Alþýðublaðið - 15.10.1987, Blaðsíða 4
4
Fimmtudagur 15. október 1987
SMÁFRÉTTIR
Hún var ekki
úti á flandri...
Vestfirska Fréttablaðiö
birtir á baksíðu blaðsins
fréttadálk sem þeir kalla
„Vestfirska fréttablaðið hefur
heyrt“. Þar má oft kenna ým-
issa grasa og síðastliðinn
fimmtudag hafði Vestfirska
Fréttablaðið heyrt að landa-
fræðikunnátta Isfirskra fram-
haldsskólanema væri heldur
bágborin. Ef ástandið er svip-
að í fleiri skólum á landinu
mega skólayfirvöld fara að
taka í taumana. En fréttin var
á þann hátt að kennari einn í
Menntaskólanum á ísafirði
hafði ávitað eina stúlkuna
fyrir að hafa slegið slöku við
námiðog einnig fyrirað mæta
of seint er skólastarfiö byrj-
aði. Stúlkan gaf þau svör að
hún hefði veriö í útlöndum
með foreldrum sínum og
hefði því miðurekki komið
fyrrtil landsins. Kennarinn
var að vonum ekki mjög
ánægður með þennan nem-
anda sinn og varð að orði að
henni heföi verið nær að vera
heima og læra heldur en að
vera úti á flandri. í því gall við
i öðrum nemanda.,Já, en hún
var ekki úti á flandri, hún var
úti á Spáni.“
STÍL
tveggja ára
í tilefni tveggja ára afmæl-
is STÍL — Samtaka tungu-
málakennara á íslandi —
munu samtökin gangast fyrir
málþingi laugardaginn 17.
október n.k. ( Risinu, Hverfis-
götu 105. Dagskráin hefst kl.
10 og lýkur með afmælishófi
milli kl. 17 og 19.
Málþingið ber yfirskriftina
„Tungumálakennsla á íslandi
— hvert stefnum við?“ og
verða þar flutt framsöguer-
indi um hina ýmsu þætti
tungumálakennslu. Á eftir
verða frjálsar umræöur.
Tungumálakennarar eru
eindregið hvattirtil að mæta
og deila reynslu sinni og
skoðunum.
Bókin um
Macintosh
Mál og menning hefur gef-
ið út Bókina um Macintosh
eftir Jörgen Pind.
Macintosh-tölvan þykirein
aðgengilegasta einkatölvan
sem komið hefur á markað
og hún er þegar orðin mjög
algeng á íslandi. I Bókinni
um Macintosh er búnaði tölv-
Nýjasta bók Jörgens Pind: Bókin
um Macintosh.
unnar lýst rækilega og les-
endum smátt og smátt kennt
að nýta sér alla eiginleika
hennar. Það er farið i gegn-
um öll stig ritvinnslunnar og
fjallað um notkun teiknifor-
rita. í lok bókarinnar er svo
sérstakur kafli fyrir þá lengra
komnu og bókarauki með
svörum við verkefnum og at-
riðisorðaskrá.
Höfundurinn, Jörgen Pind,
er deildarstjóri tölvudeildar
Orðabókar Háskólans. Hann
sendi í fyrra frá sér Bókina
um MS-DOS sem vakti at-
hygli fyrir skýra og skemmti-
lega framsetningu. Hún er nú
væntanleg í fjórðu prentun
og fæst auk þess í skólaút-
gáfu.
Bókin um Macintosh er
205 bls. að stærð, prentuð í
Prentsmiðju Árna Valdemars-
sonar hf. Brian Pilkington
myndskreytti bókina og
teiknaði kápu.
Stórfelld
söluaukning
lceland Seafood Limited í
Hull í Bretlandi, sölufyrirtæki
Sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins fyrir V-Evrópu, seldi
fyrir rösklega 5,5 milljón
sterlingspunda í september-
mánuöi eöa sem nemur um
350 milljónum króna. Þetta er
mesta sala í einum mánuði
frá þvi fyrirtækið var stofn-
sett árið 1981.
í magni nam salan 2437
tonnum. Um er að ræða 21 —
22% söluaukningu frá því í
sama mánuði í fyrra. Fyrstu
níu mánuði ársins nam sala
fyrirtæisins 32,1 milljón ster-
lingspunda, á móti 27,4 mill-
jónum i tyrra, sem er liðlega
17% aukning. Magnaukning-
in er um 4%, eða úr 15.600
tonnum fyrstu niu mánuði
síðasta árs í 16.300 tonn á
þessu ári. Nú stefnir í 40
milljón sterlingspunda sölu á
þessu ári eða um 2,5 mill-
jarða króna, en heildarsala
lceland Seafood Ltd. i fyrra
nam 34 milljónum punda.
Að sögn Sigurðar A. Sig-
urðssonar, framkvæmda-
stjóra lceland Seafood Ltd„
óttuðust menn að aðstæður
l heima fyrir leiddu til of mik-
ils framboðs á frystum þorsk-
flökum á Evrópumarkað, en
markaðsuppbygging fyrirtæk-
isins hefur komið í veg fyrir
það og nú eru birgðir af
þorskflökum í lágmarki. Þó
hefur mikið framboð m.a.
leitt til þess að verð á fryst-
um þorskflökum á Bretlands-
markaði hefur lækkað um
5% á þessu ári, en í fyrra
varð á hinn bóginn 30%
hækkun.
Þess má geta að sala lce-
land Seafood Ltd. nam 3,5
milljónum sterlingspunda
fyrsta starfsár þess 1981 og
hefur því meira en tífaldast.
Árssalan fyrsta árið nemur
nú u.þ.b. þriggja vikna sölu
fyrirtækisins. Starfsmenn fyr-
irtækisins eru 8, þar af einn
með aðsetur í Þýskalandi.
Athyglisverð
sýning að
Kjarvalsstöðum
„Gullsmiðir að Kjarvals-
stöðum" er yfirskrift sýningar
sem opnar laugardaginn 17.
október. Það eru þrjátíu og
sex gullsmiðir sem standa að
henni og mun hún gefa inn-
sýn í hugarheim gullsmiða
hér á landi, ef svo má að orði
komast.
Verk þau sem verða á sýn-
ingunni eru mörg hver ekki til
sölu dags daglega í verslun-
um og á vinnustofum og er
því eflaust margt nýstárlegt
sem sýningargestum mun
þykja forvitnilegt. Verkin eru
unnin í hina ólíklegustu
málma, svo sem gull, silfur,
eir, messing og járn. Auk
þess eru hinir ýmsu eðal-
steinar notaðir til skreytingar.
Sýning þessi er mjög fjöl-
breytt og gefur gott yfirlit yfir
hvað íslenskir gullsmiðir eru
að fást við. Opnunartími
„Gullsmiða að Kjarvalsstöð-
um“ er frá 14.-22. og mun
standatil 1. nóvember.
Starfsstyrkur
Hagþenkir, félag höfunda
fræðirita og kennslugagna,
hefur ákveðið að veita höf-
undum eða starfshópum
starfsstyrk til að semja rit
um þjóöfélagsmál eða Ijúka
við slíkt verk. Umsóknarfrest-
ur um styrkinn er til 1. nóv-
ember n.k.
Þetta er I fyrsta sinn sem
félagið gefur höfundum kost
á að sækja um styrk sem
þennan en tilgangurinn er, að
fá höfunda til þess að semja
rit um þjóðfélagsmál og
auðga þannig íslenska þjóð-
félagsumræðu.
Bókin ereinn besti miðill-
inn til að gera viðfangsefni
rækilega skil og Hagþenkir
vill leggja sitt af mörkum til
þess að gefnar séu út bækur
um mikilvæg málefni sem
hingað til hafa verið vanrækt
í islenskri bókaútgáfu.
Hitt og þetta
í Gallerí Borg Austurstræti
stendur nú yfir samsýning
nokkurra listamanna undir
samheitinu Hitt og þetta.
Listamennirnir eru: Hringur
Jóhannesson, Tryggvi Ólafs-
son, Baltazar, Ágúst Peter-
sen, Elías B. Halldórsson,
Kjartan Guðjónsson, Daði
Guðbjartsson, Jón Þór Gísla-
son, Temma Bell og Karólina
Lárusdóttir. Einnig eru á sýn-
ingunni nokkrir skúlptúrar
eftir Þórdísi Á. Sigurðardótt-
ur.
Verkin eru öll til sölu og
mun sýningin standa út
þessa viku.
Listir og menning
Ragnheiöur Jónsdóttir skrifar 1.
West Side Sto'ry 30 ára:
SIGILD SAGA ÚR
VESTURBÆNUM
í síðastliðnum mánuði, nánar tiltek-
ið þann 27. september voru nákvæm-
lega 30 ár liðin frá því að söngleikur-
inn West Side Story (Saga Vesturbæj-
ar) var frumsýndur á sviði í Winter
Garden í New York. Höfundur og leik-
stjóri var Jerome Robbins meðan
Leonard Bernstein átti allan heiður af
söngvum og tónsmíðum. Sýningin var
sérstök að því leyti að leikaraval leik-
stjórans samanstóð af hópi ungra,
óþekktra og reynslulítilla ungmenna.
Aðalhlutverkin voru í höndum Carole
Lawrence (Maria), Larry Kert (Tony), og
Chitu Rivera (Anita).
Söguþráðurinn
Söguþráðurinn er harmþrungin ást-
arsaga pilts og stúlku af ólíkum upp-
runa. Sagan er einskonar „Rómeó og
Júlía“, Manhattan. Sögusviðiö er vest-
urhluti New York borgar. Tveir götu-
flokkar berjast um yfirráðin. Þar eru
annars vegar The Jets (Þotuliðið),
hópur hvítra Ameríkana og hins vegar
The Sharks (Hákarlarnir) sem er hópur
litaðra innflytjenda frá Puerto Rico.
Riff, foringi þotuliðsins heitir því að
reka alla hákarla úr hverfinu og skorar
Bernardo, foringja hákarlanna á hólm
á sameiginlegum dansleik flokkanna.
Staður og stund er ákveðin og á bar-
daginn að fara fram daginn eftir. Á
dansleiknum er einnig María, systir
Bernados, sem trúlofuð er Chino,
besta vini Bernados. Tony, kunningi
Riffs, sem þá er nýorðinn félagi í
Þotuliðinu, og María verða ástfangin á
dansleiknum og Tony lofar Maríu að
reyna að koma I veg fyrir bardagann.
Bardaginn fer þó fram og úr skoröum
og lýkur þannig að báðir foringjar
flokkanna liggja I valnum. Tony sem
hafði mætt á staðinn í þeim tilgangi
einum að stilla til friðar, gerist bróður-
bani Marlu I bræði sinni eftir að Bern-
ardo stingur Riff til dauða. María sem
elskar Tony meir en allt í heiminum
heitir honum tryggð að eilífu. Eftir að
hafa sannfært systur sína, Anitu, að
dauði bróður hennar breyti engu þar
um ákveður Aníta að fara i höfuð-
stöðvar Þotuliösins til að vara Tony
við hefnd Chinos. Þegar hún kemur
þangað er hún spottuð vegna litar-
háttar síns þannig að hún I reiði sinni
færir Þotuliðinu rangar fréttir, nefni-
lega að Chino hafi í blóðþorsta og
hefndaræði drepið Marlu.
Niðurbrotinn maður af sorg æðir
Tony um götur hverfisins, þar til hann
að lokum, sér til mikillar undrunar
hittir Maríu fyrir sprelllifandi. Þau ráð-
gera flótta. Endurfundir þeirra fá þó
skjótan endi þar sem Chino liggur í
launsátri og skýtur Tony. Úr öllum átt-
um streyma nú unglingar sem óháð
kynþætti sameinast Marlu í sorg
hennar. Lýkur þar með hinum drama-
tíska leik.
Söngleikurinn sló I gegn svo að um
munaði og fóru sýningarfram fyrir
troðfullu húsi I marga mánuði. Nær
ógerlegt var að fá miða þar sem upp-
selt var langt fram I tlmann. Nú hafa
leikhús víðsvegar um heim tekið Sögu
Vesturbæjar til sýningar og var söng-
leikurinn m.a. kvikmyndaður með
Natalie Wood og Ritu Moreno I aðal-
hlutverkum. Söngvar Leonards Bern-
stein urðu fádæma vinsælir og heyr-
ast þeir enn öðru hvoru I dag. Sem
dæmi má nefna að Sinfónluhljómsveit
íslands hefur lagið „I feel pretty“ úr
söngleiknum á hljómleikadagskrá
sinni I ferð sinni um Noröurland. Önn-
ur lög sem vinsæl urðu, og eru það
kannski enn meðal margra, eru lög
eins og „Cool“, „I like to be in
America" og „Somewhere". Eru þá að-
eins fá dæmi nefnd. Verkiö I heild er
fyrir löngu orðið slgilt I leikhússög-
unni. '