Alþýðublaðið - 06.06.1987, Side 7
Laugardagur 6. júní1987
7
I dag klukkan 14.00 verður opnuö sýning I Sjóminjasafni íslands i Hafnarfiröi, sem byggir á riti Lúðvíks
Kristjánssonar „Islenskum sjávarháttum", sem nú er komið út I heild sinni. Sýningin kallast „Árabátaöldin".
Teikningar, Ijósmyndir og textar eru úr „íslenskum sjávarháttum" en munir úr sjóminjadeild Þjóðminjasafnsins
og frá ýmsum velunnurum safnsins.
Ársrit Kvenréttindafélags ís-
lands, 19. júní, er komiö út í 37.
skipti. Efni blaðsins er sem fyrr
helgað málefnum jafnréttis milli
kvenna og karla og kennir að þessu
sinni margra grasa í því efni.
„Ég hlakka til þess dags..í‘ er fyr-
irsögn á forsíðuviðtali við forseta
íslands, frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur. í Iöngu og skemmtilegu viðtali
ræðir Rannveig Jónsdóttir við for-
setann um uppvaxtarárin, um hvað
hún telur hafi mótað persónu sína
mest, um viðhorf sín til þjóðernis-
ins, til kvenna og ótal margt fleira
forvitnilegt.
Það er ekki á hverjum degi sem
forseti landsins veitir tímariti einka-
viðtal, en 19. júní hefur að því leyti
sérstöðu að þetta er í annað skipti
sem blaðið birtir við frú Vigdísi við-
tal frá því hún settist í forsetastól
fyrir sjö árum.
íþróttir og konur eru að öðru
leyti það efni sem á stærstan hlut í
blaðinu. Velt er upp spurningunni
hvort jafnrétti ríki á vettvangi
íþróttanna. Rætt er við fjölda af-
rekskvenna sem leggja stund á
keppnisgreinar nú, svo og sund-
stjörnuna Hrafnhildi Guðmunds-
dóttur sem gerði garðinn frægan
fyrir 15-20 árum.
„Ef Bjarni Fel væri kona..í‘ heitir
ein nokkurra greina í þessum efnis-
flokki og fjallar um þátt fjölmiðla
í þeirri mynd sem almenningur fær
af íþróttum kvenna.
Af öðru efni má nefna viðtöl við
þær Jórunni Viðar tónskáld og Val-
borgu Bentsdóttur kvenréttinda-
kempu í marga áratugi. Margrét
Heinreksdóttir fréttamaður rekur
þær breytingar sem orðið hafa á
stöðu kvenna í stjórnmálum frá því
í síðustu alþingiskosningum og
spyr: „Er V það sem við viljum?“
Jafnframt svara 7 valinkunnir ein-
staklingar spurningunni hvaða leið-
ir séu vænlegastar til að konum
fjölgi á þingi.
I blaðinu er skrifað um kvení-
mynd auglýsinga, um nýleg leikrit
eftir konur og um bækur, líkt og
venja er. Margt fleira er að finna í
blaðinu enda ritið 100 bls. og stærra
en nokkru sinni áður. Það er lit-
prentað að hluta og vandað hefur
verið til útlits þess í hvívetna. Þá
hlið annaðist Þórhildur Jónsdóttir
auglýsingateiknari, en ritstjóri
blaðsins er Jónína Margrét Guðna-
dóttir.
Upplag 19. júní hefur verið nær
tvöfaldað að þessu sinni og í fyrsta
skipti verður blaðinu nú dreift mun
víðar en hingað til. Það verður fá-
anlegt í öllum blaðsölustöðum og
bókabúðum um land allt og á
Réykjavíkursvæðinu og víða út á
landi verður blaðið einnig boðið í
lausasölu af blaðsölufólki.
Psoriasis —
sjúklingar
Ákveðin er ferð fyrir psoriasis-sjúklinga
20. ágúst n.k. til eyjarinnar Lanzarote á
heilsugæslustöðina Panorama. Þeir sem
hafa þörf fyrir slíka ferð snúi sér til húð-
sjúkdómalækna og fái vottorð hjá þeim.
Sendið það merkt nafni, heimilisfangi,
nafnnúmeri og síma til Tryggingastofn-
unar ríkisins Laugavegi 114 3. hæð.
Umsóknir verða að berast fyrir 1. júlí.
Tryggingastofnun ríkisins.
Auglýsing um starfslaun
listamanns
Skv. samþykkt borgarstjórnar hinn 22. janúar s.l.
verðaveitt þriggjaárastarfslaun til listamannsfrá
1. septmeber n.k.
Starfslaunin skulu kunngerð á afmælisdegi
Reykjavíkurborgar 18. ágúst n.k. og skulu þau
nema sömu fjárhæð og starfslaun „Borgarlista-
manns“, sem valinn er árlega. Greiðsla starfs-
launa hefst 1. september 1987 og lýkur 31. ágúst
1990. Orlofsgreiðslaerinnifalin í mánaðarlaunum
og ólögbundin launatengd gjöld greiðast ekki af
starfslaunum. Lífeyrissjóðsgjöld greiðast til
Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda eða þess llfeyris-
sjóðs annars innan SAL, sem starfslaunaþegi
óskar eftir.
Þeir einir listamenn koma til greina við veitingu
starfslauna, sem þúsettir eru í Reykjavlk og að
öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir, sem ekki geta
stundað listgrein sína sem fullt starf.
Listamennirnir skulu í umsókn skuldbinda sig til
að gegnaekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta
starfslaunanna.
Að loknu starfslaunatímabili skal starfslaunaþegi
gera grein fyrir starfi slnu með greinargerð, fram-
lagningu, flutningi eða frumbirtingu verka eftir
nánara samkomulagi við menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar hverju sinni. Ekki er gert ráð
fyrir sérstakri greiðslu frá borgarsjóði fyrir flutn-
ing eða sýningu skv. framanskráðu, en borgar-
sjóður fær ekki hlutdeild í höfundarrétti lista-
manns, sem starfslauna nýtur.
Hérrheðerauglýst eftirumsóknum um starfslaun
listamanna til þriggja ára skv. framanskráðu. Um-
sóknum fylgi upplýsingar um náms- og starfsferil
og fyrirhuguð verkefni.
Skal umsóknum SKiiao tn menningarmálanefndar
Reykjavíkurborgar, Austurstræti 16 fyrir 30. júnl
n.k.
Borgarstjórinn í Reykjavík
29. mai 1987
Sveinn Egilsson hf.
tekur í notkun
nýjan sýningarsal
Laugardaginn 6. júní n.k. tekur
Sveinn Egilsson hf. í notkun nýjan
og glæsilegan sýningarsal fyrir nýja
bíla. Sýningarsalur þessi er í ný-
byggingu fyrirtækisins við Skeif-
una. — Húsinu hefur verið gefiö
nafnið FRAMTÍÐ.
Ágötuhæðhússinseru.þ.b. 1300
mJ sýningarsalur fyrir nýja bíla auk
700 m2 rýmis fyrir notaða bíla.
Öll sölustarfsemi Ford, Suzuki
og Fiat umboðanna flyst nú í þetta
nýja hús, en varahluta-, viðgerða-
þjónusta og skrifstofur verða áfram
í Skeifunni 17.
tímaleysi
í umferðinni.
Þaö ert ýií. sem
situr undir stýri.
UMFEROAR
Laust starf
bæjarstjóra
Hérmeðerauglýst laust til umsóknarstarf bæjar-
stjóra á Akranesi.
Frekari upplýsingar um starfið veita Ingimundur
Sigurpálsson bæjarstjöri, (sími 93—11211) Ingi-
björg Pálmadóttir, forseti bæjarstjórnar
(sími 93—11818)
Umsóknarfrestur er til 4. júlí n.k.
Bæjarstjóri.
Nýbýlavegur — Forval
Bæjarráð Kópavogs áformarað Ijúkaáárinu 1987-
1989 gerð Nýbýlavegar frá stöð ca. 0 + 500, vest-
an Birkigrundar, að stöð ca. 1 + 526 við Astún.
Verkið felst í því að fullgera aðalveginn, sem er
tveggja akgreina gata, á nefndum kafla, ásamt
gatnamótasvæðum vegarins við Birkigrund/
Hjallabrekku og Furugrund/Túnbrekku, auk gerð-
ar húsagötu milli Hjallabrekku og Túnbrekku og
frá Lundarbrekku að húsum nr. 80-86 allt með til-
heyrandi lögnum, köntum, stoðveggjum, útskot-
um, undirgöngum og umferðarleiðurum, sbr. nán-
ari lýsingu í forvalsgögnum. Verkið skal unnið I
þeirri röð, og að því staðið á þann hátt, sem gert
er ráð fyrir í forvalsgögnum.
Með forvali þessu gefur bæjarráð Kópavogs verk-
tökum kost á að leiöa rök að fjárhagslegri og
tæknilegri getu sinni til þess að framkvæma um-
rætt verk á fullnægjandi hátt. Að afloknu forvali
mun bæjarráð Kópavogs velja þá aöila, sem gef-
inn verður kostur á að taka þátt í lokuðu útboði
um nefnt verk.
Nánari upplýsingar um verkið verða afhentar í for-
valsgögnum á tæknideild Kópavogs fram til kl. 12
þann 10. júní n.k.
Forvalsgögnum með umbeðnum upplýsingum
skal skilaátæknideild Kópavogskaupstaðarfyrir
kl. 12 þann 16. júní n.k.
Þeir verktakar, sem bæjarráð velur að afstöðnu
forvali, munu fá útboðsgögn afhent þann 19. júní
1987.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.
fLAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Útideildin í Reykjavík
Við erum að leita að karlmanni I leitar- og vett-
vangsstarf með unglingum í Reykjavík. Um er að
ræða tæplega 70% starf í dag- og kvöldvinnu.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi
með unglingum og/eða menntun á sviði féiags-
og uppeldismála.
Umsóknarfrestur er til 18. júní.
Nánari upplýsingar um starfið gefum við I síma
20365 virka daga kl. 9-17.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavlkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð á sér-
stökum eyðublöðum sem þar fást.