Alþýðublaðið - 02.09.1987, Qupperneq 1
Kaupfélag Svalbarðseyrar:
NÆR GJALDÞROTIÐ TIL SÍS?
Kaupfélögin eiga SÍS. — Hvað á Kaupfélag Svalbarðseyrar mikið í SÍS? — Verið
er að kanna hvort eignarhluturinn er meiri en samsvarar innistæðu í stofnsjóði.
Máli Kaupfélags Svalbarðseyrar
er síður en svo lokið þótt farið hafi
fram uppboð á fasteignum félags-
ins. Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins er verið að kanna
hvort eignarhlutur kaupfélagsins i
Sambandi íslenskra samvinnufé-
laga komi til skipta. í samtali við
Alþýðublaðið í gær vildi Hafsteinn
Hafsteinsson skiptastjóri þrotabús-
ins ekki staðfesta þetta. „Þegar
svona mál eru könntið, þá á maður
ekki að byrja á því að gera það i
fjölmiðlum, en þetta er áhugaverð
spurning sem ég hef haft til skoðun-
ar,“ sagði Hafsteinn.
í þau skipti sem kaupfélög hafa
orðið gjaldþrota hefur eignarhlutur
þeirra í Sambandinu ekki verið
metinn að öðru leyti en sú inni-
stæða sem þau eiga í stofnsjóði.
Þetta mun því í fyrsta skipti sem
þeirri spurningu er alvarlega velt
fram hvort meta eigi eignarhlutann
að öðru leyti, jafnvel sem hlutfall af
innistæðu í stofnsjóði.
I dag er innistæða kaupfélag-
anna í stofnsjóði óverðtryggð en
með vöxtum. Hún getur því að mati
lögfræðinga sem Alþýðublaðið tal-
aði við, ekki gefið rétta mynd af
eign kaupfélaganna í Sambandinu.
Heimildarmenn Alþýðublaðsins
benda einnig á að forsvarsmenn
Sambandsins telji tvímælalaust
kaupfélögin vera eigendurna og því
íslendingar:
Góðir í skák
en lélegir í
öllu öðru
íslenska skáksnilldin vekur
að vonum athygli erlendis og æ
oftar eru skákir íslensku meist-
aranna umfjöllunarefni í skák-
dálkum erlendra blaða.
Fyrir um það bil viku, fjallaði
sænski skákmeistarinn Harry
Schússler um hina íslensku
kollega sína á skáksíðu Dagens
Nyheter og hældi þar Jóhanni
Hjartarsyni og Margeiri Péturs-
syni á hvert reipi. Hann taldi
hins vegar Jón L. Árnason og
Helga Ólafsson mun ójafnari.
Schússler telur Helga slæman á
taugum og segir að tapi hann
einni skák, fylgi gjarnan fleiri
töp í kjölfarið. Jón L. teflir hins
vegar skemmtilegar skákir en
tekur of mikla áhættu.
Eftir talsverðar vangaveltur
lýkur Schússler svo grein sinni
með þessum orðum: „Hver er
leyndardómurinn bak við
árangur og áhugann? Er hann
fólginn í því að næstum allir ís-
lendingar kunna mannganginn
— eða kannski því að þeir eru
svo lélegir á öllum öðrum svið-
um...?“
hljóti eignarhlutur þeirra að vera
áþreifanleg stærð.
„Eignin takmarkast við inni-
stæðu í stofnsjóði í samræmi við
lög,“ sagði Valur Arnþórsson
stjórnarformaður Sambandsins í
samtali við Alþýðublaðið aðspurð-
ur um eignarhluta kaupfélagsins.
Hann benti ennfremur á að í Sam-
bandinu eins og öðrum fyrirtækj-
um á íslandi hafi safnast eigið fjár-
magn, fyrst og fremst í gegnum
endurmat á eignum í þjóðfélagi þar
sem verið hefur mikil verðbólgu-
þróun. „Það endurmat er siðan
bundið í eignum sem ekki er hægt
að „realisera“ og fá út úr peninga.
Það er því einfaldlega þannig, að
eignin takmarkast við innistæðu í
stofnsjóði í samræmi við lög,“
sagði Valur Arnþórsson.
Á nauðungaruppboði á fasteign-
um kaupfélagsins, sem fram fór 12.
ágúst s.l., fengust aðeins 68 milljón-
ir króna upp í skuldir. Kröfur námu
um 320 milljónum. Enn á eftir að
innheimta ýmsar útistandandi
skuldir og bjóða upp lausafé.
Slysagildra fyrir börn? Hér stóð áður hús sem I daglegu tali var nefnt Fjalakötturinn og talsverðar deilur stóðu um hvort skyldi rífa eða ekki. Sú
varð þó niðurstaöan og nú stendur þarnaógirturgrunnurinn eins og sjá máog I fyrrakvöld féll fimm árabarn niður I djúpan poll I grunninum. Betur
fór þó en áhorfðist, þvi leikfélagarnir björguðu barninu upp úr. Framkvæmdir hafahins vegar verið stöðvaðar I bili og þvl ekki horfur áað aöstæöur
þarna breytist á næstunni.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Helmingi dýrari en flug-
í Bandaríkjunum!
stöð
Samanburður á kostnaði á bygg-
ingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
og nýlegrar flugstöðvar í Harris-
burg í Bandaríkjunum sýnir, að ís-
lenska flugstöðin kostar nær helm-
ingi meira á fermetrann. Flugstöð
Leifs Eirikssonar kostar 2920 doll-
ara á fermetra en flugstöðin í
Harrisburg 1840 dollara á fermetra.
Umrædd flugstöð í Harrisburg,
Pennesylvaníu er 10 þúsund fer-
metrar að stærð. Byggingu hennar
lauk í desember á fyrra ári. Alls
kostaði flugstöðin 18.4 milljónir
dollara. Áætluð umferð um flug-
stöðina er ein milljón farþega á ári.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar er 25
þúsund fermetrar að stærð, þar af
14 þúsund nýtilegir fermetrar.
Kostnaður alls við byggingu flug-
stöðvarinnar er 73 milljónir doll-
ara. Áætluð farþegaumferð um
stöðina er 750 þúsund farþegar á
ári.
Samanburður á þessum tveimur
flugstöðvarbyggingum leiðir því í
ljós að fermetrinn í flugstöðinni í
Harrisburg kostar 1840 dollara eða
71.660 ísl. kr. samkvæmt núverandi
gengi. Fermetrinn í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar kostar hins vegar 2920
dollara eða 113.880 ísl. kr. sam-
kvæmt núverandi gengi.