Alþýðublaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 4
rminiiíiniin Þriöjudagur 22. september 1987 Eg sé eftir þessu, dæmið mig vœgt og ég\mun ekki bregðast trausti ykkar, sagði Mathias\Rust 19 ára gamall áður en dómur féll í máli hans. Hann var dœmdur í fjögurra ára þrœlkunar- vinnu. Myndin er af Mathias Rust ásamt fangaverði. Mathias Rust nítján ára piltur frá Vestur-Þýskalandi flauj> inn í rúss- neska lofthelgi án tilskilinna leyfa, lenti flugvél sinni á Kauúa Troginu í Moskvu og hefur nú verið dæmd- ur í fjögurra ára þrælkunarvinnu af dómstólum í Moskvu. Dómarinn Robert Tikhomirnov segir hann hafa framið „illkvittnis- leg strákapör", hann fékk þriggja ára dóm fyrir brot á alþjóðlegum flugreglum og tvö ár fyrir að koma ólöglega inn í Sovétríkin. Hann fær að afplána dómana samtímis, svo Rust þarf því ekki að sitja inni nema fjögur ár. Kveður fjölskyldu sína Engin svipbrigði sáust á Mathias Rust, þegar dómurinn var lesinn upp í Hæstarétti Moskvuborgar, heldur ekki þegar hann var leiddur úr réttarsalnum. Hann fékk þó leyfi til að fara aftur inn í réttarsalinn til að kveðja móður sína Moniku, föð- ur sinn Karl Heinz og bróðurinn “ingo en þau voru öll viðstödd rétt- arhöldin. Mathias brosti þegar hann gekk til móður sinnar og kyssti hana á kinnina. Tugir fréttamanna og áhorfenda fylgdust með. Rust var dæmdur í fjögurra ára „eðlilega vinnu“, en það er mildasta stig af fjórum refsistigum þrælkun- arvinnu i rússneskum hegningar- lögum. Dóminum er ekki hægt að áfrýja. Tikhomirnov dómari sagði, og lagði á það ríka áherslu að sam- kvæmt þeim sönnunargögnum sem rétturinn hafði aflað sér, kæmi skýrt fram, að flugferð Rusts hefði verið af „ævintýraþrá". Flugferð Rusts á sér engin for- dæmi í loftferðarmálum. Mikil hreinsun fór fram í stjórn varnar- mála í Sovét-Rússlandi, og var varnarmálaráðherranum Sergej Sokolov vikið úr starfi, einnig var yfirmanni loftferðaeftirlitsins Alexander Kolduno vikið úr starfi. Rust viðurkenndi sök sína í öll- um ákæruatriðum, en fann sig ekki sekan í „illkvittnislegum strákapör- um“. Flugferðin að Rauða Torginu hefði verið farin í friðsamlegum til- gangi, og að hann hefði haft hug á að ræða friðarmál við Mikhail Gorbatjov. Tikhomirnov vísaði þessum út- skýringum á bug. Hann sagði Rust aldrei hafa farið fram á að koma eftir löglegum leiðum til Sovét- Rússlands til viðræðna við þarlend yfirvöld. Ævintýramaður Dómarinn visaði til skriflegrar yfirlýsingar frá vestur-þýskum ferðamanni sem af tilviljun var staddur á Rauða Torginu þegar Rust lenti flugvél sinni. Ferða- manninum skildist á því sem Rust sagði, að flugferðina hefði hann farið í „að gamni sinu“. „Af þessu má ráða, að Rust var fyrst og fremst að þessu af ævintýraþrá," sagði Tikhomirnov dómari. Hinn opinberi ákærandi Vladimir Andrejev, lýsti því yfir áð- ur en dómurinn var fallinn, að Rust væri „óróaseggur“ og krafðist þess að hann yrði dæmdur í átta ára stranga hegningarvinnu. Verjandi Rusts Vsevolod Jakovlev, en hann er þýskumælandi Rússi, lýsti Rust sem ungum hug- sjónamanni, ef til vill ofurlítið barnalegum, sem ekki hefði gert sér ljóst hvað Rauða Torgið skipaði há- an sess í hugum rússnesku þjóðar- innar. „Njósnir voru ekki inn í mynd- inni og ekki heldur það, að hann hefði ætlað að gera sig að hetju í augum kvenna. Honum leiðast konur,“ sagði verjandinn. Rust bað um mildan dóm í loka- ræðu sinni við réttarhöldin og kvaðst ekki mundi bregðast trausti dómaranna. „Ég sé mjög eftir þess- um gerðum rnínurn," sagði Rust. Átta vitni báru það við réttar- höldin, að þau hefðu séð flugvél Rusts fljúga mjög lágt yfir Kremlar- múra og að flug hans hefði getað skapað mikla hættu fyrir fólkið, sem var á Rauða Torginu. Ennfremur lýsti sovéskur sér- fræðingur í farþegaflugi því yfir við réttarhöldin, að Rust hefði flogið þvert á flugleiðir margra flugvéla við Sjeremetyevo-flughöfnina í Moskvu, og hefði því verið mikil hætta á ferðum. (Det fri Aktuelt.) KINNOCK HEFUR SAMEINAÐ VERKA- MANNAFLOKKINN Breski Verkamannaflokkurinn aftur sameinaður undir stjórn Neil Kinnock. Neik Kinnock hefurafrekað það, sem fæstiráttu von áað hann gæti. Hann hefur sameinað Verkamannaflokkinn breska. Enda þótt breski Verkamanna- flokkurinn hafi ekki unnið kosn- ingarnar í júní síðastliónum, liggur það nú Ijóst fyrir að hann er ekki lengur klofinn. Neil Kinnock for- maður flokksins hefur komist fyrir ósamkomulagið sem var fyrir hendi meðal flokksmanna og hefur kom- ið burt þeim, sem ekki vildu sættir. Breskur verkamannaflokkur án vinstri vængs, er þó óhugsandi, og vinstri vængurinn mun fljótlega sýna fram á, að hann er sprell-lif- andi. Á ársþingi flokksins síðast í sept- ember mun vinstri vængurinn leggja fram uppástungur um breyt- ingar á stefnuskrá flokksins. Hann mun stinga upp á, að ríkisstjórn undir forustu Verkamannaflokks- ins muni þjóðnýta að nýju, öll þau fyrirtæki sem núverandi ríkisstjórn ihaldsmanna hefur verið að gera að hlutafélögum. Þessi hlutafélags „væðing" ríkisstjórnar Margrétar Thatcher var sögð vera til þess að gefa almenningi kost á að gerast hluthafar, en raunverulegi tilgang- urinn var að skapa fjárhagslegt „var“ vegna þeirra skattalækkana sem núverandi ríkisstjórn lofaði kjósendum. Á ársþinginu munu ennfremur koma fram tillögur um að ekki verði stofnað til hertari aðgerða gegn þeim sem eru lengst til vinstri í flokknum. Andstœður Ennþá eru andstæður í flokkn- um, svo miklar að þær voru á sínum tíma álitnar eyðileggingarafl sem hræddi kjósendur burt. Þetta virð- ist ekki hafa skaðað Neil Kinnock eða flokkinn sjálfan. Verkamanna- flokkurinn er óneitanlega næst- stærsti flokkurinn í Stóra-Bret- landi, og er hin eiginlega stjórnar- andstaða. Hægt er að deila um hvort það sé stjórnmálastefna flokksins sem er ástæða þess. Eitt er víst, verkamannaflokkurinn stendur betur að vígi nú, en á með- an þeir voru í samkrulli með Frjáls- lynda flokknum og svokölluðum sósíal-demókrötum, SDP, leiðtogar þeirra voru að mestu leyti komnir úr röðum óánægðra í Verkamanna- flokknum. SDP er ekki lengur við lýði. Það leystist upp í þingkosningunum í júní. Það fékk 23 prósent atkvæða, sem segja má að sé nokkuð gott þegar haft er í huga að Verka- mannaflokkurinn fékk aðeins átta prósent fleiri. Þessi úrslit voru ekki nægilega hagstæð fyrir David Steel leiðtoga Frjálslynda flokksins eða David Owen frá SDP. Vikum sam- an töluðu þeir fjálglega um stórar breytingar í breskum stjórnmálum, en svo fór að þeir töpuðu kjördæm- um í stað þess að vinna ný. Innan samtakanna varð mikið fjaðrafok og deilur um, hverjum þessi úrslit væru að kenna. í lok ágústmánaðar lýstu þessir tveir Ieiðtogar því yfir að samstarf- inu væri lokið. Neil Kinnock hefur nú sett flokksvélina í gang og undir- búningur er hafinn í þeim tilgangi að vinna næstu kosningar, sem verða í síðasta lagi eftir fimm ár. Til að það takist þarf nýjan og ferskari Verkamannallokk. Margir þekktir eldri þingmenn flokksins í Neðri- Deild breska þingsins, hafa fært sig af fremstu bekkjunum í deildinni á aftari bekki. Meðal þeirra er fyrr- verandi utanríkisráðherra Dennis Healy. Mörg ný andlit eru í hinu svokallaða „skuggaráðuneyti“ Verkamannaflokksins. Á Stóra- Bretlandi er til siðs að stjórnarand- staðan velji menn í þau embætti sem þeir myndu gegna ef um stjórn- arbreytingu yrði að ræða. Bjartsýni Neil Kinnock telur að Verka- mannaflokkurinn gæti unnið næstu kosningar ef flokkurinn slít- ur af sér bönd fortíðarinnar. Hann vill ekki, að flokkurinn verði eins- konar mýkri útgáfa af íhalds- flokknum sem hefur sigrað í þrem- ur síðustu kosningum. Hann skim- ar svolítið til hægri, því vitað er að breska ríkisstjórnin hefur fengið mörg atkvæði frá kjósendum sem ekki eru sammála stefnu ríkis- stjórnarinnar í menntunarmálum eða markvissu niðurbroti ríkis- stjórnarinnar á velferðarríkinu. Þessir kjósendur vilja gjarnan eiga þess kost að eignast íbúð, sem reist er á félagslegum grundvelli. Þeir eru líka sammála ríkisstjórninni um, að þeir sem stjórna ríkisreknu fyrirtækjunum séu orðnir svo værukærir og efnaðir, að þeim sé ekki treystandi til framkvæmda. Verkamannaflokkurinn hefur stutt eins manns kjördæmi og hann hef- ur grætt á því, en íhaldsflokkurinn hefur líka grætt á því, hann er enn við völd þó hann fái færri og færri atkvæði. Neil Kinnock hefur ekki ennþá gefið út yfirlýsingar um hvort hann vilji breytingar á kjör- dæmaskipan. Kosningar verða ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir fjögur ár og Neil Kinnock hefur nægan tíma til að koma á breytingum án þess að flýta sér um of. Ekki er talin ástæða til að ætla að breytingar verði á efna- hagspólitíkinni. Neil Kinnock held- ur sér við þá skoðun sína, að breska ríkisstjórnin haldi of laust um taumana. Hann telur að ríkis- stjórnin ætti að grípa í taumana þegar augljóst sé að það væri þjóð- inni til góðs. Menntun og félagslega þjónustu má ekki skera niður. Þessi tvö málefni leggur Verkamanna- flokkurinn ríkari áherslu á, en nokkur annar flokkur í Bretlandi. Vafamál er, hvort breskir kjósendur hafi gert sér þetta Ijóst enn sem komið er að minnsta kosti. Þetta vakti undrun Neil Kinnocks. Hann segir framtíðina tilheyra þeint, sem búa sig undir hana. Á þetta hefur hann lagt miklu ríkari áherslu en Margrét Thatcher forsætisráð- herra, en alltof fáir hafa tekið eftir því. (Det fri Aktuelt.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.