Alþýðublaðið - 09.10.1987, Síða 8

Alþýðublaðið - 09.10.1987, Síða 8
fimniiimiiii Föstudagur 9. október 1987 Fjölmiðlar að mynda meirihluta í Ólafsvík „Fregnir sem borist hafa um andlát mitt eru stórlega ýktar.“ Var þaö ekki eitthvaö á þessa leið sem Mark Twain, rithöf- undur og háðfugl, komst aö orði þegar hann bar til baka flugufregnir um að hann væri dauður. Þegar talað er við Ólafsvíkinga sjálfa, eftir að hafa lesið, hlustað og horft á fréttir af viðburðum þar síðustu daga, koma þessi ummæli Mark Twain upp í hug- ann. Frá því aó meirihlutinn í Ólafsvík sprakk fyrir nokkrum dögum hafa fregnir af at- burðarásinni þar einna helst bent til þess að mikil gúrku- tíð standi yfir í fjölmiðla- heiminum. Það var líka greinilega að heyra á Ólafs- víkingum sem rætt var við i gær að þeim ofbauð hversu mikið fjölmiðlar hafa lagt á sig við að koma saman nýj- um bæjarstjórnarmeirihluta. Þetta er kannski ekki svo skrýtiö þegar tekið er tillit til þess að hin nýja og árásar- gjarna fréttamennska sem færst hefur i aukana hérlend- is á síðari árum, hefur fram að þessu einkum haldið sig á Reykjavíkursvæðinu. Á lands- byggðinni er enn gerður stór greinarmunur á þvi sem hægt er að segja á prenti og því sem aðeins er sagt í prívatsamtölum. Ólafsvikingar eru sem sagt sjálfir steinhissa á þeirri at- hygli sem þeir hafa vakið og þó ekki síður á öllum þeim fjölmörgu bæjarstjórnarmeiri- hlutum sem Reykvíkingar eru búnir að mynda fyrir þá sið- ustu dagana. Sannleikurinn mun lika sá að nýr bæjarstjórnarmeiri- hluti er ekki í augsýn allra næstu daga. Samkomulag virðist um það í Ólafsvik að bíða með myndun nýs meiri- hluta fram yfir helgi aö minnsta kosti og jafnvel gæti það dregist lengur. Ýmsir valkostir eru fyrir hendi, enda eru það samtals •'imm stjórnmálasamtök sem skipta á milli sín sjö bæjar- fulltrúum staðarins. Á hinn bóginn er líka hægt að úti- loka einhverja möguleika á nýjum meirihluta. Þannig er t.d. talið með öllu útilokað að sættir takist með A-flokkun- um og Kristjáni Pálssyni, bæjarstjóra og fulltrúa Lýð- ræðissinna. Ekki eru heldur neinar líkur fyrir samstarfi Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks, en meirihluti þessara tveggja flokka var myndaður eftir bæjarstjórnarkosningarnar í fyrra en sprakk áður en hann tók til starfa. Engar formlegar viðræður hafa farið fram enn sem kom- ið er og einu óformlegu við- ræðurnar milli flokka munu hafa falist í því að Kristján bæjarstjóri lét fulltrúa Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks vita af því að hann gæti hugsað sér að starfa með þeim. Af hálfu framsóknar- og sjálfstæðismanna er þessi möguleiki alls ekki útilokað- ur, en þeir virðast engu síður telja að til greina komi að taka upp samstarf við Her- bert Hjelm, fulltrúa Alþýðu- bandalagsins. Þriðji möguleikinn af þeim sem helst gætu komið til greina, er svo sá að gamli H- listinn verði endurvakinn, með samstarfi A-flokkanna tveggja og Framsóknar- flokksins. Þessir þrír flokkar höfðu boðið fram sameigin- legan H-lista í Ólafsvík, en hættu því fyrir síðustu kosn- ingar. Af gömlu H-listamönn- unum er reyndar Stefán Jó- hann Sigurðsson, framsókn- armaður einn eftir f bæjar- stjórn nú. Nýir menn skipuðu lista Alþýðuflokksins og Al- þýðubandalagsins fyrir síð- ustu kosningar. Sá einstaklingur sem mestu ræður um samsetn- ingu nýs meirihluta virðist þannig vera Stefán Jóhann og hann er einnig sá bæjar- stjórnarmaður sem einna tregastur hefur verið til að gefa yfirlýsingar síðustu dag- ana. Það dregur kannski nokk- uð úr líkum fyrir því að sjálf- stæðismenn verði inni í myndinni, að þeir hyggjast setja fram kröfu um að árs- gamlar yfirlýsingar um 38 milljóna gat í bæjarsjóði, veröi dregnar til baka og vilja fá afsökunarbeiðni frá þeim aðila úr trátarandi meirihluta sem nú kæmi til samstarfs við þá. Þessari kröfu gætu menn átt erfitt með að kyngja og e.t.v. kynni þetta að auka líkur fyrir samstarfi Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks. Á þessu stigi virðist þó afar erfitt að segja fyrir um það hver ofantalinna þriggja möguleika sé líkleg- astur. Það er athyglisvert að fyrr- um samstarfsmönnum í meirihlutanum ber alls ekki saman í öllum atriðum hvað varðar þau ágreiningsefni, sem samstarfið strandaði á að lokum. Kristján Pálsson, bæjarstjóri hefur marglýst því yfir í viðtölum að fram- kvæmdahraðinn við frágang félagsheimilisins hafi verið það sem allt snerist um. Samstarfsmenn hans segja hins vegar nokkuð aðra sögu. Herbert Hjelm hefur þannig ásakað Kristján um að hafa brotið samkomulag um að ræða mál innan meirihlutans áður en þau kæmu til af- greiðslu í bæjarstjórn og jafnvel stuðst við minnihluta- flokkana á stundum. Sveinn Þór Elínbergsson, fulltrúi Alþýðuflokksins og forseti bæjarstjórnarinnar hefureinnig sagt í samtali við Alþýðublaðið að félags- heimilið hafi ekki verið stærsta vandamál meirihlut- ans. Bæjarstjórnarmenn í Ólafs- vík, sem Alþýðublaðið ræddi við í gær, virtust á einu máli um það að bæjarstjórninni bæri að axla þá ábyrgð að halda áfram störfum og af- greiða nauðsynleg mál, þrátt fyrir núverandi ástand og hvort sem nýr meirihluti yrði myndaður fyrr eða siðar. Nú kraumar í pottinum, því £ ro ? c sem ekki gengu út síðasta laugardag, leggjast viðfyrsta vinning á laugardaginn kemur. Spáðu í það! -milljónir, á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111. ’wm

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.