Alþýðublaðið - 24.12.1987, Page 1
STOFNAÐ
1919
Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambandssins:
STEFNIR
VERKFOLL
„Þeir hanga á töxtunum eins og vitlausir menn,“ segir Guðmundur J. um vinnuveitendur.
„Miöaö viö óbreytta stööu
stefnir annað hvort i verkföll
hjá einstaka félögum, með
skærum og uppþotum, eöa
allsherjarverkfall,“ sagöi Guð-
mundur J. Guðmundsson for-
maöur Verkamannasambands
íslands i samtali við Alþýöu-
blaðið í gær.
Ekkert hefur þokast í við-
ræðum Verkamannasam-
bandsins og vinnuveitenda
og segir Guðmundur að VSÍ
„hangi á töxtunum" og vilji
ekki rífa sig út úr þeim far-
vegi sem farin var í síðustu
samningum við Alþýðusam-
bandið." Þeir hanga á töxtun-
um eins og vitlausir menn,
og þáttur þeirra í þessu öllu
er orðinn ansi Ijótur.
Guðmundur sagði að
launabilið hefði breikkað gíf-
urlega mikið og beiskja væri
að sama skapi orðin mikil hjá
verst settu stéttunum. „Það
er t. d. voðalega þungt hljóð í
fiskverkunarfólki, sem finnst
það hafi veriö svikið. Það
verðurenginn öfundsverður
af því að reyna að ná samn-
ingum fyrir þetta fólk,“ sagði
Guðmundur.
Þá sagði Guðmundur að
VSÍ hefði á árinu misst tökin
á öllum töxtum og hefði það
m. a. birst í spennunni á
vinnumarkaði. „Hluti af
starfsstéttum er á arabamark-
aði, kominn á uppboð. Engu
að síður halda þeir niðri töxt-
um hjá vissum stéttum og
eru ekki til viðræðu um leið-
réttingar,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson.
Eftir 22 ára hlé:
ALÞÝÐU-
BLAÐIÐ
M
A
AÐFANGA-
DAG
Alþýðublaðið kemur út í dag,
aðfangadag 24. desember, í
fyrsta sinn frá árinu 1965. Frá
þeim ti'ma til dagsins í dag
hefur síðasti útgáfudagur Al-
þýðublaösins fyrir jól verið á
Þorláksmessu.
Með nýju, bættu og vax-
andi Alþýðublaði þótti rit-
stjórn rétt að taka upp hina
gömlu útgáfuhefð, enda I
samræmi við útgáfu annarra
dagblaða.
Alþýðublaöið kemur næst
út eftir jólahátíðina, þriðju-
daginn 29. desember. Alþýðu-
blaðið óskar lesendum gleði-
legra jóla.
BUBBI
MED NÝTT
ÍSLANDSMET
HALLDOB
FASTUR
FYRIR
3
B
ISRAELSKI
JÁRN-
HNEFINN