Alþýðublaðið - 02.06.1988, Page 2

Alþýðublaðið - 02.06.1988, Page 2
2 Fimmtudagur 2. júní 1988 MÞYÐUBIIÐIÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Fréttastjóri: Umsjónarmaður heigarblaðs: Blaðamenn: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Rlart hf Hákon Hákonarson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Þorlákur Helgason Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir, Ómar Friðriksson, og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Þórdls Þórisdóttir Filmur og prent, Ármúla 38. Blaðaprent hf., Síðumúla 12. t Áskriftarsíminn er 681866. Dreifingarsimi um helgar: 18490 Áskriftargjald 700 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. HAFNARFJÖRÐUR 80 ÁRA Þessa dagana halda Hafnfirðingar hátíð í tilefni þess að 80 ár eru liðin síðan Hafnarfjörður hlaut kaupstaðarrétt- indi. Að sjálfsögðu er saga Hafnarfjarðar miklu eldri og merkilegri en afmælisaldurinn gefur til kynna. Bærinn á djúpar rætur í menningar- og verslunarsögu íslands. Þrátt fyrir nálægðina við Reykjavík hefur Hafnarfjörður haldið sínum séreinkennum og áherslum gegnum tíðina. Þetta á ekki síst við um þá viðleitni Hafnfiróinga að leysa málin á félagslegum grundvelli og ef tala máum lífsskoðun Hafn- firðinga þá tengist hún félagshyggjunni hvar sem menn annars skipa sér sess í flokkakerfinu. Þetta viðhorf Hafn- firðinga til lífsins og stjórnunaraðferða má tvímælalaust rekjatil sterkraáhrifa Alþýðuflokksins í Hafnarfirði en þar hafa jafnaðarmenn íslenskir jafnan átt eitt sterkasta vígi sitt á íslandi. Bærinn og uppbygging hans hafa borið yfir- bragð jafnaðarstefnunnar gegnum tíðina, þar sem saman hefur farið krafa um jafnrétti, frelsi og uppbyggingu í takt við kröfur tímans. Líkt og íslensk jafnaðarstefna, hefur Hafnarfjörður aldrei einangrast í afturhaldssamri vinstri- stefnu né látið fagurgala óheftrar markaðsstefnu hægri- manna villa sér sýn. Hafnarfjörður hefur, og ekki síst á valdatíma núverandi bæjarstjórnar, borið gæfu til að varð- veita hin félagslegu viðhorf samtímis sem ráðist hefur verið í miklar framkvæmdir og nýmæli í atvinnurekstri eins og fiskmarkað, og lagður grunnur að nútímalegu og blómlegu atvinnu- og félagslífi. Þessi viðhorf endurspeglast einkar vel í orðum Guðmundar Árna Stefánssonar bæjarstjóra í Hafnarfirði í viðtali sem Alþýðublaðið birti við bæjarstjórann i gær, miðvikudag. Guðmundur Árni segir meðal annars: „Bærinn stendur mjög traustum fótum fjárhagslega og það þykir ekki algengt á þessum síðustu og verstu tímum hjá sveitarfélögum, en það er engu að síður þannig hjá Hafnarfjarðarbæ, að við erum á þessu ári með umfangs- miklar framkvæmdir í gangi þrátt fyrir að lántökur eru í algjöru lágmarki, og við þær eru raunar ekki bætt frá fyrri árum.“ Aðspurður um framkvæmdir í Hafnarfirði svarar bæjarstjóri í viðtalinu við Alþýðublaðið: „Það er mikið í gangi hjá bænum og bara á þessum síðustu mánuðum get ég nefnt að fyrirtveimur mánuðum tókum við í notkun nýja æskulýðs- og tómstundamiðstöð í hjarta bæjarins sem við köllum Vitann og fyrir mánuði opnuðum við nýtt dagvistarheimili sem sinnir þörfum 100 barna. Fyrir hálf- um mánuði opnuðum við glæsilega menningar- og lista- miðstöð sem ber nafnið Hafnarborg. í ágúst opnum við nýja heilsugæslustöð, Sólvang og það er allt í fullum gangi við byggingu nýrrar sundlaugar sem opnar um mitt næsta ár, úti- og innisundlaug. Á næsta ári verður ráðist í byggingu nýs íþróttahúss." Tæplega 14 þúsund manns búai Hafnarfirði. Bærinn ferört stækkandi og ætla máað um 400 íbúðabyggingar séu nú í byggingu, fjölbýli og ein- býli. Nýlegavar70 lóðum úthlutað og fengu færri en vildu. Bæjaryfirvöld leggja nú mikla áherslu að brjóta nýtt land undir íbúðabyggingar, enda ijóst að margir vilja reisa hús sitt í Hafnarfirði. Aiþýðublaðiö óskar Hafnfirðingum til hamingju með 80 ára afmælið og óskar bænum velfarnað- ar í framtíðinni. ÖNNUR SJÖNARMIÐ Einn af postulum gráa fjár- möngnunarmarkaöarins, Þóröur Ingvi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lindar, ber á borö ýmis athyglisverð sjónarmiö fyrir lesendur Tlm- ans í gær. Þóröur upplýsir lesendur Tímans aö sá tími sé löngu liðinn aö lán til atvinnuvega séu bónleiðirtil bankastjóra. Þvert á móti; fjármögnunar- leigur hlaupi nú um allt land á eftir atvinnurekendum, ein- yrkjum í atvinnurekstri jafnt sem stjórnendum stórfyrir- tækja til aö selja þeim lán. Þetta segir auðvitað sína sögu um samkeppni fjár- mögnunarfyrirtækjanna á gráa markaónum en lítum nú aöeins á þær kröfur sem Þóröur Ingvi og fyrirtæki hans gerir til lánþiggjenda eða lánkaupenda: „Almenna reglan er su, að í fyrsta lagi þarf tækið sem viðskiptavinurinn ætlar að kaupa að vera auðseljanlegt og endursöluverð þess hátt ef segja þarf upp samningn- um áður en honum lýkur vegna vanskila fyrirtækisins. Þvi leigutyrirtækið reynir þá að koma því í verð eða i leigu hjá öðru fyrirtæki. í öðru lagi þarf fjárhagur fyrirtækisins að vera þannig að það sé Ijóst að það standi undir leigugreiðslum. Fyrir- tækið þarf aö bera arð og eiginfjárstaða þess þarf að vera jákvæð. Sú regla er t.d. hjá Lind, að það er aldrei fjár- magnað allt eigin fé fyrirtæk- isins. Þ.e. að sé ákveðnu fyr- irtæki t.d. boðin vél sem kostar 2 milljónir þarf eigin- fjárstaða fyrirtækisins að vera 4 milljónir að lágmarki. í þriðja lagi þá þarf greiöslustaða fyrirtækisins að vera með þokkalegu móti.“ En ekki eru gráu fjármögn- unarfyrirtækin jafn passa- söm, þvi menn veröa auðveldlega gráöugir: „Það er alveg staðreynd að í þeirri ofsalegu hröðu þróun sem orðiö hefur á undanförn- um tveim árum þá hefur ým- islegt flotiö með og menn kannski fórnað áhættunni fyrir græðgina. Því verður ekki neitað að sum fyrirtæki ónefnd, hafa lagt á þaö meg- ináherslu að verða nógu stór, þ.e. með stór útlán, kannski á kostnað áhættunnar. Á móti hafa þau kannski tekið einhverjar extra tryggingar. Það er hins vegar ekki eðli- legt þegar litið er á eðli þess- ara viðskipta, þar sem trygg- ingin er fyrst og fremst tæk- ið sjálft og efnahagsstaða leigutakans." Og fasteignir lánþiggjenda fjúka auöveldlega þegar kem- ur aö gjalddögum og menn hafa ekki fjármuni til að borga hina háu vexti: „IVIjög margir íslendingar eiga hús. Og þýðir það þá ekki aö ef bjarsýnisvonir manna um rekstur t.d. bíls eða báts bregðast, að húsin Þórður Ingvi: Hörkutólin vinna mikió og lengi fyrir vöxtum af fjár- mögnunarleigunni. þeirra eru í hættu? „Það er tvennt til í þessu. Annarsvegar er hugsanlegt að leigusalinn hafi ekki bara eignarétt á tækinu heldur líka einhverja extra tryggingu eða fasteignaveð í húseign. Þá er vitanlega sú hætta fyrir hendi, að fáist ekki það verð fyrir tækið, aö það dugi fyrir þvi sem eftir stendur af samningnum þá er gengið á eignina. Hins vegar er innbyggt í öðr- um fjármögnunarsamningum, þar sem ekki er gert ráö fyrir- neinum tryggingum á bak við samninginn, að ef segja þarf upp samningnum og ekki fæst nógu hátt verð fyrir tækið til að greiöa upp eftir- stöðvar samningsins, þá ber einstaklingnum að greiða mismuninn. Og eigi einstakl- ingurinn aö geta borgöað mis- muninn, þá þarf hans nettó eign að vera að lágmarki helmingur eða 3A af verði tækisins. Þar er því hugsan- legt að gengiö verði á hans einka eignir, þ.e. ef hann hef- ur þá ekki komiö þeim und- an“.“ En fjármögnunarfurstinn Þórður Ihgvi telur þó vextina ekki háa: „Vextir í fjármögnunar- leigusamningum hafa þó sem betur fer lækkað á und- anförnum mánuðum vegna samkeppninnar. Þetta er orö- ið ódýrara en það var i upp- hafi.“ T.d. 165-180 þús. kr. á mán- uði af 5 milljóna króna bil. — Gera einstaklingar, sem t.d. byggðu hús sin fyrir lán með minusvöxtum, sér alltaf grein fyrir hvaða vaxta- byrði þeir eru að taka sér á herðar? „Flestir held ég að geri það, þótt eitthvað kunni þar á að skorta i einhverjum tilfell- um og láti þá kannski bjóða sér hvað sem er. En þetta eru gjarnan hörkutól, sem vinna lengi og mikið og bjarga sér þannig fyrir horn.“ Til að gefa dæmi um greiðslu var Þórður Ingvi spurður um mánaðargreiðslu af 1 milljón króna láni til 3ja ára. Það sagði hann geta þýtt á bilinu 33-34 þús. og allt upp í 36 þús. kr. á mánuði, eða sem svarar frá 3,33% upp i 3,6% af verði viðkom- andi leigusamnings. Sumum þyki 3.000 kr. á mánuði ekki svo stórt bil, en í raunvöxtum þegar samningurinn er reikn- aður upp sé þetta i raun gíf- urlega mikið vaxtabil, sem fari að skipta verulegu máli þegar um sé að ræða kannski tugmilljóna króna samning.“ Á sömu blaðsíðu í Tímanum og viðtalið við framkvæmda- stjóra Lindar birtist er viðtal við Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóra landssam- bands smábátaeigenda, um lántökur trillukarla og minni spámanna í útgerð. Þar koma fram aldeilis önnur sjónarmið en hjá fjár- mögnunarfyrirtækjunum. Örn bendir nefnilega réttilega á að meðan ábyrgar banka- stofnanir vari menn við lán- tökum sem ekki reka fyrir- tæki sem standi undirvaxta- greiðslum, hvetji gráu fjár- mögnunarfyrirtækin menn í lántökur svo framarlega sem eignirnar séu veðsettar og gráu fyrirtækin hafi trygg- ingu. Skítt með kúnnann. Örn heldur því fram að smábáta- eigendur séu með allt veð- sett í topp. Örn nefnirdæmi um hvern- ig útgerð báts stendur erfið- lega undir leigugreiðslum af nokkurra milljóna króna báti: „Miöað við þann litla kvóta sem skammtaður er á þessa báta sagðist Örn telja það meira en hæpiö, nema um einstaka aflamenn væri að ræða — og raunar alveg úti- lokað dæmi, að kaupleigu- kaup á svona dýrum bát geti gengið upp öðruvísi en að viðkomandi leggi fram sæmi- lega upphæð af bátsverðinu frá sjálfum sér. Meö lánsfé eingöngu sé nær útilokað að kljúfa greiðslurnar miðað við þann aflakvóta sem skammt- aður er á þessa báta. Hann tók sem dæmi að 125 tonna þorskafli gæfi um 4,7 millj. kr. aflaverðmæti á ári. Þar af væri hlutur bátsins í kringum helmingur, eða 2,4 millj. kr., hvar af hálf milljón færi beint í tryggingu á bát og áhöfn auk alls annars rekstrarkostn- aðar. Afgangur upp i afborg- anir yrði ekki stór þegar allt væri uppgert. Örn kvaðst reyndar vilja nota tækifærið til að vara menn eindregið við að kaupa nýja báta, þar sem markaöur- inn sé mettur. Hann kvaðst hafa kynnt sé að á bátasölum sé fjöldi báta undir 10 tonn- um til sölu. Fyrir þá sem ætli að eignast slika báta sé mun hagkvæmara að kaupa þá heldur en á láta smiða nýja báta eða kaupa þá innflutta." Einn með kaffinu Þessi saga er birt án ábyrgðar: Á síðasta landsfundi Alþýðubandalagsins tókust á tvær fylkingar um formannssætið eins og kunnugt er, Sigriðar- menn og Ólafs Ragnarsmenn. ítalskur blaðamaður var stadd- ur á fundinum og hafði fengið góðan allaballa til liðs við sig sem þýðandaog leiðsögumann. Þegar þeir komu í húsið, voru tveir allaballar úr sitt hvorri fylkingunni í hörkurifrildi í stiganum. Allaballinn skammaðist sín dálítið fyrir þessar miklu ósættir og útskýrði fyrir ítalan- um að það væri verið að æfa senu fyrir kvikmynd. Uppi á stigaganginum stóðu tvær fylkingar í áflogum. — Þetta verður sena númer tvö, útskýrði allaballinn stamandi fyrir ítalanum. Inni í salnum stóð hópur manna og öskraði á ræðumanninn í púltinu. — Þetta er hópsena númer þrjú, sagði allaballinn mjóum rómi og leit vandræðalega á ítalann. — Hvað á myndin að heita? spurði ítalinn. — „Sögulegar sættir" datt út úr allaballanum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.