Alþýðublaðið - 15.04.1988, Síða 5
Föstudagur 15. apríl 1988
5
FRETTASKYRING
Haukur Holm
skrifar
SVIPTINGAR
HJÁ
Það verður ekki bara
afgreiðslufólk sem fer í
verkfall, ef ekki semst
fyrir nœsta föstudag,
því fjölmargar stéttir
starfa innan VR.
Allsherjarverkfall hefur
verið boðað hjá Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur eftir
viku. Tvívegis hefur samn-
ingatilboð verið fellt, en það
er þó ekki talið benda til van-
trausts á stjórn félagsins.
Erfitt verður þó fyrir hana að
koma með þriðja tilboðið, því
það liti ekki vel út ef það yrði
fellt líka. Staða vinnuveitenda
er líka erfið, því ef þeir gefa
eftir við verslunarfólk, flæddi
yfir þá skriða annarra félaga
sem vildu fá meira i sinn
hlut.
Eins og kunnugt er hafa fé-
lög verslunarmanna viða um
land verið að greiða atkvæði
um kjarasamning. Allflest
þeirra hafa fellt hann, en
einna mesta athygli vekur að
stærsta félagið, Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur er nú
á skömmum tíma búið að
fella tvö samningstilboð. Sér-
staða VR er nokkur. Til að
byrja með var félagið samtök
launþegaog atvinnurekenda,
en um eða upp úr 1950 varð
félagið að launþegasamtök-
um. Það hefur þróast mjög.í
félagslega átt og er öflugt,
enda hefur það yfir digrum
sjóðum að ráða. Einnig felst
sérstaðan í því að Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur löngum átt
sterk ítök í félaginu.
Það að samningstilboð
skuli vera fellt í tvígang, er
nokkuð merkilegt fyrir þær
sakir, að tiltölulega óvenju-
legt er að samningar séu
felldir í félaginu, miðað við
mörg önnur verkalýðsfélög.
Fyrirkomulag atkvæða-
greiðslunnar var með nokkuð
öðrum hætti en venjulega,
þ.e. á nokkrum vinnustöðum
auk skrifstofu VR, í stað
stórs opins félagsfundar þar
sem fjallað er um samning-
inn og slðan greidd um hann
atkvæði. Um 2500 manns
greiddu atkvæði um þetta
samningstilboð, sem er um
fjórðungur félgsmanna VR,
og er það mikil þátttaka, þvl
oft eru það aðeins 100 til 200
manns sem mæta og taka af-
stöðu. Má gjarnan álykta að
þessi aukna virkni félgas-
manna sé að einhverju leyti
fólgin í hinu breytta fyrir-
komulagi.
Laugardagslokunin of-
metin eða óánœgja með
forystuna?
Mikil áhersla hefur verið
lögð á að stytta opnunartfma
verslana og að þær yrðu lok-
aðar á laugardögum í sumar.
Eftir það tilboö sagði
Magnús L. Sveinsson for-
maður VR að fólk hafi ekki
treyst því að þetta næði fram
að ganga og því fellt. Jón Ás-
bergsson forstóri Hagkaups
sagði hins vegar í samtali við
Alþýðublaðiö 8. aprll s.l. að
kynningu á þessu ákvæði
hafi verið mjög ábótavant hjá
VR. í tilboðinu sem fellt var í
fyrradag hafði hins vegar
náðst samkomulag um að
verslanir yrðu lokaðar á laug-
ardögum í sumar og unniö
yrði að framtíðar fyrirkomu-
lagi á opnunartíma verslana.
Þá vaknar spurning hvort
þessi þáttur samninganna
hafi verið ofmetinn?
„Já, vegna þess að launin
voru þau sömu, launaliðurinn
var svotil algjörlega óbreytt-
ur,“ segir Birna Þórðardóttir i
samtali við Alþýðublaðið.
Magnús L. Sveinsson hefur
sagt að hann telji það ekki
vantraust áforystu félagsins
að tilboðin skuli vera felld.
Segir hann að þetta séu þó
skilaboð til hennar um að
gera betur. Aðspurð um hvort
það sé ekki léleg forysta sem
komi tvisvar með tilboð sem
eru felld, segir Birna að svo
megi segja, en á móti sé
hægt aö spyrja hvers konar
félag það sé sem velji sér
svona forystu ár eftir ár.
„Þetta er allavega í fyrsta
skipti sem það gerist að það
er sagt nei innan VR við ein-
hverjum samningum eða
öðru sem forysta félagsins
kemur með.“
Aðilar sem Alþýðublaðið
ræddi við innan verkalýðs-
hreyfingarinnar töldu, líkt og
Magnús L. Sveinsson, að fólk
hafi fellt tilboðin vegna
óánægju með sln laun og
kjör. Launin séu á bilinu 30
til 40 þúsund krónur á mán-
uði, og fólk sætti sig ekki við
svona lág laun lengur. „Ég
held að það sé fyrst og
fremst það, að það eru stórir
hópar innan VR sem eru á
þessum beru töxtum, og
samkvæmt þessum samning-
um sem er búið að fella f tvf-
gang er gert ráð fyrir launum
á bilinu 35.200 og upp í
45.000 krónur eftir tíu ár hjá
sama atvinnurekanda og það
er einfaldlega ekki hægt að
lifa af þessum launum," segir
Birna Þórðardóttir.
Erfið staða
Vinnuveitendur hafa lýst
því yfir að ekki komi til
greina að hækka kaup enn
frekar, enda gefi þeir eftir við
verslunarmenn, megi þeir
eiga von á að fá yfir sig
skriðu af öðrum félögum
sem fara fram á það sama.
Enn er vinnudeilan í Vest-
mannaeyjum óleyst. Segja
þeir að frekari hækkanir leiði
aðeins til aukinnar verðbölgu
og þjóðarframleiðslan ráði
ekki við meira. Kaupmáttur
hafi aldrei verið meiri og þeir
geiði hæsta kaup í heimi, en
kröfur fólks um lifsgæði hafi
hins vegar aukist, þannig að
lengra sé milli launa og óska
en áður.
Verslunarmenn eru svo til
einir á báti nú, þannig að
staða þeirra er ekki of sterk,
en þess ber þó að gæta að
innan VR starfa margar stétt-
ir og sumar þeirra geta beitt
þrýstingi eins og t.d. félags-
menn hjá Flugleiðum og
víðar. Einnig er forystu VR
settar skorður, þvf það væri i
meira lagi neyðarlegt fyrir
hana að leggja fram samn-
ingatilboð í þriðja sinn sem
yrði fellt.
Verkfall?
Allsherjarverkfall VR er
boðað þann 22. apríl n.k. Ekki
er gott að segja hversu reiðu-
búið fólk er til að fara í
harðarog kannski langvinnar
aðgerðir, ýmsir eru á þeirri
skoðun að langan tíma gæti
tekið að vinna upp það tekju-
tap sem af löngu verkfalli
hlytist, en einnig sé kominn
tfmi til að sýna atvinnurek-
endum að full alvara sé að
baki þeirra krafna sem settar
eru fram. „Verkfall er undir
atvinnurekendum komið, ef
þeir ætla að vera svona stífir,
og pumpa öllum sínum pen-
ingum í að byggja verslunar-
: hallir I stað þess að borga
fólki almennileg laun, þá er
ekkert annað að gera þvl
miður. Það fer enginn af
gamni slnu út í verkfall',
segir Birna Þórðardóttir.
Skiptar skoðanir eru um
hvort til verkfalls kemur.
Ýmsir eru trúaðir á að það sé
óumflýjanlegt. Einn heimild-
armaður Alþýðublaðsins
innan verkalýðshreyfingarinn-
ar taldi þó, með tilliti til
íhaldsáhrifa innan félagsins,
að vilji væri hjá mönnum að
„settla“ málin. Taldi hann
allar forsendur benda til þess
að reynt yrði allt til að ná
samninnum. Hugsanlegt
væri að reynt yrði að komast
að einhverju samkomulagi
bak við tjöldin, því staðan
væri slæm hjá báðum aðil-
um.