Alþýðublaðið - 24.12.1987, Qupperneq 5
Fimmtudagur 24. desember 1987
5
Getraunir
6 med 12 rétta
í 17. leikviku getrauna
komu fram 6 raðir með 12
rétta og hlaut hver um sig
125.285 krónur. Þrír vinningsi-
hafarnir voru úr Reykjavik,
einn frá Neskaupstað, einn
frá Seltjarnarnesi og einn frá
Hólmavík.
331 röð var með 11 rétta og
hlaut hver um sig 975 krónur.
Heildarvinningsupphæð
var 1.073.908 og var þetta
þriðja stærsta vikan á tfma-
bilinu. Hún sló út alla tvö-
falda potta hingað til.
Hópleikurinn
Aðeins einn hópur af sex
var með 12 réttar. Það var
hópurinn SÆ-2 en sá sem
leiðir þann hóp er fiskkaup-
maður í Sæbjörgu og Knatt-
spyrnustjarna úr Augnabliki,
Óskar Guðmundsson. Segir í
tilkynningu frá íslenskum
getraunum að Óskar sé
landskunnur tippari.
Piltur og stúlka
á Akureyri
Leikfélag Akureyrar frum-
sýnir 26. desember n. k. leik-
ritið „Piltur og stúlka" og er
það byggt á samnefndri
skáldsögu Jóns Thorodd-
sens. Leikgerð og tónlist sá
Emil Thoroddsen um leik-
stjóri er Borgar Garðarsson,
um leikmynd og búninga sá
Örni Ingi, tónlistarstjóri er
Jón Hlöðver Áskelsson og
um lýsingu sér Ingvar Björns-
son. Með hlutverk Indriða og
Sigríðar fara þau Arnheiður
Ingimundardóttir, Arnbjörg
Valsdóttir, Pétur Eqaerz oa
Páll Finnsson. Ingveldi í
Tungu, móður Sigríöar, leikur
Sunna Borg og móður Ind-
riða, Ingibjörgu á Hóli leikur
Kristjana N. Jónsdóttir.
Fyrsta
guðsþjónustan
í Hjallasókn
í dag, aðfangadag, verður
fyrsta guðsþjónustan í nýjum
„Messusal" Hjallasafnaðar í
Kópavogi. Samkomusalurinn
er i Digranesskóla og hefst
guðsþjónustan kl. 18.00, flutt-
ur verður aftansöngur. Ný-
stofnaður kirkjukór Hjalla-
sóknar leiðir sönginn undir
stjórn organistans, Friðriks V.
Stefánssonar.
I tilkynningu frá sóknar-
presti og sóknarnefnd segir
aö inngangur í salinn sé á
vinstri hönd þegar komið er
að anddyri Digranesskóla.
eins og þú vilt
að aðrir aki!
UMFEROAR
RÁD
KYNNTUÞER
STÖÐUÞNA
Í STAÐGREÐSUJ
-það margborgar sig
SKAJTKORT
Allir sem verða 16 ára og eldri á stað-
greiðsluári, fá sent skattkort fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Þar er mánaðarlegur persónuaf-
sláttur tiltekinn og einnig það skatthlutfall, sem
draga á af launum, auk helstu persónuupplýs-
inga, svo sem nafns, heimilis og kennitölu
launamanns.
Launamanni ber að afhenda launagreið-
anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Ef launagreiðandinn hefur ekki
skattkortið við útborgun iauna, má hann
ekki draga persónuafsláttinn frá stað-
greiðslunni og launamaðurinn greiðir þar
með mun hærri fjárhæð. Þess vegna er mikil-
vægt fyrir launamann, að sjá til þess að launa-
greiðandinn fái skattkortið i tæka tíð.
Þegar maki launamanns er tekjulaus get-
ur launamaðurinn einnig afhent launagreið-
anda sínum skattkort makans og þar með nýtt
80% af persónuafslætti hans til viðbótar
sínum. Bam innan 16 ára fær ekki skattkort.
Skatthlutfall þess er 6% og það fær ekki per-
sónuafslátt.
AUKASKA TTKORT
Launamaður getur fengið aukaskattkort ef
hann vinnur á fleiri en einum stað og vill skipta
persónuafslætti sínum. Athugið að hver og
einn launagreiðandi þarf ekki að fá skattkort frá
launamanni ef unnið er á fleiri en einum stað. Ef
launamaður fullnýtir persónuafsláttinn á einum
stað þarf aðeins eitt skattkort. Einnig getur
hann fengið aukaskattkort ef hann vill afhenda
maka sínum þann persónuafslátt, sem hann
nýtir ekki sjálfur. Þeir launagreiðendur sem
hafa ekki skattkordö draga þá 35.2% af
laununum. Þeir sem vilja nýta sér aukaskattkort
þurfa að fylla út umsóknareyðublöð sem fylgdu
skattkortinu og súa sér með þau til næsta skatt-
stjóra.
ÁLAGNING OG FRAMTAL
Skattframtali ber að skila í staðgreiðslu
með hefðbundnum hætti. Að loknu stað-
greiðsluári fer fram álagning og siðan uppgjör
staðgreiðslu. Þegar sú Ijárhæð, sem stað-
greidd hefur verið er borin saman við endan-
lega álagningu tekjuskatts og útsvars, kemur í
Ijós, hvort þessi gjöld hafi verið of eða van-
greidd. Það sem ofgreitt er verður endurgreitt
að viðbættri lánskjaravísitölu í einu lagi í ágúst.
Það sem vangreitt er verður innheimt með jöfn-
um greiðslun að viðbættri lánskjaravísitölu í
ágúst-desember.
SJÁLFSTÆÐIR REKSTRARAÐILAR
Sjálfstæðum rekstraraðilum er skylt að
reikna sér endurgjald (laun) af starfseminni og
miða staðgreiðslu sína við það og skila henni
mánaðarlega. Ríkisskattstjóri ákveður lágmark
endurgjalds og verður það tilkynnt.
SKATTLAGNING TEKNA
ÁRSINS 1987
öllum ber að skila framtali á árinu 1988
vegna ársins 1987 eins og endranær. Inn-
heimta fellur hins vegar niður af öllum
almennum launatekjum. Undantekningar
eruþógerðar
• ef laun hafa verið yfirfærð á árið 1987.
• ef hækkun launa verður hvorki rakin til auk-
innar vinnu, ábyrgðar né stöðuhækkunar.
• ef menn í eigin atvinnurekstri reikna sér
meira en 25% hæni laun fyrir 1987 en 1986
(meðverðbótum).
• ef menn fá meira en 25% hærri laun fyrir
eignarhlutdeild en var árið 1987 (með verð-
bótum).
I þessum tilvikum verður aukningtn skattskyld.
HÆKKUNÁ PERSÓNUAFSLÆTTI
Persónuafsláttur í staðgrwðslu opin-
berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797,-
krónur fyrir hvem mánuð á tímibUinu janú-
ar-júní 1988. Þann persónuafslátt sem fram
kemur á skattkortum (einnig aukaskattkort-
um) sem gefin eru út fyrir 28.12. ber launa-
greiðendum því að hækka um 8.745% við
útreikning staðgreiðslu.
Staðgreiðslan ereinföld
- efþú þekkir hana
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI