Alþýðublaðið - 21.05.1987, Side 3
Fimmtudagur 21. maí 1987 > /
t/r-
y \J Hörður Ólafsson hrl. skrifar
Af hlutleysi ríkissaksóknara
Haraldur Henrysson, sakadóm-
ari, hefur hafnað kröfu verjenda
Hafskipsmanna um að Hallvarður
Einvarðsson og Albert Guðmunds-
son komi fyrir dóm til að segja frá
afskiptum sínum af málinu.
Þeir eru ekki í sama flokki, Hall-
varður og Albert, hvað málið varð-
ar: Hallvarður var ríkisrannsóknar-
lögreglustjóri og aflaði þeirra
gagna, sem hann vildi afla, og gaf
út ýmsar yfirlýsingar, m.a. eina á þá
lund, að Albert væri alkunnur heið-
ursmaður, sem aldrei mundi vinna
neitt til saka. Albert var hinsvegar í
stjórn Hafskips um tíma og seinna
fjármálaráðherra, sem lánaði Hall-
varði 600 þúsund krónur, 12
prósent, úr 5 milljón króna sjóði,
sem hann hafði til ráðstöfunar til
að stunda fyrirgreiðslu einstökum
mönnum. Illgjarnir mundu kalla
slík fjárútlát mútur og minna á, að
æ sér gjöf til gjalda. Albert er vissu-
lega einstakur um margt. Þannig
hefur enginn íslenskur stjórnmála-
maður á undan honum játað að
hafa stundað þesskonar pólitík og
því síður státað af því. Sennilega er
það bæði leyfileg og rökrétt álykt-
un, að Borgaraflokkurinn hefði
orðið stærri, ef Albert hefði haft
meira almannafé til úthlutunar.
Hafskipsmálið er hiklaust
stærsta málið, sem lögreglumaður-
inn Hallvarður Einvarðsson hafði
til meðferðar í því embætti sínu. Ef
allt hefði farið fram eins og lög gera
ráð fyrir, hefði hann vísað því til
annars manns, ríkissaksóknara,
sem hefði skoðað málið og tekið
síðan ákvörðun um ákæru eða nið-
urfellingu saksóknara í samræmi
við þau gögn, sem Hallvarður hafði
fram að færa.
En hvað skeður? Skipunarvaldið
flytur Hallvarð í stól ríkissaksókn-
ara, og úr honum dæmir hann nú
um eigin verk sem lögreglumaður
og gefur út ákæru á hendur ýmsum
mönnum. Margt venjulegt fólk
varð hissa þegar Albert vantaði en
hefur þá kannski gleymt því, að Iög-
reglumaðurinn Hallvarður, sem Al-
bert fjármálaráðherra hafði áður
gaukað að 600 þúsund krónum,
hafði, um það leyti, sem lögreglu-
maðurinn tók við gaukinu, sýknað
hinn „alkunna heiðursmann“ af
öllum ákærum. Það var sem sé fyr-
irfram vitað, að í gögnunt Hallvarðs
lögreglumanns mundu engin gögn
fyrirfinnast um sekt Alberts fyrir
nokkurn ríkissaksóknara að skoða.
Eru íslendingar virkilega rúnir öllu
velsæmi?
Verjendum ákærðu finnst öll
þessi málsmeðferð tortryggileg.
Þeir vilja fá að tala við Hallvarð og
Albert fyrir dómi og spyrja þá
hvernig þetta allt saman sé í pottinn
búið, en dómarinn bregður yfir þá
skildi; ríkissaksóknari og þing-
flokksformaður Borgaraflokksins
þurfa ekki að svara spurningum
verjenda um hlutleysi ríkissaksókn-
ara. Venjulegu fólki finnst, að þeir
þurfi að svara.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Byggingardeildar óskar eftir tilboöum í byggingu
tveggja fullbúinna húsa það er hverfisbækistöð
Gatnamálastjóra við Jaðarsel.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí-
kirkjuvegi 3 Reykjavík gegn kr. 15.000,- skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginn 11. júní nk. kl. 14.
Ný alnæmisveira á leiðinni
Ný alnæmisveira hefur borist til
Evrópu og veldur læknum og öðr-
um sérfræðingum miklum áhyggj-
um. HIV 2 hefur Luc Montaignier,
hinn þekkti, franski vísindamaður
kallað nýju veiruna. Þessi nýja veira
er ólík þeirri gömlu, en hefur sams
konar áhrif og veldur sjúkdómin-
um alnæmi.
Nýja veiran var fyrst greind með
vissu hjá alnæmissjúklingum í Vest-
ur-Afríku. Luc Montaignier sagði í
nýlegri blaðagrein í blaðinu „Nat-
ure“ að 1-2 prósent íbúanna í
nokkrum Vestur-Afríkuríkjum
væru smitaðir af HIV 2 veirunni.
En nú hefur einnig tekist að finna
HIV 2 veiruna hjá eyðnisjúklingum
í Frakklandi, Englandi, Vestur-
Þýskalandi og Ítalíu og Montaigni-
er sagði að það sé aðeins tímaspurs-
mál hvenær hún berst til hinna
landanna 92, þar sem eyðniveiran er
sannanlega til staðar.
Vandinn er hins vegar sá að ekki
er hægt að finna HIV 2 veiruna með
sams konar prófi og HIV 1. I Dan-
mörku, sem og í öðrum Evrópu-
Sparisjóðir á S-Reykjavíkursvæðinu:
Greiðslureikningur
- ný þjónusta
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Sparisjóður vélstjóra,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður
Hafnarfjarðar og Sparisjóðurinn í
Keflavík, hafa tekið upp nýja þjón-
ustu fyrir viðskiptavini sína —
Greiðslureikning.
Þessi þjónusta er í því fólgin að
viðskiptavinurinn greiðir jafnar
greiðslur mánaðarlega inn á
Greiðslureikning og sparisjóðurinn
sér síðan um að greiða alla þá reikn-
inga sem hann óskar. Fari útgjöld
einstakra mánaða fram úr inn-
stæðu á Greiðslureikningi veitir
sparisjóðurinn honum yfirdráttar-
lán.
Greiðslureikningur sparisjóðsins
er nýjung hér á landi og getur h ann
í framtíðinni sparað tíma og fyrir-
höfn viðskiptavinarins. Með því að
nota Greiðslureikning fær við-
skiptavinurinn betra yfirlit yfir
fjármál sín, heimilisbókhaldið
verður í lagi, auk þess sem hann get-
ur jafnað útgjöldunum niður á allt
árið.
Til að stofna Greiðslureikning
þarf viðskiptavinurinn að hafa
launareikning í sparisjóðnum,
þ.e.a.s. fá reglulega greidd laun inn
á reikning þar, eða tryggingabætur,
sé ekki um laun að ræða.
líta á lífið
sem leik.
Ábyrgöin er okkar -
fulloröna fólksins.
IUMFEROAR
Irað
SVR auglýsir eftir
vagnstjórum
til sumarafleysinga við akstur strætisvagna á
tlmabilinu júní-ágúst.
Umsækjendureru beðniraðsnúasérsem fyrst til
eftirlitsmanna ( stjórnstöð SVR að Hverfisgötu
115.
Strætisvagnar Reykjavíkur.
löndum eru sérfræðingar önnum
'tafnir við að finna auðvelda próf-
unaraðferð. Fyrsta stigið er að finna
mótefni gegn veirunni, á sama hátt
og gert er við rannsóknir á HIV 1.
Hvítblœði einnig
írannsókn
Á lyfjafræðistofnun danska rík-
isins hefur dr. Bent Faber Vester-
gárd yfir lækni tekist að finna próf-
unaraðferð sem sýnir strax hvort
HIV 1, eyðniveiran gamla, er í blóð-
inu. Mótefni myndast ekki fyrr en
nokkrum vikum eftir smitun, svo
að maður sem hefur smitast af
eyðni getur fengið neikvæðar nið-
urstöður úr eyðniprófi.
Þá er enn ein hættuleg veira talin
vera á leið til Vesturlanda. Hún
gengur undir nafninu HTLV 1,
veldur blóðkrabba og hefur fram
að þessu aðeins fundist í sumum
landshlutum í Japan, þar sem hvít-
blæði er algengt. Nú hefur þessi
veira skotið upp kollinum víðar og
þá helst í tengslum við eyðni. Meðal
annars hefur hún fundist á Ítalíu á
meðal eiturlyfjaneytenda.
Fjárfrekar rannsóknir
Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku
segja í nýrri skýrslu að þessi veira
muni að líkindum breiðast út um
Evrópu ásamt með eyðniveirunni.
Yfirleitt má reikna með að það
komi sífellt fram nýjar veirur og
veiruafbrigði í ætt við þær sem nú
eru þekktar, en sem krefjast nýrra
greiningaraðferða.
Þess vegna er það mjög mikil-
vægt að búa vel að rannsóknar-
starfsemi og slaka hvergi á í leitinni
að hættulegum veirum og aðferð-
um til að geta greint þær fljótt og
vel. Slíkar rannsóknir eru kostnað-
arsamar og tímafrekar, en alveg
lífsnauðsynlegar, segir í skýrslunni.
Utanríkisráðuneytið:
Minnir á
vegabréfsáritun
til Frakklands
Utanríkisráðuneytið vill að
marggefnu tilefni minna á að ís-
lendingar þurfa að hafa vegabréfs-
áritun til Frakklands við komu
þangað. Áritun fæst yfirleitt ekki á
íandamærastöðvum eða á frönsk-
um flugvöllum.
Sækja ber um áritun til franska
sendiráðsins, Túngötu 22, 101
Reykjavík, sími (91) 17621. Opnun-
artími 9—12 og 13:30—17:30,
mánudaga til föstudaga. Af-
greiðslutími fyrir áritanir er tveir til
þrír virkir dagar.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Pósthon 878 — 101 Reykjavik
Lausar stöður
við Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Sérfræðingar í gróðurnýtingu
Aðalverkiðeru rannsókniráframleiðslugetu beiti-
landa og nýtingu þeirra. Æskilegt er að umsækj-
endur hafi unnið að slíkum rannsóknum og að
gerð reiknilíkana.
Sérfræðingur í fóður-
og næringarfræði einmaga dýra
Starfið felst m.a. í fóður- og fóðrunarrannsóknum
á sviði loðdýraræktar, fiskeldi og svínaræktar.
Tilraunastjóri að tilraunastöðinni
Stóra Ármóti í Hraungerðishreppi
Tilraunastjórinn skal vera sérmenntaður í fóður-
fræði. Áherslur í starfi tengjast einkum fóðrun
mjólkurkúa.
Umsóknir um ofangreindar stöður ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf skulu sendast
landbúnaðarráðuneytinu fyrir 1. júlí 1987.
Landbúnaðarráðuneytið
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla:
Við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi, kenn-
arastöður ( islensku, ensku, eðlisfræði, stærð-
fræðigreinum, tölvufræði. Einnig hlutastarf (fé-
lagsfræöi, líffræði, heilsugæslugreinum, lög-
fræði, matreiðslu og tónmennt.
Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, kenn-
arastöður i ensku, dönsku, líffræði, efnafræði,
eðlisfræði, verslunargreinum, rafmagnsfræði,
málmsmfði, sérgreinum vélstjórnarbrautar,
þýsku, stærðfræði og félagsfræði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavik fyrir 5. júní næst-
komandi.
Menntamálaráðuneytið.
Alþýðuflokksfélag
Hafnarfjarðar
Fundurverður f félaginu fimmtudaginn 21. maí kl.
20.30 í Alþýðuhúsinu.
Gestur fundarins verður Jón Baldvin Hannibals-
son og fjallar um úrslit kosninganna og stjórnar-
myndunarviðræður.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin