Alþýðublaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 5. febrúar 1988 SMÁFRÉTTIR Mynd febrúarmánaðar i Listasafni íslands er „Fantasia" eftir Jóhannes S. Kjarval. „Illlynd mánaðarins“ í Listasafni íslands, aö Fríkirkjuvegi 7, hefurverið tekin upp sú nýbreytni aö kynnt verður vikulega „Mynd mánaðarins". Mynd febrúar- mánaðar er FANTASIA, eftur Jóhannes S. Kjarval, máluð árið 1940. FANTASÍA er ein hinna höfðinglegu gjafa sem Lista- safni íslands hafa borist, en það voru bræðurnir Guð- mundur og Friðrik Björnssyn- ir sem gáfu safninu FANTA- SÍU, árið 1962 í minningu móður þeirra Margrétar Magnúsdóttur. Leiðsögnin „Mynd mánaó- arins“ fer fram í fylgd sér- fræðings, alla föstudaga kl. 13.30—13.45 og verður safn- ast saman íanddyri saínsins. Tannfræðsfa í tengslum við tannvernd- ardaginn föstudaginn 5. febrúar n. k. mun m. a. að- stoðarfólk tannlækna fræða um varnir gegn tannskemmd um í nokkrum stórmörkuðunr milli kl. 16.00—20.00. Auk þess munu skátar halda áfram kynningu sinni é gæðum vatns. Á Akureyri hafa tveir tann- fræðingar annast fræðslu alla þessa viku og hér í borg munu tannfræðingar heim- sækja fæðingarstofnanir. Bakarar vilja ódýr egg Landssamband bakara meistara (LABAK) hefur sótt um innflutningsleyfi til land- búnaðarráðuneytisins fyrir innflutning á allt að 25 tonn- um af eggjum á mánuði, í 3 mánuði til reynslu. í fréttatilkynningu segir: Innlend kökuframleiðsla stendur í harðri samkeppni við innfluttar kökur, sem m.a. innihalda landbúnaóarvörur sem erlendu framleiðendurn- ir fá á heimsmarkaðsverði. Ef innlendu bakaríin eiga að standast þessa samkeppni verður að tryggja þeim hrá- efni (og önnur aðföng) á sam- keppnisfæru verði. Gífurlegur verðmunur en nú á eggja- verði hér á landi og heims- markaðsverði á eggjum og bendir margt til þess að sá mismunur geti orðið til fram- búðar. Það er því stórt hags- munamál fyrir innlenda köku- framleiðendur að fá eggin á samkeppnisfæru verði. Má ætla að greinin geti sparað sér um 1. milljón á mánuði með eggjum erlendis frá. Landlæknir veitir viðurkenningar Eftirtalin númer hafa feng- ið viðurkenningu Landlækn- isembættisins fyrir varð- veislu á bæklingi um al- næmi. „Láttu ekki gáleysi granda þér.“: Amnesty FANGAR JANÚARMÁNAÐAR 1988 Mannréttindasamtökin Amnesty International vilja vekja athygli almennings á máli eftirfarandi samvisku- fanga í janúar. Jafnframt von- ast samtökin til að fólk sjái sér fært að skrifa bréf til hjálpar þessum föngum og sýna þannig í verki andstöðu sína gegn því að slík mann- réttindabrot séu framin. ís- landsdeild Amnesty gefur einnig út póstkort til stuðn- ings föngum mánaðarins og fást áskriftir á skrifstofu samtakanna. Paraguay: Hermes Rafael Saguier er lögfræðingur og forystumaður í frjálslyndum, róttækum stjórnmálaflokki. Hann var handtekinn 31. ágúst 1987 eftir að hafa tekið þátt í fundarhöldum þar sem farið var fram á stjórnarskrár- breytingar. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa hvatt til ofbeldis og brotiö lög. Hermes Rafael Saguier hefur hlotið harða meðferð frá handtöku sinni, m.a. var hann barinn af lögreglunni og síð- an fluttur ( Guardia de Seguridad fangelsið þar sem honum var haldið í nokkurs konar skáþ. Nú er hann í fangelsi i Asunción þar sem hann er í einangrun. Hand- taka Saguiers er dæmi um þá meðferð sem stjórnarand- stæðingar og verkalýðsfélag- ar verða fyrir og eru handtök- ur í kjölfar mótmæla algeng- ar. Saguier var pólitískur flóttamaður í mörg ár en snéri til baka í júní 1986. Indónesía: Ali Masrum al-Mudhoffar er 26 ára gamall forystumaður ungra Mú- hameðstrúarmanna og út- varpsþulur. Hann afplánar 12 ára fangelsisdóm frá því í september 1985. Samkvæmt upplýsingum saksóknara hafði Ali Masrum tekið þátt í námskeiðum árin 1983 og 84 og þar sem m.a. var hvatt til að stofnað yrði nýtt islamískt ríki. Enginn af fyrirlesurunum á námskeiðunum hafa verið handteknir. Hann var einnig ákærður fyrir að hafa átt og dreift bæklingum og segul- bandsspólum með gagnrýni á stjórnvöld. Ali Masrum hef- ur ekki verið ákærður fyrir að hafa beitt eða hvatt til of- beldis. Búigaria: Ibraim Ismailov Arifov er 48 ára gamall lækn- ir. Hann var handtekinn ásamt þremur öðrum í júní 1986 eftir að hafa gefið út bækling þar sem Tyrkir ( Búlgaríu voru hvattir til að taka ekki þátt í komandi kosningum og mótmæla þannig stefnu stjórnarinnar í að þvinga aðlögun minni- hlutahóps tyrkneskættaðra Búlgara. Þeir voru dæmdir í 8—10 ára fangavistar. Síðan 1984 hafa búlgörsk stjórnvöld stöðugt afneitað tilvist tyrk- neskættaðra Búlgara, sem þó eru 10% af íbúum landsins, og hafa staðið fyrir ýmsum þvingunaraðgerðum sem eiga að stuðla að samlögun þeirra. Þeir eru m. a. látnir taka upp búlgörsk nöfn í stað sinna tyrknesku og þeim er bannað að tala tyrknesku. Tyrkneskættaðir Búlgarir hafa verið handteknir og jafn- vel drepnir vegna mótmæla- aðgerða. Þeir sem vilja leggja mál- um þessara fanga lið, og þá um leið mannréttindabaráttu almennt, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu íslandsdeildar Amnesty, Hafnarstræti 15, Reykjavík, sími 16940. Skrif- stofna er opin frá 16—18 alla virka daga. Þar fást nánari upplýsingar sem og heimilis- föng þeirra aðila sem skrifa skal tii. Einnig er veitt aðstoð við bréfaskriftir ef óskað er. Flugfar til Luxemburg og heim: 14474 19936 Flugfar innanlands: 3543 80823 Vöruúttekt á „DON CANO“ fatnaði: 9009 32150 68299 Ullarjakkar: 394 68613 28974 71576 32466 77522 32516 80769 39443 84230 Bækur fyrir kr. 5.000: 5541 40292 9657 66646 12656 66991 30951 67007 31823 69024 „ACT“ kuldaskór: 7603 16257 41487 60536 80318 Viðurkenninga má vitja á skrifstofu landlæknis, Lauga- vegi 116, Reykjavík, sími 27555. „Öfugþróun á tíma friðarvilja“ Eins og fram hefur komiö i fréttum eru fulltrúar frá 30 erlendum stórfyrirtækjum nú staddir í Reykjavík í boði NATÓ. Eru þetta fyrirtæki sem hyggjast bjóða í smíði hernaðarmannvirkja hér á landi. Alls mun um að ræða 300 milljóna dollara kostnað (eða rúmlega 11 milljarða ís- lenskra króna) við lokaáfanga ratsjárstööva í öllum lands- fjórðungum og stjórnstöð á Keflavíkurvelli. Félag ís- lenskra iðnrekenda og Varn- armálaskrifstofa hafa boðað til ráðstefnu með þessum aðilum auk valinna íslenskra verktaka og hugbúnaðarfyrir- tækja. Á ráðstefnunni á að kynna erlendu gestunum hvað íslendingar hafa upp á að bjóða með það í huga að íslensk fyrirtæki geti fengið að sjá um hluta hernaðar- framkvæmdanna sem undir- verktakar. í þessu sambandi vilja Samtök herstöðvaandstæð- inga benda á eftirfarandi: Þeir fjármunir sem um er að ræða sína enn einu sinni fram á gífurlegt umfang hernaðarframkvæmda hér á landi. Það er öfugþróun að á sama tíma og friðarvilji og til- raunir til að snúa við víg- búnaðarkapphlaupinu eru ráðandi í heiminum skuli vera haldið áfram að byggja hernaðarmannvirki hér á landi af meiri krafti en nokkru sinni fyrr. Verktakar og fyrirtæki tengd vopnaframleiöslu og uppsetningu hernaðartóla eru þeir sem standa fastast gegn öllum_ hugmyndum um afvopnun. Ástæðan er sú að vopnakapphlaupið færir þeim stórgróða í sinn hlut. íslensku hugviti og verk- kunnáttu er betur varið til annarra hluta og skorum við á íslensku fyrirtæki að neita að taka þátt í baráttunni um að komast að kjötkötium hernaðarhyggjunnar. Enn- fremur skorum við á íslensk stjórnvöld að ganga þegar til viðræöna við NATO um stöðvun þessara fram- kvæmda þar sem það sam- ræmist ekki hlutverki okkar sem friðelskandi þjóð að láta land okkar undir búnað sem hefur þann megintilgang að stjórna framtíðarstríði milli stórveldanna. Stríðið sem við vonum öll að mannkyninu auðnist að afstýra. Verum viðbúin vetrarakstri US£EB0W Utboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hita- veitu Reykjavíkur óskar eftir tilboöum í stjórnloka fyrir Nesjavallaæó. Utboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 9. mars kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavik KRATAKOMPAN Borgarfulltrúi Alþýðuflokksins Bjarni P. Magnússon verður við á skrifstofu Alþýóuflokksins Hverfisgötu 8-10 á þriðjudögum frá kl. 10-12. Alþýðuflokkurinn

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.