Alþýðublaðið - 28.05.1988, Page 5

Alþýðublaðið - 28.05.1988, Page 5
5 Wí* isrn .8Í. TUQSbiBQUBJ Laugardagur 28. maí 1988 FRETTIR Ríkisstjórnin: ÆTLAR AB LEIDRETTA BRÁDABIRGDALÖGIN Verðtrygging leyfð á innlánsreikningum til tveggja ára. „Ég vil Ijúka þessu sem fyrst, “ segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. „Aðalatriðið er að efnis- lega verði þessu breytt þann- ig að öruggt sé að sparifjár- eigendur geti haft á þessu fullkomið traust,“ sagöi Jón Sigurðsson viðskiptaráöherra við Alþýðublaðið i gær, en að tillögu hans var á ríkisstjórn- arfurndi á fimmtudag rætt um að setja ákvæði til að heimila bönkum að verð- tryggja innlán til skemmri tíma en tveggja ára. Að sögn Jóns er verið að athuga allar hliðar á málinu áður en ný ákvæði verða sett. Svo virðist sem mistök hafi átt sér stað við setningu bráðabirgðalaga vegna efna- hagsráðstafana, þar sem ekki hafi verið vilji stjórnarflokk- anna að afnema verðtrygg: ingu innlána sem útlána. Úr lagatextanum verður hins vegar ekki annað lesið en bannið við verðtryggingu eigi einnig við ákveðna innláns- reikninga í bönkunum. „Ég vil Ijúka þessu sem fyrst,“ sagði viðskiptaráð- herra aðspurður um hvenær ný lög yrðu sett. Hann sagði að enn ætti eftir að athuga nokkrar hliðar á málinu, en líklega yrði það tekið upp á þriðjudagsfundi ríkisstjórnar- innar. Ekki sagðist hann vilja spá fyrir um hvort málinu yrði Jón Sigurðsson: Ekkert ágrein- ingsmál lokið á þeim fundi. Jón sagðist ekki líta á þetta sem neitt ágreinings- mál innan ríkisstjórnarinnar. „Vegna ýmissa framkvæmda- atriða verðum við að koma þessu á hreint tiltölulega fljótlega," sagði Jón Sigurðs- son. Alverið í Straumsvík: STARFSMENN STYÐJA SAMNINGANEFNDINA EINRÓMA Að sögn Arnar Friðrikssonar, trúnaðarmanns starfsmanna Álversins nœgði tilboðið alls ekki. „Við œtlum bara að vinna hér eins og okkur ber skylda til en það er vissulega mjög erfitt að reka þessa verksmiðju undir þeim kringumstœðum“ sagði Örn. „Það er alveg Ijóst að starfsmenn lýsa yfir fullum stuðningi við þá ákvörðun samninganefndar að taka ekki þessu tilboði" sagði Örn Friðriksson, trúnaðarmaður starfsmanna Álversins-í Straumsvík í samtali við Ai- þýðublaðið í gær en undan- farna daga hafa verið haldnir fundir með öllum starfs- mönnum Álversins vegna þessa. Örn sagði að tilboðið, sem lagt var fram og samninga- nefnd hafnaði, nægði bara alls ekki. „Það er bæði samn- ingstíminn, það vantar þarna inn í nokkur kjaraatriði og svo er það í þriðja lagi frá hvaða tima upphafshækkun á að gildá' sagði Örn. Örn sagði ennfremur að menn reyndu bara að vinna undir lögum en hvort menn tækju aukavinnu sagði hann sáralítið um, þó væri reynt að bjarga því er brýnast væri. „En það er ljóst“, sagði Örn „að það er mjög erfitt að reka þessa verksmiðju undir kringumstæðum sem þess- um.“ Aðalfundur Rithöfundasambands íslands: EINAR KÁRASON FORMAÐUR? Aðalfundur Rithöfunda- sambands íslands verður haldinn í dag. Á fundinum verður kosin ný stjórn og nýr formaður, en Sigurður Páls- son núverandi formaður gef- ur ekki kost á sér til endur- kjörs. Einar Kárason rithöf- undur verður væntanlega kosinn nýr formaður, sam- kvæmt heimildum blaðsins. Fundurinn er haldinn í Norræna húsinu og hefst klukkan 13.30. Þörungaplágan við Noreg: w RÁÐHERRA KANNAR MAUÐ Matthías Á. Mathiesen, sam- gönguráðherra, hefur falið siglingamálastjóra, I sam- vinnu við fulltrúa hlutaðeig- andi stofnanir sjávarútvegs- ráðuneytisins og landbúnað- arráðuneytisins, að fylgjast með og afla upplýsinga hjá norskum stjórnvöldum um hugsanlegar orsakir og af- leiðingar þörungamyndana í sjó við strenduT Noregs. Skal sérstaklega kannað að hvaða marki megi hugsanlega rekja þetta ástand til aukinnar mengunar í hafinu, svo sem af völdum köfnunarefnis og fosfats. Menntaskólinn í Reykjavík brautskráöi 195 stúdenda i vikunni. Samkvæmt venju stilltu nemendur sér upp fyrir framan Háskólann, þangað sem leiö flestra þeirra liggur. A-mynd/Róbert. Framleiðsla framhaldsskólanna: HÁTT í TVÖ ÞÚSUND HVÍTIR KOLLAR Taliö er ad 1400-1500 nem- endur veröi brautskráöir stúdentar frá framhaldsskól- unum í vor. Heíldarfjöldi stúdenta gæti oröiö 1700- 1800 á árinu öllu. Samkvæmt upplýsingum sem Alþýðublaðið aflaði sér eru 21 skóli sem brautskráir stúdenta, en fjöldi nemenda hefur aukist jafnt og þétt síð- ustu ár. I yfirliti Hagstofu ís- lands kemur fram að braut- skráðir stúdentar voru um 1000 talsins fyrir 10 árum síð- an, árið 1976. 10 árum þar áð- ur, árið 1966 voru þeir 400 talsins. Samkvæmt upplýsingum á skrifstofu Háskóla íslands voru um 4000 nemendur í skólanum í vetur, miðað við nemendaskránna í janúar. Það er því Ijóst að braut- skráðir stúdentar leggja ým- islegt annað fyrir sig en há- skólanám, þótt hvíti kollurinn opni langþráðar dyr. Bygging tónlistarhúss: ALLT I BIÐSTODU ii 9 9 segir Ármann Örn Ármannsson, formaður samtaka um byggingu tónlistarhúss. „Ætlum að fá ákveðið vilyrði hjá borginni og ríkinu og það verður líklega afgreitt nœstu daga. “ „Það er allt í biðstöðu hjá okkur vegna þes að við ætl- um að fá ákveðið vilyrði hjá bæði Reykjavíkurborg og rík- inu, fyrir að fá lóðinni út- hlutað og gatnagerðargjöld felld niður. Það er verið að vinna að þessu máli þessa dagana og verður vonandi af- greitt á næstu dögum, i byrju Listaþátlðar" sagði Ármann Örn Ármannsson formaður samtaka um byggingu tón- listarhúss í samtali við Al- þýðublaðið i gær. „Við höfum rætt við bæði menntamálaráðherra og for- sætisráðherra og þeir hafa tekið okkur afar vel en fjár- málaráðherra hefur ekki haft tíma undanfarnar vikur til að ræða við okkur“ sagði Ármann. Fyrirhugað tónlistarhús mun rfsa í Laugardalnum og verður fyrsta skóflustungan tekin eftir u.þ.b. ár þegar hönnun lýkur. Ármann sagói fjáröflunarstarfsemi vera í dvala um þessar mundir þar sem áður þyrfti að fá sam- þykktar byggingarnefndar- teikningar og það yrði ekki fyrr en lóðinni hefði verið út- hlutað. „Fjáröflun fyrri part þessa árs gekk hins vegar mjög vel þannig að við höf- um getað staðið við allar okkar skuldbindingar í hönn- un, til þessa dags“ sagði Ármann

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.