Alþýðublaðið - 30.04.1988, Blaðsíða 2
2
MMBUBLMÐ
Otgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson
Umsjónarmaður
helgasblaðs: Þorlákur Helgason
Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir, Ómar
Friðriksson, og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir.
Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir
Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12.
( Áskriftarsiminn er 681866.
' Dreifingarsimi um helgar: 18490
Áskriftargjald 700 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60
kr. um helgar.
UM BORN OG FYRSTA MAI
ryrsti maí varbaráttudagurverkalýðs í þessu landi. Síðar
var dagurinn skráður I orðabókum sem „frídagur verka-
manna“ og hefur upp frá því fengið að vera undir því heiti
í almanakinu. Nú er svo komið að verkalýðsfélögin treysta
sér tæplega lengur til að hefja merkið á loft undir berum
himni í kröfugöngum. Launafólk læturekki sjásig, aðeins
börn í skrúðgöngu, og enginn nennir lengur að hlusta á
ræðumenn brýna raustina út í rokið. I Hafnarfirði, þeim
mikla verkalýðsbæ grípa menn nú á það ráð að ganga
hvergi, en útvarpa ræðunum sem hefðu ella verið fluttar
fyrir börnin. Öllum er þó boðið í kaffi. Hætt er við að fleiri
fylgi fordæmi Hafnfirðinga sunnudaginn í annarri viku
sumars. Alþýðublaðið birtir í dag viðtöl við verkalýðsfor-
menn af landsbyggðinni og við Guðríði Eliasdóttur, vara-
forseta ASÍ. Öll lýsa þau bágu ástandi í verkalýðshreyfing-
unni, en Guðríður segir líka að fólki blöskri misréttið í
þjóðfélaginu, og það svo að hún hafi ekki langan tíma
fundið önnur eins viðbrögð og áhuga á verkalýðsmálum
eins og lýsi sér í mikilli þátttöku í undirbúningi og við gerð
kjarasamninga að undanförnu. Ótrúlegur launamunur í
þjóðfélaginu ýti við láglaunafólki. Guðríður segir jafn-
framt að stjórnvöld skelli skollaeyrum við kröfu um réttlát-
ari skiptingu þjóðarkökunnar. Þau skirrist við að viður-
kenna að í landinu fyrirfinnist yfirleitt fólk sem búi við
kröpp kjör.
í viðtali við verkalýðsformennina í blaðinu í dag kemur
fram aðvandinn álandsbyggðinni erannaren ásuðvestur-
horninu, illa sé búið að innlendri framleiðslu og innflutn-
ingi sé hampað á kostnað hennar. Forvígismenn útflutn-
ingsgreina kvarta undan óréttmætu hlutfalli framleiðslu-
kostnaðar á Islandi og verós sem fæst fyrir vöruna í út-
löndum. Á samatimaog gengi sé fast, og kaupmátturmik-
ill í landinu, beinist eftirspurn of mikið að innfluttri vöru
sem sé á útsöluverði. Fyrir bragðið versni greiðslustaða
þjóðarinnar stöðugt.
Vandi verkalýðshreyfingarinnar er ekki nýr af nálinni.
Gerjunin hefur tekið áratugi, en þegar kemur að því aö
launafólk sýni lit á 1. maí kemur vandinn upp á yfirborðið.
1. mai-ávörpin nú munu fjalla um sundurþykkjuna í hreyf-
ingunni og samhent atvinnurekendavald.
En hvert skal stefnt — eða eru dagar verkalýðsforingja
taldir, af því að samningar fáerast meir og meir á vinnu-
staðina sjálfa og þar er fólkiðijálft dómbærast um kaup
og kjör? Tæplega munu foringjarnir fallast á að þeir séu
ónauðsynlegir. Verkfall verslunarmanna að undanförnu
hefurþó leitt ýmislegt í Ijós, sem bendirótvírætt áfallvalt-
leika launakerfa og samningágerðar. Smám saman er að
koma fram að vinnustaðirnir verða meir og meir í brenni-
depli og heildarsamtökin veikjast við gerð samninga á
„gólfinu". Taki verkalýðshreyfingin sérekki tak, hleypi hún
ekki breyttum hugsunarhætti inn um dyragættina, er hún
dæmd til að liðast í sundur.
Þriójungur kjósenda leitar um þessar mundir skjóls undir
faldi kvennahreyfingarinnar, m.a. vegna umkomuleysis og
sundurþykkju í gömlu verkalýðsflokkunum, Alþýðuflokki
og Alþýðubandalagi. Verkalýðshreyfingin er villuráfandi á
tímamótum, en A-flokkarnir verða líka að gera það upp við
sig, hvort þeir geri tilkall til þess að vera málsvarar laun-
þega í landinu.
Haldi þeir hins vegar óbreyttum kúrsi þurfa þeir ekki að
hafa áhyggjur af kjósendum. Þeir munu yfirgefa þá til
frambúðar rétt eins og ekki er hægt að ætlast til þess að
börnin hlusti til eilífðarnóns á ræðumanninn.
Alpýðublaðið
B«na akt at AX»ftan*khaM
rir
50
arimm
Fyrirkomnlag
hátíðahalda
í dag:
XJÁTÍÐAHÖLD Fulltrúa-
ráðs verkalýðsfélag-
anna hefjast í dag kl. 1,45
frá Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu.
Þau hefjast með því að lúðra-
sveit undir stjórn Bjarna
Böðvarssonar leikur alþjóða-
söng jafnaðarmanna. Þá talar
Sigurður Einarsson dócent, en
eftir ræðuna leikur lúðrasveit-
in „Sjá, hin ungborna tíð.“
Að þessu loknu hefst hóp-
ganga og verður farið inn
Hverfisgötu, um Frakkastíg,
Laugaveg, Bankastræti, Aust-
urstræti, Aðalstræti, Hafnar-
stræti og að Arnarhóli.
Þar flytja ræður: Stefán Jóh.
Stefánsson, forseti Alþýðu-
sambands íslands. Jóhanna Eg-
ilsdóttir formaður verkakvenna
félagsins Framsókn, Þórður
Gíslason verkamaður, Sigur-
jón Á. Ólfasson formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, Sof-
fía Ingvarsdóttir ritari kvenfé-
lags Alþýðuflokksins og Har-
aldur Guðmundsson formaður
Alþýðuflokksfélags Reykjavík-
ur. Lúðrasveit leikur á milli
ræðnanna verkalýðssöngva.
Kl. 8,30 í kvöld hefst kvöld-
skemtun í alþýðuhúsinu Iðnó.
Hún byrjar með sameiginlegu
borðhaldi. Að öðru Ieyti eru
skemtiatriðin á þessa leið: Söng-
kór Alþýðuflokksfélags Reykja-
víkur. Ræða: Haraldur Guð-
mundsson. Leikþáttur: Pétur
Pétursson. Ræða: Ólafur Frið-
riksson. Talkór Félags ungra
jafnaðarmanna. Leiksýning:
Fólkið á Mýri: Félagar úr Iðju
leika. Og loks verður danz
stiginn.
Kl. 10 hefst skemtun í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu. —
v°rður þar aðaliega danzað, en
þó skemta þar söngflokkur Al-
þýðuflokksfélagsins og talkór
F.U.J. Aðgöngumiðr að skemt-
uninni í Iðnó fást í afgreiðslu
Alþýðublaðsins og ritstjórn frá
kl. 9 í dag og í Iðnó frá kl. 1
og kosta kr. 2,00 til kl. 8.30 og
2,50 eftir þann tíma (kaffi inni-
falið). Aðgöngumiðar að skemt-
uninni í Alþýðuhúsinu fást í
anddyri hússins frá kl. 8.
Merki dagsins.
Við biðjum ykkur að gæta
þess, að í dag verða gefin út 3
merki og 3 blöð af tilefni dags
ins. Merki Fulltrúráðs verka-
Iýðsfclaganna er hvítur skjöld-
ur með A og rauðri slaufu, og
verður það selt á götunúm allan
daginn.
1. maí blaðið er að þessu
sinni gefið út af Fclagi ungra
jafnaðarmanna og á forsíðu
þess er ungur maður með örfa-
fána og mynd af kröfugöngu
alþýðufélaganna. Er blaðið
fjölbreytt og hið myndarleg-
asta. Við skorum á alla að
fylkja sér um hátíðahöld Full-
trúaráðs verkalýðsféiaganna í
dag.
Laugardagur 30. apríl 1988
ÖNNUR SJÓNARMIÐ
KJARASAMNINGAR
eru efstir á baugi. Forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur
stendur í ströngu. í blaði
verslunarfólks fjallar hann í
leiðara um vandann af yfir-
borgunum og óvild stjórn-
valda:
„Á undanförnum árum
hafa yfirborganir aukist mjög
mikiö samhiiöa þvi aö launa-
taxtar hafa ekki fengist
hækkaöir nema óverulega
eöa þeir hafa veriö skertir af
stjórnvöldum eins og fjöl-
mörg dæmi eru um á sl. ára-
tug. Þessi þróun hefur leitt
til þess, aö vinnuveitendur
hafa einhliða ákveöiö sífellt
stærri hlut af launagreiöslum
í landinu, sem aukiö hefur
stórlega bilið milli lægstu og
hæstu launa og hinir lægst
launuðu hafa setið eftir i
launaskriðinu. Rétt er aö
benda á í þessu sambandi að
aldrei er talað um aö einhliöa
ákvarðanir vinnuveitenda um
gífurlegar launahækkanir um-
fram umsamda launataxta
valdi nokkurri verðbólgu.
Hins vegar er ætíö hrópaö
verðbólga, veröbólga, ef laun-
þegasamtökin óska eftir
hækkun á hinum lágu launa-
töxtum. Þaö er ekki heldur
talaö um þaö aö hækkun
launa vegna siaukinnar yfir-
vinnu samkvæmt kröfu
vinnuveitenda, sem nemur
verulegum upphæðum, valdi
neinni verðbólgu, þó sam-
svarandi hækkun, sem komi
á dagvinnu sé sögð valda
verðbólgu. Allur þessi máltil-
búnaður vinnuveitenda um
„Stjórnvöld skeröa kjörin,“ segir
Magnús L.
aö veröbólguhættan stafi af
hækkun launataxta fyrir dag-
vinnu, sem geröir eru viö
samningaborðið fær því ekki
staðist.“
SAMTOK kvenna á vinnu-
markaði senda frá sér 1. maí
ávarp. Upphafið er um landa-
fræði og drauga:
„Kjarasamningarnir sem
gengið hafa eins og draugur
yfir alla verkalýöshreyfinguna
nú í vetur voru búnir til á
Vesturgötunni og fluttir vest-
ur á ísafjörð i fæöingarbæ
fjármálaráðherra. Frá ísafirði
lá leiðin í Dagsbrún þar sem
samningarnir voru afgreiddir
meö mjög vafasömum hætti.
Eftir þessi herfræöilegu út-
spil var samningsréttur í raun
tekinn af öðrum félögum Al-
þýðusambandsins. Þrátt fyrir
það að samningarnir hafi ver-
ið felldir i flestum félögum
og jafnvel tvisvar í sumum þá
skulu þeir samt í gegn hvað
sem þaö kostar.“
SUMAR
DEKKIN
Nú er vetur liðinn og tímabært að búa bílinn til
sumaraksturs. Frá 1. maí er óheimilt að aka á
negldum hjólbörðum.
Negldir hiólbarðar stórskemma götur borgarinnar.
Vertu sumarlegur I umferðinni og skiptu tímanlega
yfir á sumarhjólbarðana.
Gleðilegt sumar!
Gatnamálastjórinn