Alþýðublaðið - 06.06.1987, Side 3
Laugardagur 6. júnl 1987
3
Gjaldskrá Lögmannafélags ís-
lands hækkaði um 18,43% 1. júní.
Með þessari hækkun hefur gjald-
skráin hækkað um tæp 40% frá því
í ársbyrjun í fyrra. Síðast hækkuðu
taxtar lögmanna í mars, um 3%.
„Það er vissulega óheppilegt þeg-
ar svona stórt stökk kemur, en þessi
hækkun er í fullu samræmi við
launaþróun í landinu", sagði Haf-
þór Ingi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Lögmannafélags íslands að-
spurður um hækkunina.
Við útreikninga gjaldskrárinnar
er tekið mið af fjórum þáttum:
1) Miðað er við laun lögfræðinga í
ákveðnum launaflokki hjá BHM.
Þessi liður hefur 50% vægi. 2) Laun
skrifstofumanns í ákveðnum taxta
hjá VR hefur 25% vægi. 3) Verð á
bensíni hefur 12,5% vægi. 4) Verð-
þróun húsaleigu hefur einnig 12,5 %
vægi.
Hafþór Ingi sagði að ekki gæfist
nógu vel að meta launaþættina með
þessum hætti og væri rætt um það
í Lögmannafélaginu að miða frekar
við Iaunavísitölu. Tillaga þess efnis
verður líklega borin upp á næsta
fundi í félaginu. Þegar Alþýðublað-
ið spurðist fyrir um gjaldskrár-
hækkun í fyrra fengust einnig þau
„Fólk gefst upp á því að gera samkomulag
við menn sem aldrei taka það alvarlega"
segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, um þverbrotin loforð ríkisstjórnarinnar varðandi
verðlagsþróun hjá hinu opinbera.
„Ég treysti því að forsætisráð-
herra taki þetta erindi alvarlega og
sinni því, þó svo að hann sé bæði að
fara til útlanda og mynda ríkis-
stjórn“, sagði Ásmundur Stefáns-
son, forseti Alþýðusambandsins í
samtali við Alþýðublaðið í gær. Ás-
mundur skrifaði forsætisráðherra
bréf s.l. fimmtudag og krafðist þess
að ríkisstjórnin færði verðlagsmál
hins opinbera til samræmis við gef-
in skrifleg loforð frá því í desember-
samningunum.
í bréfinu segir að opinber þjón-
usta hafi hækkað tvöfalt á við al-
menna verðlagsþróun í landinu frá
þvi desembersamningarnir voru
gerðir. Þetta gengur þvert á skrifleg
loforð ríkisstjórnarinnar frá sama
tíma. Ásmundur telur að verðlag á
opinberri þjónustu hafi hækkað
um 20% á þessum tíma á meðan al-
mennt verðlag hækkaði um 10%.
Inn í þessi 20% er þó ekki tekin
24% hækkun á áfengi og tóbaki.
Ásmundur bendir einnig á að ekki
séu öll kurl komin til grafar, og Ijóst
sé að opinberar hækkanir geti farið
í 22% ef t.d. aðrar hitaveitur fara að
dæmi Hitaveitu Reykjavíkur. En
hvað getur Alþýðusambandið gert
þegar það stendur frammi fyrir
þverbrotnum loforðum í þessum
efnum:
„Alþýðusambandið treystir því
fyrst og fremst að þrýstingur al-
mennings á stjórnmálamennina
veiti þeim það aðhald að þeir sjái
sig tilneydda að standa við loforð
sín“, sagði Ásmundur. „Það er líka
alveg ljóst að ef stjórnmálamenn
þverbrjóta loforð, þá gera þeir skref
fyrir skref erfiðara um vik að hægt
sé að gera við þá nokkuð samkomu-
lag. Fólk hlýtur náttúrlega að gefast
upp á því að gera samkomulag við
menn sem aldrei taka það alvar-
lega“
svör að breyta ætti viðmiðunarþátt-
unum varðandi launaliðina.
„Það hefur oft borið á launa-
skriði sem þessir liðir hafa ekki
mælt og ég býst við að fljótlega
verði tekin ákvörðun um að mæla
launaliðina eftir launavísitölu“,
sagði Hafþór.
Keflavíkur-
ganga í dag
Tíunda Keflavíkurgangan fer
fram í dag. Lagt verður af stað
frá Keflavík upp úr kl. 8 og
gengið sem leið liggur til
Reykjavíkur og niður á Lækjar-
torg. Áð verður á mörgum stöð-
um á leiðinni og að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Samtökum herstöðvaandstæð-
inga, sem skipuleggja gönguna.
Áð verður í Vogum, Kúagerði,
Straumi, Hafnarfirði og Kópa-
vogi og verða flutt ávörp og
skemmtiatriði á þessum stöð-
um, svo og á Lækjartorgi þegar
göngufólk kemur þangað i
kvöld.
Rútuferðir verða farnar frá
BSÍ til móts við gönguna kl.
13.30 og 15.30.
Saltfiskur til Evrópubandalagsríkja:
Toiíamálin
enn í biðstöðu
íslenskir saltfiskframleiðendur farnir að ókyrrast.
— SÍF þurfti aö leggja fram tryggingu fyrir greiðslu
á tollum vegna 800 tgnna saltfisksfarms sem
skipað var upp á Ítalíu í síðustu viku.
Evrópubandalagið hefur enn
ekki samþykkt viðbótarkvóta fyrir
saltfisk til aðildarríkjanna, en
31.100 tonna tollfrjáls kvóti er þeg-
ar búinn. í fyrra fékkst samþykktur
40.000 tonna viðbótarkvóti með
3% tolli. Til umræðu hjá EB er
sama magn og í fyrra, en með
3,3—5% tolli. Þessi dráttur á
ákvörðun er farin að gera íslensk-
um framleiðendum erfitt fyrir, og
þurfti SÍF m.a. að leggja fram
tryggingu fyrir tollum vegna 800
tonna saltfiskfarms sem skipað var
upp á Ítalíu í síðustu viku.
Fundir voru um tollamálin hjá
EB í Brussel í gær og fyrradag. Ekki
náðist samkomulag á þeim fund-
um. Evrópubandalagsrikin beita í
vaxandi mæli þrýstingi á fiskveiði-
þjóðir, um að þær gefi eftir fisk-
veiðiréttindi gegn tollívilnunum.
Kanadamenn og Norðmenn hafa
m.a. gengið að slíku. Ef ekki fæst
samþykktur kvóti með 3,3—5%
tollum eins og nú er til umræðu
verður líklega um að ræða almenn-
an toll, um 18%.
Skip á vegum SÍF hefur lestað
saltfisk sem skipa á upp á Ítalíu eft-
ir hálfan mánuð. Forráðamenn SÍF
munu treysta þvi að samkomulag
náist hjá Evrópubandalaginu fyrir
þann tima.
Frétt fyrir krata:
Sumarferðin '87
Laugardaginn 27. júní
Laugardaginn 27. júní mun Alþýðuflokkurinn í Reykjavík og
Reykjanesi efna til sumarferðar sem gengur undir heitinu
SUMARFERÐIN ’87
Ætlunin er að að heimsækja krata á Vesturlandi, skoða náttúr-
una og skemmta sér saman.
Ekið verður um sveitir Borgarfjarðarog Mýrar undir leiðsögn
heimamanna.
Ferðin verður auglýst nánar, en verið er að vinna að líflegri
dagskrá sem verður birt síðar í Alþýöublaðinu. Þeir sem eru
orðnir óþreyjufullir og vilja fá allar uplýsingar strax, er bent á
að hringja [skrifstofu Alþýðuflokksins í Reykjavlk í síma29244.
Öllum krötum er ráðlagt að setja rauðan hring um dagsetn-
inguna 27. júní.
Ekkert lát er á veðurbllðunni sem hellir sér yfir Reykvlkinga þessa dagana. Sólin okln þvl næst sem látlaust,
þótt af henni stafi reyndar ekki jafn miklum hita hér norður undir heimskautsbaug og sums staðar sunnar á
hnettinum. Þessa mynd tók Ijósmyndari Alþýðublaðsins I veðurbllðunni I gær. A-mynd: Róbert.
Hvalkjötsmálið:
Rikisstjórnin lýsir vonbrigðum
yfir málamiðlunarsamkomulagi
Sendiráð íslands í Bonn hefur
afhent þýska utanríkisráðuneytinu
orðsendingu, þar sem ráðuneytinu
er þakkað fyrir afskipti þess af því,
að nýlega var aflétt kyrrsetningu
hvalkjötsfarmsins í Hamborg.
Jafnframt er lýst vonbrigðum ríkis-
stjórnar íslands yfir því málamiðl-
unarsamkomulagi milli þýskra
ráðuneyta, sem lagt var til grund-
vallar við afhendingu farmsins til
Eimskipafélags íslands.
í orðsendingunni er á það bent,
að lagt hafi verið fram vottorð ís-
lenskra stjórnvalda, sem ríkisstjórn
íslands hljóti að ætlast til að vin-
veittar ríkisstjórnir virði. Valdi það
miklum vonbrigðum að slíkt hafi
ekki verið gert.
Þessu næst er bent á, að hvorki
hafi umrædd sending átt að fara á
markað í Þýskalandi, né hafi átt að
flytja hana yfir þýskt landsvæði.
Eingöngu hafi átt að umskipa
henni í japanskt skip í frihöfn. Um
slíka höfn hljóti, að áliti íslendinga,
að gilda sú regla að svæðið sé, i
lagalegum skilningi, ekki innan
landamæra hlutaðeigandi ríkis og
afskipti af vörusendingum þar
hljóti því að takmarkast við að
forða hættuástandi. Nú hafi hins
vegar komið í Ijós, að þýsk stjórn-
völd telji sig geta beitt öllum þýsk-
um lögum og reglugerðum um
vörusendingar í fríhöfnum og jafn-
framt geti einstakir hópar fram-
kvæmt þar sínar „rannsóknir".
Þessar staðreyndir hljóti óhjá-
kvæmilega að vekja vissa athygli
skipafélaga.
Loks segir í orðsendingunni, sem
afhent var í Bonn, að með hliðsjón
af því, sem þar hafi verið rakið, sé
það skoðun ríkisstjórnar íslands,
að hvorki sé réttmætt að íslenska
skipafélagið né eigandi farmsins
þurfi að bera geymslukostnað í
Hamborg eða aukakostnað vegna
viðbótarflutnings.