Alþýðublaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 6. janúar 1988 ÍLNDWilM Útgefandi: Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Fréttastjóri: Umsjónarmaður helgarblaðs: Blaðamenn: Dreif ingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blað hf. Valdimar Jóhannesson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Þorlákur Helgason Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir og Sigrlður Þrúður Stefánsdóttir. Þórdls Þórisdóttir Filmur og prent, Ármúla 38. Blaöaprent hf., Síöumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virkadaga, 60 kr. um helgar. BREYTINGAR Á SKATTKERFI Stórtækar skattbreytingar standa nú fyrir dyrum lands- manna. í dag koma til framkvæmda ný lög um söluskatt sem er einn þáttur þeirra kerfisbreytinga sem um er að ræða. Söluskatturinn nýi er fyrst og fremst atlaga gegn götóttu undanþágukerfi og falla nú ýmsar undanþágur niöursem áðurþóttu sjálfsagðar. Umdeildust er niðurfell- ing undanþágu söluskatts á matvæli og hefur henni víða verið andmælt, meðal annars hér í Alþýðublaðinu. Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra var sþurður um þetta atriði í viðtali sem birtist við hann í áramótablaði Alþýðublaðsins. Ráðherra svaraði: „Einn þáttur þeirrar kerfisbreytingar sem nú stendur fyrir dyrum eru breytingar á söluskatti sem fela það í sér að söluskattur verður samræmdur og leggst m. a. á mat- vörur, sem nú eru ýmist söluskattsfrjálsar eða með 10% söluskatti. Þessi breyting út af fyrir sig veldur hækkun á matvörum. Aðrir þættir breytinganna, niðurfelling sex mismunandi aðflutningsgjalda og lækkun tolla, leiða á hinn bóginn til lækkunar vöruverðs. Þar til viðbótar koma síðan umfangsmiklar hliðarráðstafanir til tekjujöfnunar. í krónum talið líturdæmið þannig út fyrir vísitölufjölskyldu með 105 þús. kr. ráðstöfunartekjur í október, að matar- reikningur getur hækkað um 1800 kr. á mánuði. Á móti kemur lækkun á öðrum vörum sem nemur öðrum 1800 krónum. Framfærslukostnaður hækkar ekki af þessum sökum. Ýmsar mikilvægustu neysluvörur heimilanna svo sem mjólk, dilkakjöt og fleiri vörur hækka ekki. Þetta eru staðreyndir og kjarni málsins. Það hefur verið þyrlað upp gríðarmiklu moldviðri sem ætlað er að vekja ugg meðal almennings vegna þessara breytinga. Menn setja upp helgisvip og láta sem matvörur hafi aldrei hækkað fyrr. Hafa þeir sem hæst láta nú t. d. gleymt því, að samkvæmt fastbundnum formúlum hækk- aði búvöruverð um 8% í byrjun þessamánaðar? Hvað kom þá á móti? Ekkert. Loks er ástæða til þess að minna á það að kerfisbreyt- ingin mun leiðatil lækkunará lánskjaravísitölu, sem leiðir af því að byggingarkostnaðurlækkarum Iiðlega2%. Þetta skiptir auðvitað miklu máli fyrir það fólk sem þer þunga skuldaklafa, svo sem húsbyggjendur." I sama viðtalið var fjármálaráðherra ennfremur spurður um hag barnafólks, einstæðra foreldra og lífeyrisþega í hinu nýja skattkerfi. Jón Baldvin Hannibalsson svaraði: „Þær hliðarráðstafanir sem nú hafa verið ákveðnar fel- ast í hækkun barnabóta, hækkun bóta Iífeyristrygginga og auknum niðurgreiðslum. í þessu skyni verður alls varið liðlega 2200 milljónum króna á næsta ári. Markmið þess- ara aðgerða er einmitt að verja sérstaklega hag þeirra hópa sem þú nefnir. Lífeyrisbætur hækka um 6—8 af hundraði frá 1. janúar eða svipað og nemur hækkun á matvörum. Barnabætur hækka sérstaklega um 9—10%, en auk þess eru gerðar lagfæringarábarnabótaauka, sem sérstaklega koma til góða barnmörgum fjölskyldum. Að meðaltali nemur þessi hækkun um 5000 kr. með hverju barni. Barnabætur verða greiddar út ársfjórðungslega á næsta ári, í fyrsta skipti í janúar. Útborgaðar barnabætur hjóna með tvö börn, m. v. að annað sé undir 7 ára aldri, verða þá tæplega 16 þúsund kr. fyrir 1. ársfjórðung. Þegar á þetta er litið held ég að ekki verði annað sagt, en að hag þessara hópa sé sæmilega borgið. En það er nokkuð lýsandi að þessum þáttum kerfisbreytingarinnar hefur lítt verið haldið á lofti af stjórnarandstöðu." Nýju skattkerfi ber að fagna. Einföldun skattakerfisins bætir skattskil og gerir kerfið réttlátara. Fækkun frádrátt- arliða og undanþága samfara staðgreiðslukerfi auðveldar skattskil og gerir skattaeftirlit virkara. Betra skattkerfi verðurað fylgjaeftir með áframhaldandi aðgerðum; virðis- aukaskatti, endurskoðun áskattlagningu atvinnurekstrar- ins og samræmdri skattlagningu eignatekna. Þeim verk- efnum þarf að Ijúka á árinu sem er að hefjast. ÖNNUR SJÓNARMIÐ TIMINN birtir á forsíóu í gær viðhorf landsmanna til Sambands íslenskra sam- vinnufélaga. Þar segir með Gallup könnun á viöhorfi íslendinga Flugleióa, Eimskips, ísals og SIS; Þjóðinni fellur Gallup á íslandi framkvæmdi ný- lega könnun fyrir Samband ís- lenskra samvinnu- félaga, þar sem þúsund manna úrtak var spurt um afstöðu til fjögurra stórfyrirtækja á ís- landi. Eitt þessara fyrirtækja var SÍS. Viðhorf almenn- ings í garð *><rir- tækisins breyst í ja átt síðastl' ár, eða fr /9/7 70 yS87 fyrsta kön [ Nof I ar göng [ lesa i I spur tækii 'Vi, legra, -i J meira ör. vinnulífinu ei I tveimur árum. • Blaðsíða 5 >elur sls"nútlmalegra og 6flugra en fyrir tveimur' Frétt Tímans sýnir að þjóðin er farin aö sætta sig við SIS. stríðsletri: ÞJÓÐINNI FELL- UR BETUR VIÐ SÍS. Hins vegar er samanburðarsetn- ingunni ekki lokað svo les- endur spyrja sig: Fellur betur við SÍS—en hvað? Fellur bet- ur SÍS en AIDS? Eða fellur þjóðinni betur við SÍS en við Suðurlandsskjálftann? Þegar betur er að gáð, þá sýnir Gallup — könnunin að þjóð- inni fellur betur við SÍS en við SÍS, það er að segja gamlaSIS. Þessi stórmerki- lega könnun sýnir og sannar að Eyjólfur er að hressast; fyrirtækið er ekki jafn of- boðslega óvinsælt og áður. Könnunin var einnig vin- sældarkeppni milli SÍS, ÍSAL, Eimskips og Flugleiða. í Ijós kom að þrátt fyrir jákvæðara viðhorf almennings til SÍS, er Sambandið engu að síður lang óvinsælasta fyrirtækið i könnuninni. Það má eigin- lega orða það sem svo, að þjóðin er farin að sætta sig við SIS. En lítum aðeins á nokkrar niðurstöður eins og þær birtast í Tímanum: „Þá var spurt um það hvort viðkomandi teldi að Sam- bandið tengdist ákveðnu stjórnmálaafli í landinu. Hlut- föli hafa litið breyst og sagði 61% „já, í verulegum mæli“, önnur 22% „já einhverjum mæli“, og 5% „já, í litlum mæli“. Aðeins 7% sögðu nei. Ekki var spurt á sambærileg- an hátt varöandi hin stóru fyrirtækin þrjú. Ef menn svöruðu já við þessari spurningu, voru þeir spurðir hvort þeir álitu þessi tengsl vera æskileg eða óæskileg, 11% sögðu þessi tengsl vera „æskileg“ 62% „óæskileg“ og 20% svöruðu „bæði og.. Þá erum við eiginlega farin að skilja hvað fyrirsögn Tímans þýddi: Þjóðinni fellur við SÍS — hvort sem henni líkar það betur eða verr... Hreggviður Jónsson þögli er á ferð með nýja siðbót að mati Odds Ólafssonar. ÞAÐ eru fleiri en við á Al- þýðublaðinu sem hafa vakið athygli á þögn Hreggviðs Jónssonar þingmanns úr Borgaraflokki á Alþingi fyrir áramót. Oddur Ólafsson, að- stoðarritstjóri á Tímanum vekur athygli á þögninni í blaði sínu í gær og skrifar: „Hreggviður Jónsson hef- ur þegar skapað sér veglegan sess í þingsögunni með því að innleiða nýjan sið á hinu háa Alþingi. Að standa í pontu og þegja er ólikt gáfu- legra en að flytja margar ræður af því tagi sem sumir halda að tilheyri þingsetu. Margir þingmenn geta tek- ið Hreggvið sér til fyrirmynd- ar hvað varðar ræðu- mennsku. Sumar ræður eru best ófluttar og aðrar gætu að ósekju verið fluttar á örfá- um minútum, sem þó taka langan tima í flutningi. En þingmenn eru með þeim ósköpum gerðir að láta ræðustól ekki ónotaðan. Því standa þeir þar og teygja lopann. En aðferð Hreggviðs er miklu betri, að tryggja sér pontuna, standa þar vel og lengi og halda sér saman. Þessu fylgja margir kostir. Aðrir þingmenn þurfa ekki að leggja sig eftir að hlusta, þingfréttaritarar losna við að reyna að komast að raun um hvað verið er að fjalla um og mikill sparnaður yröi í prent- un þingtíðinda ef þingmenn vendu sig af málæði á þing- fundum. Ef aðrir bæru gæfu til að temja sér ræðumennsku Hreggviðs mundi deiium linna á þingi og þingið sitja i sátt og samlyndi, og þögn. En þögnin er gulls ígildi og færi betur ef þingstörfin færu meira í íhugun en ræöumennsku. Eftir á að koma í Ijós hvort siðbót Hreggviðs á eftir að hafa varanleg áhrif á stjórnmála- baráttuna eða hvort þing- menn eru svo lánlausir að geta ekkert af honum lært.“ Einn we8 kðffinu Þessa dagana er mikið þráttaö um bankastjórastóla. Hér er einn gamall brandari úr bankalífinu: Ungur piltur er í heimsókn hjá kunningja sínum. Húsbóndinn á heimilinu heilsar þessum vini sonarins og segir: — Sæll, vinur, hverra manna ert þú? — Ég er sonur hans Jóns, svaraði pilturinn. — Og hvað gerir pabbi þinn? spyr húsbóndinn. — Hann hreinsar bankann, svaraði pilturinn. — Já, það er einmitt það, segir húsbóndinn, er hann ræstingamaður eða bankastjóri?

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.