Alþýðublaðið - 06.10.1987, Page 1
Þriðjudagur 6. október 1987
—: Fjármálaráðherra þarf að skrifa upp á aukafjárveitingu.
„Óhjákvæmilegt — kostnaðurinn áfallinn,“ segir Jón Baldvin
Utanríkisráðuneytið hefur
tekið saman kostnað vegna
utanrikisráðherrafundar
NATO, sem haldinn var í
Bændahöllinni dagana 11. og
12. júni i sumar. Kostnaður-
inn er um 35 milljónir króna
og þarf fjármálaráðherra að
skrifa upp á aukafjárveitingu
sem því nemur.
„Það er óhjákvæmilegt að
greiða reikninginn því kostn-
aðurinn er áfallinn," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Að sögn Hjálmars V.
Hannessonar í utanríkisráðu-
neytinu er stærsti kostnaðar-
liðurinn vegna löggæslu, um
þriðjungur af heildarkostnaði.
Islendingar kostuðu ekki
ferðir ráðherranna og því
munu aðrir liðir aðallega fel-
ast i gistingu og húsaleigu.
Aðildarríki NATO eru 16 og
þvMíða væntanlega 16 ár þar
til íslendingar þurfa aftur að
sjá um fund utanríkisráðherr-
anna. Að sögn Hjálmars, sem
vann að undirbúningi fundar-
ins, þótti skipulagningin
góð.“ Starfsmenn NATO full-
yrtu að þetta væri einn af
þremur best skipulögðu
utanríkisráðherrafundum
NATO.“
Hjálmar sagði að kostnað-
urinn hefði þó orðið nokkuð
meiri en áætlað var. Sam-
kvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins áætlaði utanrikis-
ráðuneytið 28 milljónir króna,
en Hjálmar vildi ekki stað-
festa það.
Að sögn Magnúsar Péturs-
sonar hagsýslustjóra er yfir-
leitt ekki gert ráð fyrir kostn-
aði vegna slíkra funda í fjár-
lögum. Aðspurður sagðist
hann ekki muna hvort rætt
hefði verið um kostnað vegna
fundarins við gerð síðustu
fjárlaga.
Til er gamalt máltæki sem segir að maður komi í manns stað. Sennilega má allt eins hafa það um húsin í mið-
bæ Reykjavikur. Með reglulegu millibili hverfa gömlu húsin af sjónarsviðinu til að rýma fyrir nýjum húsum,
yfirleitt háreistari. Rétt eins og með mennina, vekur það mismikla athygli þegar þau hverfa af sjónarsviðinu.
Þetta hús, Skólavörðustígur 8 á sennilega ekki langa lifdaga fyrir höndum. Eigandinn Kornelíus Jónsson, hef-
ur sótt um leyfi til að byggja nýtt.
Hagvöxtur án verðbólgu
„Mikilvægasta verkefni alþjóðasamstarfs á
sviði efnahagsmála er að samræma stefnu-
mörkun í iðnríkjunum,“ sagði Jón Sigurðsson í
ræðu sinni á ársfundl Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra hélt nýverið ræðu á
ársfundi Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Washington D.C. fyrir hönd
Norðurlanda um málefni
sjóðsins. Jón fór víða í ræðu
sinni og gerði þróun efna-
hagsmála í heiminum aö um-
ræðuefni. Sagði Jón að þró-
unin hafi valdið nokkrum von-
brigðum; dregið hefði úr hag-
vexti i iðnríkjum og gert
ráð fyrir að vöxtur alþjóðavið-
skipta verði hægari í ár en á
síðasta ári. Jón fjallaði einn-
ig um gengisþróun i heimin-
um og breytingar á milliríkja-
viðskiptum. Jón taldi að mik-
ilvægasta verkefni alþjóða-
samstarfs á sviði efnahags-
mála væri að samræma
stefnumörkun í iðnríkjunum.
Orðrétt sagði viðskiptaráð-
herra:
„Af þessu leiðir að mikil-
vægasta verkefni alþjóða-
samstarfs á sviði efnahags-
mála er að samræma stefnu-
mörkun I iðnríkjunum svo að
stöðugleiki riki á ný gjaldeyr-
ismarkaði og þannig sé lagð-
ur grunnur að stöðugum hag-
vexti án verðbólgu. Mikilvæg-
asta skrefið í átt til aukins
jafnvægis í heimsbúskapnum
er betra samræmi I ríkisfjár-
málum þriggja helstu iðnríkj-
anna, Bandaríkjanna, Japans
og V-Þýskalands. Ríkisstjórn-
ir Japans og V-Þýskalands
hafa þegar greint frá áform-
um sinum um að auka eftir-
spurn innanlands með að-
gerðum í ríkisfjármálum. Ég
fagna þessu. Þau riki, sem ég
er fulltrúi fyrir, hafa hvað eftir
annað á síðustu árum hvatt
til slíkra aðgerða og hefðu
kosið að sjá þær fyrr.“
, Sambandshúsið
SIS bíður eftir nýju tilboði
Lóðamálin í biðstöðu á meðan eignirnar við Sölvhólsgötu og
Lindargötu hafa ekki verið seldar.
„Við höfum komið okkar
verðhugmyndum á framfæri,
en tilboð ríkisins var að okk-
ar mati alls ófullnægjandi,“
sagði Kjartan P. Kjartansson
framkvæmdastjóri fjárhags-
deildar SÍS í samtali við Al-
þýðublaðið. Kjartan vildi ekki
segja til um verðlagningu
Sambandsins á eignunum
við Sölvhólsgötu og Lindar-
götu, en tilboð fjármálaráðu-
neytisins hljóðaði upp á 210
milljónir króna.
„Málið er f þessum þæf-
ingi og því verður ekki um að
ræða neina samninga um
nýja lóð fyrir aðalstöðvarnar
fyrr en eignirnar við Linda-
götu og Sölvhólsgötu hafa
verið seldar," sagði^ Kjartan,
en forsvarsmenn SÍS hafa átt
í óformlegum viðræðum við
landeigendur á Reykjavíkur-
svæðinu um lóðir fyrir aöal-
stöðvar sínar I framtíðinni.
Samkvæmt upplýsingum
frá fjármálaráðuneytinu er
enn veriö að kanna mögu-
leika á kaupum á Sambands-
eignunum, en ekki er vitað
hvenær nýtt tilboð verður
lagt fram. Að sögn Kjartans
P. Kjartanssonar hafa ekki
aðrir aðilar en rfkið sýnt
áhuga á kaupum.
DEILT UM VINNUBRÖGÐ
í ÚTVEGSBAN KAMÁLIN U
Á fundi Sambands ungra
jafnaðarmanna um helgina
var deilt um hvernig við-
skiptaráðherra, Jón Sig-
urðsson, hefur staðið að
sölu hlutabréfa rfkissjóðs f
Útvegsbanka íslands. í
drögum að stjórnmálaálykt-
un fundarins var harmað
hvernig viðskiptaráðherra
hefur staðið að málum og
tekin afstaða til tilboðs
Sambands fslenskra sam-
vinnufélaga. Eftir málþóf
var málsgreinin felld út úr
almennri stjórnmálaályktun
fundarins.
Á fundinum var fyrst og
fremst deilt um það hvort
taka ætti svo skýra afstöðu
til tilboðs Sambandsins.
Ágreiningur var hins vegar
ekki um það hvort staðið
hefði verið vel eða illa að
málum. Tillagan um að fella
málsgreinina út kom frá
fulltrúum frá Suðurnesjum.