Alþýðublaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 25.09.1987, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. september 1987 3 Jónas Bjarnason forseti NLFÍ og Eiríkur Ragnarsson, framkvæmdastjóri, leggja blómsveig að minnisvarða um Jónas Kristjánsson, lækni. Afmælishátíö náttúru- lækningafélags fslands Alþjóðaskákmót í Ólafsvík Afmælishátíð NLFÍ var haldin sunnudaginn 20. september með miklum gæsibrag í Heilsuhælinu í Hveragerði, að viðstöddum á fjórða hundrað gesta að sjúkling- um meðtöldum. Á meðal gesta voru nokkrir félagar sem voru á stofn- fundinum á Sauðárkróki 5. júlí fyr- ir 50 árum. Veður var fremur hryss- ingslegt, austanátt og rigning. Lúðrasveit Hveragerðis lék af miklum krafti innandyra, undir stjórn Kristjáns Ólafssonar. Jónas Bjarnason, forseti NLFÍ og Eiríkur Ragnarsson, framkvæmdastjóri, lögðu blómsveig að minnisvarða forvígismannsins, Jónasar Krist- jánssonar, læknis. Að lokinni þess- ari athöfn var öllum boðið til há- degisverðar að hlaðborði sem á sér Bandalag kvenna í Reykjavík Námskeiðahald að hefjast Nú á haustmánuðum hyggst Bandalag kvenna í Reykjavík auka mjög fræðslustarfsemi sína og halda fjögur námskeið sem öll ættu að koma konum í félagsmálastarfi að notum. Er þarna um að ræða námskeið í ræðumennsku, fundarstjórn og fundarsköpum, framsögn, radd- þjálfun o.fl. Kennd verður fram- koma í fjölmiðlum og stjórnun hópstarfs. Þá verður kennt hvernig standa skuli að útgáfu margs konar kynningarefnis, m.a. fundarboða, fréttabréfa, plakata, auglýsinga o.s.frv. Síðast en ekki síst mun eitt þessara fjögurra námskeiða fjalla um það hvernig stjórna eigi tíma sínum og tekin fyrir ýmiss atriði í því sambandi, t.d. hvernig tímanum skuli eytt, af hverju þurfi að skipu- leggja tímann, timi og streita, tíma- stjórnun, tímasóun. Mjög hæfir kennarar eru leið- beinendur á öllum fyrrgreindum námskeiðum. Öll námskeiðin verða haldin á Hallveigarstöðum, Tún- götu 14, Reykjavík. Þátttökugjaldi er mjög í hóf stillt. Allar nánari upplýsingar er að fá hjá formanni fræðslunefndar BKR, Halldóru Eggertsdóttur, í síma 19383, formönnum aðildarfé- laga bandalagsins og á skrifstofu- tíma BKR á þriðjudagsmorgnum kl. 11—13 í síma 26740. engan líka á íslandi, krásir gerðar úr gróðri jarðar með örlitlum mjólkurvörum til bragðbætis, holl- ustubyltingin næstum öll borin á eitt borð. Eftir hádegisverðinn hófst há- tíðadagskráin sem sjónvarpað var um Heilsuhælið til þess að allir mættu njóta. Flutt var bæn, ávörp og stuttar ræður þar sem fjallað var um fortíð, nútíð og framtíð Nátt- úrulækningafélags íslands. Kom þar vel fram í máli manna hversu samhljóma markmið í heilbrigðis- málum nú eru markmiðum forvíg- ismanna félagsins sem hófu baráttu sína fyrir meira en hálfri öld. Kór Hveragerðiskirkju og Kotstrandar- sóknar söng af mikilli prýði undir stjórn Róbert Darling, og var gerð- ur góður rómur að. I lok dagskrár- innar heiðraði forseti NLFÍ nokkra fyrrverandi og núverandi starfs- menn og tvo félagsmenn. Voru heiðursskjölin listilega skrifuð af Jóni B. Gunnlaugssyni. Nokkrir gestanna tóku til máls, óskuðu fé- laginu velfarnaðar og færðu því gjafir. í tilefni af afmælinu sýnir Ragn- ar Kjartansson, myndhöggvari, keramikmálverk og höggmyndir á göngum Hælisins og gaf hann fé- laginu keramikmálverkið „Parið.“ Sýningin stendur til 31. október. Eftir að dagskrá lauk skoðuðu gestir Hælið og þar á meðal minn- ingarherbergi Jónasar, en það er skrifstofa Jónasar læknis eins og hann skildi við hana er hann lést ár- ið 1960. Heilsuhælið var síðan opið öllum til skoðunar og notuðu marg- ir sér það þrátt fyrir leiðinlegt veð- ur. Hátíðahöldin voru að hluta til kvikmynduð til varðveislu og síðari tíma nota. Doktorsvörn Laugardaginn 26. september 1987 fer fram doktorsvörn við læknadeild Háskóla íslands. Stefán Skaftason læknir ver doktorsrit- gerð sína sem fjallar um eyrna- skurðlækningar á íslandi 1970 til 1980. Heiti ritgerðarinnar er „Oto- surgery in lceland 1970—1980.“ Andmælendur af hálfu lækna- deildar verða prófessor Otto Meur- man frá Ábo Universitet og dr. med. Ole Bentzen yfirlæknir frá Árósum. Prófessor Davíð Davíðs- son stjórnar athöfninni. Doktorsvörnin fer fram í Odda, stofu 101, og hefst kl. 14. Öllum er heimill aðgangur. Timaritið Skák stendur fyrir sínu sjöunda alþjóðaskákmóti og nú í Ólafsvík dagana 4. október til 16. október n.k., í samvinnu við Ólafs- víkurbæ og fyrirtæki staðarins að tilefni 300 ára verslunarafmælis kaupstaðarins. Teflt verður í hinu nýja félagsheimili Ólafsvíkur en keppendur búa á Hótel Nesi þar i bæ. Keppendur eru tólf og tefla all- ir við alla. Umferðir verða þaraf leiðandi ellefu. Erlendir keppendur verða fjórir en þeir íslensku átta. Einn stórmeistari verður meðal þeirra, tveir alþjóðlegir, en níu hafa að áfanga að keppa. Keppendur eru taldir hér upp eft- ir FIDE-skákstigum þeirra: Jón L. Árnason SM 2555 Karl Þorsteins AM 2445 Henning Danielsen, Danmörku 2415 Robert Bator, Svíþjóð 2405 Lars Schandorff, Danmörku 2385 Ingvar Ásmundsson 2375 Petter Haugli, Noregi 2370 Sævar Bjarnson AM 2355 Þröstur Þórhallsson 2345 Björgvin Jónsson 2310 Dan Hansson 2290 Tómas Björnsson 2245 Stigafjöldi keppenda er að með- altali 2373 stig og samkvæmt því er mótið í fimmta styrkleikaflokki FIDE. Til þess að ná áfanga að al- þjóðlegum meistaratitli þarf 7 vinn- inga en að FIDE-titli þarf 5 Vi. Verðlaunafé: 1. verðlaun US$ 1.000 2. verðlaun US$ 600 3. verðlaun US$ 400 4. verðlaun US$ 300 5. verðlaun US$ 200 6. verðlaun US$ 100 Félag íslenskra iðnrekenda: Gæðaátak Félag íslenskra iðnrekenda hefur gefið út fræðslurit um gæðamál. Ritið heitir GÆÐAÁTAK, ALLTAF ALLS STAÐAR. Þetta er upplýsinga- og fræðslu- rit um gœðastjórnun og er tilgang- urinn að stuðla að auknum skiln- ingi og áhuga stjórnenda og starfs- manna fyrirtækja á gæðum og gæðastjórnun og benda á hvernig hægt er að ná settum markmiðum í gæðastjórnun með sem minnstum tilkostnaði. Gæði framleiðslu ráðast ekki af tilviljun, heldur af skipulögðu framlagi allra starfsmanna fyrir- tækisins. Gæðamál eru ekki einka- mál einnar deildar eða eins starfs- manns. Fjölmiðlar og auglýsendur halda oft fram þeirri villu að orðið gæði þýði að öllu jöfnu munaður. Talað er um gæðavörur og gæðamerki og þá er oftast átt við dýrar munaðar- vörur. Þetta er röng skilgreining. Gæðavara er sú vara sem uppfyll- ir kröfur og ætlanir notandans. Hins vegar eru notendur eins mis- munandi og þeir eru margir, og þeir skilgreina gæði hver á sinn máta. Helsta markmið gæðastjórnunar er að samræma alla þá þætti, sem móta endanleg gæði framleiðslunn- ar. Þetta er gert með markvissri stefnumótun, áætlunum og stöð- ugu eftirliti með því að settum markmiðum sé náðÁVirk og þrótt- mikil gæðastjórnun eykur ekki að- eins gæði, heldur lækkar hún einn- ig framleiðslukostnað og eykur framleiðni. Það er von Félags íslenskra iðn- rekenda að ritið megi koma að gagni við þá viðleitni íslenskra fyr- irtækja að lækka framleiðslukostn- að og auka framleiðni með því að taka upp gæðastjórnun. Umhugsunartími verður 2 klst. á 40 leiki og síðan 1 klst. á 20 leiki þannig að skákir geta staðið í sex tíma áður en þær eru settar í bið. Síðan eru biðskákir tefldar til enda í einni setu. Mótið í Ólafsvík er 7. alþjóða- mót landsbyggðarinnar. Fyrirhug- að er einnig að halda 8. alþjóða- mótið í Keflavík dagana 6.—18. nóvember n.k. Mótum þessum er ætlað að gefa landsbyggðinni kost á að v?ra með í þeim stóratburðum sem eru að gerast á skáksviðinu hér á landi. Ennfremur er mótunum sem slík- um ætlað að gefa okkar skákmönn- um tækifæri á að tefla við erlenda meistara. Segja má að mót þessi marki viss tímamót í alþjóðlegu mótshaldi hér á landi. Þau eru frá- brugðin fyrri mótum að því leyti að þau gefa ekki kost á stórmeitara- I þættinum „Laugardagsrásin“, laugardaginn 19. sept. voru dregnir út vinningshafar í verðlaunaget- raun RER, sem efnt var til í sam- bandi við þátttöku í sýningunni „Veröld 87“ í þættinum voru dregnir út 25 vinningar og vinnings- hafar og náð beinu símasambandi við suma þeirra. Fræðslu- og upp- lýsingafulltrúi RER, Guðbjartur Gunnarsson Iýsti markmiði með starfsemi af þessu tagi og áréttaði, að getraun sem þessi væri fyrst og fremst aðferð til að fá gesti til að stansa í sýningarbásnum og leita upplýsinga um tiltekin, einföld atr- iði, sem síðan gæti leitt til frekari athugana á þessu sviði. í útsending- unni svöruðu faglegum spurning- um þeir Bergur Jónsson, rafmagns- eftirlitsstjóri og Magnús J. Krist- insson, yfireftirlitsmaður. Vinningshafar voru þessir: Brynja Björgvinsdóttir, Úthlíð 10, Rvk. Birgir Erlendsson, Þrastahólum, Rvk. Katrín Downs Rox, Tómasarhaga 27, Rvk. Valdís A. Arnórsdóttir, Þverá, Hálsahr. S. Þing. Thelma Ögn, Skógarlundi 11, Garðabæ. Kristín Sigurgeirsdóttir, Garða- braut 56, Garði. Brynjar Þórisson, Hjallabraut 21, Hafnarf. Kristín Guðmundsdóttir, Aðallandi 14, Rvk. Jóhanna Arnardóttir, Keldu- hvammi 5, Hafnarf. Erla Ebba Gunnarsdóttir, Háaleit- isbraut 113, Rvk. Margrét Sigurðardóttir, Smára- grund 19, Sauðárkróki. Anna L. Guðmundsdóttir, Tómas- arhaga 42, Rvk. Arna Björk, Holtagerði 4, Kópa- vogi. Ásta K. Árnadóttir, Sogavegi 96, Rvk. S. Lára Sævarsdóttir, Grettisgötu 82, Rvk. Kristín Pétursdóttir, Flyðrugranda 8, Rvík. Petrea Friðriksdóttir, Háaleitis- braut 40, Rvk. Flóamarkaður Laugardaginn 26. september n.k. munu starfsmenn Múlabæjar efna til flóamarkaðar í húsakynnum heimilisins að Ármúla 34 í Reykja- vík. Sala hefst kl. 14,00. Á boðstól- um er mikið úrval af ágætum fatn- aði, blómum, húsmunum og jafn- vel leikföngum sem að hluta til eru smíðuð á stofnuninni. Verð er við allra hæfi og er almenningur hvatt- ur til þess að koma, kaupa og styrkja góðan málstað. áfanga, heldur einungis áfanga að alþjóðlegum skákmeistaratitli. Þetta er gert af ráðnum hug því nú er að koma upp ný kynslóð skák- manna sem keppa að alþjóðlegum titli til að byrja með. Ofangreindum mótum er ætlað að hjálpa þeim til þess. Því hefur Þresti Þórhallssyni 18 ára pilti úr Reykjavik, verið boð- ið sérstaklega til mótsins í Ólafsvík, en hann hefur á skömmum tíma unnið sér inn tvo áfanga af þremur til alþjóðlegs titils. Ennfremur er öðrum 18 ára gömlum pilti, Tómasi Björnssyni, boðið til Ólafsvíkur- mótsins en hann varð Norðurlanda- meistari í ár i meistaraflokki karla. Þessir tveir skákmenn hafa lengi verið í fararbroddi yngri skák- manna landsins og eru miklar vonir bundnar við þá á þessu móti. í framkvæmdastjórn Olafsvík- urmótsins eru eftirfarandi: Kristján Pálsson bæjarstjóri Óalfsvíkur, Hermann Hjartarson framkvæmd- arstjóri í Ólafsvík, Einar Björnsson kaupfélagsstjóri í Ólafsvík, Hilmar Viggoson útibústjóri á Hellissandi, Jóhann Þ Jónsson ritstjóri Tíma- ritsins Skákar og Torfi Stefánsson Hjaltalín framkvæmdarstjóri mótsins. Mótsstjóri verður Torfi Stefánsson Hjaltalín og yfirskák- dómari Jóhann Þ. Jónsson. lngimar Róbertsson, Hagalandi 14, Rvk. Sigurður Sigurðsson, Háaleitis- braut 37, Rvk. Sigurlaug Siggeirsdóttir, Lágabergi 4, Rvk. Kristbjörg Haraldsdóttir, Fýlshólar 11, Rvk. Bergþór Guðjónsson, Logalandi 3, Rvk. Rakel Valdimarsdóttir, Hlíðar- byggð 53, Garðabæ. Gunnar Gunnlaugsson, Kaldaseli 26, Rvk. Halldór Marteinsson, Barmahlíð 8, Rvk. Rafmagnseftirlit ríkisins þakkar ágæta þátttöku í getrauninni og óskar vinningshöfum til hamingju. Samvinnu- fréttir — nýtt blaö fyrir samvinnustarfs- menn og félags- menn Út er komið 1. tölublað 1. ár- gangs Samvinnufrétta, sem gefið er út af Sambandi íslenskra sam- vinnufélaga og fyrst og fremst ætl- að starfsmönnum samvinnufyrir- tækja og félagsmönnum í sam- vinnufélögunum. Þetta fyrsta tölublað er prentað í 10 þúsund eintökum og fer dreifing þess að mestu fram með pósti. Það mun berast samvinnustarfsmönn- um, en þegar tímar líða fram og bú- ’ ið verður að tölvuvinna áskrifenda- skrá blaðsins, mun það berast öll- um heimilum, þar sem fyrir eru starfsmenn og/eða félagsmenn í samvinnuhreyfingunni. Má þá reikna með að blaðið verði gefið út í 20—30 þúsund eintökum, tíu til tólf sinnum á ári. Meðal efnis í þessu fyrsta blaði má nefna viðtal við Guðjón B. Ólafsson, forstjóra Sambandsins, fróðlegan samanburð á fjölda heildsölu- og smásöluverslana og hvernig lagerhaldi þeirra er háttað, sem er mjög ólíkt því sem gerist er- lendis. Sagt er frá stærstu strand- eldisstöð fyrir Iax í heiminum, sem er hér á landi og heitir íslandslax, greint frá drögum að starfsmanna- stefnu fyrir samvinnufyrirtæki, „hestakaupfélagi“ Búvörudeildar, fjármögnunarfyrirtækinu Lind, svo eitthvað sé nefnt. Samvinnufréttir eru litprentaðar og 16 síður að stærð að þessu sinni. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Her- mann Sveinbjörnsson, kynningar- stjóri Sambandsins. Verðlaunahafar R.E.R.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.