Alþýðublaðið - 19.04.1988, Side 3

Alþýðublaðið - 19.04.1988, Side 3
Þriðjudagur 19. apríl 1988 3 FRÉTTIR RÆTT Samninganefnd ríkisins og fulltrúar Hins íslenska kenn- arafélags hafa ákveðið að koma saman til fundar í næstu viku, en Kennarasam- bandið hefur ekki svarað til- boði samninganefndar ríkis- ins um viðræöur ennþá. Á fundi Bandalags kennarafé- laga um helgina voru ræddar samræmdar aðgerðir kenn- arafélaganna til að fylgja eftir kröfum sínum. Wincie Jóhannsdóttir formaður Hins Kjaramál kennara: UM SAMRÆMDAR AÐGERDIR Fundur islenska kennarafélags segir að engar ólöglegar aðgeröir hafi veriö ræddar. Bandalag kennarafélaga hélt fund á laugardaginn með fulltrúm úr samninganefnd- um Hins íslenska kennarafé- lags og Kennarasambands ís- lands. Var rætt um ný- afstaðna fundi með samn- inganefnd rikisins, og segir í tilkynningu frá fundinum að ekkert nýtt hafi komið fram á þeim fundum og engin ný til- HÍK og ríkisins í næstu boð hafi verió lögð fram. Segir einnig að mjög þungt hljóð sé í kennurum, ekki síst eftir skrif fjármála- ráðherra 29. mars s.l., þar sem hann visvitandi kasti ryki í augu almennings varð- andi laun, störf og vinnutima kennara. Ræddu fundarmenn um samræmdar aðgerðir kennarafélaganna til að fylgja eftir kröfum sínum. í samtali við Alþýðublaðið segir Wincie Jóhannsdóttir viku formaður HIK, að hingað til hafi aðgerðir verið ræddar á almennum nótum og ekki hafi veriö neitt skipulagt í þeim efnum. „Það eina sem er hægt að segja er aó við höfum ekki rætt á neinum ólöglegum nótum." Indriði H. Þorláksson skrif- stofustjóri i fjármálaráðu- neytinu segirað í siðustu viku hafi verió óskað eftir fundum með kennurum til að kanna viðhorf þeirra til áfram- haldandi viðræðna. „Við lögð- um til að aðilar héldu viðræð- um áfram þar sem frá var horfið og gengju nú til við- ræöna án þess að setja nein skilyrði fyrirfram um eitt eða annað. Þannig að á þessuny fundi var ekkert rætt um efn- isatriði samninga.” Fundurinn hefur verið ákveð- inn með fulltrúum HÍK 27. apríl n.k., en að sögn Indriða hefur ekkert svar borist frá KÍ. Á þingi Landssambands iðnverkafólks, sem haldið var á Selfossi á sunnudag var kosin ný stjórn. Taliö frá vinstri: Sigurbjörg Sveinsdóttir Hafnar- firði, Dröfn Jónsdóttir Egilsstöðum, gjaldkeri, Ármann Helgason Akureyri, Freyja Benediktsdóttir Selfossi, Hildur Kjartansdóttir Reykjavik, ritari, Guðmundur Þ. Jónsson Reykjavík, formaður, Kristin Hjálmarsdóttir Ákureyri, varaform., Vigfús Þorsteinsson Sauðárkróki, Hannes Ólafsson Reykjavík. Á myndina vantar Guðlaugu Birgisdóttur Akranesi. Vestmannaeyjar: RRÁÐARIRGÐASAMKOMULAG UM 42000 KRÓNA LAUN Verkalýðsfélag Vestmanna- eyja og Verkakvennafélagið Snót hafa komist aö bráða- birgðasamkomulagi við tvö fyrirtæki um aö grunnlaun veröi ekki lægri en 42.000 krónur á mánuði. í öðrum fyrirtækjum er yfirvinnubann í gildi og beðið er eftir fund- arboði frá ríkissáttasemjara. Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vestmanna- eyja segir í samtali við Al- þýðublaðið að samkomulag hafi náðst við Frostver og saltfiskverkunina Tinnu s.f. um að ekki verði borgað minna en 42.000 krónur á mánuði í grunnlaun. Er þetta bráðabirgðasamkomulag þar til samningar hafa tekist við aðra atvinnurekendur. Á þetta við um félagsmenn Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja og Verkakvennafélagsins Snótar, sem eins og kunnugt er, eru í samfloti í samningagerð. Yfir- | Borgarbókasafn Reykjavik- ur á 65 ára afmæli i dag og i tilefni afmælisins verður haf- in útlánaþjónusta á hljóm- plötum. Frá og með afmælis- deginum verður í eina viku hægt að skila bókum sem eru í vanskilum án þess að borga sekt. Borgarbókasafn Reykjavik- ur tók við af Bæjarbókasafni Reykjavíkur, sem var arftaki Alþýðubókasafns Reykjavík- vinnubann félaganna í öðrum fyrirtækjum er því enn í gildi. Sagðist Jón ekki hafa fengið nein viðbrögð frá öðr- ur, sem tók til starfa 19. apríl 1923. Upphaflegur bókakost- ur var 900 bækur, en um síð- ustu áramót voru þær orðnar 367.000. Tónlistardeild safnsins er til húsa í Gerðubergi, þar sem góð aðstaða er til hlust- unar, en hljómplöturnar hafa ekki verið til útláns fram að þessu. í dag, afmælisdaginn verður tekin upp sú nýbreytni um atvinnurekendum i Eyj- um. Núna væri beðió eftir að sáttasemjari boðaði til fund- ar. að hefja útlán á hljómplötum (geisladiskum). í tilefni afmælisins verður sektalaus vika í öllum deild- um safnsins, og geta þá þeir viðskiptavinir sem af ein- hverjum ástæðum hafa i fór- um sínum bækur sem komn- ar eru í vanskil, notað tæki- færið og skilað þeim án þess að þurfa að borga sekt. Stendur sektalausa vikan frá 19. til 26. april. Borgarbókasafnið 65 ára: SEKTALAUS VIKA VMSÍ VILL KAUP- LEIGU Skorar á Alþingi að samþy •/< kja frumvarpið á þessu þingi. Framkvæmdastjórnarfundur Verkamannasambands is- lands sem haldinn var s.l. föstudag, fagnar frumvarpi um kaupleiguibúðir og skorar á Alþingi aö sjá til þess aö frumvarpið veröi að lögum á þessu þingi svo hægt verði að hefjast handa um bygg- ingu þeirra. I ályktun frá fundinum segir að þvi sé fagnað að komið sé fram frumvarp sem geri ráð fyrir að reistar verði ibúðir, þar sem fólk getur val- ið um hvort það kaupir eða leigir, og verði andvirðið fast- ar hóflegar greiðslur. Lýsir framkvæmdastjórnin áhyggj- um sínum vegna húsnæðis- vanda fólks í landinu í dag. Margt verkafólk sé ofurselt himinháum húsaleigugreiðsl- um og hárri útborgun. Hús- næði sé ótryggt, og þeir sem eitt sinn lenda i vitahring húsaleigumarkaðar eigi stöð- ugt erfiðara með aö losna þaðan út. Þörfinni fyrir öruggt og tryggt húsnæði hafi aldrei verið sinnt. Uppsprengd húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu sé sá veruleiki sem blasi við launa- fólki i dag og skortur á íbúð- arhúsnæði viða úti á landi, hamli eðlilegri þróun byggðar og atvinnulífs. Hliðstæð ályktun var sam- þykkt á aðalfundi Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar á dögunum. Miðstjórn Alþýðusam- bands íslands hefur þrjú lagafrumvörp um húsnæðis- mál til meðferðar og verða umsagnir um þessi frumvörp afgreidd frá miðstjórninni á næstu dögum.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.