Tíminn - 08.09.1967, Side 1
A.uglýsing í TÍMANUM
kenrur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
203. tbl. — Föstudagur 8. sept. 1967. — 51. árg.
Genst áskrifendur að
TÍMANUM
Hringið i síma 12323
8 FRAMBJÓÐENDA
í SUÐUR-VÍETNAM
KREFJAST ÓGILD-
INGAR KOSNINGA
NTB-Saigon, fimmtudag.
Átta af tíu borgaralegu
frambj«>ðendunum í forseta-
kosningunum í Suður-Vietnam
kafa í sameiningu krafizt þess,
að kosningarnar verði ógiltar
vegna óreiðu í framkvæmd
þeirra og vegna þess að hers-
höfðingjarnir, sem unnu kosn
ingamar, hafi misnotað að-
stöðu sína freklega.
Þjóðþingið, sem koma á saman
efttr mánuð, fær þessar kæmr til
meðferðar, en fremur ólfklegt er
talið, að það muni leggja í að
dæma kosningarnar ógildar. Þó
er krafan um ógildinguna ekki
borin fram á þeirri forsendu, að
úrslitin hafj verið fölsuð, heldur
hafi alls konár óreiða verið á
framkvæmd kosninganna. Tru-
o«g Dinh Dzu, sem næstflest at-
kvæði hlaut flestum á óvart,
sagðist í dag ætla að gefa þing-
inu skýrslu um óreiðuna á fram-
kvæmd kosninganna.
Meðal ákœruatriðanna, er að
hershöfðingjarnir Thieu og Ky,
hafi misnotað aðstöðu sína sem
forystumenn núverandi ríkis-
stjórnar í kosningatoaráttunni og
notfært sér þannig útvarp og
sjónvarp í óhæfilegum mæii.
Einnig segja borgaralegu fram-
bjóðendurnir, að Ky hershöfðingi
hafi hótað því fyrir kosningar,
að steypa hverri þeirri ríkisstjórn
sem hann ekki væri aðili að, og
hafi þessi hótun valdið ruglingi
meðal kjósenda og fengið þá til
að kjósa hershöfðingjana af ótta
við stjórnarbyltingu.
Dzu sagði við blaðamenn, að
hann og annar fallinn frambjóð-
andi við forsetakjörið, Phan
Khac Suu, hafi í hyggju að stofna
stjórnarandstöðuflokk, ef krafan
um ógildingu kosninganna verði
ekki tekin til greina.
Stjórnin í Sai.gon hefur í dag
takmarkað leyfi manna til að
Framhald á bls.r L4
ALMANNAGJÁ LOKAD
FYRIR BlLAUMFERD
NETAVEIÐI FYRIR LANDI ÞJÓÐGARÐSINS BÖNNUÐ
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Þingvallanefnd hefur
ákveðið að loka Almannagjá,
fyrir bílaumferð og kemur sú
ákvörðun til framkvæmda
væntanlega í októbermánuði n.
k. Segir í tilkynningu 'rá
nefndinni, að þetta sé gert
vegna slysahættu og til frið-
unar, en talað hefur venð
um slíka lokun í nokkur ár.
Jafnframt hefur Þingvalla
nefnd úthlutað 24 lóðum und
ir sumarbústaði á Þingvöli-
um. Segir, að lóðaleyfu-n
verði ekki fjölgað meira að
sinni, en sumarbústaðabvgg-
ingar á Þingvöllum hafa verið
gagnrýndar af ýmsum aðiluin.
Þingvallanefnd kom sam-
an til fundar dagana 4. og 5.
septémber og tók þá þessar
ákvarðanir varðandi Þingve!!i.
„1. Um alllangt skeið hefur
verið rætt um að loka A1
mannagjá. Af framkvæmdum
helur ekki getað orðið /egna
þess, að vegurinn inn á Leir-
ur hefur ekki verið fullnægj-
andi til þess að taka við allri
umferðinni. Nú hefur hann ver
við lagfærður í sumar. Var
ákveðið á fundi nefndarinn
ar nú að loka Almannagjá fyi
ir bílaumferð til friðunar og
vegna slysahættu. Kemur
sú ákvörðun til framkvæmda
væntanlega í októbermán. n.k.
2. Nefndin ákvað að banna
alla netaveiði fyrir landi þjóð
garðsins.
3. Þingvallanefnd ákvað
fyrir nokkru að komið yrði
upp bílastæðum við veginn
gegnum þjóðgarðinn vegna
veiðimanna og dvalarfólks í
garðinum. Framkvæmdum þess
um verður haldið áfram. Nefnd
in lagði fram mikið fé ti!
þess að koma upp almenn
ingssalernum við Valhöll sum-
arið 1963, og annarri þjónustu
við Þingval'lagesti.
Nú í sumar voru sett upp
tvö útisalerni inni með vatai
og verður þeim fjölgað næsta
vor og tjaldsvæði afmörkuð
greinilegar en áður hefur verið
gert. Fleiri umbætur 'nafa
einnig verið gei-ðar gestum til
hagræðis. Með bættum bíla-
stæðum verður bílaumferð *.ak
mörkuð utan vega í þjóðgarð
inum.
■Ákveðið var einnig nú aö
láta fara fram athugun á fiski
rækt í Þingvallavatni þegar á
næsta ári.
4. Unnið er í sumar að nýrri
girðingu um þjóðgarðinn að
skipulögð svæði í Gjábakka-
með því að gjáin hefur reynzt
ófullnægjandi vörn gegn sauð
fé og öðrúm gripum. Lo-kið
verður við girðingu um ali-
Framhald á bls. 14.
Myndin er frá borginni Bir Ahmed í SuSur.Arabíusambandinu, skammt frá höfuSborg sambandsríkisins, Al
Ittihad. Myndin er tekin úr turni hallar soldánsins á staSnum, en hermenn úr ÞjóSfrelsisfylkingunni (NL'F)
steyptu honum og tóku völdin í sínar hendur þar sem víSast annars staSar í landinu. Lengst t. v. er hermaS-
lir úr NLF.,
REISA „MUR"
MILLINORDUR-
OG S-VÍETNAM
NTB-Washington, fimmtudag.
Robert MacNamara, varnar
málaráðherra Bandaríkjanna
sagði í dag, að Bandaríkin
hefðu í hyggju að reisa „múr"
milli Norður- og Suður-Viet-
nam. Yrði „múrinn" gerður úr
gaddavírsgirðingum og fleiru,
en hann neitaði að gefa ítar-
legri upplýsingar um gerð
„múrsins" Sagði hann, að
Bandaríkjamenn hyggðust
með þessu draga úr sendingu
norður-víetnamskra hermanna
til Suður-Vietnam.
HERINN REYNIR AE STODVA BAR-
DAGA ÞJÚDERNISSINNAI S-ARABlU
NTB-Aden, fimmtudag.
Herinn í Suður-Arabíu hef-
ur krafizt þess að hópar þjóð-
ernissmna, sem eiga í blóð-
ugum erjum sín á milli, hætti
þegar vopnaviðskiptum. í
Aden var i dag 24 klukku-
stunda allsherjarverkfall, og
brezkar hersveitir og arabisk
ir þjóðernissinnar skiptust á
skotum.
í þorpinu Daar Saad í Suður-
Arabíu hafa 20 manns fallið ■
átökúm milli tveggja þjóðernis-
sinnahreyfinga síðan á mánudag-
inn. Þorp þetta liggur ekki langt
frá landamærunum við Adee
Vopnaðar hersveitir héldu • dag
inn í þorpið og sögðu hermenn
irnir íbúunum. að þeir hefðu allt
nágrennið a valdi sínu. i’okst
hermönnunum þannig að ganga
á milli deiluaðila án blóðsúthell-
inga. Herinn hélt inn í þorpið
eftir að herforingjai og stjórn
málamenn höfðu skorað á þjóð-
ernissinnana að hætta bardösun
Framhaid 4 bls. 14.
MacNamara sagðist ekki vilja
segj? meira um málið þar sem
ljóst væri að því meira sem and-
stæðingarnir vissu um áætlanir
Bandaríkjamanna, þeim mun
meira myndu þeir gera til þess
að eyðileggja girðingu þessa. —
Sagði 'nann, að starfsmenn varnar
málaraðuneytisins í Bandaríkjun
um og erlendis hefðu fengið skip-
anir um að segja ekkert um gerð
bessa ..múrs1'.
Ýmsir þeir, sem gagnrýnt hafa
stefnu Lyndon Johnsons, forseta,
i Vietnam-málinu — einkum þó
Mike Mansfield, öldungardeildar-
þingmaður, — hafa lagt til að
komið yrði upp einhvers konar
.múr“' sunnan hlutlausa beltisins
á „iandamærum“ Norður- og Suð
ur-Vietnam. Telur hann, að með
Framhald á bls. 14