Alþýðublaðið - 23.07.1987, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 23.07.1987, Qupperneq 3
Fimmtudagur 23. júlí 1987 3 Talað um fiskveið- ar — heimsfrœga hafnargerð — sundlaugarbygg- ingu og fjársöfnun — ríkisskip og stundvísi — vega- gerð og grjótvönt- un — veðurblíðu og lœknaþjónustu. „Hér í Grímsey er nánast ekkert um að vera í atvinnulífi annað en fiskveiðar. Frá eynni róa tólf eða fjórtán opnar trillur og þrír ellefu tonna dekkbátar. Einn bátur er svo þrjátíu og níu tonn, en það er algert hámark á bátstærð hér vegna hafn- araðstæðna, sem löngu eru lands- frægar.“ — Hvernig hafa bátarnir fiskað? „Það hefur verið hrein og klár hörmung undanfarið, eða eftir að handfæravertíðin hófst. En það var gott hér í vetur á þorskanetunum, og alveg fram á vor, en trillurnar skipta yfir á handfærin á vorin. Línufiskirí er hins vegar ekki stund- að hér lengur. Það eru líklega fjög- ur eða fimm ár síðan hefur verið bleytt lína. Þetta eru eingöngu orðnar handfæraveiðar og svo net- in.“ — Hafnarmálin margfrægu. Hvernig standa þau? „Jú, það er víst óhætt að segja að hafnarframkvæmdirnar urðu Iandsfrægar hér um árið! En mér skilst að það liggi fyrir loforð um fjárveitingu til hafnarframkvæmd- anna á næsta eða þarnæsta ári. Og eitthvað er verið að vinna að þessu í sumar, þannig að við erum örlítið bjartsýnni en undanfarin ár. En þetta er auðvitað löngu orðið bráð- nauðsynlegt að fá hér upp sæmilega hafnaraðstöðu. Það verður að minnsta kosti að vera hægt að frakta þennan fisk sem við erum að vinna hér. Og mér skilst að sú fjár- veiting sem búið er að lofa í þetta á næsta ári eða þarnæsta sé sæmileg upphæð. Kannski fer að rofa til. Annars er fólk hér oft búið að verða fyrir vonbrigðum í þessu máli.“ — Þið hafið lagt mikið á ykkur við að koma hér upp sundlaugar- byggingu. Hvernig gengur? „Sundlaugarbyggingin hefur ver- ið mjög ofarlega á baugi hjá okkur og það er verið að keppast við að reyna að koma henni í gagnið sem fyrst. Útvarpið stóð fyrir söfnun fyrir okkur í landi. Þetta vakti geysilega athygli og fékk skemmti- legar undirtektir hjá fólki. Það gladdi okkur mjög að finna allan þann áhuga sem fólk sýndi þessu áhugamáli okkar. Ég veit ekki ná- kvæmlega hvað það fé er orðið mik- ið sem búið er að gefa í bygginguna, en ég heyrði töluna átta hundruð þúsund fyrir ekki löngu síðan, svo að ég gæti trúað að þetta sé farið að nálgast milljón núna. Einstaka að- ilar, bæði einstaklingar og fyrir- tæki, hafa gefið stórar upphæðir. Við Grímseyingar fórum síðan á laugardaginn var, rérum á öllum bátum og unnum þann afla í landi og allir gáfu andvirði þessa dags- afla og sína vinnu þennan dag í sundlaugarbygginguna. Þetta varð reyndar enginn sérstakur afladagur, en það er sama, ætli að hafi ekki skafist saman tvö til þrjú hundruð þúsund krónur. Það verður því ör- ugglega haldið áfram að vinna við bygginguna aftur tljótlega. Við Gylfi Þ. Gunnarsson, útgerðarmaður og fiskverkandi í Grímsey: HÉR UNI MÉR VEL ættum núna að geta farið það Iangt með hana að hún komist í gagnið, þótt eigi eftir að „fínisera" eitthvað. En svona bygging er mikið átak fyr- ir ekki stærra sveitarfélag, sem stendur svona algerlega eitt pg sér. Við höfum enga samliggjandi hreppa til þess að taka á þessu með okkur. Grímseyingar eru ekki nema um 116 talsins. Svo er unga fólkið í skólum og þess háttar í landi, svo að þetta eru um eitt hundrað manns sem er hér. Einnig er alltaf eitthvað um aðkomufólk hér í vinnu.“ — En vörur og þjónusta úr landi. Er hún nógu góð? „Hún er svona þokkaleg. Við fá- um vörur með flugi hér tvisvar í viku. Ríkisskip á svo að sinna okk- ur hálfsmánaðarlega, en það vill verða nokkur misbrestur á því. En við erum að vona að þeir hressist. Ég held ég fari rétt með það, að það leið hátt í þrjá mánuði sem ekki kom skip frá Ríkisskip. En þeir hjá Flugfélagi Norðurlands hafa verið afskaplega liðlegir við okkur, að mínu áliti. Þeir hafa sinnt okkur mjög vel, flutt til okkar allar venju- legar vörur síðan Drangur hætti reglubundnum ferðum frá Akur- eyri.“ — Vegir á eynni. Eru þeir nógu góðir? „Við erum afskaplega illa settir með vegagerðina okkar, vegna þess að við höfum ekki grjót, möl né sand. Við þurfum að flytja þetta allt úr landi og steypuefnið líka og alla iðnaðarmenn. í sumar sem leið tókum við á leigu norskan bát og létum hann flytja efni til okkar. Þá var gert svolítið átak í vegamálum, en það þarf að gera miklu meira. Þetta var bara byrjunin. Þar að auki drabbast vegurinn svo niður þó að eitthvað sé gert, því það er ekkert efni fyrir hendi til þess að halda honum við og vegir hér eru fljótir að slitna, því hér eru mikið notaðar dráttarvélar sem spóla þetta sundur og saman. Varanlegt slitlag á vegi hér er eina lausnin, en það svona varla að maður sjái það fyrir.“ — Veðrið hefur þó leikið við ykkur undanfarið. „Já, veðurblíðan hefur verið alveg einstök, alveg það sem af er þessu ári. Mannlíf er hér einnig gott og heilsufar ágætt.“ — En lœknisþjónusta? „Lækni fáum við frá Akureyri einu sinni í mánuði. Og það hefur nokkurn veginn staðist að þeir hafa komið þá, en við værum ekkert á móti því að sjá þá eins og hálfsmán- aðarlega. En það myndi kannski setja þjóðarbúið á hausinn? Það virðist að minnsta kosti hafa verið stefna stjórnvalda á undanförnum árum, að drepa niður dreifbýlið, þar er allt skorið sem hægt er að skera. En hér uni ég mér vel. Ég er búinn að vera hér búsettur í ellefu ár og það er enginn órói kominn í mig ennþá.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.