Alþýðublaðið - 15.04.1988, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1919
Föstudagur 15. apríl 1988 L 70. tbl. 69. árg
Halldór Asgrímsson um óstjórnina í ferskfiskútflutningi:
MIKIÐ ÁBYRGÐARLEYSI
SUMRA ÚTVEGSMANNA
Halldór Ásgrímsson, sjáv-
arútvegsráðherra, segir að
hluti útvegsmanna hafi sýnt
mikið ábyrgðarleysi við fersk-
fiskútflutning að undanförnu.
„Þeir hafa enga ástæðu til
þess að verða hissa þegar
þeir fá lagt verð. Þeir geta í
mörgum tilfellum gefið sér
það sjálfir fyrirfram. Það er
allt að því að hvarfli að
manni, að sumir aðilar vilji
frekar selja fiskinn á lægra
verði erlendis heldur en flytja
hann á milli staða hér innan-
lands,“ sagði Halldór í sam-
tafi við Alþýðublaðið í gær.
Halldór sagðist lengi hafa
verið óánægður með skipan
mála. Það væri hins vegar
þeir sem stunduðu útflutn-
ingana sem bæru mestu
ábyrgðina. „Þeir hika ekki við
að senda fisk út á þennan
markað jafnvel þó að þeir viti
að þeir fái lágt verð. Síðan er
hátt verð á þessum mörkuð-
um oft notað til þess að
knýja á um hærra fiskverð til
fiskverkunar innanlands. Þar
af leiðandi eru þeir sem fisk-
inn kaupa hér á landi ekki
jafn reiðubúnir til þess að
taka þátt i því, að ábyrgðinni
sé alveg varpað yfir á stjórn-
völd.“
í bókun númerö um frí-
versiunarsamning íslands og
- EB, er kveðið á um að við
innflutning til rikja banda-
lagsins á kældum eða frystu
karfa, þorski, ufsa og ýsu
skuli gilda það viðmiðunar-
verð sem EB ákveði. í krafti
þessa ákvæðis bannaði utan-
rikisráðuneytið útflutning á
Þýskalandsmarkað dagana
18. mars til 11. apríl s.l.,
vegna þess að séö var fyrir
að verð félli niður fyrir gild-
andi verð EB. Ákvörðun utan-
ríkisráðuneytisins var tekin
eftir að ósk þess efnis hafði
komið fram á fundi sjávarút-
vegsráðherra og hagsmuna-
aðila. Það gerðist hins vegar
á svipuðum tíma aö flutt var
taumlaust út á Bretlands-
markað með þeim afleiðing-
um að verð féll. Á sama tíma
var mikill hráefnisskortur á
ákveðnum svæðum innan-
lands.
„Það hefur verið farið út í
öfgar og sýnt að ákveöinn
hluti útvegsmanna starfar af
miklu ábyrgðarleysi." Halldór
sagði að menn hefðu viljað
grípa fram fyrir hendurnar á
þessum mönnum og raunar
væru stjórnvöld skuldbundin
því að reyna að koma í veg
fyrir að farið yrði niður fyrir
lágmarksverð sem gilti innan
EB. Halldór benti á að þessi
flötur hefði komið upp varð-
andi Þýskalandsmarkað og
sagðist alveg eins eiga von á
að eitthvað svipað gerðist
varðandi Bretlandsmarkað-
inn. „En auðvitað vilja menn
helst að viðkomandi aðilar
hafi stjórn áeigin málum.“
„Miðað við það hversu þetta mál hefur verið heitt er ekki nema viðeigandi að ég sé heitari en aðrir sem hér
eru staddir," sagði Daviö Oddsson borgarstjóri sem kvaðst hafa stigið upp úr veikindum til aö reka fyrstu
skóflustunguna að framvkæmdum viö byggingu ráðhússins viö Tjörnina. Nokkur hópur manna kom saman
við Tjarnarendann kl. 16 i gær þegar borgarstjóri stakk í grunn ráðhússins. Nokkur stemmning rikti yfirathöfn-
inni, jarðarfararmars hljómaði úr nálægum hátalara og hávær sprengin kvað við i nánd við greftrunarstaðinn.
Samtökin Tjörnin lifi lýstu þvi þegar yfir að þau bæru enga ábyrgð á þessum hvelli og lögreglan telur að hér
hafi aðeins pústkerfi i bifreið átt hlut að máli. Viðstöddum varð þó æriö bylt við. Ljósm. Jim Smart.
Dagsbrún:
ÞRÝSTIR Á UM KAUPLEIGU
Skorar á Alþingi að samþykkja frumvarpið á þessu þingi.
Á aöalfundi Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar, sem
haldinn var í fyrradag, var að
tillögu stjórnar samhljóða
samþykkt að fagna fram-
komnu frumvarpi á Alþingi
um kaupleiguíbúðir, og skor-
að á Alþingi að sjá til þess
að frumvarpiö verði að lögum
á þessu þingi, svo hefjast
megi handa um byggingu
kaupleiguíbúða.
„Dagsbrún tekur þessa af-
stöðu vegna þess að við
teljum að með þessu fyrir-
komulagi sé verið að ganga
til móts við þá sem verstu
aðstöðuna hafa og reyna
nýjar leiðir I þessum málum.
Ef það eru ekki verkalýðsfé-
lögin sem eiga að stuðla að
þessu, þá veit ég ekki hverjir
eiga að gera það,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar í sam-
tali við Alþýðublaðið í gær.
Guðmundur segir að málið
verði einnig tekið upp á vett-
vangi Verkamannasambands-
ins, á stjórnarfundi þess i
dag.
I ályktun Dagsbrúnarer
lýst yfir áhyggjum vegna hús-
næðisvanda fólks hér á landi
i dag. „ Margt fólk er ofurselt
himinháum húsaleigugreiðsl-
um með hárri útborgun og
ótryggu húsnæði, og þeir
hópar sem eitt sinn lenda í
vítahring húsaleigumarkaðar
eiga sífellt erfiðara með að
komast þaðan út. Þörfinni
fyrir öruggt og ódýrt leigu-
húsnæði hefur aldrei verið
sinnt, og uppsprengt verð á
ibúðarhúsnæði, með hærri
útborgunarhlutfalli en annars
staðar þekkist, er sá veruleiki
sem blasirvið launafólki i
dag.“
Þá segir í ályktuninni að
skortur á leiguhúsnæði hamli
atvinnuuppbyggingu margra
sjávarplássa úti á lands-
byggðinni með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum fyrir þjóð-
félagiö.
Aðalfundurinn fagnar því
framkomnu frumvarpi og
skorar á Alþingi að sjá til
þess að frumvarpið um kaup-
leiguíbúðir verði að lögum á
þessu þingi, svo hefjast megi
handa um uppbyggingu
kaupleiguíbúða.
Guðmundur sagði að ekki
ætti að þola mönnum að vera
með skæting i þessu máli,
án þess að ræða það á skyn-
samlegum nótum. „Þetta er
dýpra mál en það. Húsnæðis-
vandinn er i ótrúlega mörg-
um tilfellum orsök óhamingju
hjá fólki. Þetta mál snertir því
almennu verkalýðsfélögin
öðrum fremur. Það eru fyrst
og fremst félagsmenn þeirra,
sem eigavið harðan kost að
búa. Síðan eiga aðilar úti á
landsbyggðinni að veita
þessu öflugan stuðning til
þess að styrkja stoðir at-
vinnulífs í byggðarlögunum,"
sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dags-
brúnar og Verkamannasam-
bandsins.