Alþýðublaðið - 09.10.1987, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 09.10.1987, Qupperneq 1
Fjórða og síðasta lota við fjárlagagerðina: HALLALAUS FJÁRLÖG? — Skorið og skattlagt niður að núllmarkinu — Tekist á um málið á ríkisstjórnar- fundum í gær Samkvæmt heimildum Al- þýöublaösins var í gær reynt aö ná samkomulagi innan rík- isstjórnarinnar um aö leggja fyrir Alþingi hallalaus fjárlög. Svartsýn þjóöhagsspá sem kynnt var ríkisstjórninni á þriðjudag virtist hafa ýtt mjög viö ráöherrum, því sam- kvæmt heimildum blaösins var tekist á um þaö á tveimur ríkisstjórnarfundum, hvort stefna skyldi aö núllmarkinu. „Ég hef ekkert um máliö aö segja,“ var eina svariö sem Alþýöublaðið fékk frá fjár- málaráðherra í gær fyrir sið- ari fundinn sem hófst klukk- an fimm. Niðurstöður þess fundar lágu ekki fyrir áður en Alþýöublaöiö fór í prentun. „í Ijósi nýrra tíöinda hljót- um viö að gera allt sem í okk- ar valdi stendur til þess að ríkisútgjöld veröi ekki þenslu- valdur í þjóöfélaginu. Hver niðurstaðan verður er ekki Ijóst, enda hefur ríkisstjórnin ekki afgreitt neinar tillögur,“ sagði Friðrik Sophusson, iðn- aðarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þegar Alþýðublaðið spurði hann um hallalaus fjárlög áður en síð- ari fundurinn hófst i gær.“ Vió erum að ræða fjárlög, meira get ég ekki sagt,“ sagði Friðrik. Það var táp og fjör viö Melaskólann i gær, enda friminútur og smáhvíld frá kennurunum. A-mynd/Róbert. Breyttar útlánareglur Husnæöisstofnunar: Frumvarpið lagt fram í næstu viku — Ákvæöi um forgangshópa — Spornaö gegn óeölilegum hækkunum íbúöarverös — Aukin starfsemi ráðgjafastöðvar — Sjálfvirkni takmörkuð og dregið úr fjárþörf kerfisins. Jóhanna Siguröardóttir fé- lagsmálaráðherra segist von- ast til að hægt veröi aö leggja fram frumvarp um breyttar útlánareglur Hús- næðisstofnunar ríkisins strax í næstu viku eftir aö þing kemur saman, eins og talað hefur verið um. Jóhanna segir frumvarpið að mestu leyti byggt á tillög- um sem fram komu hjá Hús- næðisstjórn, en helstu mark- mið frumvarpsins sagði hún; 1. Að tryggja betur en nú er forgang þeirra til lána sem eru í brýnni þörf fyrir lánafyr- irgreiðslu vegna kaupa á hús- næði. 2. Að draga úr þenslu á fasteignamarkaði og koma í veg fyrir óeðlilega hækkun á verði íbúðahúsnæðis. 3. Tak- marka sjálfvirkni í útlánum og draga úr fjárþörf húsnæð- iskerfisins. 4. Að gera Ráð- gjafarstöð Húsnæðisstofnun- ar betur kleift en hingað til, að gegna því veigamikla hlut- verki að láta umsækjendum i té leiðbeiningar og fara yfir kostnaöar- og greiðsluáætl- anir með þeim áður en þeir fara út í húsnæðiskaup, til þess að forða greiðsluerfið- leikum. Við fjárlagagerðina sagðist Jóhanna aðspurð hafa lagt áherslu á að hægt verði að gera átak i félagslega íbúða- kerfinu, og veita úrlausn til greiösluerfiöleika hópa. Enn- fremur sagðist hún leggja áherslu á fé til kaupleigu- íbúða auk þess að tryggt verði að Húsnæðisstofnun geti sem fyrst hafið útgáfu lánsloforöa i samræmi við breyttar útlánareglur. Talað hefur verið um að ágreiningur sé innan rikis- stjórnarinnar um framlög til húsnæðismálanna og að sér- staklega sjálfstæðismenn vilji skera niður á þeim vett- vangi. „Ég tjái mig ekki á þessum vettvangi um það sem gerist á ríkisstjórnar- fundum," sagði Jóhanna þeg- ' ar blaðamaður bar þetta und- ir hana.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.