Alþýðublaðið - 22.09.1987, Síða 3
Þriöjudagur 22. september 1987
3
Rafmagnseftirlitið:
Vinningar dregnir
út í útvarpsþætti
Rafmagnseftirlit ríkisins efndi til
verðlaunagetraunar í tengslum við
þátttöku í sýningunni „Veröld 87,“
sem nýlokið er í Laugardalshöll.
Getraunin fólst í því að þátttakend-
ur áttu að þekkja tíu tákn eða
merki, sem algeng eru á ýmsum raf-
magnstækjum. Nær 6000 seðlar
voru fylltir út, eða nánar tiltekið
5847.
Dregið var úr útfylltum seðlum
hvern dag sýningarinnar í réttu
hlutfalli við fjölda seðla, eða um
það bil tuttugasti hver seðill, sem
reyndist réttur. bannig hafa nú ver-
ið dregnir út 300 réttir seðlar. Þessir
seðlar voru að sjálfsögðu dregnir af
handahófi, en ekki valdir, en þó vill
svo skemmtilega til, að þá hefur
fyllt út fólk frá öllum landshlutunr
að segja má, eða 30 stöðum utan
Stór-Reykjavíkursvæðisins, og
meira að segja gestur frá Kaliforníu
hefur fyllt út seðil.
Samkomulag hefur orðið unr það
við Ríkisútvarpið, að 25 vinnings-
hafar verði dregnir úr þessum 300
seðla potti i beinni útsendingu í
þættinum Laugardagsrásin nú á
laugardaginn 19. september, en
þætti þessum stjórnar Sigurður Þór
Salvarsson.
Vinningar verða síðan sendir
heim til hinna heppnu. Rafmagns-
eftirlit ríkisins þakkar áhugann og
óskar væntanl. vinningshöfum til
hamingju.
Borgarfjöröur:
Stafrænar
símstöðvar
Nýjar stafrænar símstöðvar voru
teknar í notkun í Borgarnesi og á
Hvanneyri aðfaranótt laugardags-
ins 5. september. Jafnframt var lín-
um fjölgað að miklum mun á milli
þessara stöðva og til Reykjavíkur.
Stöðvarnar að Kljáfossi og Gröf
verða stafrænar á næstu mánuðum.
Stöðin á Hreðavatni verður lögð
niður og notendasímar hennar
tengdir stöðinni í Borgarnesi.
Þessar framkvæmdir ættu að
bæta símakerfið, en þær stöðvar
sem fyrir voru önnuðu ekki vaxandi
álagi. Eins og áður segir kemst þó
ekki fullt stafrænt samband á milli
Borgarness og útstöðvanna í Borg-
arfirði og á sunnanverðu Snæfells-
nesi fyrr en nauðsynlegar breyting-
ar hafa verið gerðar.
Uppbygging stafrænna sínr-
stöðva um landið, fjölgun lína og
lagning ljósleiðara stuðla að því að
bæta símaþjónustuna.
Gerhardsen
látinn
Einar Gerhardsen, fyrrum for-
sœtisráðherra Noregs og formaður
Verkamannaflokksins, lést á
sjúkrahúsi í Osló aðfaranótt laug-
ardags.
Sem stjórnmálamaður markaði
Gerhardsen merk spor í sögu
norsku þjóðarinnar, en hann var
forsætisráðherra frá stríðslokum
1945 til ársins 1963. Gerhardsen var
formaður Verkamannaflokksins
frá 1945 til 1965.
Einar Gerhardsen var níræður að
aldri og kom síðast fram opinber-
lega á afrnœli sínu 10. maí í vor, en
þá hélt Verkamannaflokkurinn
honum hóf.
Borgaraflokkurinn:
Skipuleggur
starfsemina
á Suðurlandi
Undanfarið hefur verið unnið að
því að skipuleggja flokksstarfsemi
Borgaraflokksins í Suðurlands-
kjördæmi. Laugardaginn 12.
september sl. var haldinn stofn-
fundur félags Borgaraflokksins í
Vestmannaeyjum, en áður hafa ver-
ið stofnuð félög fyrir Árnessýslu og
Rangárvallasýslu og Vestur-Skafta-
fellssýslu. Þannig hafa þrjú félög
Borgaraflokksins í Suðurlands-
kjördæmi tekið til starfa.
Stofnfundinn í Vestmannaeyjum
sóttu um 70 manns. Um leið var
haldinn stofnfundur kjördæmis-
stjórnar Suðurlandskjördæmis og
kom hópur manna frá öllu Suður-
landi til fundarins í Vestmannaeyj-
um.
Hinar þrjár ellefu manna stjórnir
kjördæmisfélaganna á Suðurlandi
mynda yfirstjórn kjördæmisins.
Stofnfundur yfirstjórnarinnar var
haldinn um leið, og var Skúli B.
Árnason, fulltrúi hjá sýslumannin-
um í Árnessýslu, kjörinn fyrsti for-
maður yfirstjórnarinnar. Skúli er
jafnframt formaður Félags Borg-
araflokksins í Árnessýslu. Skúli
tekur sjálfkrafa sæti í aðalstjórn
Borgaraflokksins á landsfundi
flokksins þann 25.—26. september
n.k.
Almennur fundur
Atvinnumálanefnd Vestmannaeyjabæjar boöartil
almenns fundar um sjávarútvegsmál „Þróun,
staöa og horfur í fiskvinnslu í Vestmannaeyjum".
Fundurinn veróur í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyj-
um laugardaginn 26. september kl. 13:30.
Dagskrá fundarins:
Fundarsetning: Magnús H. Magnússon,
form. atvinnumálanefndar.
Framsaga: Hilmar Viktorsson,
viðskiptafræðingur.
Amennar umræður.
Fundarslit eru áætluð eigi síðar en kl. 18:00.
Atvinnumálanefnd Vestmannaeyja.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð 1987,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftireindagauns þau er
orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til við-
bótar fyrir hvern byrjaðan ma'nuð, talið fráog með
16. október.
Fjármálaráðuneytið,
18. september 1987
ST. JOSEFSSPÍTALI
Landakoti
Hjúkrunarfræöingar
sjúkraliðar
Lyflækningadeildir
Lausar eru fáeinar stöður hjúkrunarfræðinga á
lyflækningadeildum l-A og ll-A.
Einnig 3 stöður sjúkraliða.
Um litlar einingar er að ræða, þar sem ríkjandi er
góður starfsandi.
— Aðlögunarprógram.
Gjörgæsla
Á gjörgæslu eru lausar stöður hjúkrunarfræð-
inga. Góður aðlögunartími er gefinn öllu nýju
starfsfólki.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarstjórnar
i síma 19600/220.
Reykjavik 18.09.1987.
9
Heiöurslaun
jr
Brunabótafélags Islands
1988
ítilefni af 65 ára afmœli Brunabóta-
félags íslands, 1. janúar 1982, stofnaði
stjórn félagsins til stöðugildis hjá fé-
laginu til þess að gefa einstaklingum
kost á að sinna sérstökum verkefnum
til hags og hei/la fyrir íslenskt samfélag
hvort sem er á sviði lista, vísinda,
menningar, íþrótta eða atvinnulífs.
Nefnast starfslaun þess, sem ráðinn er:
Heiðurslaun
jr
Brunabótafélags Islands
Stjórn B.í. veitir heiðurslaun þessi
samkvœmt sérstökum reg/um og eftir
umsóknum. Reglurnar fást á aðal-
skrifstofu B.í. að Laugavegi 103 í
Reykjavík.
Þeir, sem óska að koma til greina við
ráðningu í stöðuna á árinu 1988 (að
hluta eða allt árið) þurfa að skila um-
sóknum til stjórnar félagsins fyrir 10.
október 1987.
Brunabótafélag Islands
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga nú þegar eða
síðar. Góð launakjör í boði. Aðstoðum með
húsnæði.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i síma
92-27151.
Dvalarheimili aldraðra Suðurnesjum.
Garðvangur
Pósthólf 100—250 Garði.
ffl) Útboð
Tilboð óskast í innréttingar rannsóknastofu í
byggingu no. 7 á Landspítalalóö.' Útboðsgögn
eru afhent á skrifstofu vorri gegn kr. 10.000.- skila-
tryggingu.
Opnun tilboða fer fram á sama stað kl. 11:00 f.h.
mánudaginn 12. októberi987.
INNKAUPASTOFNUN RIKÍSINS
eorgartuni 7, simi 25844
Slys gera ekki boð á undan sér!