Alþýðublaðið - 07.04.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 07.04.1988, Blaðsíða 1
BIÐSTAÐA HJÁ KENNURUM Wincie Jóhannsdóttir formaður Hins íslenska kenn arafélags segir að kennarar hafi ekki að öðru að ganga en að kjörin haldi áfram aö versna, komist félagsdómur að því að verkfallsboðun kennara í HÍK standist ekki. Málflutningur hefst fyrir Félagsdómi á laugardag og óttast kennarar aö hann muni komast að því að meirihluti sé ekki fyrir verkfalli. Um þá túlkun hefur staðið styr, en eins og kunnugt er voru um 60 kennarar sem skiluðu auðu í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun og er deilt um hvort þessir auðu seðlar telj- ist þátttaka og þar með ráði þau atkvæði úrslitum. Fulltfúaráð Kennarasam- bands íslands sat á fundi í gær og gærkvöldi og ræddi stöðuna í Ijósi úrskurðar Fé- lagsdóm um að ólöglega hafi verið staðið að verkfallsboð- un, en verkfall átti að hefjast næsta mánudag. Vegna úrskurðarins fer deilan sjálfkrafa frá ríkis- sáttasemjara. Ekki hafði verið tekin ákvörðun um aö vísa málinu aftur þangað. Heyrst hefur að kennarar muni fara sér hægt við vinnu á næstu dögum. Alþýðublað- ið bar þetta undir Eddu Ólafsdóttur hjá Kl í gær- kvöldi, sagði hú þann mögu- leika ekki hafa verið ræddan. Alþjóðlegi reyklausi dagurinn: ÞJÓÐIN í REYK- BINDINDI í DAG I dlefni dagsins eru haldnar samkomur víða um land og ýmis fyrirtœki kosta reykbindindisnámskeið „Þessi dagur hefur i öll skiptin vakið mikla eftirtekt og umræðu og það er enginn minnsti vafi á því að fjöl- margir reykingamenn hafa virt þennan dag og haldið honum reyklausum og við vit- um einnig um býsna marga sem hafa hætt að reykja vegna þessa“ sagði Þorvarð- ur Órnólfsson, framkvæmda- stjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur en það ásamt öðrum heilbrigðisstofnunum hefur unnið að „reyklausum degi“ hér á íslandi sem er í dag. í tilefni dagsins stendur Krabbameinsfélagið fyrir ýmissi þjónustu og ýmis fyrirtæki og stofnanir hafa óskað eftir reykbindisnám- skeiði fyrir starfsfólk sitt og sótt aðstoð bæði til Krabba- meinsfélagsins og Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur. í samtali við Alþýðublaðið sagði Þorvarður að undan- farna daga hefði bæklingum og plakötum verið dreift á þúsundir vinnustaða og fjöl- margir hefðu óskað eftir meira magni en sent var I fyrstu. Úti á landi hafa margar heilsugæslustöðvar notað tækifærið og efnt til fræðslu- átaks og fara nokkrar þeirra af stað með námskeið i að hætta að reykja í dag og næstu daga. A sumum stöð- um, sagði Þorvarður, hafa læknar og starfsfólk heilsu- gæslustöðvanna jafnvel beint þeim tilmælum til verslunar- fólks að það selji ekki tóbak í dag. „Hér í Reykjavík mun Krabbameinsfélagið m.a. standa fyrir því sem kallað er „ráðgjöf á reyklausum degi“ í veitingahúsinu Lækjarbrekku og i Kringlunni. Þar verða flutt erindi, sýndar kvikmynd- iro.fl. á milli kl. 12.00-18.00. Eftir hádegi verður síðan fólk frá okkur í Kringlunni, sem mun veita upplýsingar og dreifa fræðsluritum" sagði Þorvarður. Á báðum stöðun- um gefst fólki einnig tæki- færi til að skrá sig á biðlista á reykbindisnámskeið Krabbameinsfélagsins sem verða nú haldin að sumarlagi annað árið í röð. Að sögn Þorvarðar eru námskeið þessi geysivinsæl og hafa gefið góða raun. Ýmis fyrirtæki og stofnanir hér í Reykjavik hafa farið þess á leit við Krabbameins- félagið og Heilsuverndarstöð Reykjavíkur að halda reyk- bindisnámskeið fyrir starfs- fólk sitt. í dag fer eitt slikt af stað fyrir starfsfólk Búnaðar- bankans, á vegum Heilsu- verndarstöðvarinnar og annað á vegum Krabbameins- félagsins í Landakotsspítala. Ásgeir Helgason, upplýsinga- og fræðslufulltrúi Krabba- meinsfélagsins sagði að það námskeið væri það fyrsta í röðinni í átaki um að gera heilbrigðisstofnanir að reyk- lausum vinnustöðum. „Landakotsspitali ríður á vað- ið en svo hefur Borgarspital- inn skipulagt svipað nám- skeið sem mun hefjast 28. aprfl,“ sagði Ásgeir. Það kostar 49.640 krónur aö reykja einn pakka af Winston sigarettum daglega í heilt ár. Stúlkan á myndinni sýnir okkur magnið. Á tíu árum eyðir reykingarmaðurinn tæplega hálfri milljón króna í reykingarnar. Það er þvi til mikils að vinna aö hætta, bæði heilsunnarog peninganna vegna. í dag gefst reykingamönnum gott tæki- færi til þess að taka sér tak, á aiþjóðlegum tóbakslausum degi. A-mynd/Róbert. HSÍ STYDUR AFRÍKUBÚA í HANDKNATTLEIK Hjá Handknattleikssam- bandi íslands stendur fyrir dyrum aö aöstoöa Afríkubúa í uppbyggingu handknatt- leiks sem mikill áhugi er fyrir i nokkrum rikjum álfunnar. Steinar J. Lúðvíksson, vara- formaöur HSÍ sagði í samtali viö Aiþýðublaðið að aliar lík- ur væru á þvi að af þessu verkefni yröi á þessu ári en ekki er endanlega fastsett hvaða ríkjum verður veitt þessi aðstoð. Það er Norræna mennin^- armálastofnunin sem styður framtakið og mun Þróunar- samvinnustofnun íslands einnig koma við sögu. HSÍ mun senda kennslugögn og þjálfara til þessara landa til að halda þjálfaranámskeið. „Viö höfum leitað eftir stuðn ingi meðal Afríkuríkja við um- sókn okkar á heimsmeistara- mótið árin 1993 og ’94 og þá kom það til tals upphaflega að við veittum þessa að- stoð,“ segir Steinar og bætti því við aö uppgangur í hand- knattleik væri mikill i Afríku- löndum. Hann tók það jafn- framt fram að þessi Þróunar- aðstoð væri algerlega ópóli- tísk en Suður-Afríka yrði þó ekki meðal þeirra ríkja Afríku sem fá þessa íþróttaaðstoð. (Sjá fréttaskýringu á bakhlið um ísland og S-Afríku).

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.