Alþýðublaðið - 04.11.1987, Page 7

Alþýðublaðið - 04.11.1987, Page 7
Miðvikudagur 4. nóvember 1987 7 UTLÖND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir HERNAÐARSINNI TIL NATO? Manfred Wörner, varnarmálaráðherra og vestur-þýskur fram- bjóðandi í stöðu aðalritara NATO, vill að hersveitir NATO verði látnar gœta vestrænna hagsmuna í Mið-Austurlöndum og Afríku. „Eitt af aðalverkefnum NATO hlýtur að vera, að tryggja sér hráefni og olíubirgðir “ sagði hann á öryggismála- ráðstefnu í Bonn nýlega. Wörner, heldur því fram, að landfrœðilegar takmarkanir NATO séu ekki tímabœrar lengur. Ef þessar skoðanir hans ná fram að ganga er það þvert á hugsjónina að baki NATO, og gœti orðið til þess að grafa undan varnarbandalaginu. Þegar Wörner gaf þessa yf- irlýsingu sína, var hann tals- maður kristilegra demókrata, í öryggis og varnamálum. „Árum saman hefi ég látið það í Ijós, að NATO sem varn- arbandalag hins vestræna heims, þyrfti að vera annað og meira en varnarbandalag," sagði Manfred Wörner, „árum saman hefi ég taliö að þaö sé ekki nóg að verja Vestur- löndin og innri Afríku, heldur ætti NATO einnig að láta til sín taka i þeim lykilhluta heimsins, sem er olíulindirn- ar í Mið-Austurlöndum.“ Og hann hélt áfram: „Það hlýtur að vera eitt af aðalverkefnum NATO, að tryggja sér hráefnin og olíuna þar um slóðir.“ Á ráðstefnunni kom Wörn- er inn á það, að NATO ætti að vernda þau lönd „sem er sér- staklega ógnað“. „Þá hef ég sérstaklega í huga ríki eins og Pakistan, Saudi-Arabiu, Egyptaland, ísrael og einnig Tyrkland, sem var í NATO.“ (Þetta var áriö 1980, þegar ógnirnar í Tyrklandi voru upp á það versta.) Köld stríð Þessar óskir Manfred Wörner hafa fengið lltinn hljómgrunn I öllum flokkum að hans eigin flokki meðtöld- um. Þar sem herstyrkur NATO er undir sameiginlegri stjórn aðildarríkja, og NATO hefurekki „einka“ herlið, ber að líta á þessar hugmyndir Wörner þannig, að þýskur herafli yrði sendur á þá staði sem hann nefndi. Franz Josef Strauss hefur sagt þvert nei við þvi að þýskur herafli sé að vasast utan við umráðasvæði NATO. Manfred Wörner er fylgj- andi aukinni hergagnafram- leiðslu, og efasemdarmaður þegar rætt er um fækkun vopna og slökunarstefnu í stjórnmálum. „Slökunarstefna í stjórn- málum er vissulega óskatak- mark, en má ekki verða stjórnmálastefna án val- kosta,“ er haft eftir Wörner í blaðinu Die Welt. Aftur og aftur hefur Wörner ráðist harkalega á „svonefndar frið- arhreyfingar". „Þessar fráleitu friðarumræður í Vestur- Þýskalandi verða að taka enda,“ sagði hann í fyrir- lestri, og seinna: „Viö þurfum ekki að óttast stríð.“ Útnefn- ing Manfred Wörnertil aðal- ritara NATO hefur mætt mik- illi andstöðu í flokki sósíal- demókrata SPD. Talsmaður SPD í öryggismáluni, Horst Jungmann segir: „Á tímum viðræðna um slökunarstefnu og fækkun vopna þarf NATO forsvarsmann sem er sam- mála þeirri stefnu, ekki hern- aðarlega sinnaðan pólitíkus, sem vill efla vopnavaldið. Frekar kýs ég að fá Willoch fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, sem ég treysti full- komlega til að gæta hags- muna aðildarríkja NATO. Manfred Wörner er fæddur í Stuttgart árið 1934. Hann er lögfræðingur að mennt, var kosinn á Sambandsþingi 1965 31 árs gamall og yngst- ur þingfulltrúa. Hann gekk í herinn 1966 og er útlærður herflugmaður með 1200 tíma að baki, við stýrið á Starfight- er. Það hefur verið haft eftir honum að: „Ég vil frekar sitja í Starfighter í 10 klukku- stundir en á þingi í eina,“ og þykir þetta lýsa vissri fyrir- litningu á pólitik, en áhugi hans beindist að völdum í varnarmálum. Það tækifæri fékk hann, þegar Helmut Schmidt afhenti Helmut Kohl völdin árið 1982. í starfi varnarmálaráðherra hefur hann litið á það sem áríðandi verkefni að banna skólum að kynna bækur, sem hann telur „fjandsamlegar vamarmálum". Meðal þeirra bóka sem hann vill ekki hafa í skólunum, er bók hans Magnus Erzenberger, um fjöldamorð bandarískra her- manna í My Lai í Vietnam. Sömuleiðis bók Erich Maria Remarques „Tíðindalaust á Vesturvigstöðvunum", sú bók var ein af mörgum á bóka- brennu Josef Göbbels árið 1933. Það er greinilegt að Man- fred Wörner nýtur þess að vera ráðherra, með öllu því pompi og pragt sem því fylg- ir. Fyrirrennarar hans Helmut Schmidt og Hans Apel virt- ust aftur á móti fara hjá sér, þegar þeir þurftu að kanna heiðursverði og ganga á rauðum dregli. Wörner situr fast í ráð- herrastólnum, sem að vísu hreyfðist dulítið undir honum f „Kiessling hneykslinu" áriö 1984. Af gjörsamlega ósönnuð- um grun um homma-tilhneig- ingar, rak Wörner, Gunter Kiessling hershöfðingja úr starfi. Þetta gerði Wörner op- inberlega, en Kiessling var næst æðsti yfirmaður NATO í Brussel. Seinna kom í Ijós að .öll málsmeðferð var óafsak- anleg og ekki fótur fyrir sögusögnunum. Ábyrgð á þessu ömurlega málið varð leyniþjónustan að taka á sig. Hlutur Wörner í öllu saman var samt svo áberandi og vafasamur, að sterk öfl heimt- uðu afsögn hans. Wörner lifði hneykslið af pólitískt séð, vegna þess að Helmut Kohl mannaði sig ekki upp í að taka á málinu. „Það er hápunktur smekk- leysu, að ætla sér að senda Wörner á sama stað, og mað- ur sá var staösettur i hárri stöðu, sem Wörner rak úr embætti, alsaklausan,1' segir Horst Jungmann. Manfred Wömer, vestur-þýskur varnar- málaráðherra, herflugmaöur, mótfallinn fœkkun vopna, er talinn sterkastur fram- bjóðenda i starf aðalritara NATO,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.