Alþýðublaðið - 16.03.1988, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 16.03.1988, Qupperneq 2
2 Miðvikudagur 16. mars 1988 MÞYBUBLMÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Fréttastjóri: Umsjónarmaður helgarilaðs: Blaðamenn: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blað hf. Valdimar Jóhannesson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Þorlákur Helgason Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Þórdis Þórisdóttir Filmur og prent, Ármúla 38. Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. AF REFABÆNDUM OG ÖÐRUM NIÐUR- SETNINGUM RÍKIS- FORSJÁRKERFISINS Enn ánýskal bændum bjargað. í þettaskipti eru það refa- bændur sem standa frammi fyrir gjaldþroti um land allt vegna vitlausra fjárfestinga, lánafyrirgreiðslugleði póli- tíska kerfisins og óraunsæi eða vanþekkingar framleið- enda á markaðslögmálum loðdýraræktunar. Um 700 milljónum króna hefur verið varið í formi lána og styrkja á síðustu árum til refabænda. Ef tekin er með fyrirgreiðsla til fóðurstöðva sem samsvarar eignarhlut refabúa, er upp- hæðin orðin 850 milljónir króna. í mörgum tilfellum er um að ræða styrki eða lán á niðurgreiddum vöxtum, allt niður í 2 prósent vexti og þar við bætist niðurfelling á opinber- um gjöldum. Þannig hefur ríkið og hið pólitíska fyrir- greiðslukerfi hjálpað refabændum til að æða út í fjárfest- ingar án þess að nokkur skynsemi hafi ráðið í markaðs- könnunum loðdýraræktar né heilsteyptar áætlanir eða útreikningar legið fyrir. Þar að auki hefur refabúum og fóðurstöðvum verið dreift um land allt í stað þess að stað- setja refabú og fóðurstöðvar í grennd við sjávarpláss eins og heilbrigð skynsemi segirtil um. Þessi misráðnabyggð- arstefna, en í hennar nafni hafa ákvarðanir um geggjuð- ustu fjárfestingar þessa lands verið teknar, hefur nú skilað sér í sömu niðurstöðum og landsmenn þekkja svo vel til: gjaldþroti búgreinarinnar. Og eins og venjulega eiga skattgreiðendur að borga brúsann. Landbúnaðurinn á íslandi hefur undanfarna áratugi lifað að mestu leyti á ríkisframfæri. Hann nýtur innflutnings- verndar, fjárfestingar- og framleiðslustyrkja, niður- greiðslna og útflutningsbóta. Um markaðshorfur er ekki sþurt. Að sjálfsögðu hlýtur slíkur rekstur landbúnaðar að marka djúp sálfræðileg spor í vitund stoltra, sjálfstæðra, íslenskra bænda. Það getur ekki verið góð tilfinning fyrir höfðingja í héraði að lifa áölmusum pólitíska kerfisins; að verauppáaðrakominn;að veraorðnirniðursetningarhins pólitíska hagsmunakerfis. Það er sannarlega kominn tími tii bændauppreisnar; að framleiðendur í landbúnaði hristi af sér ok það sem hið spillta fyrirgreiðslukerfi hefur lagt áþámeð þjálum höndum hagsmunagæsluflokkanna. Það verður að hjálpa bændum til að öðlast sjálfstæði á ný. Ríkisstjórnin gerir það ekki með því að halda áfram að ausa peningum skattgreiðenda í hallarekstur landbúnað- arins eins og þingmannanefndin stingur uþp á í vanda refabænda en þar er lagt til að ríkið ausi 17 milljónum króna beint í refahítina. Þess vegna eru þær tillögur Jóns Baldvins Hannibalssonar fjármálaráðherra réttar, að þeir aðilar sem hingað til hafa annast stuðning og fyrir- greiðslu til refabúa leysi sín mál sjálfir. Þar er fyrst og fremst um að ræóaStofnlánadeild landbúnaðarins, Fram- leiðnisjóð og að hluta til Byggðastofnun. Áframhaldandi ráóstafanir þurfa síðan aö mióa að því að tryggja rekstur refabúa eftir markaðshagkvæmni þannig að fjárfesting, þekking og reynsla fari ekki forgörðum og að búin beri sig og skili arði. Landbúnaðarmálin í heild þarf að taka svipuðum tökum; afnema niðurgreiðslur og útflutnings- bætur í áföngum og tryggja að verómyndun ráðist af eftirspurn. Það verður að endurskipuleggja landbúnaðinn frá grunni, afnema ríkisforsjána og stuðla að arðsemi bú- greina og veita þar með bændum sjálfstæði á ný. Með öðrum orðum; breyta niðursetningum í héraðshöfðingja. ONNUR SJONARMIÐ FRAMSOKNARMENN eru orðnir eitthvað trekktir vegna þeirrar gagnrýni sem fram hefur á þá komið, að þeir séu „stikkfrí“ í stjórnar- samstarfinu. Jón Kristjáns- son þingmaður Framsóknar skrifar langa grein í Tímann i gær af þessu tilefni. Þar segir hann um gagnrýnina á Framsókn: „Það hefur nokkuð borið á tilhneigingu samstarfsflokk- anna til þess að drótta því að okkur framsóknarmönnum að við höldum okkur til hlés og firrum okkur ábyrgð á óvin- sælum aðgerðum. Það hljóm- ar dálítið undarlega að heyra þetta, ekki síst fyrir okkur sem tókum þátt í því af full- um heilindum að koma málum ríkisstjórnarinnar gegn um þingið og standa i forsvari fyrir þær aðgerðir á fundum eftir áramótin. Fyrir- varar og efasemdir einstakra þingmanna skipta ekki máli i þessu sambandi. Krappasti dansinn um stjórnarfrumvarp í Alþingi var um frumvarpið um stjórn fiskveiða, og munaði minnstu að þvi yrði umbylt á þann hátt að jaðraði við vantrausti á sjávarútvegs- ráðherra. Þau mál leystust og mér er kunnugt um það að einstakir þingmenn í sam- starfsflokkunum lögöu að sér til þess að svo mætti verða. Ég hef ekki orðið var við að sjávarútvegsráðherra hafi verið að kveina yfir þvi máli eftir á. Þrir flokkar i stjórnar- samstarfi verða að leysa mál, og bera á þeim fulla ábyrgð. Hins vegar komast ráðherrar og flokkar þeirra sem ábyrgð bera á framkvæmd mála- flokka, eins og til dæmis ríkisfjármálanna hjá því að standa i eldlínunni, þegar svara skal þjóðinni til.“ En síðan er stutt í hags- munagæslusönginn: Og i beinu framhaldi skrifar Jón Kristjánsson: „Það er líka afar einkenni- legt ef foringjar stjórnarflokk- anna mega ekki setja fram sín sjónarmið um þau vanda- mál sem uppi eru á hverjum tíma. Viö framsóknarmenn höfum ekki farið dult með það að nú eiga framleiðslu- atvinnuvegirnir að hafa for- gang. Hafi þeir ekki starfsgrund- völl fjarar undan lífskjörunum í landinu. Það fjarar undan landsbyggðinni og áfram- haldandi þensla í þjónustu- greinum meö viðskiptahalla upp á 10 milljarða króna leiðir til erlendrar skulda- söfnunar sem mun rýra lífs- kjör okkar á komandi árum. Án þess að þessi grundvöllur sé fyrir hendi er tómt mál að tala um raunverulegar kjara- bætur fyrir þá sem verst eru settir. Skiptir þá ekki máli sú krónutala sem kann að vera ákveðin í kauphækkanir við samningaborðið. Þessum skoðunum munum við halda fram, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Við trúum því ekki aö samstarfsflokkarnir í ríkis- stjórn taki ekki undir þetta með okkur, enda miðuðu halda allir sem einn að þeir þiggi laun eftir strípuðum grunntöxtum og stendur út úr þeim síbyljan um hraklegt kaup og nú skaka þeir verk- fallsvopnin í þeirri trú að allir séu að gera það gott nema þeir. Á öllum kennarastofum ríkir fjallgrimm fullvissa að á öðrum vinnustöðum i landinu sé ofsalegt launaskrið og að einkageirinn kunni sér hvergi læti þegar hann eys gullinu yfir starfsfólk sitt af slíku ör- læti að það er eins og aö at- vinnurekendur séu í sífelld- um jólasveinaleik allt árið.“ Síöan segir Oddur: „Launagreiðendur og stétt- arfélög hafa komið sér upp fáránlegu kerfi þar sem samið er um einhver dularfull grunnlaun, sem örfáir eða engir fá greitt samkvæmt og svo eru útborguð laun ein- hver allt önnur og hærri. Opinberir starfsmenn liggja í sifellu á því lúalagi að telja sjálfum sér og öðrum trú um að þeir fái ekki nema grunnlaunin í sínum umsiög- um, en þaö sem aðrar starfs- stéttir fá framyfir grunnlaun- in þreytast þeir aldrei á að básúna að sé launaskrið og yfirborganir. Þessi Ijóti leikur er iðkaður til að ota sinum tota í kjarabaráttunni þar sem hver reynir að gleypa eins stóra kjaftfylli af kök- unni og hann hefur sköpulag til.“ Og í lokin kemur þessi skothríö: „Kennarar sem sinna fullu starfi fá sem sagt mun hærra kaup en að framan getur, þar sem mikið eru um að kennar- ar séu í hlutastarfi. Fals af þessu tagi er einn- ig notað til að sýna t.d. hve kvennastörf eru lítils metin. Farið er i skattskýrslur og heildarlaun til að sanna að mikið misrétti eigi sér stað, en varast að geta þess að svo og svo mikill hluti þeirra sem verið er að sanna að starfi fyrir lágu launin eru ekki í fullu starfi og árslaunin þannig dregin niöur þegar gerður er samanburður við þá sem þarf að sanna að hafi hærra kaup, en vinnustunda hvergi getið. Hálfsannleikur og sitthvað þaðan af verra veður uppi i allri umræðu um launamái. Heilu stéttirnar Ijúga sultar- launum upp á sjálfar sig og búa svo til launaskrið og lúxustekjur hjá öðrum eftir geðþótta og vaða með alhæf- ingar í fjölmiðia, sem eru seinþreyttir að gleypa við hverju því sem að þeim er rétt og koma dellunni á fram- færi. Allt er nú á tjá og tundri i kjaramálaþvælunni og veit enginn hvað snýr upp eða niður og hver er aö semja um hvað við hvern en öllum ber saman um að endilega verði að bæta kjör hinna lægst- launuðu. Þá er galdurinn ekki annar en sá að ijúga sig inn í raöir láglaunafólksins til að fá kauphækkun, enda tekst sumum það með ágætum árangri." Jón Kristjánsson: Viö erum ekki stikkfri! síðustu aðgerðir ríkisstjórn- arinnar að þessu marki.“ 0DDUR Ólafsson, aðstoð- arritstjóri Tímans skrifar stór- skemmtilega grein i blaö sitt í gær um kennaralaun og önnur laun ásamt ringulreiö- inni í kjaradeilunum. Oddur skrifar: „Vegna misréttis í þjóðfé- laginu munu allir nemendur grunn- og framhaldsskóla leggja niður nám um miðjan næsta mánuð. Skítt veri með vorpróf eða smáræöi eins og það að húrra niður náms- áfanga eins misseris eða vetrar. Krökkunum liggur ekkert á að Ijúka námi, enda hafa kennararnir engin efni á að troða í þá fyrir þau lúsar- laun sem þeim eru skömmt- uð. Sjálft námið og árangur af því skiptir minna máli en afkoma kennaranna, sem Einn með kaffínu Þaö eru oft erfiöar þrautir lagöar fyrir þingmenn. Þessi var sett fram í kaffistofu Alþingis á dögunum: — Vitiði afhverju Davíð sækir svona fast áö byggja ráöhús í tjörninni? — Neeei.... — Það er svo hann geti gengið heim úr vinnunni. Á vatninu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.