Alþýðublaðið - 28.01.1988, Page 8
MMBUIIIBIH
Fimmtudagur 28. janúar 1988
Húsavík
VANTAR PENINGA
Útsvarsprósenta of lág og óljóst hvað nkið leggur til
framkvœmda, segir Jón Ásberg Salomonsson bœjarfulltrúi.
Fjárhagsáætlun Húsavíkur
veröur lögö fram i dag til fyrri
umræðu. Jón Ásberg
Salomonsson, bæjarstjórnar-
maöur segir greinilegt aö
peninga vanti. Ástæðu segir
hann fyrst og fremst aö
útsvarsprósenta sé of lág. Þá
segir hann óljóst hvaö Húsa-
víkurbær fái frá ríkinu. Meðal
þess sem bæjarstjórnin hef-
ur gripið til, til þess að afla
meiri tekna, er aö hækka
fasteignagjöld. Vegna hækk-
unarinnar er ráðgert aö fjölga
gjalddögum, að tillögu Jóns.
Þótt nokkuð hafi kreppt að
hjá bæjarfélaginu verður
haldið áfram með stærstu
framkvæmdir.
Útsvarsprósentan var í
fyrra 10,4% en er6,7% í
staðgreiðslunni. „Það hefur
verið reiknað út, að hún þyrfti
að vera 6,9—7% í ár,“ sagði
Jón Ásberg.
Verðandi fjárhagsáætiun-
ina sagði Jon óljóst hvað
fengist frá ríkinu: „Til að
mynda vitum við ekkert hvað
verður gert i íþróttasjóði,
sem fjárfesti alveg óhemju í
íþróttamannvirkjum á síðasta
ári í tengslum við landsmót-
ið.“
Bæjarstjórnin hefur reynt
að afla meiri tekna með
hærri fasteignagjöldum. Jón
sagði að sú aðgerð væri ekki
vel séð. Á síðasta bæjar-
stjórnarfundi lagði Jón fram
tillögu um, að fyrir næsta ár
yrði undirbúið að fjölga gjald-
dögum úr fimm í tíu.
Þrátt fyrir að harðnað hafi í
dalnum ætla bæjaryfirvöld
ekki að hætta við stærstu
framkvæmdir, s.s. hafnar-
framkvæmdir, byggingu
barnaskóla, heilsugæslustöð
o. fl. Stærsta framkvæmdin
er stækkun Norðurgarðs
hafnarinnar. Fjárhagsáætlun
gerir ráð fyrir að kostnaður
verði um 50 milljónir, en
framlag ríkissjóðins um 19
milljónir. „Það gæti því farið
svo að eitthvað þyrfti að
draga úr framkvæmdum,“
sagði Jón.
Þá er á döfinni mikið átak í
gatnagerð og framkvæmdir
verða hafnar við byggingu
heilsugæslustöðvar. Þegar
hefur fengist 12 milljón króna
fjárveiting til hennar.
Síðastliöið haust tók til
starfa framhaldsskóli á Húsa-
vík. Var honum ætlað hús-
næði það sem gagnfræða-
skólinn hefur, en nú er svo
komið að þar þarf að hýsa
þrjá bekki úr barnaskólanum.
Jón Ásberg sagði að ríkið
hefði enga peninga lagt fram
í stofnbúnað og kennslutæki
fyrir framhaldsskólann, þó
svo að stjórnvöld hefðu tekið
vel í stofnun slíks skóla á
Húsavík.
BORKUR FER
NORÐUR
„Mér sýnist að um 10—12 manns geti
fengið atvinnu vegna þessa“ segir Pétur
Reimarsson, framkvœmdastjóri Sœplasts á
Dalvík.
Börkur hf. í Hafnarfirði,
sem Sæplast á Dalvík keypti
á síðasta ári, mun flytjast
norður nú á næstunni. Þó
hefur ekki enn verið ákveðið
hvað mikið af starfseminni
flyst til, nú í fyrstu. Með til-
komu Barkar norður á Daivík,
er reiknað með að rúmlega
10 manns geti fengið at-
vinnu.
Seint á síðasta ári, í nóv-
ember, keypti Sæplast á Dal-
vík, fyrirtækið Börk í Hafnar-
firði. Sagði Pétur Reimars-
son, framkvæmdastjóri Sæ-
plasts, að tekinn hefði verið
ákvörðun um að flytja starf-
semi Barkar norður, að
minnsta kosti að stofninum
til. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvenær og þá
hvernig starfsemin flyttist til
og sagði Pétur að jafnvel
kæmi til greina að hafa hluta
hennar i gangi fyrir sunnan
og þá í samstarfi við aðra
aðila. „Við munum reka þetta
til að byrja með, með svipuð-
um hætti og nefur verið í
Hafnarfirði og flytja síðan
rólega norður," sagði Pétur.
Með tilkomu Barkar í Dal-
vík sagðist Pétur telja að um
10—12 manns gætu fengið
vinnu. „Nú starfa í Sæplasti
um 20 manns þannig að
fjöldinn færi upp í rúmlega
30“ sagði Pétur að lokum.
Loðnuverksmiðjur á Austfjörðum:
VERKFALL
ER EKKI
MARKMIÐIO
segir Hrafn A. Jónsson, formaður
verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifirði.
„Ég á von á þvi að einhver
ákvörðun verði tekin á morg-
un, það getur komið til vinnu-
stöðvunar en ég geri mér
vonir um að vinnuveitendur
fáist til að koma til fundar við
okkur og ræða málin,“ sagði
Hrafnkell A. Jónsson, for-
maður verkalýðsfélagsins Ár-
vakurs á Eskifirði í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Siðan á sunnudag, er slitn-
aði upp úr samningaviðræð-
um á Austfjörðum um laun
starfsmanna í loðnubræðsl-
unni, hefur komið fram yfir-
lýsing frá starfsmönnum á
Eskifirði og Neskaupstað að
vinna verði stöðvuð. Ekki
liggur fyrir hver afstaða ann-
arra er, s.s. starfsmanna á
Seyðisfirði, Vopnafiröi og
Reyðarfirði, en Hrafnkell
sagði það mestu máli skipta
hver afstaða Seyðfirðinga
væri, þar sem þar væru tvær
starfandi verksmiðjur. „Við
munum kanna þetta áfram i
dag og ég á siðan von á því
að stjórnogtrúnaðarmannaráð
taki afstöðu á morgun. En ég
neita þvf ekki að við lifum í
þeirri von að þetta leysist án
aðgerða, það er ekki mark-
mið hjá okkur að fara í verk-
fall,“ sagði Hrafnkell.
Ef ákvörðun verður tekin
um að stöðva vinnu kemur
hún ekki til framkvæmda fyrr
en að viku liðinni. En jafn-
framt vonast verkalýðsmenn
á Eskifirði að vinnuveitendur
fáist til að koma til fundarins
til að ræða málið á þeim nót-
um sem Austfirðingar telja
að sé grundvöllur fyrir.
gHHBHBMBEMHHIHBBBSHHHBHflnMHHHHHBBB
□ 1 2 3 r 4
5 □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12
13 □ □
• Krossgátan
Lárétt: 1 ósoðnir, 5 fall, 6 vitur, 7
hólmi, 8 styrktir, 10 átt, 11 púki,
12 tryllir, 13 tóman.
Lóörétt: 1 heilla, 2 úrgangur, 3 ut-
an, 4 bindur, 5 blása, 7 friðsöm, 9
fífl, 12 pipa.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 gróða, 5prik,6jóð, 7.kg,
8 áfalli, 10 tt, 11 Jón, 12 sókn, 13>
reiða.
Lóðrétt: 1 gróft, 2 riða, 3 ók, 4
anginn, 5 pjátur, 7 klóka, 9 Ijóð,
12 Sl.
—WHNMHBMMÍ
• 6engií
Gengisskráning 16. — 26. janúar 1988
Bandarikjadollar
Sterlingspund
Kanadadollar
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Finnskt mark
Franskur franki
Belgiskur franki
Svissn. franki
Holl. gyllini
Vesturþýskt mark
ítölsk líra
Austurr. sch.
Portúg. escudo
Spanskur peseti
Japanskt yen
Kaup Sala
36,910 37,030
65,294 65,506
28,887 28,981
5,7443 5,7630
5,7830 5,8018
6,1267 6,1466
9,0688 9,0983
6,5348 6,5560
1,0554 1,0588
27,2097 27,2982
19,6168 19,6806
22,0352 22,1068
0,02998 0,03008
3,1339 3,1441
0,2699 0,2708
0,3251 0,3262
0,28960 0,29055
•Ljósvalcapunktar
• RUV • Rás 2
20.35 Kastljós. Umsjónar- 16.00 Dagskrá. Klukkan að
maður Katrín Pálsdóttir. ganga sex verður opnað fyrir nöldurskjóðurnar.
• Sttfí 2
21.45 Hættuspil. Rollover. Jane Fonda og Kris • Bylgjan
Kristoffersson lenda í ævin- týrum, —kannski í ástar- 15.00 Pétur Steinn verður *
ævintýrum. æöislega hress.