Tíminn - 22.10.1967, Blaðsíða 8
/'V
;///::'/'
:/;•;./
SUNNUÐAGfJR 22. ofctóber 1963.
K. .N Z saltsteinninn inm-
heldur vmis snefilefni, t. d.
magnesxum, kopar, mang-
an, kabolt og joð.
BÆNDUR
Seðjið salthungur búfjárins
og látið allar skepnur hafa
frjálsan aðgang a ðK N Z
saltsteim allt árið.
Evrópumótið í bridge, sem
háð var í Dulblin á írlandi í
september, er 18. Evrópumótið
sem háð er eftir síðari heims
styrjöldina og þetta var í ell-
efta sinn, sem ísland sendir
sveit í karlaflokk á mótið —
og tvívegis hefur verið send
sveit í kvennaflokki. íslenzku
sveitirnar hafa oft náð góðum
árangri á þessum mótum —
en bæst ber þó er sveit undir
forustu Harðar Þórðarsonar
varð í þriðja sæti á mótinu,
sem háð var í Brigbton á Eng-
landi 1950. í síðustu umferð
inni á þvi móti spilaði ísland
við Svíþjóð og með sigri í
leiknum hefði íslenzka sveitin
orðið Evrópumeistari. En Sví
amir reyndust betri í þessari
lokabaráttu og sigruðu með 14
stiga mun eftir þáverandi stiga
reikningi sem var mun lægri
en skali sá, sem nú er notaður
Þetta varð til þess, að England
ingar sigruðu í mótinu og
Svíar urðu í öðru sæti. Sama
ár var fyrsta opinbera heims
meistarakeppnin í bridge háð
á Bermudaeyjum. Þar spiluðu
Bandaríkin, England og sveit
Evrópu, sem skipuð var fjórum
Svíum og tveimur íslendingum,
þeim Einari Þorfinnssyni og
Gunnari Guðmundssyni. Evr-
ópusveitin spilaði vel „einkum
þó þegar íslenzkp spilararnir
voru með“ eins og enska bridge -
ritið Bridge Magazine sagði eft
ir keppnina — en það nægði
þó ekki til sigurs. Bandaríkja
menn sigruðu, en í sveitinni
voru m. a. hinir frægu spilar
ar Goren og Stayman, Evrópu
sveitin varð í öðru sæti og
sú enska rak lestina.
Árangur sá, sem íslenzka
sveitin náði í Dublin, er næst
bezti árangur íslenzkrar 'sveitar
á EM, sveitin blandaði sér um
tíma mjög í baráttuna um efstu
sætin, en hins vegar tókst
henni illa upp í þremur síð
ustu umferðunum og hafnaði
að lokum í sjöunda sæti af 20
þjóðum — þó aðeins einum
vinningsleik frá þriðja sæti.
Eitt atriði kann að eiga ein-
hvern þátt í, að íslenzku sveit
inni tókst ekki eins vel upp í
lokabaráttunni, og í miðju
móti. Það er staðreynd, að ísl.
spilararnir höfðu lakari að-
stöðu, en spilarar þeirra þjóða,
sem urðu í efstu sætunum. fsl.
bridgesambandið er fátækt af
veraldlegum auði. og því var,
styrkur til þessarar utanfarar
af skornum skammti. Þar af
leiðandi bjuggu ísl. spilararn
ir á fremur ódýru hóteli tals
vert frá spilastaðnum, meðan
spilarar þeirra þjóða, sem urðu
efstar, bjuggu allar á því hóteli
sem spilað var í, en það var
dýrasta hótelið í Dublin Þeg
ar spilaðar voru tvær umferð
ir á dag — eins og oftast var
— hófst fyrri umferðin kl.
eitt og var lokið kl. 5. — 5.30,
en hin síðari hófst 7.45 um
kvöldið. Milli umferða urðu
ísl. spilararnir að ná sér i leigu
bíl — sem er talsvert vanda
mál í Dublin, en þar eru aðeins
900 leigubílar á sex hundruð
þúsund íbúa — aka um 15 min.
á hótelið, borða og koma sér
síðan a spilastað aftur, meðan
þeir spilarar, sem bjuggu á
spilastaðnum, gátu farið beint
til herbergja sinna, og hvilzt
(sofið) milli umferða. Hvíldin
— þó einkum svefnin — er
gífurlegt atriði á stórmóti sem
þessu, þar sem spilaðar voru
19 umferðir á 11 dögum. ís-
lenzku spilararnir höfðu reynd
ar nákvæmlega sömu aðstöðu
og spilarar annarra smáþjóða.
Á Montrose-hótelinu, þar sem
ísl. spilararnir bjuggu, voru
einnig spilarar ísraels, Finn-
lands, Tékkóslóvakíu og Portú
gal. Því var fleygt í gamni
meðal spilaranna, að íslending-
ar gætu þó huggað sig við að
hafa orðið Montrose-meistari,
því við unnum allar þessar þjóð
ir með 8:0. Það var slæmt að
hafa ekki Pólverja og Belga
þarna líka!!
Einhvérjir skemmtilegustu
spilarar heims nú eru Hollend
ingarnir Hans Kreyns og Bob
Slavenburg, sem spiluðu hér í
Reykjavík fyrir nokkrum ár-
um á afrhælismóti Bridgefélags
Reykjavíkur. Síðan hefur alltaf
verið góð vinátta milli þeirra
og ísl. bridgespilara. Þeir eru
núverandi heimsmeistarar í
tvímepningskeppni og á mótinu
í Dublin sýndu þeir oft af-
burðaspilamensku en voru hins
vegar afar mistækir eins og t.
d. kom fram í leik þeirra við
ísland. Holland varð í fjórða
sæti á mótinu — og þeir höfðu
heppnina með sér að ná því
sæti, því t. d. í síðustu umferð
inni unnu þeir ítaii 8:0, en ítai
ir höfðu tryggt sér Evrópu-
meistaratitilinn fyrir þá um-
ferð — og það hafði auðvitað
áhrif á spilamennsku þeirra. Ef
Hollendingar hefðu mætt ítöl
um fyrr í mótinu er ólíklegt,
að þeir hefðu unnið, að
minnsta kosti með þetta mikl
um mun.
f 12. umferð spiluðu Hol-
lendingar við Dani og uunu
með 6:2. Eftirfarandi spil var
ástæðan til þess sigurs.
4 D 8
V G 9 2
♦ K G 6 5
* D G 8 4
♦ G 10 2 * ÁK97643
yÁ 10 743 V6
4 Á D 8 4 10
«92 4 Á K 7 3
4» 5
¥ K D 8 5
4 97432
4> 10 6 5
í lokaða herberginu, þar sem
Danirnir Voigt og Hulgaard
sátu í A-V gengu sagnir þann
ig:
3 V
4 gr
6 ¥
7 4
5 ¥
6 4
pass.
Voigt
3 4
4 4
5 gr
6 4
Hulgaard
2 4
4 *
4 gr.
64
pass.
Keðjusögn Vesturs fjórir tígl
ar, voru doblaðir til þess að fá
útspil í þeim lit, en þrátt fyrir
það var auðvelt að vinrta sögn-
ina. Hulgaárd vann á ásinn,
spilaði trompi einu sinni, tók
tvo hæstu í laufi og trompaði
lauf — spilaði sig heim með
því að trompa hjarta og tromp
aði síðasta laufið og vann 13
slagi.
Leikurinn var sýndur á sýn-
ingartöfilunni og þar komust
þeir Kreyns og Slavenburg í
sjö spaða, eftir þessar sagnir.
Eftir að Suður hafði spilað
út hjarta K virðist um þrjár
leiðir að ræða fyrir Kreyns —
trompa tvívegis lauf (biðjandi,
að sá mótherinn með D aðra
í spaða eigi fjögur lauf), eða
ef til vill svíning í tígli. En
ekkert svo einfalt hvarflaði að
Kreyns — og eftir augnabliks
umbugsun spilaði hann upp á
kastþröng í tígli og laufi.
Hann spilaði þannig. Vann
hjarta K með Á — þvínæst
þrisvar sinnum lauf og tromp
aði með tíunni. Hann spilaði
nú öllum trompunum og þegar
hann spilaði þvi síðasta gat
Norður ekki bæði haldið laufa
D og KG í tígli. Þegar hann
valdi að kasta tígul gosa, spil
aði Kreyns tígli, vann á ásinn
og kóngurinn kom siglandi.
Og þá et hér að lokum eitt
smádæmi.
4 Á K D G987
¥ Ekkert
4 10 2
4 Á K 6 4
4 6 4 3 2
¥ D 8
4 Á G 4
4 D 10 3 2
Mótherjarnir hafa ekkert
sagt og Norður spilar sex spaða
Austur spilar út hjarta kóng.
Hvernig á Norður að spila?
Svar í næsta þætti.
Hallur Símonarson.
Frá leik íslands og Frakklands á HM i Dublin — en fslánd sigraði f leiknum með 8:0, en Frakkar voru
þáverandi Evrópumeistarar. Á myndinni er greinarhöfuhdur að spila, en lengst til hægri er Svarc. Á
myndinni eru tveir ísl. áhorfendur, sem voru á mótinu, lengst t. v. Hörður ÞórSarson, sparisjóðsstjóri,
sem margsinnis spilaöi fyrir íslands hönd á EM, og fyrir miðju Ingibjörg Oddsdóttir, eiginkona Harð-
ar. Þess má geta, að enn einn íslendingur var áhorfandi á mótinu, Karl Sigurhjartarson, einn af efni-
legustu yngri bridgespilurum okkar. \ \
8
í
FJÁRBYSSUR
RlFFLAR
HAGLABYSSUR
SKOTFiíERI
ALLSKONAR
Stærsta og fjölbreyttasta
úrval landsins.
— Póstsendum —
GOÐABORG,
Freyjugötu 1
Sími 1-90-80
i