Alþýðublaðið - 28.05.1988, Síða 9
'aser ism .82 lUQBbiegueJ
Laugardagur 28. maí 1988
8
FRETTASKYRING
Ómar Friðriksson
skrifar
Skýrsla um jafnréttismál hjá ríkinu:
HLUNNINDIN FARA TIL KARLANNA
Karlarfá tvöfaldar yfirvinnugreiðslur á við konur. 90% bílastyrkja renna til karlanna.
Launamunur vegna dagvinnu lítill á milli kynja.
í gær greindi Alþýðublaðið
frá því að ríkisstjórnin hefði á
fundi sínum samþykkt tillögu
félagsmálaráðherra um að
gerðar verði jafnréttisáætlan-
ir í ráðuneytum og ríkisstofn-
unum til fjögurra ára. Kynnti
félagsmálaráðherra jafnframt
skýrslu sérstakrar nefndar
sem ráðherra skipaði i des-
ember s.l. sem falið var að
fjalla um launajafnrétti karla
og kvenna hjá rikinu, gera
endurmat á störfum kvenna,
kanna hlunnindagreiðslur og
leita leiða til að tryggja jafna
stöðu kynjanna við stöðuveit-
ingar og ráðningar á vegum
hins opinbera. I nefndinni
áttu sæti Lára V. Júiíusdóttir,
aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra, Guðmundur Björns-
son, skrifstofustjóri launa-
skrifstofu ríkisins og Ásdis J.
Rafnar, formaður Jafnréttis-
ráðs. í skýrsiunni gerir nefnd-
in ýmsar tillögur sem m.a.
lúta að þvi hvernig tryggja
megi jafnrétti við stöðuveit-
ingar og ráðningar og bendir
auk þess á nauðsyn þess
fyrir launajafnrétti að dregið
verði úr yfirvinnu og vinnu-
tími styttur. Ýmsar upplýsing-
ar sem nefndin birtir eru
mjög athyglisverðar hvað
jafnréttismál varðar.
Bent er á í skýrslunni að
skv. þeim upplýsingum sem
aflað hafi verið sé launamun-
ur kynja i dagvinnu innan
raða starfsmanna í BSRB um
5-7% og hjá BHMR um 17%.
„Þennan launamun er hægt
að verulegu leyti að skýra
með öðrum þáttum en að
kynferði skipti þar máli,“
segja höfundar skýrslunnar.
„Það sem mesta athygli hef-
ur vakið í athugun nefndar-
innar er tvöföld yfirvinna
karla á við konur. Hjá al-
mennum félagsmönnum í
BSRB fá karlar 68.2% ofan á
dagvinnu sína vegna yfir-
vinnu, en konur 34.9%. Ann-
að, sem einnig er athyglisvert
er að konur fá einungis greitt
fyrir bilaafnot um 10% af
heildargreiðslum ríkisins til
starfsmanna vegna aksturs.”
Þetta telja nefndarmenn að
bendi til þess að launamis-
rétti hjá hinu opinbera felist i
annars konar greiðslum en
greiðslu launa vegna dag-
vinnu.
Konur í hlutastörfum
Bent er á til skýringar á
þessum launamun að þegar
launagreining er skoðuð
komi í Ijós að fleiri karlar eru
I efri þrepum launastigans en
konur og karlar hafi lengri
starfsaldur en konurnar. Með
athugun ááhrifum starfsald-
urs á launamun karla og
kvenna hjá BSRB hafa þau
verið talin nema 2-3%.
Skýrsluhöfundar segja að
með almennri atvinnuþátt-
töku kvenna dragi úr áhrifum
starfsaldurs á launamun
kynjanna en kjarasamningar
geti einnig haft hér áhrif,
bæði er hægt að breyta
starfsaldursröðun og eins er
hægt að meta reynslu við
umönnun heimilis til starfs-
aldurs.
„Þar sem konur eru frekar í
hlutastörfum en karlar, geng-
ur þeim erfiðar að klifra upp
launastigann en körlum,
a.m.k. þegar litið er til dag-
vinnutekna," segir í skýrsl-
unni. Þó er sagt að fjölmenn-
ir hópar kvenna innan heil-
brigðisgeirans velji þann kost
að vinna hlutavinnu, en bæta
við aukavinnu á yfirvinnu-
álagi, og tekst þannig að
bæta sér upp lág laun. Hluta-
störf kvenna eru ein ástæðan
fyrir því að konum eru ekki
falin ábyrgðarstörf i meira
mæli en gert er, t.d. benda
skýrsluhöfundar á að áber-
andi sé hve fáar konur eru
skólastjórar, sé litið til þess
fjölda kvenna sem fæst við
kennslu. Nefndin telur líka að
skýringa sé að leita í því að
konur leiti einkum eftir at-
vinnu í ákveðnum greinum á
vinnumarkaði og stórkostleg
aukning á atvinnuþátttöku
kvenna hafi dregið úr eftir-
spurn ávinnuafli í þessum
greinum, sem aftur leiði til
lægri launa. Áhrif menntunar
á launamun kemur einkum í
Ijós séu mismunandi starfs-
stéttir bornar saman. Nefndin
bendir á að konur séu fjöl-
mennar í félögum þar sem
styttri menntunar er krafist,
s.s. hjúkrunarfræðingar og
félagsráðgjafar en fámennar í
þeim stéttum þar sem lengri
menntunar er krafist, s.s.
læknar og verkfræðingar. At-
hugun nefndarinnar hefur
hins vegar leitt i Ijós að
þegar hlutur kvenna innan
einstakra félaga BHMR er
skoðaður kemur sáralitill
launamunur í Ijós. Hjá félagi
fréttamanna var t.d. launa-
munur kynjanna skv. launa-
greiningu fyrir mars/apríl
1987 3.8% og hjá félagi há-
skólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins 5.5% á sama
tíma.
20% kvenna fá bíla-
styrk
í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar segir að störf
kvenna hjá hinu opinbera
verði endurmetin og við það
endurmat verði m.a. höfð
hliðsjón af mikilvægi umönn-
unar- og aðhlynningarstarfa
og starfsreynslu á heimilum.
Um þetta segir í skýrslunni:
„Varðandi mikilvægi umönn-
unar- og aðhlynningarstarfa
hefur verið bent á þá stað-
reynd í nefndinni að dag-
vinnulaun Ijósmæðra hækk-
uðu um 41.4% frá 1. jan, til
31. des 1987. Dagvinnulaun
hjúkrunarfræðinga innan
BSRB hækkuðu á sama tima-
bili um 29.5%. Á þessu tíma-
bili var meðaltalshækkun fé-
laga innan BSRB 28.9%. Skv.
upplýsingum launaskrifstofu
hafa Ijósmæður og hjúkrun-
arfræðingar hæstu dagvinnu-
laun innan hópa BSRB. Heil-
brigðishópur Starfsmannafé-
lags ríkisstofnana, þar sem
er fjöldi þeirra sem starfa við
umönnun og aðhlynningu
þ.á.m. sjúkraliðar, hækkaði í
dagvinnulaunum á s.l. ári um
36.3%. (Meðaltal 28.9%.) Svo
virðist sem þeir hópar sem
fást við umönnunar- og að-
hlynningarstörf hafi nú þegar
fengið töluverða hækkun inn-
an BSRB, og eru tveir stórir
hópar sem fást við þessi
störf með hæstu dagvinnu-
laun innan BSRB. Nefndin
taldi að þau markmið sem
sett eru fram í stjórnarsátt-
mála hafi að verulegu leyti
þegar náðst fram fyrir ofan-
greinda hópa.
Nefndin tók hlunninda-
greiðslur s.s. bílastyrki og
greiðslur fyrir fasta yfirvinnu
til sérstakrar athugunar fyrir
árið 1987. Kemur í Ijós að á
því ári keyrðu konur u.þ.b.
10.2% af öllum eknum kíló-
metrum vegna starfs sins og
fengu greitt fyrir það um
10% þess fjár sem ríkið
greiddi fyrir afnot af bifreið-
um. 485 konur fengu þessar
greiðslureða 19.5% hópsins
og gefur það til kynna að
greiðslur til kvennanna hafi
að jafnaði verið um helmingi
lægri en greiðslur til annarra
vegna bílanotkunar. Nefndin
getur þess þó að samanburð-
ur við fylgirit með rikisreikn-
ingi 1982 sýni að mikil aukn-
ing hafi orðið á að konur fái
greiddan bílastyrk.
Jafnréttislögin endur-
skoðuð
Nefndin leitaðist vió að
kanna hvernig háttað er yfir-
vinnu hjá hinu opinbera. í
launagreiningu fyrir mars-maí
1987 kemur í Ijós að viðbótar-
greiðslurvið mánaðarlaun
vegna yfirvinnu voru 68.2%
til karla meðal almennra fé-
lagsmanna í BSRB en 34.9%
til kvenna. í BHMR voru við-
bótargreiðslurnar 48.7% til
karla en 39.1% til kvenna.
Karlar í KÍ fengu 48.8% en
konur 22.3%. Karlar meðal
grunnskólakennara í HÍK
fengu 54.2% ofan á sín laun
en konur 27.7% og fram-
haldsskólakennarar í HÍK af
karlkyni fengu 100.4% en
konur 63%. Af þessu má
glögglega ráða að karlar auka
mun meiru við dagvinnutekj-
ur sinar með yfirvinnu en
konur. Yfirleitt fá karlar tvö-
faldar greiðslur vegna yfir-
vinnu á við konur. Saman-
burður við árið 1985 sýnir þó
að hlutfall yfirvinnu af heildar-
launum hafi aukist verulega
hjá báðum kynjum. Nefndin
hefur hins vegar ekki komist
að því hvort öll sú yfirvinna
sem ríkið greiðirsé i raun
unnin og hvort greióslur
vegna óunninnar yfirvinnu
renni frekartil annars kyns-
ins en hins. Leggur nefndin
áherslu á að styttri vinnutími
myndi vera mikilvægur áfangi
í jafnréttisbaráttu því hinn
langi vinnutími hér á landi
viðhaldi m.a. því launamis-
rétti sem viðgengst í þjóð-
félaginu.
Nefndin fjallaði líka um
jafnstöðu kynjanna við stöðu-
veitingar og ráðningar á veg-
um hins opinbera og leggur
til að ráðuneytum, stofnunum
og fyrirtækjum ríkisins verði
gert skylt að auglýsa í dag-
blöðum auk Lögbirtingablaðs
allar ábyrgðarstöður, sem
m.a. fela í sér mannaforráð
og að tekið sé fram í starfs-
auglýsingum hjá hinu opin-
bera að áhersla sé lögð á
jafnrétti, og því séu konur
jafnt sem karlar hvattar til að
sækja um stöðuna.
Eins og fyrr segir hafa til-
lögur félagsmálaráðherra um
átak I jafnréttismálum verið
samþykktar í ríkisstjórn og í
þejm felst að jafnréttislögin
verði endurskoðuð. Hefur ráð-
herra þegar skipað nefnd til
þessa sem á sérstaklega að
athuga hvernig draga megi úr
launamisrétti kynjanna, jafna
hlunnindagreiðslur og auka
hlutdeild kvenna í nefndum
og ráðum. Lára V. Júlíusdóttir
er formaður nefndarinnar en
auk hennar sitja þar Elsa Þor-
kelsdóttir framkv.stjóri Jafn-
réttisráðs, Jóna Ósk Guð-
jónsdóttir, formaður Sam-
bands Alþýðuflokkskvenna,
Þórunn Gestsdóttir, formaður
Landssambands Sjálfstæðis-
kvenna og Unnur Stefáns-
dóttir, formaður Landssam-
bands Framsóknarkvenna.
£§□ Húsnæðisstofnun ríkisms
TÆKNIDEILD
Simi 696900
Útboö
Þórshafnarhreppur
Sveitarstjórn Þórshafnarhrepps óskareftirtilboðum
í byggingu fjögurra íbúöa í tveimur steinsteyptum
parhúsum. Verk nr. U.20.06 úr teikningasafni
tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál hvors húss 194 m2
Brúttórúmmál hvors húss 695 3
Húsin verða byggð við götuna Miðholt 1-3 og 5-7,
Þórshöfn, og skal skila fullgrágengnum, sbr.
útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna fer fram á sveitarstjórnar-
skrifstofu Þórshafnarhrepps, Langanesvegi 3b, 680
Þórshöfn og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar
rikisins, Laugavegi 77, Reykjavík, frá þriðjudeginum
31. maí 1988 gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðar en
þriðjudaginn 14. júní 1988 kl. 11.00 og verða þau
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. Sveitarstjórnar Þórshafnarhrepps
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.