Alþýðublaðið - 17.06.1987, Side 1
Fulltrúi hjá Borgarfógeta:
SEKUR UM ÖLÖGMÆTAINNHEIMTU?
Hringdi í fólk og hótaði vörslusviptingu. 2.500 krónur fyrir símtalið. Jón Oddsson
hrl.: Ólögmætt. Engin gjaldskrá fyrir vörslusviptingu! Á að vera innifalin í
fjárnámskostnaði.
Ólafur Sigurgeirsson, fulltrúi hjá
Borgarfógetaembættinu í Reykja-
vík, hefur fengið greiddan vörslu-
sviptingarkostnað hjá Sigurmari K.
Albertssyni innheimtulögmanni, en
þessar greiðslur munu ekki vera
skráðar hjá embætti Borgarfógeta.
Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður
rekur um þessar mundir mál í rétt-
arkerfinu, þar sem nafn Ólafs hefur
blandast inn með þessum hætti.
Samkvæmt upplýsingum Al-
þýðublaðsins, hefur Olafur hringt í
fólk og gefið því kost á að greiða
skuldir sínar vegna ógreiddra af-
notagjalda Ríkisútvarpsins, hjá
Sigurmar Albertssyni, en hótað
vörslusviptingu sjónvarpstækis að
öðrum kosti. Fyrir hvert einstakt
mál af þessu tagi hefur Ólafur feng-
ið greiddar 2.500 krónur sam-
kvæmt kvittunum sem Sigurmar
lagði fram við rannsókn málsins.
Jón Oddsson telur þetta athæfi
Ólafs ólögmætt, og sagði í samtali
við Alþýðublaðið að engin gjald-
skrá væri til vegna vörslusviptinga
og sá kostnaður sem af slíku hlytist
ætti að vera innifalinn í fjárnáms-
kostnaði.
Mál það sem hér um ræðir er angi
af öðru máli, sem snýst, að sögn
Jóns Oddssonar, fyrst og fremst um
lögmæti þeirra aðferða sem nú eru
viðhafðar við innheimtu afnota-
gjalds Ríkisútvarpsins. Þessari inn-
heimtu er nú þannig háttað að Sig-
urmar K. Albertsson, innheimtu-
lögmaður fær til lögfræðilegrar
meðferðar þær kröfur sem ekki
greiðast innan ákveðinna tíma-
marka. Jón Oddsson hefur fyrir
hönd skjólstæðings síns kært þessa
innheimtuaðferð og telur að af-
notagjöldin eigi í staðinn að inn-
heimta með sama hætti og t.d. van-
goldna skatta, enda séu þessi gjöld
lögveðs- og lögtakskræf beint, án
Ákvarðanir heim í hérað:
Þróunarfélög í
kjördæmunum
Þróunarfélag íslands hefur
ákveðið að beita sér fyrir því að
stofnuð verði sérstök þróunarfélög
í kjördæmum landsins nema í
Reykjavík. Hlutverk þessara félaga
verður m.a. að veita fjárfestingar-
lán til framkvæmda í viðkomandi
landshluta og segjast forráðamenn
Þróunarfélagsins gera sér vonir um
að með þessu verði lagður grunnur
að því að færa ákvarðanir um fjár-
festingar út í þá landshluta þar sem
fjárfestingin á sér stað.
í frétt frá Þróunarfélaginu segir
ennfremur að ekki verði þó farið af
stað með slík félög nema áhugi
reynist vera fyrir hendi í landshlut-
anum. Er ætlunin að Þróunarfélag
íslands leggi fram og eigi 20% aðild
að þessum landshlutafélögum.
Reiknað er með að hlutafé hvers
Iandshlutafélags verði ekki undir 15
milljónum króna, en Þróunarfélag
íslands hyggst ábyrgjast allar lán-
tökur landshlutafélaganna, sem
gerir það að verkum að unnt verður
að komast af með minna hlutafé en
ella.
Gleðilega þjóðhátíð
í dag er 17. júní, þjóðhátíðar-
dagur Islendinga og lýðveldið er
43 ára. Hátíðahöld verða með
hefðbundnu sniði um allt land.
I Reykjavík leggur forseti ís-
lands Vigdís Finnbogadóttir,
blómsveig að styttu Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli og
forsætisráðherra flytur ávarp.
Það er orðið ljóst að sá forsætis-
ráðherra sem flytur\ávarpið að
þessu sinni heitir Steingrímur
Hermannsson.
Fjallkona ávarpar líka sam-
komuna á Austurvelli, en að
henni lokinni verður messað í
Dómkirkjunni. Síðari hluta
dagsins verður dagskráin svo
með léttari blæ. Skrúðgöngur
verða farnar og skemmtidag-
skrá í miðbæ Reykjavíkur. í
kvöld verður svo kvöldskemmt-
un á Lækjartorgi og tónleikar
verða einnig haldnir í Laugar-
dalshöll.
Eitthvað svipaða sögu mun
vera að segja af öðrum stöðum á
landinu. Þjóðhátíðardagurinn
verður að venju hátíðlegur hald-
inn um allt land. Svo er eftir að
vita hvernig veðurguðirnir
bregðast við hinum árvissu há-
tíðahöldum að þessu sinni, eða
hvort þeir yfirleitt muna eftir
þjóðhátíðinni okkar. En hvort
heldur sem kann að rigna á okk-
ur í dag, eða sólin brosir sínu
blíðasta af heiðum himni, þá
óskar Alþýðublaðið Iesendum
sínum gleðilegrar þjóðhátíðar.
þess að dómur þurfi að ganga í mál-
inu.
Að Iáta innheimtulögmann ann-
ast innheimtu afnotagjaldanna hef-
ur að sjálfsögðu í för með sér stór-
aukinn kostnað fyrir gjaldandann,
þar sem innheimtulögmenn taka
þóknun samkvæmt gjaldskrá lög-
mannafélagsins.
Ólafur Sigurgeirsson, fulltrúi hjá
Borgarfógeta, blandast inn í þetta
mál með þeim hætti að þegar rann-
sóknarlögreglan hafði málið til
meðferðar í vetur var Sigurmar K.
Albertsson beðinn um nánari skýr-
ingar á fógetakostnaði sem fram
kom í reikningum hans. Sigurmar
framvísaði þá reikningi með haus
Borgarfógetaembættisins og kvitt-
uðum af Ólafi Sigurgeirssyni.
Reikningur þessi náði yfir 12
greiðslur á 2.500 kr. hverja, eða
samtals 30.000 krónur. Samkvæmt
heimildum Alþýðublaðsins eru
þessir peningar ekki bókfærðir hjá
fógetaembættinu og hljóta því að
hafa runnið til Ólafs persónulega.
Heimildir Alþýðublaðsins herma
ennfremur að sú vinna sem Ólafur
innti af hendi fyrir þessar greiðslur
hafi verið fólgin í því að hringja í
viðkomandi gjaldendur og hóta
þeim vörslusviptingu sjónvarps-
tækis ef skuldin yrði ekki greidd
innan ákveðins tímafrests.
Rannsókn málsins lauk hjá rann-
sóknarlögreglu fyrr í vetur og bíður
það nú ákvörðunar um frekari
málsmeðferð hjá embætti ríkissak-
sóknara.
Alþýðublaðið náði ekki tali af
Ólafi Sigurgeirssyni í gær, en Sigur-
mar K. Albertsson sagði í stuttu
samtali að hann teldi fjarri því að
Ólafur hefði gerst sekur um nokk-
uð ólögmætt í þessu máli. „Ólafur
stendur mjög heiðarlega að sínum
störfum“, sagði Sigurmar.
Þessa eldhressu unglinga rakst Ijósmyndari Alþýðublaðsins á I gær þar sem þau voru að vinna við að fegra
borgarlandið. Nánar tiltekið voru þau að jafna landskika sem siöan á að tyrfa yfir. Hvort við mættum taka eina
mynd? Jú, alveg sjálfsagt. A-mynd: Róbert
Stjórnarmyndun:
FORMENNIRNIR NÁÐU
SAMKOMULAGI
Viðræðunefnd flokkanna þriggja falið að gera uppkast að
málefnasamningi. Ráðherrastólarnir óútkljáðir. Ný ríkisstjórn
um helgina?
Formcnn Alþýðuflokks, Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
komust að samkomulagi um fyrstu
aðgerðir í ríkisfjármálum eftir
þriggja tíma fund í gær. Viðræðu-
nefnd flokkanna þriggja sem
standa að stjórnarmyndun komu til
fundar síðar um daginn og ræddu
samkomulagið og færðu til bókar
ágreiningsefni flokkanna og sam-
eiginlegar lausnir formannanna, og
gerðu uppkast að málefnasamn-
ingi.
Samkomulag um fyrstu aðgerðir
er háð samþykki þingflokkanna en
búist er við að samkomuiagið hljóti
jákvæða afgreiðslu. Þar með verð-
ur varla aftur snúið og ný ríkis-
stjórn fæðist sennilega síðar í vik-
unni eða um n.k. helgi.
Formennirnir náðu samkomu-
lagi um fyrstu aðgerðir eftir þriggja
tíma langan fund. Samkomulagið
felur í sér margar áherslubreytingar
á skattaleiðum. Skipting og fjöldi
ráðherrastóla eða/og ráðuneyta var
ekki rædd á fundi formannanna en
búist er við að formennirnir muni
funda nánar um þau mál í dag.
Náist samstaða formannanna um
ráðherrastóiana og skiptingu ráðu-
neyta er ríkisstjórn Alþýðuflokks,
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks orðin að staðreynd um helg-
ina.