Alþýðublaðið - 24.12.1987, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 24. desember 1987
SMÁFRÉTTIR
Frá æfingu á „Algjöru rugli“.
Algjört rugl
í Iðnó
Leikfélag Reykjavíkur frum-
sýnir þann 30. desember n.k.
nýjan bandarískan gaman-
leik, Beyond therapy eða „Al-
gjört rugl“, einsog gamanleik-
urinn er kallaóur á íslensku.
„Algjört rugl“ er eftir
Christopher Durang og segir
í frétt frá Leikfélaginu að
hann hafi samið marga gam-
anleiki sem náð hafa miklum
vinsældum bæði í Bandaríkj-
unum og viöar. Verk hans
þykja nýstárleg, bæði að efni
og ytra búning. Allir hans
gamanleikir eru flokkaðir
sem „Black comedy" grátt
gaman. Þetta eru ekki ærsla-
leikir, húmorinn er nistandi
og stutt í alvöruna sem undir
býr.
„Algjört rugl“ er dæmi-
gerður „Svartur gamanleikur"
segir, hæðin satíra á velferð-
arþjóðfélagið og yfirborðs-
mennskuna á okkar síðustu
og bestu „tímaritartímum",
tímum glansmynda og gervi-
þarfa, grátbrosleg lýsing á
nútímafólki sem leitar angist-
arfullt að lífsfyllingu og ást,
með dyggri aðstoð léttgeggj-
aðra sálfræðinga, en nær
ekki áttum og finnur engar
frið i stressaðri sál.
Þýðandi Ieikritsins er Birgir
Sigurðsson, leikstjóri Briet
Héðinsdóttir, leikmynd og
búninga sér Karl Aspelund
um og lýsingu Lárus Björns-
son. Leikarar eru Kjartan
Bergmundsson, Guðrún S.
Gísladóttir, Valgerður Dan,
Harald G. Haraldsson, Jakob
Þór Einarsson og Þröstur Leó
Gunnarsson.
Nýtt fjár-
festingarfélag
Mánudaginn 21. desember
sl. var formlega stofnað nýtt
fjárfestingarfélag að frum-
kvæði Iðnþróunarsjóðs, sem
heitir Fjárfestingarfélagið
Draupnir hf. Markmið þess er
að stuðla að þróun hluta-
bréfamarkaðar hérlendis. Fé-
lagið er fjárfestingarfélag,
þar sem Iðnþróunarsjóður
verður meirihlutaeigandi í
upphafi, en ætlunin er að
það fyrirkomulag gildi aðeins
fyrstu ár starfseminnar.
Hlutafé hin nýja félags er 150
milljónir króna, en stjórn fé-
lagsins hefur heimild til að
auka það um aðrar 150 m. kr.
og opna það fyrir þátttöku
annarra.
í fréttatiIkynningu frá nýja
félaginu segir, að markmið
þess sé, að stuðla að þróun
hlutabréfamarkaðar hér á
landi. Þessum tilgangi
hyggst félagið m.a. ná með
þeim hætti að festa kaup á
hlutabréfum, skuldabréfum
og öðrum verðbréfum at-
vinnufyrirtækja, sem líkleg
eru til að skila góðum arði
miðað við áhættu. Félagið
mun stefna að því að stunda
kaup og sölu á hlutabréfum í
starfandi fyrirtækjum, þar
sem engar hömlur eru lagðar
áviðskipti með hlutabréf.
Fjárfest verður i hlutabréfum
og verðbréfum með skráð
markaðsvirði. Jafnframt verð-
ur fjárfest í óskráðum bréf-
um, þegar verulegar líkur
benda til að þau komi til
skráningar inna fárra ára.
Nýja félagið mun gera kröfur
um að samþykktir þessara
fyrirtækja samrýmist þessari
stefnu.
Vísitala
byggingar-
kostnaðar
107,9 stig
Vísitala byggingarkostnað-
ar eftir verðlagi í desember
1987 er 107,9 stig eða 0,37%
hærri en í nóvember. Síöast-
liðna tólf mánuði hefur vísi-
tala byggingarkostnaðar
hækkað um 18%, undanfarna
þrjá mánuði um 5,4% og
jafngildir sú hækkun 23,3%
verðbólgu á heilu ári.
Af hækkun vísitölu frá
nóvember til desember stafa
um 0,1% af hækkun á gatna-
gerðargjöldum og töxtum
Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
og tæplega 0,3% af hækkun
á verði ýmissar vöru og
þjónustuliða.
„Barnagull,
____“ bækur og
snældur
Mál og menning hefur nú
bryddað upp á nýjung i
barnabókaútgáfu og sendir
því frá sér fyrstu „Barnagull-
in“. Það eru spjöld þar sem
pakkað er saman barnabók
og snældu með lestri á bók-
inni.
Þegar eru komin út sex
„Barnagull:“ „Saga af Suður-
nesjum og fleiri Ijóð eftir
Jóhannes úr Kötlum," „Sjáðu
Maddit, það snjóar“ eftir
Astrid Lindgren, „Blómin á
þakinu" eftir Ingibjörgu Sig-
urðardóttur og „Skilaboðs-
skjóðan" eftir Þorvald Þor-
steinsson. Lesari á þessum
fjórum snældum er Silja
Aðalsteinsdóttir. Ingibjörg
Haraldsdóttir les söguna
„Fjöður Hauksins hugprúða"
og fyrir eldri krakkana er
komin út snælda með sög-
unni „Græna höndin." Það er
Vilborg Dagbjartsdóttir sem
les.
íslandssaga
A-K
Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs hefur gefið út ritið „ís-
landssaga A—K“ eftir Einar
Laxness, fyrra bindið af
tveimur í flokknum Alfræði
Menningarsjóðs. Er þetta
önnur útgáfa aukin og endur-
skoðuð.
íslandssaga A—K kom
fyrst út 1974 og fjallar um
hlutaðeigandi efni undir upp-
flettiorðum í stafrófsröð. Bók
in er unnin i prentsmiðjunni
Odda og er 287 bls. að stærð
og prýdd myndum.
Fatasendingar
frá Rauða
krossinum
í síðustu viku bárust 7
tonn af notuðum fatnaði til
flóttamannabúða í Úganda.
Föt þessi eru gjöf frá Rauða
krossi Islands og hefur fé-
lagið þá samtals sent rúm 42
tonn af notuðum fatnaði á
þessu ári til bágstaddra í
Mósambik, írak, Eþíópíu og
Úganda.
Frá þvi haustið 1985 hefur
Rauði krossinn tekið á móti
notuðum fatnaði allt árið.
Fötin eru send héðan i gám-
um til Rauða krossins í Dan-
mörku þar sem þau eru flokk-
uð og þeim pakkað. Þegar
beiðni berst eru fötin síðan
send áfram til viðtökustaðar
frá lager danska Rauða
krossins á Jótlandi.
Undanfarin tvö ár hafa fata-
sendingar verið drjújgur þátt-
ur i hjálparstarfi RKI á er-
lendum vettvangi og hafa alls
verið send rúm 90 tonn at
fatnaði til Afríku, Asíu og
Mið-Ameríku á þessum tíma.
í fréttatilkynningu þakkar
stjórn Rauða kross Islands
öllum þeim fjölmörgu sem
tekið hafa þátt í fatasöfnun
félagsins á undanförnum
árum, bæði gefendum og
sjálfboðaliðum um land allt.
Staða framkvæmdarstjóra
kerfissviös Reiknistofu bankannaerlaus til
umsóknar.
Umsóknir um stööuna sendist forstjóra
reiknistofunnar fyrir 1. febrúar 1988.
FLUGMÁLASTJQRN
ÚTBOÐ
Flugmálastjórn óskar eftir tilboöum í 2.
áfanga aö nýrri flugbraut viö Egilsstaöi.
Helstu magntölur
Gröftur 100.000 rúmmetrar
Fylling 300.000 rúmmetrar
Útboösgögn veröa afhent hjá Ingólfi Árna-
syni, umdæmisstjóra Flugmálastjórnar á
EgiIsstaöafIugvelli og hjá Almennu Verk-
fræöistofunni hf., Fellsmúla 26,108 Reykja-
vík frá og meö þriöjudeginum 29. desember
n.k. gegn kr. 5000,- skilatryggingu.
Tilboö veröa opnuö á Almennu Verkfræói-
stofunni hf., Fellsmúla26, Reykjavík mánu-
daginn 18. janúar n.k. kl. 14.00 aö viöstödd-
um þeim bjóðendum sem þess óska.
Flugmálastjórn áskilur sér rétt til að taka
hvaöa tilboöi sem er eöa hafna öilum.
Flugmálastjórn.
KRATAKOMPAN
Jólabingó
Skrifstofa Alþýðuflokksins verður með glæsileg-
asta bingó ársins í glæsilegasta samkomuhúsi
landsins, Hótel íslandi, við Ármúla þriðjudaginn 29.
desember kl. 20.00.
Aðalvinningur verður splunkuný LANCIA bifreið, að auki
verður fjöldi heimilistækja í vinninga. Nánar auglýst síðar.
Takið þennan dag frá á almanakinu.
Skrifstofa Alþýðuflokksins.
Jólakrataplata
Skrifstofa Alþýðuflokksins selur nú jólalagasafnið
„Gleðileg jól“ með 24 lögum sem eru flutt af mörg-
um góðum söngvurum svo sem Björgvini Halldórs-
syni, Þuríði Sigurðardóttir og Þóri Baldurssyni.
Lögin eru til á kasettu eða tveimur þlötum í umslagi.
Verðið er kr. 1.000.-.
Hringið eða komið. Við tökum vísa og eurocard.