Alþýðublaðið - 09.10.1987, Page 6
6
Föstudagur 9. október 1987
SMÁFRÉTTIR
Ávísun í afmælisgjöf
Þriðjudaginn 29. septem-
ber komu stjórnendur fyrir-
tækjanna Pharmaco h.f. og
Delta h.f. á Rannsóknarstöð
Hjartaverndar og færðu stöö
inni höfðinglega gjöf — tvö
hundruð þúsund krónur — i
tilefni tuttugu ára afmælis
rannsóknarstöðvarinnar, en
hún tók til starfa í október
1967.
Myndin sýnir Werner Rasmus-
son stjórnarformann fyrirtækj-
anna afhenda Nikulási Sigfús-
syni, yfirlækni Rannsóknar-
stöövar Hjartaverndar gjöfina.
Rök orkustofnun-
ar léttvæg
fundin?
Það er mat BHMR að rökin
fyrir uppsögnunum á Orku-
stofnun séu léttvæg. Banda-
lagið telur ennfremur að
Orkustofnun hafi ekki gætt
lögbundinnar tilkynninga-
skyldu til stéttarfélaga og
vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins. í yfirlýs-
ingu sem BHMR sendi frá
sér í gær, kemur þó ekki fram
að bandalagið telji uppsagn-
irnar á Orkustofnun ólög-
mætar af þessum sökum.
í yfirlýsingunni frá BHMR
er sérstaklega mótmælt
þeim „einstæða atburði aö
vinnuveitandi reki úr starfi
stjórnarmann í heildarsam-
tökum launþega".
Ungbarnadauði í
blaðaheiminum
Ekki verða öll blöð langlíf.
Garðbæingar eignuðust nýtt
blað í haust, Garðafréttir,
sem áttu að koma út hálfs-
mánaðarlega. Þriðja tölublað
er nýkomið út og á baksíðu
þess lesum við að útgáfunni
veröi að öllum líkindum hætt
Ástæðan er sögð sú að aug-
lýsingamagnið sé ekki nægj-
anlegt.
Verðlaunakjötið
er glænýtt
Fyrir skemmstu sögðum
við frá lambakjötskynningu í
Staðarskála í Hrútafirði. Mat-
argestir skálans fá þessa
daga getraunaseðla og í vinn-
ing er lambakjöt frá Jóni
bónda á Skarfhóli, þeim hin-
um sama og nýlega fékk sér
dæmt k.jöt sem hann lagði
inn í fyrrahaust umfram
kvóta. Það er hins vegar ekki
umframkvótakjötið sem nú er
haft til verðlauna, eins og við
héldum fram, heldur glænýtt
kjöt frá sama bónda.
13 og 14 á
Miklubraut
Frá og með mánudeginum
12. október aka strætisvagn-
ar Reykjavik.ur á leiðum 13 og
14 um Miklubraut í öllum
ferðum.
Vagnarnir hafa um nokkurt
skeið ekið Bústaðaveg/Lista-
braut kvöld og helgar, en því
verður nú hætt.
Breiðholtsbúum er sérstak-
lega bent á að kynna sér
þjónustu þessara hraðleiða,
sem aka milli Breiðholts-
hverfa og Miðbæjar með við-
komu á Miklubraut við
Kringlu og viö Lönguhliö,
Landspítala og Háskóla.
Prestur vígöur
til Sauðlauksdals
Biskup vígir Jón ísleifsson
cand. theol. til prestsþjón-
ustu í Sauðlauksdalspresta-
kalli við guðþjónustu i Dóm-
kirkjunni kl. 11.00 á sunnu-
dag. Söfnuðirnir í prestakall-
inu hafa kallað hann til þjón-
ustu þar næstu tvö árin. Þar
hefur ekki þjónað sóknar-
prestur síðan um áramótin
1963—64 er séra Grímur
Grímsson hlaut lausn frá
embætti til starfa í Reykjavík.
Nágrannaprestar hafa annast
aukaþjónustu síðan.
Jón ísleifsson er 35 ára
gamall, frá Vöglum í Suður-
Þingeyjarsýslu. Hann lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni 1973
og guðfræðiprófi frá Háskóla
íslands 1986. Hann mun
verða búsettur á Birkimel á
Barðaströnd.
Póstdagurinn
í dag
Kjörorð dagsins er: Póstur-
inn, fjarlægöir minnsti vand-
inn.
Alþjóðapóstsambandið var
stofnað fyrir eitt hunarað og
þrettán árum. Höfuðstöðvar
þess eru í Bern í Sviss.í sam-
bandinu eru 168 þjóóir.
Alþjóðapóstsambandiö hefur
lagt á það áherslu í starfi sínu
að stuðla að góðum og aukn-
um samskiptum milli þjóða.
Á stofndegi Alþjóóapóst-
sambandsins er iíka Dagur
frímerkisins og gefur Póst-
og simamálastofnunin út af
því tilefni smáörk með einu
frímerki. Söluverð hennar er
45 kr., en verðgildið 30 kr.
Andvirði yfirverðsins, 15 kr.
rennur í sérstakan Frímerkja-
og póstsögusjóð. Myndefni
smáarkarinnar er eftir
Auguste Meyer og tekið úr
ferðabók Paul Gaimards.
Á Degi frímerkisins kemur
líka út frímerki helgað tann-
vernd og hefti með 12 frí-
merkjum að verðgildi 13 krón-
ur hvert. Heftið er nýjung í
frímerkjaútgáfu stofnunarinn-
ar.
Skelltu hvorki
skuld á hálku
eða myrkur.
Þaö ert peí sem
situr viö stýriö.
MÉUMFEROAR ZS&STL
wrað
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar aö ráöa
verkamenn
viö lagningu jarösíma úti á landi.
Nánari upplýsingar veröa veittar í síma 91-26000.
Kvenfélag
Alþýðuflokksins
í Reykjavík heldur aöalfund mánudaginn 12. október
n.k. kl. 20,30 á Hallveigarstöðum v/Túngötu 14, Rvk.
Fundarefni: 1. Rætt um kvennastarf innan flokksins.
2. Venjuleg aðalfundarstörf
3. Önnur mál.
Áríðandi að sem flestar konur mæti.
Stjórnin.
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Bjami P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýöuflokksins
í Reykjavík hefur fastan viötalstíma alla virka daga
f rá kl. 10—11 árdegis á skrifstof u flokksins á Hverfis-
götu 8—10. Síminn er 29244.
Framkvæmdastjóri Alþýöuflokksins.
Frá skrifstofu
Alþýðuflokksins
Breytturopnunartími: Frá og meö 1. október verö-
ur skrifstofan aö Hverfisgötu 8-10 opin alla virka
daga frá kl. 10-12 og 14-17.
Reikningar veröa afgreiddir á þriójudögum frá kl.
10-12.
Framkvæmdastjóri
Alþýðuffokksins.
Flokksstjórn
Alþýðuflokksins
Fundur flokksstjórnar Alþýöuflokksins sbr. 43. gr.
flokkslaga veröur haldinn laugardaginn 17. október
n.k. kl. 10—14 á Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Stjórnmálin í þingbyrjun.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráöherra.
2. Starfsemi þingflokksins.
Eiöur Guðnason formaöur þingflokks.
3. Ráðherraspjall.
Jón Baldvin Hannióalsson fjármálaráöherra,
Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráöherra og
Jón Sigurðsson viöskiþtaráóherra.
4. Málefni Alþýðublaðsins.
Ingólfur Margeirsson ritstjóri
og Valdimar Jóhannesson framkvæmdastjóri.
5. Almennar umræður og fyrirspurnir.
Formaður Alþýðuflokksins.