Tíminn - 27.09.1967, Page 1

Tíminn - 27.09.1967, Page 1
219. — Miðvikudagur 27. sept. 1967 — 51. árg Gerist áskriíendur að TtMANUM Hringlð i síma 12323 Augtýsing í TÍMANUM teenwur daglega fyrir angu 86—166 þúsund lesenda. BRUARGERD VIÐ BORGARNES ER NÚ í ATHUGUN Þannig mun hugsað a8 brúin liggi, eSa eins og þverrákirnar milli Seleyrartanga og Bjargs. EJ-Reykjavík, þriðjudag. Nú í sumar hefur verið unnið nokkuð að mælingum í Borgarfirði í sambandi við hugsanlega brúargerð yfir f jö-ðinn. Munu mælingar bær, sem gerðar hafa verið, hafa leitt í Ijós að ef væn- legt verður talið að reisa brú yfir fjörðinn, þá ætti hún að liggja frá Seleyrar tanga yfir að Bjargi norðan megin við fjörðinn. Mun talið heppilegast að byggja tvær brýr — þ. e. brúa ál- ana en fylla upp á milli þeirra. Halldór E. Sigurðs- son, sveitarstjóri í Borgar- nesi, og alþingismaður, sagði í viðtali við blaðið í dag, að ekki væri ólíklegt, að framkvæmdir yrðu í þessu máli á næsta áratug, eða innar. þess tíma. Hailldór sagði, að afstiaða manna til pessa máls hefði noktouð breytzt, þannig, að það þæ.tti ekki lengur nein glæframennska að tala um brúna. — Og ég myndi telja, að framtovæmdir yrðu í þessu máli á næsta áratug, eða inn an þess tíma. Þá miða ég m. a við það, að þegar farið er að skoða málið ofan í kjölinn, get utr þetta orðdð ódýrasta leiðin. Umferðin er orðin það mikil hér, að vegurinn hér ætti að vera hraðbraut. Ef sami vegur- inn verður á sínum tíma byggð ur upp, þá verður að byggja upp brýrnar og veginn hér fyr ir innan, þ. e. Hvitárbrúna og Ferjukotssíkin og allt það. Og þær framkvæmdir væru miklu dýrari en brú yfir Borg arfjörð. Þess vegna held ég að þetta fari svona. Hins veg- ar játa ég, að ég hef alltaf ver ið bjartsýnismaður í þessu máli, en það eru fleiri orðnir nú. — sagði Halldór. Ef af þessari brúargerð verð ur í framitíðinni, þá má búast við að brúin liggi frá Bjargi norðan fjarðarins yfir tíl Seleyr ar. Er ekki ósennilegt, að þá yrði landtaka að norðan valin annað hvort ofan til í túninu á Bjargi, eða neðst í þvi, en þar eru klettar og því sterkar undiirstöður. Hér að sunnan má ætla, að landtakan verði á Seleyrartanganum eða innan til á Seleyrinni. Við brúargerðina mun leiðin til Borgarness stytt ast um 30 km. og samsvarandi stytting verður á vestur- og norðurleið. Líklegt er talið, að heppileg ast þytoi að skipta brúnni í tvennt — brúa álana, en fylla hitt upp. Myndi öll leiðin verða tæpir tveir kílómetrar. Mælingarnar hafa bæði ver i ið gerðar á botndnum og land tötounum. Þá hefur verið at- hugað um vegarstæði að brúar endanum að sunnanverðu, en heppilegast mun taiið að sá vegur liggi fyrir sunnan Sel- eyrarbrúna. Þessar mælingar munu hafa styrkt vonir þeirra, sem vilja fá brú yfir Borgarfjörð. Viðhorf eftir kosningar í Noregi á mánudag: Tilhneiging til vinstri - engin áhrif á landsmál ★ Heildarúrslit iiggja ekki enn fyrir • norsku bæjar- og sveitarstjómarkosningunum í gær, en aðeins er eftir að telja í sex sveitarfélögum og þremur dttum hverfum í Osló. Kjör- sókn var óvenju dræm. ★ Breytingar hafa orðið litl ar frá síðustu kosningum, Verkamannaflokkurinn og Hægri flokkurinn hafa tapað lítillega, en Sósíalistíski þjóðar flokkurinn. Vinstri flokkurinn og Miðflokkurinn hafa unnið lít <ð eitt á. Kommúnistar hafa tap að ofurlillu, en Kristilegi þjóð arflokkurinn staðið i stað. Segja má, að mjög litlar breytingar hafi orðið í norsku hæjar- og sveitarstjórnarkosn- mgunum. Heildarniðurstaða, þegar btiið var að telja í lang flestum kjördæmum og kjör- deildum var svohljóðandi: 'Fyrsti dál'kur er heildarat- Kvæðatala, síðan i %, þá frávik i % miðað við síðustu bæjar- 0» sveitarstjórnarkosningar og loks sams konar frávik miðað við Stórþingskosningarnar 1965). Verkamannaflokkur: 807161 44,3 h-1,5 0,8 Hægri flokkur: 341564 18,8 -h0,7 -4-1,1 Vinstri ftokkur: 178362 9,8 1,2 4-0,4 Miðflokkur 173740 9,5 0,9 0,0 Krlstil. þjóðarfl. 129295 7,1 0,1 4-0,8 Sósíal. þjóðarfl. 93545 5,1 2,3 4-0,9 Kommúnistar: 21487 1,2 4-0,7 4-0,2 Morsku blöðin skrifa að von um um úrslitin. Dagblaðið (Vinstri) segir, að úrslitin sýni staðfestuna í norskum stjórn malum. Stiórnarflokkarnir hafi hvorki fengið sérstaka traust- vfirlýsingu né vantraust. Kosn ingarnar munu þvi ekki hafa neinar afleiðingar i bili varð- andi Landspólitíkina. segir blað ið. Þá bætir blaðið þvi við, að ofurMtil tilhneiging til vinstri, sem toomið hafi fram í heildar úrslitunum. merki það, að Framhald á bls. 14. NÝR FJÁR- SJOÐUR F EJ—Reykjavík, þriðjud. Ekkert lát virðlst á f jársjóðafundum þessa dagana Nú um helgina var frá því skýrt, að enn eitt skipsflakið hefði fundizt og væri áætlað, að í því væru silfurdúkat ar, er gætu verið allt að 1000 milljón króna virði. Fannst skipsflak þetta við Shetlandseyjar. Kafararnir, sem fundu þetta skipsflak, hafa stund að leit sína með mikilli leynd síðustu þrjú árin. Hafa þeir nú þegar flutt í and um 4000 silfurdúkata úr kistu, sem þeir fundu í skipsflakinu. Er taUð að hver silfurpeningur geti ver ið allt áð 1800 króna virði. Kafararnir gizka á, að enn néu um 600.000 silfurpening ar á hafsbotninum. Flakið er af kollenzku skipi. „Liefde“ Var þetta Austur-Indíafar, sem sökk 7. nóvember 1711. Flutti skipið silfurpeninga og dýra málma Áætlað er, að toostn aðurinn við leitina að skips flakinu hafi nú þegar kostað kafarana á sjöunda hundrað þúsund krónur. Hafa þeir notað sérstakán útbúnað, sem þeu hafa sjálfir fundið upp, við leit flaksins. Kafararnir standa nú j samnmgaviðræðum við hol- ’.enzku ríkisstjórnina, sem á rétt a flakinu. Er búizt við, að þeir fái ríflega þau 33% aí verðmœti fjársjóðsins sem brezk yfirvöld greiða venjulega til þeirra, sem finna fjársjóði, er brezka ríkisstjórnin hefur eignar- réttínr á Munu kafararnir því græða álitlega fjárupp- hæð á fundinum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.