Alþýðublaðið - 02.06.1988, Qupperneq 3
Fimmtudagur 2. júní 1988
3
FRÉTTIR
Bið eftir búvöruverði:
DEILT IIM NIÐURGREIÐSLUR
Nýtt heildsöluverð á land-
búnaðarvörum átti að taka
gildi í gær, en af því gat ekki
oröið. Að sögn Hauks Hall-
dórssonar formanns Stéttar-
sambands bænda er deilt um
túlkun á því hvort áhrif sölu-
skatts verða greidd niður.
„í vetur var sá almenni
Bœndur krefjast þess að áhrif söluskatts verði greidd niður að fullu.
skilningur, að svo yrði, en
ekki bara greitt niöur við
hækkunina um síðustu ára-
mót. Við teljum auðvitað að
standa verði við það, en því
miðurtreystu stjórnvöld sér
ekki til að ganga frá þessu“.
Haukur sagðist vonast til að
nýtt verð yrði gefið út í dag,
en búast mætti við að það
drægist fram yfir helgi.
Krafa bænda er að svoköll-
uð áhrif matarskattsins verði
að fullu greidd niður. „Matar-
skatturinn átti að verða til
þess að gera kerfið einfald-
ara og því teljum við eðlilegt
að hægt sé að taka þetta
bæði út og inn,“ sagði Hauk-
ur.
í gær var gefið út nýtt verð
til framleiðenda, en það felur
í sér hækkun um 7,7 af
hundraði á mjólk og 6,4 af
hundraði í sauðfjárvörum.
Þetta er töluverð hækkun
þrátt fyrir að launaliður
hækkaði aðeins um 3,4 af
hundraði. Haukur sagði
hækkunina stafa að mestu
vegna áhrifa verðs á áburði,
kjarnfóðri og flutningskostn-
aðar.
Bifreiðaeftirlitið:
UMSKRÁNINGAR
NÚ ÓÞARFAR
í dag tekur gildi breyting á
umskráningu bifreiða skv.
nýjum lögum þar um. Breyt-
ingin er fólgin í því, að nú
þarf ekki lengur að umskrá
bifreið þegar hún er seld
milli lögsagnarumdæma eða
ef eigandi flytur á milli um-
dæma. Þetta felur það m.a. i
sér að nú þarf t.d. Hafnfirö-
ingur, sem kaupir bíl með
R-númeri ekki að láta skrá
hana á G-númer og Þingey-
ingur sem flytur til Akureyrar
þarf ekki að skipta um Þ-
númerið sitt.
Þrátt fyrir að skyldan til
umskrgningar sé felld niður
verður heimilt að umskrá bif-
reiðar til 31. desember n.k. og
geta því þeir, sem vilja halda
skráningarnúmeri, sem þeir
hafa haft, látið flytja það af
gamalli bifreið á nýja fram að
áramótum.
Við nýskráningu bila á eftir
sem áður að skrá þá með
skráningarbókstaf þess um-
dæmis sem eigandi á lög-
heimili. Við þessa niðurfell-
ingu á umskráningarskyldu
sparast bifreiðaeigendum
talsverðir fjármunir, en um-
skráning kostar nú 1500 kr. ef
flutt er milli umdæma eða
bifreið er seld í annað um-
dæmi og auk þess kosta ný
skráningarspjöld 1500 krónur.
Flutningur skráningarnúmers
milli bifreiða í sama skrán-
ingarumdæmi kostar 4300
krónur.
Eftir daginn i dag þarf við
sölu notaðra bifreiða að
senda nákvæmlega útfyllta
24. þing Sjálfsbjargar:
ÓFREMDARÁSTAND Á ÝMSUM SVIÐUM
sölutilkynningu ásamt eig-
endaskiptagjaldi til aðalskrif-
stofu Bifreiðaeftirlitsins eða
til bæjarfógeta og sýslu-
manna utan Reykjavíkur.
Frá næstu áramótum verð-
ur heimild til umskráningar
felld niður og verða þá tekin
upp skráningarnúmer í sam-
ræmi við fastnúmeraskrá Bif-
reiðaeftirlitsins. Mun sama
skráningarnúmer þá fylgja
ökutæki frá nýskráningu og
þar til það verður endanlega
tekið úr umferð. Munu bif-
reiðaumboðin þá líklega sjá
um að setja þau á nýjar bif-
reiðar og jafnframt sjá um að
tilkynna þær til nýskráningar
til þess að spara kaupendum
nýrra blla óþarfa snúninga.
Stjórn FNSU, sambands ungra jafnaðarmanna á Norðurlöndum, kom saman til fundar i Alþýðuhúsinu i Hafn-
arfirði i gær. Tveir fulltrúarSUJ á íslandi eiga sæti i stjórninni, þau Tryggvi Harðarson sem er í miðjunni i fremri
röð og Hauður Helga Stefánsdóttir, kvenmaðurinn í efri röðinni. A-mynd Hobert.
Ríkisstjórnin:
RREYTIR BRÁÐABIRGÐALÖGUNUM
Rikisstjórnin breytti ellefu
daga gömlum bráöabirgöa-
lögunum með setningu
bráðabirgðalaga s.l. þriðju-
dag. Með þessari breytingu
er bönkum og sparisjóðum
áfram heimilt að verðtryggja
sparifjárinnlán til skemmri
tíma en tveggja ára en banka-
menn höfðu túlkað lögin frá
16. maí á þá leið að bann á
verðbindingu fjárskuldbind-
inga til skamms tíma tækju
lika til innlána og óttuðust að
það leiddi til þess að traust
sparifjáreigenda á skipti-
kjarareikningum minnkaði og
sparifjármyndun í bönkum
drægist saman.
Eftir leiðréttingu ríkis-
stjórnarinnar orðast 8. grein
bráðabirgðalaganna nú svo:
„Verðtrygging nýrra fjárskuld-
bindinga til skemmri tíma en
tveggja ára er óheimil frá 1.
júli 1988. Með fjárskuldbind-
ingum í þessu sambandi er
átt við sparifé og lánsfé.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr.
getur Seðlabanki íslands að
fengnu samþykki viðskipta-
ráðherra auglýst reglur, er
leyfi innlánsstofnunum að
taka á móti sparifé og öðrum
innstæðum gegn verðtrygg-
ingu til skemmri tíma en
tveggja ára.“
Þingið skorar á bœjar- og sveitarstjórnir og fjármálaráðherra að leysa málin.
VIN 0G
TÓBAK
HÆKKAR
Áfengi og tóbak hefur hækk-
að í dag um 6% að meðaltali.
Útsölustaðir Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins voru
lokaðar í gær vegna verð-
breytinganna.
Eftir hækkunina kostar ís-
lenska brennivínið um 1000
krónur og Winston sígarett-
urnar eru komnar í kr. 145
pakkinn.
24. þing Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaöra, vek-
ur athygli á þvi í greinargerð
er þingið samþykkti, að
ófremdarástand ríki i heimil-
ishjálpar- og heimahjúkrunar-
málum fatlaðra viða um land.
Þingið skorar á bæjar- og
sveitarstjórnir og heilsu-
gæslustöövar að beita sér
fyrir því að úr þessu verði
bætt. Þingið samþykkti einn-
ig nokkra áherslupunkta er
framkvæma á, á næstu
tveimur árum, að hrinda af
stað samstarfi við önnur
félagasamtök um stefnu og
kröfugerð í lífeyrismálum, að
skora á fjármálaráðherra að
skattleggja ekki styrki Trygg-
ingarstofnunarinnar og að
fela framkvæmdastjórn
landssambandsins að gera
úttekt á aðgengi fatlaðra á
rrioiystum svæoum a isianai.
í greinargerðinni segir m.a.
að það gangi ekki lengur að
fatlaðir á landsbyggðinni
verði að flytja í burtu úr sín-
um átthögum vegna ónógrar
þjónustu. „Straumurinn hefur
verið til Reykjavikur þar sem
þjónustan er meiri, en sólar-
hringstofnanir eru nú yfirfull-
ar og því vandfundið að finna
fötluðum húsnæði." Þingið
telur það því siðferðilega
skyldu að gera fötluðum
kleift að dvelja á sínu heimili
hvar sem er á landinu. Einnig
að það sé mun ódýrara fyrir
það opinbera að sinna heim-
ilishjálp og heimilishjúkrun
fyrir fatlaða heldur en að
vista þá á sjúkrastofnunum.
Og í þriðja lagi segir að það
sé mikils virði fyrir hinn fatl-
aða að búa heima og njóta
þar öryggis og ýmissa gæða
er ekki fást annars staðar.
Þingið samþykkti enn-
fremur að á næstu tveimur
árum yrði unnið að fjórum
málum: Að farsími verði við-
urkennt hjálpartæki í bifreið-
um mikið hreyfihamlaðra og
sem nauðsynlegt öryggis-
tæki. Að tryggt verði í lögum
að styrkir Tryggingastofnunar
ríkisins til bifreiðakaupa
hækki í samræmi við verð-
hækkanir á bifreiðum. Að
styrkir til þeirra sem kaupa
bifreið í fyrsta sinn verði það
háir að viðkomandi einstak-
lingur greiði ekki meira en
sem nemur Vá af verði bif-
reiðar i meðalflokki. Og svo í
síðasta lagi að fulltrúi frá
samtökunum eða félagsdeild-
um sitji fundi bygginga-
nefnda og nái þannig fram
markmiðum stefnuskrárinnar.
Þingið ákvað, að fela fram-
kvæmdastjórn félagsins að
leita nú þegar eftir samstarfi
við Ö.B.Í., Þroskahjálp, A.S.Í.
og B.S.R.B. um að setja á fót
nefnd er mótað gæti stefnu
og kröfugerð um lífeyrismál í
tengslum við endurskoðun á
almannatryggingalögum.
Ennfremur skoraði þingið á
fjármálaráðherra að sjá um
að styrkir Tryggingastofnunar
ríkisins vegna bifreiðakaupa
verði ekki skattlagðir.
Landssambandið ákvað að
fela framkvæmdastjórn að
láta nú í sumar gera úttekt á
aðgengi fatlaðra að þjóðgörð-
um og öðrum friðlýstum
svæðum á íslandi. Þá úttekt
á svo að birta í ferðabækling-
um og lýsingum af svæðum.