Alþýðublaðið - 14.01.1988, Qupperneq 8
MMBWBLOIB
Fimmtudagur 14. janúar 1988
Aburðarverksmiðjan í Gufunesi:
SPRENGJAN VIÐ BÆJARDYRNAR
Sú aöferö sem notuð er við
geymslu á ammóníaki i Gufu-
nesi er sú sem býöur upp á
mesta hættuna. Verði mikill
og skyndilegur leki á
ammóniakinu er talið að
fjöldi manns myndi farast við
að eiturský legðist yfir borg-
ina. Best væri að byggja nýj-
an geymi, þar sem ammóní-
akið væri kælt, eða að breyta
geyminum sem nú er í notk-
un þannig að ammóníakið sé
kælt og án yfirþrýstings. Fé-
lagsmálaráðherra leggur til
að það veröi gert, annars beri
að leggja verksmiðjuna niður.
Mikið hefur verið rætt um
þá hættu sem stafar af ná-
lægð Áburðarverksmiöju
ríkisins í Gufunesi við byggð.
Hrýs mönnum hugur við þá
tilhugsun um hvaða afleið-
ingar það hefði ef mikill og
skyndilegur leki yrði í
ammóníakgeymi verksmiðj-
unnar.
Þegar verksmiðjan var
reist, var ákveðið að byggð
mætti ekki vera innan 1900
metra frá henni. Við skipu-
lagningu Grafarvogs var fjar-
lægðin minnkuð í 1200
metra.
Starfshópur sem Alex-
ander Stefánsson þáverandi
félagsmálaráðherra skipaði,
hefur lokið störfum og skilað
skýrslu um störf sin.
Hættulegasta
geymsluaðferðin
Þar kemur m. a. fram að
við geymslu á ammóníaki eru
notaðar þrjár aðferðir. í fyrsta
lagi óeinangraðir geymar án
kælingar og er þá ammóni-
akið geymt sem vökvi undir
þrýstingi sem ræðst af hita-
stigi þess. Sú aðferð er not-
uð i Aburðarverksmiðju rikis-
ins. í öðrulagi einangraðir
hálfkældir geymar, þar sem
efninu er haldið við ákveðið
hitastig og því ákveðinn
þrýsting. Og í þriðja lagi full-
kældir einangraðir geymar,
þar sem ammóníakið er kælt
í u. þ. b. h- 33 gráður og er þá
enginn yfirþrýstingur í geym-
inum.
Sú geymsluaðferð sem
notuð er i Gufunesi býður
upp á mesta hættu af þeim
aðferðum sem notaðar eru
við ammóníaksgeymslu. Efn-
ið er undir miklum þrýstingi,
og komi mikill og skyndileg-
ur leki að geyminum, hvell-
sýður efnið, gufusprenging
þeytir því út í loftið og
ammóniaksský myndast.
Ammóníak er léttara en and-
rúmsloftið, en vegna þess
hve efnið er kalt nær það
ekki að stíga upp fyrr en eftir
langan tíma og getur því hafa
borist margra kílómetra leið
áður.
Minnst hætta fylgir því
hins vegar að geyma
ammóníakið í fullklæddum
geymi. Þá er enginn yfirþrýst-
ingurog komi skyndilegur
leki að geyminum verður
engin gufusprenging, heldur
hegðar efnið sér sem vökvi.
Því myndast ekki eiturský
eins og við hina aðferðina.
Uppgufunin stjórnast af
varmaskiptum efnisins við
umhverfið og ræðst að
mestu af því hve viða efnið
dreifist. Hægt er að hafa
geymana tvöfalda, og einnig
að setja við þá brennara sem
brenna myndu því ammóníaki
sem hleypa þyrfti af geymin-
um vegna bilunar í kælikerfi
eða ef leki yrði út I ytri geym- \
inn. Engar reglureru til í ná-
gra.nnalöndunum um
geymslu ammóniaks, en á
öllum Norðurlöndunum er þó
unnið að því að koma upp
kældum geymum, í stað
þeirrar gerðar sem notuð er í
Gufunesi.
Fjöldi manns í
stórhættu
Ef mikill og skyndilegur
leki kæmi að fullum ammóní-
aksgeymi, myndaðist ský
sem á 3 mínútum yrði 2 km
að þvermáli og færi stækk-
andi. Það myndi ekki stíga
fyrr en í fyrsta lagi eftir 10
mínútur. Að Kkindum bærist
skýið yfir Sundahafnarsvæð-
ið og Laugarnesið í áttina að
miðbænum. Berist skýið yfir
byggðina má gera ráð fyrir
hrikalegum afleiðingum.
Fjöldi manns myndi farast,
aðallega þeir sem væru úti
við. Fólk sem væri innandyra
gæti lifað af væru gluggar
lokaðirog loftræstikerfi ekki
í gangi. Afar Iftið ráðrúm
gæfist til almannavarna.
Helstu orsakir þess að til
leka gæti leitt eru: náttúru-
hamfarir (jarðskjálfti),
skemmdarverk, flugslys, gall-
ar í geymi eða leiðslum, mis-
tök eða óhöpp við dælingu
eða t. d. að ekið væri á leiðsl-
ur eða geymi, og sprenging
við aðra þætti framleiðslunn-
ar. Llkur á leka eru þó taldar
mjög litlar.
Dregið hefur úr notkun
ammóníaks í verksmiðjunni,
en það breytir þó ekki eðli
vandans. Einnig hefurverið
rannsakað hvort draga mætti
enn frekar úr notkun þess
með breyttri hráefnanotkun,
en það er ekki talið mögulegt
út frá tæknilegum sjónarmið-
um.
Starfshópurinn sem vann
skýrsluna komst að þeirri
niðurstöðu að æskilegast
væri að geyma ammóníakið
kælt og án yfirþrýstings. Yrði
þá að byggja nýjan kældan
geymi, eða setja upp kæli-
kerfi fyrir geyminn sem fyrir
er og byggja utan um hann
Þó líkur á ammóniakieka i
Áburðarverksmiöjunni sé litlar,
er Ijóst að fjöldi manns færist ef
það geröist. A-mynd/Róbert.
öryggishús. Myndi geymir
sem rúmaði 3000 tonn kosta
72 milljónir og tvöíaldur
geymir 81 milljón. Er þá mið-
að við verðlag í janúar 1988.
Varðandi kælingu geymis-
ins sem nú er notaður, hafa
verið gerðar athuganir á hon-
um. Leiddu þær í Ijós að stál-
ið i honum þyldi kælingu nið-
ur í a. m. k. + 40 gráður án
þess að höggþol minnkaði,
skipta þyrfti þó um stál i
mannopi, einnig ætti suöa
geymisins að þola kæling-
una. Skipta þyrfti um undir-
stöður geymisins, þar sem
stálið í þeim er annað en í
geyminum. Talið er að slíkar
breytingar myndu kosta rúm-
lega 26 milljónir.
Kæmi leki að kældum
geymi og ekki tækist að
brenna ammóníakinu upp,
myndi efnið gufa upp og réð-
ist uppgufunin af þvf hversu
ör varmaskipti verða við um-
hverfið. Gert er ráð fyrir að
ekki skapist lífshætta utan
verksmiðjulóðarinnar, hún
yröi hins vegar innan hennar.
Geymir kældur eöa
verksmiðjan lögö
niður
Starfshópurinn gerir því
þær tillögur að núverandi
geymir verði kældur og efnið
geymt án yfirþrýstings. Sér-
stakt öryggishús verði byggt
umhverfis geyminn til verrid-
ar honum og taki viö leka
komi hann upp. Einnig að
komið verði upp brennslu-
búnaði til að brenna ammónf-
akinu, leki það út. Gerð verði
sérstök áætlun um eftirlit
með löndun, flutningi og
geymslu ammóníaks, og að
gerð verði neyðaráætlun
varðandi verksmiðjuna í
tengslum við almannavarna-
áætlun Fteykjavfkur.
Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefur lýst
þvf yfir í fjölmiðlum aö hún
legði til að byggöurverði nýr
kæligeymir. Verði ákveðið að
kæla núverandi geymi sé
nauðsynlegt að framfylgja
öllum þeim öryggisráðstöfun-
um sem til séu, til að draga
úr þeirri hættu sem fylgir nú-
verandi ammóníakgeymi
meðan breytingar standi yfir.
Að öðrum kosti bæri að
leggja verksmiðjuna niður.
1 2 3 r n
5 □ ■
6 □ 7
5 9
10 □ 11
□ 12
13
Krossgátan
Lárétt: 1 fugl, 5 brúka, 6 gára, 7
þyngdareining, 8 áminning, 10
hreyfing, 11 heiöur, 12 kjötbitar,
13 varóveitir.
Lóðrétt: 1 hrósiö, 2 fjöldi, 3 skóli,
4 ringluð, 5 not, 7 þvær, 9 naumi,
12 samstæðir.
Launs á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 óbeit, 5 hval, 6 vís, 7 án,
8 ísland, 11 fær, 12 ólaga, 13
afliö.
Lóðrétt: 1 óvíst, 2 basl, 3 el, 4
tindra, 7 ánægö, 9 afli, 12 ól.
Gengiö
Gengisskráning 7. — 13. janúar 19btí
Kaup Sala
Bandarikjadollar 36,240 36,360
Sterlingspund 66,321 66,541
Kanadadollar 28,093 28,186
Dönsk króna 5,8016 5,8209
Norsk króna 5,7292 5,7482
Sænsk króna 6,1268 6,1471
Finnskt mark 9,1078 9,1380
Franskur franki 6,5909 6,6127
Belgiskur franki 1,0639 1,0675
Svissn. franki 27,2994 27,3898
Holl. gyllini 19,8087 19,8743
Vesturþýskt mark 22,2652 22,3390
ftölsk llra 0,03026 0,03036
Austurr. sch. 3,1644 3,1749
Portúg. escudo 0,2708 0,2716
Spanskur peseti 0,2866 0,3277
Japanskt yen 0,28716 0,28811
• Ljósvakapunktar
•RUV
22.25 Guð og Gorbastjov.
Dönsk sjónvarpsmynd um
stöðu kristninnar f Sovétríkj-
unum.
• Stöð 2
19.19 Eftir fréttirnar ætla
þeir Jón Baldvin Hannibals-
son, Þorsteinn Pálsson og
Halldór Ásgrímsson, að
koma í staðinn fyrir Bjarg-
vættinn, sem fær frí þetta
kvöld.
• Rás 1
23.00 Draumatíminn. Krist-
ján Frfmann lætur hlustend-
ur dreyma.
• Bylgjan
21.00 Júlíus Brjánsson. —
Fyrir neðan nefið. Júlíus
ræðir við gest þáttarins.