Alþýðublaðið - 16.03.1988, Page 4
4
Mióvikudagur 16. mars 1988
________________FRÉTTIR_______________
Séra Þorvaldur Karl Helgason kryfur prestsstarfið til mergjar
EKKI FULLT STARF AÐ
ÞJÓNA 500 SÓKNARBÖRNUM
Er fullt starf aö vera sókn-
arprestur i 500 manna presta-
kalli miðað við þau störf sem
presturinn vinnur undir
venjulegum kringum-
stæðum? Þessari spurningu
hefur sjaldan verið velt fram
á faglegan hátt, en i nýjasta
fréttabréfi þjóðkirkjunnar,
Viðförla, er grein eftir séra
Þorvald Karl Helgason þar
sem hann gerir tilraun til
þess að reikna út „normal-
brauðið". Miðað við þá út-
reikninga kemst Þorvaldur að
þeirri niðurstöðu að presta-
kall með 500 sóknarbörnum
sé ekki fullt starf. „Þetta
þýðir samkvæmt mínu kerfi
að prestakall af þessari
stærð er tæplega 80% af
fullu vikustarfi," segir Þor-
vaidur m.a. i grein sinni.
Séra Þorvaldur Karl Helga-
son er sóknarprestur í Njarö-
víkurpreskakalli. Hann starf-
aði í kjaranefnd Prestafélags-
ins um tima og fór þá að
velta fyrir sér, að nauðsyn-
legt væri að hafa einhverja
viðmiðun, eitthvert norm,
sem gengið væri út frá er
meta ætti starf og þar með
laun sóknarprests.
„Það var gert nokkurt grín
að þessu á sínum tíma er við
kjaranefndarmenn vörpuðum
þessum hugmyndum okkar
fram um „normalbrauó- .
Ég hló ekki þá og geri ^xki
enn,“ segir Þorvaldur í grein-
inni.
Við útreikningana natði
hann sitt eigið prestakall til
viðmiðunar. Hann reiknaði út
hve miklum tíma hann eyddi í
að gera hin ýmsu verk og
störf sem flokkast undir það
að þjóna Njarövíkurpresta-
kalli, með tvær sóknir, þar
sem íbúar eru um 2100 í ann-
arri og 400 í hinni með tvær
kirkjur. Fjöldi sóknarbarn-
anna var þægileg tala, því
hún er sem næst 1% lands-
manna.
Þessum klukkustundum á
viku breytti Þorvaldur í ein-
ingar, 1 eining er sama og
einnar klukkustundar vinna á
viku. Vinnuvikur ársins hafði
hann 45, en þær ættu að vera
RÁÐSTEFNA
UM
GRUNNSKÓLA
Menntamálaráðuneytið í samvinnu við Bandalag
kennarafélaga, Kennaraháskóla íslands og Há-
skóla íslands gengst fyrir ráðstefnu um grunn-
skóla vegna athugunar OECD á íslenska skólakerf-
inu.
Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 19. mars
1988 í Borgartúni 6, Reykjavík.
Meginefni ráðstefnunnar verður:
Jafnrétti til náms, námsgögn, kennslu-
hættir skipulag og stjórnun.
Hvert er æskilegt að stefna?
Hvað er raunhæft að gera?
Á hverju á að byrja?
RáðstefnustjóranBirna Sigurjónsdóttir
Brynhildur A. Ragnarsdóttir
Dagskrá.
9.30 Setning. Birgir ísl. Gunnarsson menntamálaráð-
herra
9.45 Erindi. Pétur Þorsteinsson, skólastjóri
10.05 Erindi. Kristín Norland, kennari
10.25 Kaffihlé
10.45 Hópar starfa
12.15 Matarhlé
13.00 Niðurstöður hópa. Almennar umræður.
14.30 Pallborðsumræður
16.00 Ráðstefnunni slitið
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Rafmagnsiðnfræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raf-
magnsiðnfræðing til eftirlitsstarfa (veitueftirlit) í
innlagnadeild fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
Umsóknarfrestur er til 28. mars n.k.
Séra Þorvaldur Karl Helgason
um 46.52 - 6 vikna sumarfrí.
Normalbrauðið flokkaði
hann síðan í 6 grunnþætti: 1.
Fjöldi sóknarbarna, 2. Guðs-
þjónustur, 3. Fræðslustarf, 4.
Sálgæsla, 5. Stjórnun, 6.
Annað. — Hver flokkur hefur
síðan marga undirflokka,
sem Þorvaldur gefur hverjum
ákveðinn fjölda eininga
miðað viö 2500 sóknarbörn í
prestakalli. Siðan reiknaði
hann út með hjálp tölvu hve
margar einingar hvert presta-
kall fengi á hverja 500 íbúa.
Miðað við 500 sóknarbörn
þá er heildartalan 31 eining,
sem segir i sem stystu máli
að ekki sé um fullt starf að
ræða miðað við þær forsend-
ur sem Þorvaldur gengur út
frá. „Þetta þýðir samkvæmt
mínu kerfi að prestakall af
þessari stærð er tæplega
80% af fullu vikustarfi. Að
sama skapi eru heildareining-
arnar I 8000 manna presta-
kallinu 138e eða rúmlega
fullt starf þriggja presta
miðað við 40 stunda vinnu-
viku. Það er svo aftur annað
mál hvort því mikla starfi
ætti að deila niður á prest(a)
eða kannski einhverja aðra
starfsmenn sóknarinnar.
Skv. töflunni er „normal-
brauðið" sem næst 1500
sóknarbörn (41e).
Greiðslur fyrir „aukaverk".
Samfara þessari kerfis-
breytingu væri öll greiðsla
fyrir aukaverk I núverandi
mynd lögð niður á svipaðan
hátt og rætt hefur verið um
m.a. á Kirkjuþingi. Heildar-
upphæðin sem við prestar
ættum að fá væri lögð við
sóknargjöldin og deilt niður á
hvern skattgreiðanda. Ég
hygg að I dag þýddi þetta ná-
lægt 20 kr. hækkun skatta á
mánuði hjá hverjum skatt-
greiðanda, eða 200-250 kr. á
ári. Þá aukaupphæð greiddu
viðkomandi sóknarnefndir til
prestsins mánaðarlega eftir
þvl sem viðmiðunarbrauðið
segði til um og I lok ársins
væri heildarupphæðin leið-
rétt með tilliti til þeirra
„aukaverka" sem presturinn
framkvæmdi á árinu og er
greitt fyrir I dag,“ segir Þor-
valdur I grein sinni.
Normalbrauð
SóknurlMirn luriýul llrlKÍIiuld Skirnir t-rrminRur TiillinKur Juróurfurir SkjrsluicrrA YióluKlimi ViAlol Súlgirslu Fnt-óslu Sljiirnun Annurt hininRur ulK
500 8 12 1 1 0 1 1 2 1 1 1 1 1 31
1000 9 13 1 1 1 2 1 2 1 1 1 1 2 36
1500 10 14 2 2 1 2 1 3 1 1 1 I 2 41
2000 11 15 3 3 1 3 1 3 1 1 1 1 2 46
2500 12 16 4 4 1 4 1 4 1 1 1 1 s 52
3000 13 17 5 5 2 5 1 4 2 2 2 2 3 63
3500 14 18 6 6 2 6 1 4 2 2 2 2 3 68
4000 15 19 7 7 2 7 2 4 2 2 2 2 3 74
4500 16 20 8 8 2 8 2 4 2 2 2 2 3 79
5000 17 22 9 9 3 9 t 4 3 2 3 3 3 89
5500 18 24 10 10 3 10 2 4 3 3 3 3 3 96
6000 19 26 11 11 3 11 2 4 3 3 3 3 4 103
65(X) 20 28 12 12 3 12 2 4 3 3 3 3 4 109
7(XX) 22 30 13 13 4 13 2 4 3 3 3 3 4 117
7500 24 32 14 14 4 14 2 4 3 3 3 3 4 124
8000 26 34 15 15 4 15 4 4 4 4 4 4 5 138
Kennarasamband íslands:
„AFAR VILLANDI UPP-
LÝSINGAR UM LAUNIN“
KI harmar að fjármálaráðuneytið skuli hafa birt upplýsingar um
kennaralaun með þeim hœtti sem gert hafi verið.
Kennarasamband Islands
telur að tölur þær sem birtar
hafa verið sem meðaltalslaun
grunnskólakennara og fram-
haldsskólakennara séu afar
villandi og gefi ranga mynd
af launum þeirra. Þetta kem-
ur fram i sérstakri fréttatil-
kynningu sem Alþýðublaðinu
barst í gær, vegna upplýs-
inga sem að undanförnu hafa
komið fram í fjölmiðlum um
laun kennara. I helgarblaði
Alþýðublaðsins voru m.a.
birtar upplýsingar þess efnis
að meðallaun framhalds-
skólakennara væru um 100
þúsund krónur á mánuð mið-
að við verðlag í desember.
Kennarasambandið vill
hins vegar taka fram að byrj-
unarlaun grunnskólakennara
eftir þriggja ára háskólanám
séu 48.205 krónur á mánuði.
Eftir 18 ára starf fái grunn-
skólakennari 62.771 krónu I
laun á mánuði. Framhalds-
skólakennari með meistara-
réttindi í iðngrein sinni fær
að sögn Kl 51.140 krónur á
mánuði í byrjunarlaun og
nær 66.593 krónur á mánuði
eftir 18 ára starf.
Slöan segir í frétt Kennara-
sambandsins:
Þær tölur sem birtar hafa
veriö sem meðaltalslaun
grunnskólakennara eru afar
villandi og gefa ranga mynd
af launum þeirra.
Hvað varðar grunnskólann
má til dæmis nefna að þar er
ekki einungis um að ræða
laun grunnskólakennara og
leiðbeinenda heldur einnig
laun skólastjórnenda, en þeir
eru að sjálfsögðu hærra laun-
aðir en almennir kennarar. Þá
eru einnig taldir með ýmsir
hópar sem raöast ofar I
launaflokka en almennir
kennarar. Þegar reiknuð eru
meðaltals dagvinnulaun
almennra grunnskólakennara-
/leiðbeinenda kemur I Ijós að
I desember 1987 eru þau um
55.000,- krónur, eða tæplega
6% lægri en fram kemur I
upplýsingum fjármálaráðu-
neytisins. Laun Grunnskóla-
kennara/leiðbeinenda.með yf-
irvinnu, miðað við sambæri-
legar forsendur og gefnar eru
I upplýsingum fjármálaráðu-
neytisins eru um 69.000 að
meðaltali I desember 1987 —
það er um 8% lægra en upp-
lýsingar fjármálaráöuneytis-
ins gefa til kynna.
í þessu sambandi er rétt
að benda á að fjöldi kennara
hefur litla sem enga yfirvinnu
á sama tíma og aðrir hafa
neyðst til þess að taka að sér
meiri yfirvinnu en þeir kæra
sig um til þess að bjarga
þeim vanda sem skólar
landsins standa frammi fyrir
vegna kennaraskorts.
Kennarasamband ísland
harmar að fjármálaráðuneytið
skuli birta upplýsingar um
kennaralaun með þeim hætti
sem gert var, þar sem ekki
var gerð fyllilega grein fyrir
þeim forsendum sem lagðar
voru til grundvallar. Með slík-
um vinnubrögðum er gefið
tilefni til rangtúlkana og mis-
skilnings sem sist verður til
þess að bæta samstarf þess-
ara aðila í yfirstandandi
samningagerð."