Tíminn - 08.09.1967, Page 8

Tíminn - 08.09.1967, Page 8
FÖSTUDAGUR 8. sept. 1967. 8 TÍMINN A þessum degi er í fyrirrúmi í hugum manna hér fögnuður, þakkir, minningar og framtíðar- vonir. Því er fagnað af alhug. að hér hefur verið reist stórt, rammgert og glæsálegt mannvirki. Með því verki er náð mikilvægLm áfanga í samgöngumálum landsins, yfir* stigin til frambúðar mikil torfæra á allfjölförnum þjóðvegi, akvega- samband opnað í Öræfasveit og einangrun hennar frá öðrum byggðarlögum rofin. Á þessari fagnaðarstund er rétt og skylt að bera fram þakkir til allra þeirra, sem hér hafa átt aðild að. Þakkir til Aliþingis, ríkis- stjórnar, vegamálastjóra, verk- fræðinga í þjónustu hans, brúar- smiða, verkamanna, sem hér hafa unnið og þeirra kvenna, sem hafa annazt hér heimilishald tvö sum- ur. Allir þessir aðilar hafa hver á sínu sviði kostað kappg um að þessi framkvæmd tækist svo vel, sem raun er á. Jafnframt er rétt að íhuga, að það er vissulega þakkarvert, að íslenzka þjóðin hefur bolmagn til að ráðast í stórframkvæmdir sem þessa og að með þjóðinni hefur á nokkrum áratugum þróazt verk- menning, er hefur það fyllilega á Páll Þorsfeinsson alþinglsmaSur og bóndi að Hnappavöllum í Öræfum, flytur ræðu sína við vígslu brúarinnar. ■ ■ hið stærsta skref og áhrifaríkasta í samgöngumálum þjóðarinnar, svo að þá hillir undir í stórum | byggðarlögum nýtt framtíðarland. i í þessu efni er þó á fleira að j Uta en von um hagnað og aukin lífsiþægindi. Hver sem ann landi sínu og vill veg þess sem mest- an hlýtur að gleðjast yfir hverjum sigri, sem þjóðin vinnur tnnan lands eða út á við. Ég minni hér á þessa hvatningu: Mundu sögu þíns lands. Mundu að virða hvert verk, sem ber vitni um íslenzka dáð. Austur-Skaftafellssýsla og íbúar hennar hafa þó sérstöðu gagnvart því sterkbyggða mannvirki og glæsilega, sem hér er vígt. Ætt- jarðarást tendrast af viðkynningu og samlífi. Menn vinna landi sínu meira en öðrum löndum, ekki af því að það sé raunverulega betra en öll önnur lönd, heldur af því að þeir þekkja það betur, eru því tengdari og hafa meira af því þegið, af því að það er heimkynni og starfssvið þjóðarinnar, sem einstaklingurinn telst til og starfar með. Átthagaást er af sama toga. Sýslan er sá fcluti landsins, sem íbúar hennar þekkja bezt, hafa beinust viðskipti við og bera að sínu leyti ábyrgð á. Hún er starfs sviðið, þar sem íbúarnir verja EINANGRUN ORÆFASVEITAR ROFIN vaidi sínu að reisa mannvirki eins og þetta. Ber þá að hafa í huga, að ekki eru nema 70—80 ár síðan fyrsta stórbrúin var gerð hér á landi. Á þessari stundu koma í huga ALStur-iSkaftfelIinga og annarra, er giámt hafa við Jökulsá, minn- ingar, ein eftir aðra, eins og svip- myndir. minningar um ferðalög, erfiðleika, hættur, áföll og sigra. Nú rifjast upp sagnir og minning ar um torfæruna, sem jafnan hef- ur verið eins og ill vættur á þjóð- veginum hér sunnan jökla, — en þó misjafnlega harðleikin í skipt- um við vegfarendur. Stundum var um lif eða dauða að tefla í þeirri viðureign ,sem hér var háð. Frá fornu fari og fram á síðustu öld var ávallt glimt við Jökulsá sjiálfa. En fyrir tæpum hundrað . árum, þegar Jökulsá var að verða ofurefli, var að frumkvæði Sigurð ar Ingimundarsonar á Kvískerjum og með opinberum stuðningi tek- ið að gera hestfæra slóð yfir Breiðamerkurjökul og veita ferða- 'mönnum leiðsögn yfir jökulinn. Engir hafa slíka reynslu af þessu, vita jafn góð skil á þessari sögn né geyma um þetta eins margar minningar sem Öræfing- ar og Suðursveitungar. Jökulsá og Breiðamerkurjökull var þröskuld- ur, er vók ekki af vegi Örœfinga, hvenær sem þeir þurftu að fara yfir Breiðamerkursand til að sækja ldfsbjörg til heimila sinna eða vegna annarra erinda. Oftast bar maðurinn og hesturinn, sem í rcynd var „þarfasti þjónninn" — sigur af hólmi í viðureigninni við Ræða Páls Þorsteinssonar, alþingis- manns, við vígslu brúarinnar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi þessi voldugu náttúruöfl og vægð arlausu. Sagnir og munnmæli segja þó, að allmargir menn hafi farizt í Jökulsá og oft töpuðust í ámar klyf af hestum. Það eru munnmæli, að Jökulsá og Ingólfs 'höfði skiptist á um að búa mönn- um banaráð. Fyrir fjörutdu árum þ.e. 7. sept. 1927 varð síðast bana- slys hér á jökullbrúninni í grennd við upptök árinnar. Með tilkomu þessa trausta mannvirkis á saga slysfara á þessum stað að vera á enda skráð. Menn skyldu gera sér greln fyrir því, að þjóðvegurinn um Bredðamerkursand hefði löngum verið lokaður og saga slysfara og áfalla þó að líkindum lengri en hún er, ef ekki fcefði notið frá- bærrar leiðsagnar og aðstoðar þeirra, sem búið hafa og búa nú á aæstu bæjum fyrir vestan Jökulsá og austan. Manna, er bundið hafa tryggð við jarðir og bú, og gert það að ævistarfi að brjóta mannraunaís á þessum slóðum. Við minnumst þess nú, hve mikilvægt hefur verið fram- lag þessara manna til samgöngu- mála, mannanna, sem ávallt hafa brugðið skjótt við til leiðsagnar og hjálpar. hvenær sem óskað VIÐSKIPTASKRÁIN KOMIN ÚT Viðskiptiaskráin fyrir árið 1967 er nýlega komin út, stór og mik- il bók, 780 bls. í svipuðu broti og simas'kráin, og hefcr lengzt um 20 síður sdðan i fyrra. Nýr kafli hefur bætzt við í bókina síðan í fyrra: Umboðaskrá, þar sem skráð eru íslenzk fyrir- tæki eða einstaklingar, sero hafa umboð fyrir erlend fyrirtæki eða vörur. Kafla þessum er skipt í tvennt, nafnaskrá og vöru- og þjónustLskrá. í nafnaskránni er dslenzku fyrirtækjunum rað að í stafrófsröð, en fyrir aftan nöfnin er tilvísun í vöruskrána. Er þannig I fljótu bragði hægt að finna, hvort menn heldur vilja, hvaða fyrirtæki hafa umboð fyr ir tilteiknar vörur eða hvað.n um- boð tiltekdn fyrihtæki hafa. í for- rnála að bókinni segir, að aðstand endur Viðskiptaskrárinnar hafi á undanförnum árum orðið þess þráfaldlega varir, að mi'kil þörf sé á svona skrá, þvi að mjög al- gengt sé, að Viðskiptaskránni ber ist fyrirspurnir um umboðsmðnn tiltekinna vara eða fyrirtækja, og Framhald á bls. 15 var, aldrei brugðizt neinum, en með djúpri íhugun og þjálfun í skóla lífsreynslunnar fundið ráð í hverjum vanda. Ég flyt þessum mönmun alúðarþökk. Á þessum degi bærast í brjóst- um manna bjartar framtíðarvonir. Nú rætist að nokkru draumur ýmissa manna Lm samfellt akvegakerfi, þrátt fyrir torfær- urnar. Þeir, er sátu í ríkisstjórn fyrrr 40 árum undir forsæti Tryggva Þórhallssonar munu fyrst ir sitjórnmálamanna hafa hreyft þeirri hugmynd að vinna bug á valdi Jökulsár með nýrri tækni. Við vonum, að í kjölfar þessa mannvirkis komi aðrar stórfram- kvæimdir, er tengi saman akfæran veg sunnan jökla. Við viljum vinna að þvi að þessi von rætist sem fyrst. Með samfelldum akvegi um Suðurland og þar með hring- vegi um landið væri stigið eitt kröftum sínum. Hagsæld þedrra er nátengd gæðum sýslunnar og að- stöðu til að hagnýta þau. Umhverf ið. sem menn lifa og hrærast í, er með óteljandi þráðum ofið sam an við lif manna. Örnefni og kenni ieiti minna á óskráðar sögur um gengin spor. höpp og óhöpp, bar- áttu og sigra einstaklingsins, fé- laga hans eða fyrirrennara. Og það er sem holtin sjálf kleypi í mann þrótt, þar hreystirausn einhver var drýgð, og svo er sem mold sú sé manni þó skyld, sem mæðrum og feðrum er vígð. Á þessari stundu eiga þvi Aust- ur-Skaftfellingar umfram aðra miklu að fagna, mikið að þakka margs að minnast og margar bjart ar framtíðarvonir. Öræfasveitin er sá hluti svsl- unnar, þar sem þessi brúargerð veldur mestum breytingum. Með þessari stórbrú og öðrum smærri er einangrun sveitarinnar að fullu rofin. Öræfingar eru nú settir á bekk með þeim, er njóta þess öryggis og aðstöðu, sem greiðfær leið til annarra byggðarlaga og verzlunarstaða veitir. Við vonum, að þetta verði til að efla byggð- ina og aúka hagsæld Öræfinga. En sólbjörtum degi fylgir oft dimm nótt. Svo skarpar verða and stæðurnar með tímans rás. Með tilliti til þess vakna nú ýmsar spurningar. Getur sú stórbreyting, er nú verður gagnvart Öræfasveit, haft einhver neikvæð áhrif? Verð ur umferðin og umsvifin, sem henni fylgja, eins og leysing, er skolar jarðvegi frá gömlum rót- um? Verður fögru, sérstæðu nátt úrufari og dýralifi sveitarinnar einhver hætta búin? Við vitum, að dimman lætur undan síga, þeg- ar dagslbrún rís og hverfur fyrir Ijósi sólar. Við vonum, að gifta Öræfasveitar og þroski allra þeirra sem fara þessa brú og sækja sveit ina heim. megni að bægja frá henni neikvæðum áhrifum. Framfarirnar miða að því að auka mannlegt vald og ryðja erfið leikum úr vegi. Með öruggium samgöngum hverfur barátta manna við torfærurnar. Um leið breytist sá skóli lífsreynslunanr, sem kall- aði menn til skyldunáms í marg- víslegum dyggðum, svo sem karl mennsku, þrautseigju, þolinmæði, aíihygli og umhugsun. Enginn vill að mönnum fari aftu-r að sama skapi og mannvirkjum fer fram. Enginn vill í alvöru, að þjóðin glati neinu af þeim kostum, sem henni hefur mátt til gildis telja. Okkur ber að draga af þessu þann lærdóm að velja okkur við- fangsefni ,er halda mönnum and- lega vakandi, athugulum og at- orkusömum eigi síður framvegis en meðan örðugleikarnir voru meiri. Byggðarlögin í þessu héraði þurfa á því að halda, ef þau eiga að halda að fullu gildi sí-nu og þeim svip, sem þau hafa borið. — Og íslenzku þjóðinni er það lífsnauðsyn að landsbyggðin efl- ist. Víðátta landsbyggðarinnar hef ur rauniverxilega gert íslenzku þjóð ina stærri í samanburði við aðrar þjóðir en mannfjöldinn segir til um. Þetta er augljóst, ef athugað er, bve lítið fer fyrir sjálfstæðri tvö hundruð þúsund manna, sem hnepptir eru saman í úthverfi einnar stórborgar. Samlífið við hið tiltölulega stóra, fagra land, og fjölbreyttar að náttúrufari hef ur aiukið víðsýni og áræði með íslenzku þjóðinni. Með tilliti til þess verður heillaósk mín þessi: Heill sé fslandi. Skaftafellssýsla blessisf og blomeist. SíSasti ferjupramminn, sem hin mikla brú leysi af hólmi, er fremsf á myndinni. .. -, - 'W, (Timamynd Kárt)

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.