Alþýðublaðið - 07.01.1988, Side 8
*T* tfliYl 681866 MLÆjæ æ 1 HUBUBI9 “ 'SINGAR 5ÍMI 1866
SAMNINGAR í SKUGGA VERKFALLA
Útlit er fyrir hörð átök á
vinnumarkaðnum á næst-
unni. Töluvert ber á milli i
viðræðum verkalýðshreyfing-
arinnar og vinnuveitenda.
Engar kröfugerðir hafa verið
settar fram, en Ijóst sé að
framfærsluvisitafan hafi
hækkað um rúmlega 7% og
sumir hópar launafólks þurfi
allt að 15% hækkun. Sjó-
mannasambandið ákvað að
biða með uppsögn samninga
m. a. vegna tilkomu stað-
greiðslukerfis skatta. Fjögur
aðildarfélög innan þess hafa
þó lausa samninga. Viðræður
eru i gangi milli ríkisins og
kennara um vinnutíma og
vinnutilhögun hjá kennurum.
Önnur starfsmannafélög
rikisins eru með samninga til
næstu áramóta og flest
bæjarstarfsmannafélög til
áramóta 1989/1990.
Ólína Ólafsdóttir.
„VIL FÁ
KAUPHÆKKUN“
„Að sjálfsögðu vill maður
kauphækkun í komandi kjara-
samningum. Það hefur eng-
inn efni á að lifa á þessum
launum.
Ég vildi helst komast hjá
verkföllum, en ef farið verður
út í verkföll mun ég taka þátt
í þeim,“ sagði Ólína Ólafs-
dóttir í Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur.
Nú um áramótin lauk
gildistíma fjölmargra kjara-
samninga. Sem dæmi má
nefna að öll aðildarfélögin
innan Alþýðusambands ís-
lands eru með lausa samninga.
Samkvæmt heimildum Ai-
þýðublaðsins innan verka-
lýðshreyfingarinnar stefnir í
hörð átök á vinnumarkaðnum
eins og málin standa núna.
Aflað yröi heimilda til verk-
falla og svo gæti farið aö
vinna stöðvaðist víða þegar
kæmi fram í febrúarmánuð.
Rætt hafi verið við vinnu-
veitendur allt sl. ár bæði á
meðan góðærið stóð yfir og
eins eftir að syrta tók í álinn
og að ekki virtist yfir miklu
að sitja. Engar formlegar
kröfugerðir hafi verið settar
fram, en mikið rætt um
hvernig jafna megi það mis-
gengi sem orðið hafi á milli
Páll Jónsson.
„REIDUBÚINN
í VERKFALL“
„Það er ekki spurning um
að vilja kauphækkun, heldur
er spurningin hve mikið við
fáum,“, sagði Páll Jónsson
verkamaður í Dagsbrún.
„Ertu reiðubúinn að fara í
verkfall til að ná fram hækk-
un?“
„Já, ég er alveg reiðubúinn
til þess, við höfum dregist
svo langt aftur úr í launum."
hópa. Greinilegt sé að mikið
beri á milli.
Samningar muni snúast að
langmestu leyti um beinar
launahækkanir. Framfærslu-
vísitalan hafi hækkað um
rúmlega 7% og að til væru
þeir hópar sem þyrftu allt að
15% hækkun.
I dag hefst miðstjórnar-
fundur ASÍ og gæti verið að
stefnan skýrðist frekar að
honum loknum.
Ljóst er að samningar
muni fara fram í skugga verk-
falla eða jafnvel að verkföll
þurfi að koma til áður en
samkomulag náist.
Samningar Sjómannasam-
bands Islands voru uppsegj-
anlegir með mánaðarfyrirvara
um áramótin, en meirihluti
félaga vildi bíða með upp-
sögn. Þó voru fjögur félög
innan sambandsins sem
Sigrún G. Óskarsdóttir.
„VERKFALL
NEYDARÚRRÆÐr
„Ég hefði ekkert á móti
launahækkun, það veitir auð-
vitað ekki af henni," sagði
Sigrún G. Óskarsdóttir í
Verkakvennafélaginu Fram-
sókn.
„Ég er ekki sérlega hlynnt
verkfalli, en það er auðvitað
neyðarúrræði."
sögðu upp samningum.
„Við erum að taka upp
staðgreiðslukerfi skatta og
meö tilliti til þess þótti viss-
.ara að bíða og sjá hvernig
það reyndist," sagði Óskar
Vigfússon formaðurSjó-
mannasambandsins í samtali
við Alþýðublaðið. Sagði hann
aó samningar þeirra fram-
lengdust um sex mánuði í
einu sé þeim ekki sagt upp
og gætu þeir því sagt þeim
upp 1. júní n. k.
Svo til öll félög opinberra
starfsmanna eru með samn-
inga til næstu áramóta, þó
eru kennarar með lausa
samninga.
Indriði H. Þorláksson skrif-
stofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu sagði í samtali við
Alþýðublaðið að Hið íslenska
kennarafélag væri með lausa
samninga og Kennarasam-
Hafliöi Jóhannesson
„Hneyksli“
„Það er ekkert skilyrði að fá
beinharða peninga út úr
næstu samningum, það er
ýmislegt fleira sem kemur til.
Einhvernveginn verða kjör
okkar að batna. Það er
hneyksli að við sem vinnum
við fiskvinnslu, höfuðatvinnu-
veg þjóðarinnar skulum ekki
bera meira úr býturn."
„Ég erekki tilbúinn að farað
verkfall. Þau skila aldrei neinu
til verkalýðsins," sagði Hafliði
Jóhannesson verkamaður í
Dagsbrun.
band íslands væri með „leys-
anlega“ samninga.
Sagði hann að viðræður
væru í gangi við kennara og
snerust þær aðallega um
vinnutíma og vinnutilhögun
þeirra og hafi nefndir sem
unnu að því að skoöa þau
mál skilað áliti. „Við erum að
ræða þau mál.“
Sagði Indriði að of
snemmt væri að segja til um
gang samninganna, ýmsir
möguleikar væru í þessum
málum og skoðanir mismun-
andi.
Flest bæjarstarfsmannafé-
lög hafa gert samninga til
áramóta 1989/1990, en endur-
skoðunarákvæði eru í þeim
samningum. Meðal þeirra
bæjarstarfsmannafélaga sem
gerðu slíka samninga eru
starfsmenn Reykjavíkurborg-
ar, Akraness og fleiri.
Dagrún Jóhannsdóftir
„Kýs samninga-
leiðina“
„Það er að sjálfsögðu
höfuðskilyrði að fá hækkun
launa, þetta eru engin laun
sem maður hefur í dag. Það lif-
ir enginn af Sóknartaxta."
„Ég hef ekki hugleitt verk-
fallsleiðina sérstaklega. Ég
kysi frekar að reyna að ná
samningum án þess að til
verkfalla komi, en ef sú leið
bregst tæki ég þátt í verkfalli,"
sagði Dagrún Jóhannsdóttir-
Starfsmannafélaginu Sókn.
STEFNIR í HATRÖMM ÁTÖK
Jón Kjartansson formaður
Verkalýðsfélags Vestmanna-
eyja segir að nú þegar þurfi
að krefjast alft að 24% hækk
unar á launum og að krafan
geti orðið um 30% næstu
mánaðamót. Mikið beri á
milli samningsaðila og að
ailt útlit sé fyrir hatrömm
átök á vinnumarkaðnum.
Sagði Jón staðreyndina
vera þá að mikið bæri á milli
samningsaðila, sérstaklega
hvað varðaði hina lægst laun-
uðu s. s. fiskvinnslufólk.
Sú launahækkun sem
krefjast yrði strax væri um
24%. Þar af væru 15—20%
tilkomin vegna fastlauna-
samninga sem ýmsir hafa
notið aðrir en fiskvinnslufólk
og einnnig hafi framfærslu-
vísitalan hækkað um a. m. k.
7% frá því síðasta „rauða
strik“ var dregið í launanefnd
og einnig hafi væntanleg
gengisfelling einhver áhrif.
„Það er víst búið að lofa
einhverri gengisfellingu
allt að 15%. Ríkisstjórnin
virðist ekki þora að taka þá
ákvörðun alveg eins og er,
sennilega eru þeir að reyna
að kýla kvótann og fleira i
gegn áður.“
Þá væru ótaldar sölu-
skattsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar, sem fullyrt væri að
kostuðu landsmenn ekki
neitt. Þessar aögerðir komi
til með að bitna á þeim sem
minnst mega við því eins og
t. d. barnafjölskyldum„Maður
þarf aö borga skatt af barna-
bótum, manni finnst sem ver-
ið sé að rétta með annarri
segir formaður
Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja
hendinni, en taka með hinni.“
Líkur væru á að krafan um
mánaðamótin gæti numið
allt að 30%, og taldi Jon að
erfitt yrði að ná þvi fram.
Góðærið virðist hafa horfið
um leið og samningaviðræð-
ur hófust.
„Komi ekki eitthvað sér-
stakt til, stefnir allt I hat-
römm átök og verkföll."
n 1 2 3 r 4
5 □ V
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12
13 J □ í
* Krossgátan
Lárétt: 1 hrædd, 5 fljót, 7 tvi-
hljóöi, 8 innheimta, 10 til, 11
starf, 12 múli, 13 gamla.
Lóörétt: 1 fátæk, 2 kóf, 3 sem, 4
álappi, 5 refsing, 7 lán, 9 vangi,
12 þegar.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 slæmt, 5 eftir, 6 nag, 7
þó, 8 dugnaö, 10 at, 11 urr, 12
arma, 13 tolla.
Lóörétt: 1 staut, 2 ligg, 3 ær, 4
tjóöra, 5 endast, 7 þarma, 9 nurl,
12 al.
• Gengið
Gengisskráning 2. — 6. janúar 1988
Bandarikjadoilar
Sterlingspund
Kanadadollar
Dðnsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Finnskt mark
Franskur franki
Belgiskur franki
Svissn. franki
Holl. gyllini
Vesturþýskt mark
ítölsk lira
Austurr. sch.
Portúg. escudo
Spanskur peseti
Japanskt yen
Kaup Sala
36,310 36,430
66,302 66,521
28,087 28,180
5,7861 5,8042
5,7294 5,7483
6,1454 6,1657
9,0707 9,1007
6,5803 6,6020
1,0636 1,0671
27,2772 27,3673
19,7929 19,8583
22,3604 22,3339
0,03023 0,03033
3.1617 3,1721
0,2703 0,2712
0,3275 0,3286
0,28579 0,28674
• Ljósvakapunktar
•RUV
22.00 í skuggsjá — Með allt á
þurru. Fjallað verður um
áfengisvandann og sýnd ís-
lensk sjónvarpsmynd frá
Áfengisvarnaráði.
• Ljósvakinn
19.00 Létt og klassískt.
• Bylgjan
14.00 Skallaþopp Ásgreirs
Tómassonar.
• Stöí 2
22.50 Kardinálinn. Mynd um
irskan kardinála í vafasöm-
um viðskiptum.