsleg deyfð verkalýðshreyf-
ingarinnar kann að stafa af því, að
andstæðingar hennar hafa með
fjölmiðlamætti dregið úr henni
kjark og þor, áhuga og eindrægni.
— Hvar er sú verkalýðshreyfing á
vegi stödd, þar sem eitt prósent fé-
lagsmanna í stærsta verkalýðsfélagi
landsins, samþykkir samninga fyrir
hin 99 prósentin?
Og hvar er sú verkalýðshreyfing á
vegi stödd, sem ekki vill brjótast úr
viðjum hefðbundinna taxtakerfa í
átt til vinnustaðafélaga, þar sem
samið er fyrir vinnustaðinn i heild.
Þannig gæti ég lengi þusað. Upp-
úr stendur, að á þessum tímamót-
um verður Verkamannasambandið
að hverfa aftur til kreppuáranna og
nota þaðan slagorðin um að dag-
vinnutekjur nægi fyrir nauðþurft-
um. — Svo miklu er nú stolið frá
hinum vinnandi manni í arðlausar
fjárfestingar, milliliðahallir og ein-
okunarkerfi pilsfaldakapítal-
ismans, að leiðrétting er ekki bara
réttlát, hún er siðferðileg og söguleg
nauðsyn, ef verkalýðshreyfingin vill
ráða einhverju í baráttunni gegn
frumskógarlögmálinu.
Kannski gæti Verkamannasam-
bandið skrifað undir þennan hluta
af starfsskrá Alþýðusambands-
þingsins 1936: „Þeim tilraunum,
sem hafnar eru til að byggja upp
nýjar atvinnugreinar og nýjan at-
vinnurekstur, sé haldið áfram og
þær auknar að miklum mun, rann-
sóknir á möguleikum nýrra fisk-
veiða og nýjar aðferðir við hagnýt-
ingu aflans séu auknar og styrktar
ríflega“
Þetta eru sundurlausar hugleið-
ingar, svo margt er hægt að segja,
en skammtaður tími stuttur. — Ég
óska ykkur alls velfarnaðar á þess-
um tímamótum og gengis í barátt-
unni fyrir réttmætum hlut. — Þá
baráttu verður að herða.
Orlofshús
Sjómannafélags
Reykjavíkur
Orlofshús félagsins að Hraunborgum Grímsnesi
og að Húsafelli verða leigð út frá og með 4. mai.
Tekið á móti umsóknum á skrifstofu félagsins
gegn greiðslu dvalargjalds frá kl. 9 n.k. mánudag.
Stjórnin
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur rikisins auglýsa stöðu forstöðumanns
fjármálasviðs fyrirtækisins lausa til umsóknar.
Hagfræði- eða viðskiptafræðimenntun er tilskilin.
Starfið veitist frá 1. júlí 1987.
Umsóknir sendist rafmagnsveitustjóra rikisins, Lauga-
vegi 118, 105 Reykjavík, fyrir 20. mai 1987.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavik.
Útboð —
Gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð Ásbrautar I
Hafnarfirði, samtals um 8500 m2 í malargötu.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverk-
fræðings Strandgötu 6 frá og með þriðjudeginum
5. mal n.k. gegn 5.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
12. mal kl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar kennarastöður
við framhaldsskóla
Við Menntaskólann á ísafirðj kennarastöður I Islensku,
stæröfræði og þýsku, heilar stööur, og hálfar stöður I
efnafræöi og frönsku.
Við Menntaskólann ( Kópavogi kennarastöður i stærð-
fræði og viðskiptagreinum.
Við Menntaskólann að Laugarvatni kennarastöður (
stærðfræði og raungreinum.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hálf kenn-
arastaða i tónlist og kórstjórn.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja I Keflavik, kennara-
stöður í faggreinum rafiðna, faggreinum hársnyrti-
greina, efnafræði, ensku, íslensku, liffræði, stærð-
fræði og viðskiptagreinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavlk fyrir 22. maí næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið.