Alþýðublaðið - 28.01.1988, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 28.01.1988, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 28. janúar 1988 SMAFRE TTIR í þættinum „Ekkert mál“ á Rás 2 Ríkisútvarpsins þann 3. janúar sl., komu 2 unglingar f heimsókn og ræddu um unglingabækurnar sem komu á markaöinn fyrir jólin 1987. Það voru þau Sólveig Arnarsdóttir, nemandi f 9. bekk Austurbæjarskólans og Jón Atli Jónasson, nemandi í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Uppáhaldsbók þeirra beggja reyndist vera „Er andi f glasinu" eftir Rúnar Ármann Arthursson sem kom út hjá Bókaforlaginu Svart á hvítu. Björn Jónasson, framkvæmdastjóri Svart á hvítu ákvað að gefa þeim báðum eintak af bókinni og einnig eintök af bókinni „Algjörir byrjendur" eftir sama höfund, sem kom út fyrir jólin 1986. Á myndinni sést Sólveig taka við bókunum úr hendi Björns Jónassonar, en Jón Atli fékk sín eintök send á Laugarvatn. Byggingarvísi- tala lægri en í desember Hagstofan hefur reiknað vísitölu byggingarkostnaöar eftir verðlagi í janúar 1988. Reyndist hún vera 107,4 stig, eða 0,46% lægri en i desem- ber. Þessi vísitala gildir fyrir febrúar 1988. Siðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingar- kostnaðar hækkað um 16,2%. Breytingar á tollalögum og lögum um vörugjald, sem tóku gildi um áramótin, leiddu samtals til 0,9% lækk- unar byggingarvísitölunnar frá desember til janúar. Þar má t. d. nefna, að um 25% verð- lækkun á hreinlætistækjum olli rösklega 0,3% lækkun vísitölunnar, um 30% verð- lækkun á vegg- og gólfflísum olli rúmlega 0,2% lækkun og 7—10% verðlækkun á dúkum og teppum olli tæplega 0,3% lækkun á byggingarvisitölu. Á móti þessu kemur, að ýms- ir vöru- og þjónustuliðir höfðu i för með sér 0,4% hækkun visitölunnar, þar af um 0,1% vegna hækkunar gatnageröargjalda og hita- veitutaxta. Þess má aö lokum geta að verölækkunaráhrif vegna breytingar á tollalögum og lögum um vörugjald eru ekki að fullu komin fram i bygg- ingarvisitölunni (janúar. Fundað eftir bókaflóðið Næstkomandi laugardag, 30. janúar, heldur Félag áhugamanna um bókmenntir fund i Norræna húsinu. Yfir- skrift fundarins er „Eftir flóð- iö“ og er hann hugsaður sem eins konar uppgjör við bóka- vertið liðins árs, segir f frétta- tilkynningu. A fundinum verða flutt fjögur framsöguerindi: Frið- rika Benónýsdóttir gagnrýn- andi flytur erindi sem hún nefnir „Draumleikar", Halldór Guömundsson bókmennta- fræöingur talar um „Fjöl- miðla og bókamarkað", Þórar- inn Eldjárn skáld flytur erindi sem hann kallar „Gunnlöð Linker“ og Þórður Helgason bókmenntafræðingur talar „Vítt og breitt um flóðið". Að framsöguerindum loknum verða almennar umræður um fundarefnið. Fundarstjóri er Torfi Tuliníus. Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir, og hefst kl. 2 eftir hádegi. Ráðstefna um menntamál Á laugardag, 30. janúar klukkan 9.00, hefst ráðstefna um menntamál í Borgartúni 6. Menntamálaráðuneytið, Bandalag kennarafélaga, Há- skóli islands og Kennarahá- skóli íslands gangast fyrir ráðstefnunni, vegna athugun- ar OECD á íslenska skóla- kerfinu. Birgir ísleifur Gunn- arsson setur ráðstefnuna og flutt verða mörg erindi. Ný menningar- stofnun í tilefni af aldarafmæli prófessors Siguröar Nordals 14. september 1986 ákvaö Sverrir Hermannsson þáv. menntamálaráðherra aö kom- iö skyldi á fót menningar- stofnun sem bæri nafn Sig- urðar. Samkvæmt reglugerö fyrir stofnunina er hlutverk hennar „aö efla hvarvetna I heiminum rannsóknir og kynningu á fslenskri menn- ingu aö fornu og nýju og tengsl fslenskra og erlendra fræðimanna á þvi sviði." Stofnun Siguröar Nordals hefur nú tekið til starfa. í stjórn hennar sitja Davíð Ól- afsson fv. Seðlabankastjóri, formaöur, dr. Jónas Kristjáns- son, forstöðumaður Stofnun- ar Árna Magnússonar og Svavar Sigmundsson dósent. Forstööumaður Stofnunar Siguröar Nordals er dr. Úlfar Bragason. Stofnunin er til húsa á Þingholtsstræti 29. Póstáritun hennar er pósthólf 1220,121 Reykjavik. Slmi stofnunarinnar er (91) 26220. Sambands- menn tvístígandi í kjaramálunum Á fundi stjórnar Vinnu- málasambands samvinnufé- laganna, sem haldinn var mánudaginn 25. janúar 1988, var eftirfarandi ályktun sam- þykkt: Á ísafirði hefurverið undir- ritaður kjarasamningur milli Alþýðusambands Vestfjarða, Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna og Vinnuveit- endafélags Vestfjarða. Samn- ingurinn er undirritaöur með fyrirvara um staðfestingu samningsaðila innan 10 daga. Vinnumálasambandið fagnar því að samningar hafa náðst. Ljóst er þó að ef svip- aöir samningar verða al- mennt gerðir, er gengið lengra í kauphækkunum en sem samrýmist því að jafn- vægi verði tryggt i efnahags- málum þjóðarinnar á næst- unni. Stjórn Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna mun þvi ekki taka endanlega ákvörðun um samþykkt eða synjun samningsins fyrr en aö lokinni frekari athugun á áhrifum hans á rekstraraf- komu fyrirtækja, ekki síst i útflutningsgreinunum. Stjórn Vinnumálasam- bandsins mun i því sambandi óska eftir viðræðum við rikis- stjórnina um mögulegar að- gerðir ( efnahagsmálum til aö styrkja stöðu atvinnurekstrar- ins I landinu. Ljóst er að rekstrargrundvöllur atvinnu- lifsins hefur versnað mjög verulega á síðustu mánuðum, m.a. vegna verðfalls Banda- rikjadollars, hækkunar vaxta og almennrar þenslu I efna- hagslífinu. Aó loknum þessum við- ræðum mun stjórn Vinnu- málasambandsins koma saman og taka ákvörðun um hvort kjarasamningurinn veröur staöfestur fyrir þess hönd eöa ekki. Nýr fram- kvæmdastjóri Plastprents Jón Steingrímsson hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Plastprents. Jón er27 ára, og fæddur og uppalinn að Reykholti í Borgarfirði. Hann er sonur hjónanna Sig- ríðar E. Jónsdóttur, kennara og Steingríms Þórissonar, fyrrverandi kaupmanns. Sam- býliskona Jóns er Valgerður Lísa Sigurðardóttir, hjúkrun- arfræðinemi, og eru þau barnlaus. Jón er stúdent frá MR og viðskiptafræðingur frá Há- skóla Islands. Til ársins 1981 starfaði hann við verslunar- rekstur hjá föður sínum, en með háskólanámi starfaði hann m.a. sem framkvæmda- stjóri íþróttafélagsins Gerplu ( Kópavogi, og sem sölumað- ur hjá Sveini Egilssyni. Frá 1984 var Jón ráðinn í sérstök verkefni hjá Plast- prent h.f. og sama ár varð hann fjármálastjóri fyrirtæk- isins. I febrúar 1986 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Jón Steingrimsson fjármála- og markaðssviðs Plastprents og hefur gegnt því starfi til þessa. Ráðning Jóns í þetta starf kemur í kjölfar víðtækrar end- urskipulagningar á rekstri Plastprents. Haukur Eggerts- son, sem verið hefur forstjóri Plastprents h.f. sl. 25 ár, hef- ur nú látið af því starfi og við tekið Eggert Hauksson, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá árinu 1972. Ættfræði- námskeið Ný átta vikna ættfræði- námskeiö hefjast bráðlega hjá Ættfræðiþjónustunni í Reykjavík. Leiðbeinandi á námskeiðunum er sem fyrr Jón Valur Jensson. Allir geta rakið ættir sínar sjálfii fái þeir tilsögn og að- stöðu til að hefja leitina. A ættfræðinámskeiði fræðast menn um fljótvirkar og ör- uggar leitaraðferðir, fá yfirlit um helztu heimildir, sem not- aðar eru, og leiðsögn um gerð ættartölu og niðjatals. Þá æfa þátttakendur sig í verki á eigin ættum eða frændgarði, en á námskeið- inu bjóðast þeim ákjósanleg skilyrði til ættarrannsókna, þar sem unnið er úr fjölda heimilda, prentuðum bókum, handritum og óútgefnum skjalaheimildum. M.a. fá þátt- takendur aðgang og afnot af öllum manntölum á íslandi frá 1703 til 1930 og kirkjubók- um úröllum landshlutum. Hver námshópur kemur saman einu sinni í viku, þrjár kennslustundir í senn. Há- marksfjöldi í hverjum hópi er 8 manns. Einnig er boðið upp á framhaldsnámskeið. Þátt- takendum eru útveguð þau frumgögn, sem til þarf, s.s. ættartré, heimildaskrár og aörar leiðbeiningar. Fær hver og einn leiðsögn í þeirri ætt- arleit, sem hann kýs sem við- fangsefni á námskeiðinu. Skráning er hafin í nám- skeiðin í síma 27101 frá kl. 9- 21. Sérstök verðtilboð fyrir líf- eyrisþega, hjón eða fólk úr sömu fjölskyldu, námsmenn og hópa. REYKJAVÍK Alsherjaratkvæðagreiösla verður viðhöfð við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir næsta kjörtíma- bil. Tillögur skulu vera samkvæmt B-lið 19. greinar í lög- um félagsins. Tillögum, ásamt meðmælum hundrað fullgildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu félagsins, Skólavörðustfg 16, eigi síðar en kl. 11. fyrir hádegi föstudaginn 5. febrúar 1988. Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks. Reykjavík Norræna eldfjallastöðin Leitað er eftir húsnæði fyrir Norrænu eldfjallastöð- ina. Helst kemur til greina u.þ.b. 300 fermetra sérbýli í ná- grenni Háskólans sem hentaði til skrifstofu- og rannsóknastarfa. Tilboðum óskast komið á framfæri við eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, ( síðasta lagi föstudaginn 5. febrúar n.k.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.