Alþýðublaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.11.1987, Blaðsíða 1
Fataverslanir í miðbœnum: MEIRI SAMDRÁTTUR EN ÁÐUR VAR SPÁD — Kringlan og Glasgowferðir hjálpast að við að draga úr verslun- inni — Kaupmenn í gamla miðbœnum velta því fyrir sér hvort flugfélögin séu á mála hjá kaupmönnum í Glasgow — Fargjald og hótelgisting í Glasgow ódýrari en fargjaldið til Akureyrar? vík, en í fyrstu var spáð meö Útstillingargluggi Náttúruverndarráðs. Sorpið: ARSFRAMLEIÐSLAN ER 380 KG Á MANN Mun meiri samdráttur virð- ist hafa orðið i versluninni í gamla miðbænum í Reykja- Þýskalandsmarkaður: ORMA— FÁRSINS GÆTIR ENN Markaðurinn er enn mjög viðkvœmur — Of- framboð í síðustu viku — Ögri seldi karfa í gœr fyrir 50 krónur meðalverð. Ástand er enn slæmt á ferskfiskmarkaðnum í Þýska- landi og verð hrapaði niður í síðustu viku vegna offram- boðs. Á mánudag voru seld 200 tonn úr togaranum Ögra. Stærsti hluti aflans var karfi og var meðalverð 50 krónur kg. í gær voru seld 60 tonn úr sama skipi fyrir svipað verö. Verð það sem Ögri fékk var skárra en í síðustu viku en þá varð umtalsverð lækkun frá vikunni á undan, vegna of- framboðs. í síðustu viku var selt úr 20 gámum og auk þess seldu tveir togarar afla sinn, Guðbjörg og Vigri. Meðalverð á karfa úr togurun- um var 42,73 krónur kílóið. Að sögn Vilhjálms Vil- hjálmssonar hjá LÍÚ er þýskalandsmarkaður ennþá mjög viðkvæmur eftir fárið sem skapaðist á markaðnum i sumar þegar þýska sjón- varpið sýndi þátt um orma í danskri síld. Fyrir ormafárið var meðalverð á karfa um 52 krónur kg. Á slðasta ári voru að jafn- aði seld um 1500 tonn úr íslenskum fiskiskipum á Þýskalandsmarkaði. Enn virð- ist langt i land með að markaðurinn þoli slíkt fram- boð, þrátt fyrir að neysla auk- ist á haustmánuðum og í byrjun vetrar. tilkomu Kringlunnar. Helst virðist kreppa að hjá fata- verslunum, en þeim hefur fjölgað mikið á siðustu árum. Svo virðist sem mikil ásókn i innkaupaferðir til útlanda hafi aukið enn frekar sam- dráttinn í versluninni. Kaup- menn sem Alþýðublaðið tal- aði við í gær sögðu að fijót- lega upp úr áramótum mætti búast við því að fjöldi versl- ana skipti um eigendur eða hætti starfsemi. Kaupmenn utan Kringlunn- ar virðast sérstaklega óánægðir með, að um leið og samdráttur á sér stað vegna nýju verslunarmiðstöðvarinn- ar, skuli flugfélögin og ferða- skrifstofur reka mikinn áróð- ur fyrir skipulögðum inn- kaupaferðum til erlendra verslunarborga. „Ég get t.d. ekki séð að flugfélögin séu að þjóna ís- lendingum með þessu. Það má kannski velta þvi fyrir sér hvort þau eru á mála hjá kaupmönnum í Glasgow," sagði Sigurður E. Haraldsson kaupmaður í Elfur við Lauga- veg. Sigurður er fyrrum formað- ur Kaupmannasamtaka ís- lands. Hann sagðist ekki skilja hvernig flugfélögin gætu boðið mun lægra verð fyrir ferð til Glasgow og hótelgistingu, en eingöngu flugfargjald til Akureyrar. „Ég hefði talið eðlilegt að íslensk flugfélög beindu frekar kröft- um sínum að því, að hægt verði að ferðast ódýrt innan- lands.“ I fyrstu var talið að verslun- armiðstöðin í Kringlunni tæki til sín um 11% af verslun á Reykjavíkursvæðinu. Hvað varðar fataverslanirnar virðist markaðshlutdeildin enn meiri. Kaupmenn sem Al- þýðublaðið talaði viö töldu þó erfitt að gera sér grein fyrir þvl hvort verslunin hefði að svo verulegu leyti færst til Kringlunnar eða hvort nýja verslunarmiðstöðin I Mjódd- inni hafi tekið mikið til sín. „Það bætir síðan ekki úr skák, að íslendingar skuli vera að gera sig að athlægi í Glasgow, með því að leika þessi pokadýr á skemmti- ferð,“ sagði einn kaupmann- anna. Kaupmaður sem rekið hef- ur fataverslun í gamla mið- bænum um tveggja ára skeið sagði að sín eina von væri sú, að nýjabrumið færi af Kringlunni. „Annars hljótum við að geispa golunni þegar líður á veturinn." Hver Islendingur „framleið- ir“ nálægt 380 kílógrömmum af sorpi árlega. Mest af þessu fer sjálfsagt rétta boðleið um heimilisruslapokann og rusla- tunnuna og endar á haugun- um. Einhverhluti af sorpinufer hins vegar út i náttúruna og ófegrar umhverfið. Náttúruverndarráð hefur nú brugöið á það ráð að stilla út Rikisendurskoðun hefur lokið við fyrsta uppkast að skýrslu sem fjármálaráherra óskaði eftir um bygginga- kostnað flugstöðvar í Kefla- vík. Lokaskýrslu er ekki að vænta fyrr en seinnipart þessa mánaðar. Undir lok þessarar viku má gera ráð fyrir að Ríkisendur- skoðun Ijúki við skýrslu um kaupleigusamninga rikis- stofnanna. Fjármálaráðherra „ársframleiðslu" eins Islend- ings af sorpi i verslunarglugga við Laugaveginn, nánar tiltek- ið þar sem áður var verslunin Domus, til að vekja athygli al- mennings. Auk þess sem væntanlega má draga úr rusli i náttúrunni, telur Náttúruverndarráð að talsvert af sorpinu megi endur- vinna. óskaði eftir úttekt á umfangi slikra viðskipta hjá ríkinu, en ýmsir hafa talið að vantað hafi heimildir ráöherra fyrir slík fjármögnunarform. Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins hefur vinna við Flugstöðvarskýrsluna verið mjög ítarleg. Frumdrög liggja þegar fyrir, en leitað er svara hjá byggingarnefnd við nýjum spurningum sem upp hafa komið við skýrslugerð- ina. NÓG AD GERA Á RÍLAVERKSTÆÐINU Það erreyndarekkert nýnæmi að nóg sé að gera á bilaverkstæðum. Bíla- verkstæði Badda, er reyndar ekki starfrækt sem slikt, heldur er hér um að ræða nýjasta leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar. Hjá leikurunum í Bílaverkstæði Badda virðist vera meira en nóg að gera, því nú þegar er uppselt á allar sýningar út þennan mánuð. Myndin sýnir þá Arnar Jóns- son og Sigurð Sigurjónsson i hlutverkum sínum. Ríkisendurskoðun: FLUGSTÖÐVARSKÝRSLAN Á LOKASTIGI — enn er leitað svara hjá byggingarnefnd, við nýj- um spurningum sem upp hafa komið við skýrslu- gerðina.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.