Alþýðublaðið - 02.06.1988, Page 5

Alþýðublaðið - 02.06.1988, Page 5
,'a °Pinberra ve9na lauriai ......»<» f ^Bintaua grtidg »( 'HmabWttu frumtii Greidtlutkjtt hvers mánaðor Fimmtudagur 2. júní 1988 Skiptar skoöanir eru um hvort þörungarnir kæfi fiskana eöa eitri fyrir þeim. landbúnaðinum og sfðan klóaksmengun frá þéttbýlis- stöðum. Mikil áhersla hefur verið lögð á, að mikill hluti þessarar mengunar sé til- kominn vegna köfnunarefna frá landbúnaðinum, en í Danmörku mótmæla bændur þessu hástöfum og þræta fyrir að nota of mikinn áburð á túnin. Segjast þeir vera hin- ir sönnu náttúruverndar- menn. Eins dauði annars brauð? Það er fiskeldislaxinn sem er í mestri hættu, og sú kenning var til, að fiskar sem ekki væru í kvíum skynjuðu hættunaog gætu því forðað sér. Þessari kenningu hefur m.a. Jon Lauritsen upplýs- ingafulltrúi i norska sjávar- útvegsráðuneytinu haldið fram. Martin Dahle hjá sam- tökum sjómanna- og útgerð- armanna í Noregi hefur lýst yfir áhyggjum sínum, vegna þess að „frjáls" fiskur hefur fundist dauður af völdum þörunga. Er nú fylgst grannt með hvort þörungabreiðan heldur áfram norður eftir ströndinni, alla l^ið í Barents- haf. / Víst er þó/eins og oft hef- ur komið fram, að laxeldi Norðmanna í sjó er nú í mik- illi hættu. Verði íslendingar svo heppnir að þörungabreið- una reki ekki hingað, og við /sjálf sköpum ekki vaxtaskil- yrði fyrir þennan vágest, má búast við að enn á ný sannist að eins dauði sé annars brauð. Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri Lands- sambands fiskeldis- og haf- beitarstöðva segir f samtali við Alþýðublaðið, að ekki sé útséð með hvaða áhrif þetta ástand í Noregi komi til með að hafa hér. Hugsanlegt sé að Norðmenn kæmu til með að kaupa hér seiði í stað þess lax sem drepist hefur, en hann telji þó ólíklegt í dag að svo verði. Ekki sé heldur vitað hvenær sjórinn verði til- búinn á ný að taka við fiski, bæði verði skortur á súrefni þegar líða fer á sumarið, og eins eigi fiskurinn sem drep- ist hefur eftir að rotna á botninum. „Hins vegar eru meiri líkur á því að þetta leiði til þess, að það verði minna framboð á laxi í haust frá Noregi“, seg- ir Friðrik Sigurðsson. Einar Dahl sjávarlíffræð- ingur í Noregi segir í Arbeiderblaðið, að náttúran hafi þrjár leiðir til að enda þetta neyðarástand. í fyrsta lagi verði þörungarnir að ét- ast upp, i öðru lagi að svelta í hel og i þriðja lagi að þeir dreifist verulega í sjónum. En það geti liði vikur eða jafnvel mánuðir áður en það gerist. Það er nokkuð Ijóst að þessi vá verður fyrir dyrum enn um sinn og aðeins spurning um hve mikið tjón af henni hlýst? /12 - V- P. ■ **, P*WMy JjL V" - GJALDDAGÍ .FYRIRSKIL . A STAÐGREIÐSLUFE Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endur- gjaldi mánaðarlega. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hversu oft í mánuði laun eru greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram eða eftir á. Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar en eindagi þann 15. Með greiðslu skal fylgja grein- argerð á sérstöku eyðublaði „skilagrein". Skilagrein ber að skila, þó svo að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heilum krónum. Aliir launagreiðendur og sjálf- stæðir rekstraraðilar eiga að hafa fengið eyðublöð fyrir skilagrein send. Þeir sem ein- hverra hluta vegna hafa ekki fengið þau snúi sér til skatt- stjóra, ríkisskattstjóra, gjald- heimtna eða innheimtumanna ríkissjóðs. -Gerið skil tímanlega og forðist örtröð síðustu dagana. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI INGAÞJÓNUSTAN/SlA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.