Alþýðublaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 1
Fjármögnunarfyrirtækin:
ERLENDAR LÁNTÖKUR
VERÐA TAKMARKAÐAR
vid 60—70% af heildarkostnaöi. Nýjar reglur viöskiptaráðuneyt
isins taka gildi á mánudag.
Nýjar rcglur um crlendar lántök-
ur og fjármögnunarleigusamnins>a
taka gildi á mánudaginn. Sam-
kvæmt nýju reglunum verður heim-
ildum opinbcrra stofnana til lán-
töku innanlands ekki breytt í heim-
ildir til erlendra lána, eins og tíðk
ast hefur. Lántökuheimildir sem
viðskiptaráðuneytið veitir verða
framvegis liáðar ströngum reglum
og siðast en ekki síst verður fjár-
mögnunarleigufyrirtækjum fram-
vegis ekki heimilt að fjármagna
nema 60—70% af viðskiptum sín-
um með útlendu lánsfé.
Þessar reglur voru kynntar
fréttanrönnum í gær. Jón Sigurðs-
son, viðskiptaráðherra sagði við
það tækifæri að á þessar reglur
mætti líta sent lið í samræmdum
aðgerðum ríkisstjórnarinnar í fjár-
magns- og peningamálum. Jón
sagði einnig að samráð hefði verið
haft við fjármögnunarfyrirtækin
eftir því sem unnt hefði verið, en
benti á að tíminn hefði verið naum-
ur, því tafir á framgangi mála af
þessu tagi gæfu hagsmunaaðilum
færi á fjármunatilfærslu.
Jón Sigurðsson sagði ennfremur
að það væri fyllilega tímabært að
samræma reglur á þessu sviði og
hefði mátt gerast fyrr, en ekki hefði
orðið af því af tæknilegum ástæð-
um.
Nokkrar umræður hafa orðið um
það að undanförnu hversu stór
hluti af fjármögnunarleigu sé vegna
einkaaðila. Á blaðamannafundin-
um í gær kom fram að samkvæmt
áætlunum Seðlabankans mun fjár-
mögnunarleigan að langstærstum
hluta hluta vera vegna einkaaðila.
Þó er vitað að opinberar stofnanir
hafa í einhverjum tilvikum fært sér
möguleika fjármögnunarleigunnar
í nyt.
Fjármálaráðherra beindi i gær
þeim tilmælum til ríkisendurskoð-
unar að hún kanni hvaða stofnanir
ríkisins hafa gert samninga unt
kaup- og fjármögnunarleigu á síð-
ustu tveimur árum og jafnframt
verði upplýst hvaða heimildir voru
til staðar við gerð slíkra santninga.
Fjármálaráðuneytið tilkynnti
einnig í gær að til stæði breyting á
skattalögum þannig að afnumið
verði það skattahagræði sem fram
að þessu hefur fylgt fjármögnunar-
leigunni sanranborið við aðrar fjár-
festingarleiðir.
Friörik Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvarinnar:
„Þori engu að spá um fiskverð"
„Ég þori ekki að spá því, en ég
vona að samkomulag náist um að
reyna frjálsa fiskverðið áfram til
áramóta," sagði Friðrik Pálsson
forstjóri Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna í samtali við Alþýðu-
hlaðið í gær.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
kemur saman til fundar á mánudag
og verður þar tekin ákvörðun um
hvort áfram verði haldið með
frjálsa fiskverðið eða gamla fyrir-
kontulagið tekið upp aftur.
í Verðlagsráði eiga sæti 8 fulltrú-
ar og nægir að einn sé á móti svo nái
ekki frant að ganga, fulltrúi ríkisins
er með oddaatkvæði I ráðinu.
Landsfundur Borgaraflokksins verður haldinn um helgina á Hótel Sögu I Reykjavlk. Seturétt eiga allir
flokksmenn, en ekki aðeins sérstakir fulltrúar, eins og venja er um landsfundi stjórnmálaflokka.
Landsfundurinn hefst formlega I dag, en I gærkvöldi var boðið upp á einskonar forrétt þegar haldinn var
almennur borgarafundur. Myndin hér að ofan er tekin þegar borgarar voru að tlnast I salinn undir
lúðrablæstri. A—mynd: Róbert.
Borgaraflokksmenn á borgarafundi
Einar Gerhardsen
jarðsettur í dag
Látlaus straumur Norðmanna var inn á afgreiðslur sósíaldcmó-
kratísku blaðanna nú í vikunni til að heiðra minningu Einars
Gerhardsen, fyrrum forsætisráðherra, en hann verður jarðsunginn
í dag.
Einar Gerhardsen var um langt skeið Ieiðtogi norskra jafnaðar-
manna og forsætisráöherra Noregs tvisvar sinnum í samtals ríflega
hálfan annan tug ára. Gerhardsen var fæddur 1897 og stóð því á ní-
ræðu er hann lést.
Fulltrúi íslensku ríkisstjórnarinnar við útförina í dag verður Friðrik
Sophusson iðnaðarráðherra. Fyrir hönd Alþýðuflokksins verða við-
staddir útförina þeir Hannibal Valdimarsson, fyrrverandi formaður
Alþýðusambands íslands, og Karl Steinar Guðnason alþingismaður
og varaformaður Verkamannasambandsins.
Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins sendi
norska Verkamannaflokknum eftirfarandi skeyti vegna fráfalls
Einars Gerhardsen: „Fyrir hönd okkar íslenskra jafnaðarmanna,
sendi ég norskunt jafnaðarmönnum og norsku þjóðinni dýpstu
samúðarkveðjur vegna fráfalls Einars Gerhardsen fyrrverandi
forsætisráðherra."
í samtali við Alþýðublaðið í gær sagði Jón Baldvin uin Einar
Gerhardsen: „Það stafar birta af nafni hans í sögu norrænnar
verkalýðshreyfingar. Líf hans ogstarf er lýsandi fyrirmynd kontandi
kynslóðum jafnaðarmanna um heim allan.“
SAMTOK FYRIR
SYRGJENDUR
Ráðgert er að stofna samtök
syrgjenda, sem starfi á breiðum
grundvelli fyrir þá sem hafa syrgt
og þá sem vilja hjálpa þeim sem eru
i sorg.
Á fundi áhugafólks um málefnið
á þriðjudagskvöld var stofnuð und-
irbúningsnefnd fyrir stofnfund
samtakanna. Að sögn Páls Eiríks-
sonar geðlæknis, sem um skeið hef-
ur unnið að þessum málum og m.a.
haldið námstefnur, er mjög brýn
þörf hér á landi fyrir slík samtök.
Ráðgert er að samtökin verði að
fyrirmynd breskra samtaka, Cruse,
sem eru sérstök samtök fólks þar í
landi sem vill hjálpa þeinr sem eru í
sorg.
Að sögn Páls er tilgangur sam-
takanna, að gefa fólki möguleika á
að hittast, til að veita félagslegan
stuðning. Að veita ráðleggingar og
leiðbeiningar þeim sem eru syrgj-
endur og veita þeim hjálp og and-
legan stuðning. í því sambandi
stendur til að þjálfa einstaklinga
sem vilja hjálpa syrgjendum og
byggist meðferðin upp á einstakl-
ingsviðtölum, hópviðtölum og fjöl-
skylduviðtölum. Sérmenntað fólk
verður leiðbeinendum innan hand-
ar.