Tíminn - 18.10.1967, Blaðsíða 3
MIÐYIKUDAGUR 18. október 1967.
Reykjavíkurbörnln hafa notfært sér snjóinn undanfarna daga á Arnar-
x hóli, en I gær voru þar hátt á annað hundrað börn, þegar liósmyndarinn
GE gekk þar fram hjá, og smellti þessari mynd af. Sleðafærið var sæmi-
legt, þótt sums staðar stöðvuðust sleðarnir, þar sem ekki var nægiiega
þykkt snjólagið, til þess þeir rynnu viðstöðulaust niður hólinn. Stúlkurn-
ar á myndinni eru broshýrar, þótt þeim hafi kannski verlð svolítið kalt,
og þó, þær eru nú sæmilega búnar sýnist okkur.
400 BÆKUR Á SOVÉZKRI
BÓKASÝNINGU HJÁ M&M
GÞE-ileykjavík, mánudag.
llókabúð Máls og Menningar hef
ur opnað sovézka bókasýningu í
húsakynnum sínum að Laugavegi
18, og stendur hún til mánaða-
móta. Til hennar er efnt að til-
hlutan sovézku menningarsamtak
anna Mezhdunarodnaya Kniga,
sem a ýmsan hátt vinna að menn
inga, tengslum Sovétríkjanna og
annarra landa, m.a. með útgáfu
sovézkia bóka erlendis og gagn-
kvæmt, þýðingum bóka á og úr
rússncsku, og ekki sízt með svona
bókasýningum erlendis. Þetta er
í annað sinn, sem samtökin hlutast
til um slíka bókasýningu hér-
lenois.
Á sýningunni eru tæplega 400
bækur, fiestar á ensku, en einnig
nokkrar á þýzku og frönsku, jafn
vel sænsku, og enn aðrar á rúss-
nesku. Er hér um mjög margs
konai bækur að ræða, klassísk og
nutima skáildverk, listaverkabæk-
ur, kennslubækur í rússnesku,
bariiabækur, og ekki sízt bækur
um visindi og tækni, en i slíkri
bókaútgáfu þykja so.vétmenn
standa mjög framarlega, og er
þettc tvímælalaust sá bókakostur
þeirra, sem mestri útbreiðslu hef
ur náð, enda er verðinu mjög
í hoí stillt
\uk bókanna eru þarna til sýn-
is cflirprentanir áróðursspjalda
frá íussne ku byltingunni 1917.
Þessi spjöld voru gerð af nafn-
toguðum listamönnum, og þykja
nú hið mesta þing, enda hafa
verió gefnar út eftirprentanir af
þeim stórum sftíl.
Bækurnar á sýningunni eru til
sölu. og verður tekið á móti pönt-
unum þann tíma, sem sýningin
stendur, en hún er opin á venju
legum verzlunartíma.
MIKIL ÞATTTAKA ER I
BÆNDAFÖR TIL LONDON
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Bændaför Búnaðarfélags íslands
til Englands hefst 3. desember
næstkomandi, og virðist þátttaka
ætla að verða mikil. Þátttaka get-
ur mest orðið 82, en þegar hafa
yfir 70 manns óskað eftir þátt-
töku.
Bændaförin hefst 3. desember,
en þá verður flogið til London.
Daginn eftir verður Smithfield-
sýningin skoðuð, og á þriðjud.ag
s'erður fari'ð í kynnisferð. Smith-
sýninigim verður einnig skoðuð
nokkra daga aðra en auk þess
verður farið á kjöt- og fiskmark-
aðinn í London og ýmsir þekktir
staðir verða skoðaðir.
í förinni verður einnig fari'ð
til Suður-Englands og þar skoðuð
bændaibýli og tilraunastöð.
Ferðin stendur til 10. desember
en þá verður flogið heim frá
London.
Fararstjóri í þessari ferð verð-
ur Agnar Guðnason.
TÍMINN
Færð sæmileg þrátt
fyrír mikla háiku
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Færð er nú all sæmileg víðast
hvar á landinu, þótt snjóföl sé
yfir öllu. Aðallega er það hálkan
á vegunum, sem getur orðið veg
farendum hættuleg, og er ástæða
til þess að hvetja menn til þess
að fara varlega, að sögn Hjörleifs
Ólafssonar starfsmanns Vegamála-
skrifstofunnar.
Ágætisfærð er um allt Suður-
land, sagði Hjörleifur og sömuleið
is á Vesturlandi og á Vestfjörðum,
nema á Þingmannaheiði. Þar er
fremur vond færð, og varla fært
nema stórum bílum og jeppum, að
allega vegna klakaskorninga.
Reyndar er líka leiðindafærð á
Þorskafjarðarheiði.
Flestir aðrir vegir eru allvel
greiðfærir nema Siglufjarðarskarð,
Lágheiði, Axarfjarðarheiði, Hóls-
fjallavegur, þ. e. vegurinn milli
Axarfjarðar og Grímsstaða á Fjöll
um og heiðin til Vopnafjarðar frá
Möðrudal. Hálfleiðinleg færð
mun einnig vera á Fjarðarheiði
fyrir litla bíla, en búið er að
ryðja Oddsskarð og sömuleiðis
Möðrudalsöræfin.
Nýr umboðs-
maður Tímans
á Egilsstöðum
Ari Sigurbjörnsson, af-
greiðslumaður, Bjarkahlíð
5, Egilsstöðum hefur tekið
að sér umboð fyiir Tímann.
Eru viðskiptamenn blaðsins
á staðnum beðnir að snúa
sér til hans með málefni, er
varða Tímann.
Tíminn þakkar fráfarandi
umboðsmanni á Egilsstöð-
um, Magnúsi Einarssyni,
skrstj. fyrir ágæt störf fyr
ir blaðið sl. 5 ár.
FYRSTA FRUMSÝNING Se2|a2erö
IIÐNO A LAUGARDAG
brennur
GÞE-Reykjavík, þriðjudag.
Fyrsta frumsýnknig Leikfélags
Reykjavíkur á þessu leikári verð-
ur n. k. laugardagskvöld, en þá
verðui sýndur franski gamanleik-
urinii „Indíánaleikur" eða „Það
þýtui í sassafrastrjánum“ eftir
franska höfundinn Réné de
Obaldia. Leikrit þetta var frum-
sýni í París fyrir tveimur árum,
og naut það þegar gífurlegrar
hylli. Um þessar mundir er verið
að sýna það mjög víða í Evróou,
og á það hvarvetna vinsældum
að fagna.
úettvangur leifcsins ér villta
vestrið, með öllum sínum ævin-
týrum, hættum og skopi. Aðal-
söguhetjurnar eru innflytjendur,
sem tii Bandaríkjanna koma i byrj
un 19. aldar ,og eiga við ýmiss
konai örðugleika að etja. Persón-
ur icikritsins eru flestar gamal-
kunnai úr vil'lta vestrinu, Indiána
höfðinginn, göfuga gleðikonan,
fulli læknirinn og þar fram eftir
götunum. Er fjallað um þær af
SJ-Reykjavík, föstudag.
Nýiega kom nýtt tímarit í
bókabúðir. Tímaritið heitir 65° og
til stendur að það komi út ársfjórð
ungslega. Tímarit þetta er á
ensku. Eigandi og útgefandi er
Amalía Lindal, framkvæmdastjóri:
Ásgeir Þór Ásgeirsson og aug-
lýsingastjóri: Erlingur Sigurðsson.
Ritið ber nafn af 65. breiddar-
baugnum, sem liggur um mitt ís
land.
Sex umsækjendur
um prestsembætti
Umsóknarfrestur um annað
prestsembættið í Hallgrímspresta
kalli í Reykjavíkurprófastsdæmi,
er auglýst hafði verið laust til
umsóknar, rann út 1. október s.
1.
Þessir umsækjendur hafa gefið
sig fram:
Séra Björn Jónsson, Keflavík.
Séra Ingþór Indriðason, Ólafsfirði.
Séra Kristján Róbertsson, Kanada
Séra Lárus Halldórsson, Kópavogi
Séra Páll Pálsson, Reykjavík.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson,
SiglufirðL
miKilli kimni, söguþráðurinn er
viðburðarríkur og kryddaður með
gömium amerískum þjóðiögum,
sem vei falla í kramið. Þá eru og
sungin nokkur lög eftir Frakkann
George Delerue.
Leikstjórn hefur Jón Sigur-
björnsson með höndum, en hann
er nýráðinn við Leikfélagið eftir
mar6ia ára starf við Þjóðleikhús-
ið. Þetta er 8. leikritið, sem hann
stjóinar hjá L.R. Þj'ðingu leikrits
ins hefur Sveinn Einarsson ann-
azt, en leikmynd er eftir Stein-
þór Sigurðsson. Leikendur eru
Brynjólíur Jóhannesson, Sigríður
Hagaiín, Valgerður Dan, Borgar
Garðarsson, Guðmundur Pálsson,
Guðrun Ásmundsdóttir. Pétur Ein
arsson og Guðmundur Erlends-
son.
Næsta verkefni Leikfélags
ReyKjavíkur verður barnaleikritið
Snjokarlinn okkar, eftir Odd
Björnsson, en það verður væntan
lega frumsýnt í nóvember. Um
Fraimhald á bls. 14
Því er ætlað að fjalla um ís-
land og íslenzk málefni eingöngu.
Markmiðið er að tengja sterkari
böndum þá, sem áhuga hafa á
landinu og íslenzkum málum en
ekki geta lesið íslenzku^svo sem
útlendinga hér á landi, íslendinga
fædda erlendis, Vestur-fslendinga
og fleiri. Utan íslands verður blað
ið nú þegar selt í Kanada og
Seattle i Bandaríkjunum. Ennfrem
ur munu vera kaupendur í hópi
bandariskra hermanna, sem voru
'hér á stríðsárunum (the forgetten
boys oí Iceland), og komu í heim
sóki. hingað til lands í sumar.
Það er opið öllum, sem eitthvað
hafa að segja. Myndaefni verður
ekki birt og ekki ferðasögur.
Greinar, sögur og annað efni á að
senda á Laugaveg 59, Reykjavík
eða í pósthólf 265, Kópavogi. Efn
ið verður að vera á ensku. Góð rit
laun verða greidd.
í fyrsta hefti 65° eru teikning
ar eftir Calum Campbell, forsíðu
gerði Frank Ponzi. Ýmsir kunnir
menn skrifa í 65°, svo sem Ásgeir
Ásgeirsson, forseti, Rolvaag, amb
asador Bandaríkjanna hér á landi,
Jón Magnússon, fréttastjóri, Alan
Boucher o. fl. í næsta hefti rita
meðal annarra Sigurður Nordal
og Haraldur Bessason, prófessor
við Háskólann í Manitoba.
HE-Vestmannaeyjum, þriðjudag.
Klukkan 13.15 í dag var slökkvi
liðið kvatt að Seglagerð Halldórs
Svavarssonar hér í bæ. Þegar að
var komið logaði eldur út um
glugga á annarri hæð, þar sem
seglagerðin er til húsa. Slökkvi
liðið réð fljótlega niðurlögum elds
ins. Tjón varð mikið. Skemmdir
urðu mestar í vinnusal Seglagerð
arinnar en einnig í geymslum og á
lager. Skemmdust bæði tæki og
efni. Eldsupptök eru ókunn. Geta
ma þess að þetta er eina segla-
gerðin i Vestmannaeyjum.
I • •
Vetrarstarf
Stúdentafé-
lags Rvíkur
að hefjast
Um þessar mundir er Stúdenta
félag Reykjavíkur að hefja vetrar
starfsemi og verður hún með svip
uðum hætti og undanfarin ár.
Nú hefur verið ákveðinn al-
mennur fundur um skógræktarmál,
frummælendur verða Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri og
Helgi Sæmundsson form. mennta
málaráðs. Fundur þessi verður
haldinn 25. okt. n. k. í Sigtúni.
Kvöldvökur féiagsins hafa verið
afar vinsælar og fjölsóttar en sú
fyrsta verður nú á föstudagskvöld
ið 20. okt. n. k. að Hótel Sögu
(súlnasal). Á samkomu þessari
verða ýmis skemmtiatriði, mun
þar meðal annars sýna listir sínar
hinn kunni dansari Sigvaldi ásamt
dansmærinni Iben Sonne. Einnig
mun koma fram á samkomu þess-
ari hinn mjög svo efnileg' trompet
leikan Lárus Sveinsson. Muin laga
val hans verða fjölbreytilegt, en
hljómsveit hússins mun aðstoða.
Dans verður stiginn fram eftir
kvöldi.
Aðgöngumiðar verða afhentir
fimmtudaginn 19. okt. n. k. frá
kl. 5—7 í andyri Súlnasals, einnig
við innganginn frá kl. 7 föstudag
inn 20. okt. en þá verður húsið
opnað.
Fréttatilkynning frá stjórn
Stúdentafélags Reykjavíkur.
Nýtt tímarit 65°