Alþýðublaðið - 07.01.1988, Qupperneq 1
VORUVERÐ HÆKKAR STRAX
segir Ingibjörn Hafsteinsson formaöur Félags matvörukaupmanna. Söluskattur
leggst strax á vörur en tollalœkkanir koma ekki fram fyrr en síðar.
Söluskattshækkunin tekur
gildi í dag. Við hana leggst
söluskattur m. a. á þá mat-
vöru sem hefur verið laus við
þann skatt og eins mun vara
sem í haust var hækkuð með
10% söluskatti hækka enn
og bera framvegis 25% sölu-
skatt.
Allar vörur hækka í dag að
undanskildum landbúnaðar-
vörum. Þær eiga ekki að
hækka þó að á þær verði
lagður söluskattur, þar sem
niðurgreiöslur verða auknar.
Fjármálaráðherra hefur
gert ráð fyrir því að vöruverð
muni ekki leiða til hækkunar
á framfærsluvísitölu, þar sem
ýmsar vörur lækki i verði við
lækkun tolla, sem tóku gildi
á nýju ári.
Ingibjörn Hafsteinsson for-
maður Félags matvörukaup-
manna segir þó að ýmsar
vörur muni hækka verulega í
verði þegar í dag, þó að gert
sé ráð fyrir því að þær muni
lækka vegna tollabreytinga
síðar meir. Ástæðan er sú að
tollalækkanirnar munu ekki
koma fram fyrr en heildsalar
hafa fengið nýjar sendingar í
hús og kaupmenn njóta
lægri innkaupa þar af leið-
andi. Hins vegar falli sölu-
skattur umsvifalaust á allar
vörur í verslunni. Og þar með
vörur sem hafa verið keyptar
á hærra verði hjá heildsölum
en verður i framtíðinni, þegar
tollalækkunin fer að segja til
sín.
„Okkur ber að standa skil á
söluskatti af öllum vörum frá
og með 7. janúar,“ segir Ingi-
björn Hafsteinsson. „Viö
komum til með að setja sölu-
skatt strax á vöru sem á svo
eftir að lækka næst þegar
við fáum hana. Við þessu er
ekkert aö gera.
Ég veit aö vörur eru þegar
farnar að berast til kaup-
manna á lækkuðu verði frá
heildsölum," segir Ingibjörn.
Stjórn Félags matvöru-
kaupmanna hélt fund í gær
vegna fyrirhugaðra breytinga.
Sagði Ingibjörn formaðurfé-
lagsins að loknum fundi að
enn virtist ýmislegt óljóst um
vöruverðslækkunina, sem
verður vegna tollalækkana,
en það væri þó Ijóst aö vörur
hækkuðu verulega i verði
þegar í dag, 7. janúar — Ingi-
björn taldi ákaflega óheppi-
legt aö leggja söluskattinn á
á þrettándanum. Kaupmenn
yrðu að vinna i aukavinnu,
skólafólk væri horfið inn í
skólana. Hið sama hefði
reyndar verið upp á teningn-
um í haust, þegar 10% skatt-
urinn var lagður á. Það gerö-
ist um verslunarmannahelgi.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins draga margir í
efa að fyrirhuguð verðlækkun
vegna tollalækkana muni
skila sér í jafn mikilli lækkun
og fjármálaráðuneytið hefur
reiknað með. Ráðuneytið ætli
t. d. að álagningarhlutfall í
verslun muni ekki breytast þó
að innkaupsverð lækki. Hætt
er við segja heimildarmenn
aökaupmenn vilji sömu krónu-
tölu til sín og áður og þess
vegna muni vöruverð ekki
lækka að sama skapi. Al-
þýðublaðið mun fylgjast með
verði í búðum. í helgarblað-
inu mun t. d. birtast saman-
burður úr tveimur stærstu
vöruverslunum landsins.
SAMKOMULAG
UM KVÓTA-
FRUMVARPIÐ
Aflahámark báta undir
6 lestum verður hœkkað
og banndögum fœkkað
í gær var allt útlit fyrir að
samkomulag hefði náðst á
milli stjórnarflokkanna um af-
greiðslu kvótafrumvarpsins.
Samkomulagið felur i sér
breytingar á 10. grein frum-
varpsins, sem fjallar um smá-
báta. Að öðru leyti er ekki um
neinar stórbreytingar að
ræða.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins hefur sam-
komulag náðst um töluverða
rýmkun á 10. grein frumvarps-
ins. Aflahámark báta undir 6
lestum verður hækkað nokk-
uð og banndögum fækkar frá
því sem frumvarpið gerði ráð
fyrir.
Talið er víst að fljótlega
muni ganga að afgreiða frum-
varpið eftir samkomulagið
sem tókst í gær, þótt ein-
staka stjórnarliðar kunni enn
að krefjast frekari breytinga.
Það reynist mörgum erfitt að skilja allar þær skattkerfisbreytingar sem orðið hafa að undanförnu. Það eru
ekki bara skattkortin sem valda mönnum heilabrotum, heldur einnig breyttar reglur um söluskattsskylda
aðila. Samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkisskattstjóra eru daglega ný nöfn að bætast á söluskatts-
skrána. A-mynd/Róbert.
Söluskattsbreytingarnar
1. september:
SKÝRSLUM
FJÖLGAÐ UM
TVÖ ÞÚSUND
Taliö er aö söluskattsskyld-
um aðilum hafi fjðlgað um
rúmlega 2000 frá því 1. sept-
ember s. I. er ný lög tóku
gildi um söluskatt á þjónustu
verkfræðinga, lögfræðinga,
arkitekta og fteiri hópa sem
áður voru undanþegnir sölu-
skatti. Að sögn Jóns Guð-
mundssonar hjá embætti
Ríkisskattstjóra voru út-
sendar skýrslur í nóvember
11.406, en i ágúst s. I. 9.358.
Þeim fjölgaði þvi um 2048
fyrsta mánuðinn eftir að lög-
in tóku gildi.
Að sögn Jóns er enn ekki
vitað nákvæmlega hvað þessi
aukning þýðir á ársgrundvelli,
en það ætti að skýrast nánar
seinni hluta þessa mánaðar
þegar skýrslum hefur verið
skilað inn fyrir desember.
í september var söluskatt-
ur ákveðinn 10% en verður
12% (dag.
RUMENIA
VON-
LEYSISINS
FRALEIT
AÐGERÐí
LANDRÚNAÐI
3
STRIÐ
Á VINNU-
MARKAÐI?