Alþýðublaðið - 10.06.1988, Page 6

Alþýðublaðið - 10.06.1988, Page 6
6 Föstudagur 10. júní 1988 SMÁFRÉTTIR 19. júní er kominn út Út er kominn 19. j.únf, ársrit Kvenréttindafélags íslands. Ritiö flytur að venju efni um baráttumál kvenna og aö þessu sinni er megináhersla lögð á dagvistunarmálin. Lit- ið er á hvernig búið er að börnunum í samfélagi þar sem foreldrar vinna i auknum mæli báðir utan heimilis. „Hvar eiga börnin að vera?“ er spurt i grein sem fjallar um þá kosti sem for- eldrum gefast til að fá gæslu fyrir börn sín þegar bæði starfa utan heimilis daglangt og sveitarfélögin bjóða börn- um þeirra aðeins leikskóla þegar best lætur. Bent er á nýstárlega lausn sem felst í því að hafa börn í gæslu hjá dagömmu og ata, kost sem gæti hentað vel eldra fólki sem hefur nægan tíma og orku aflögu. Þá er fjallað um þróun dag- vistunarmála i Reykjavík allt til ársloka 1987. „Dagur í dag- mömmuskóla" nefnist grein sem einnig lýsir kjörum dag- mæðra og eftirliti með starf- semi þeirra. Nokkur börn segja frá reynslu sinni af ýmsum tegundum dagvistar auk þess sem litið er á veröld leikfanganna þar sem stúlk- um og drengjum er beint í tvo gerólíka heima. Hverjir bera ábyrgð á börn- unum, fjölskyldan eða sam- félagið? Þessu svara konur og karlar úr stjórnmálalífinu. Auk þess eru í blaðinu viðtöl og greinar sem tengjast þessu meginefni á margvis- legan hátt. Viðtal er við Jóhönnu Sig- urðardóttur ráðherra jatnrétt- ismála þar sem hún talar hreinskilnislega um „strák- ana“ í ríkisstjórninni, um „að bíta frá sér eða dröslast með“, um kvennabyltingu og margt fleira. Af öðru efni er að nefna umfjöllun um karla og ný- fæddan áhuga þeirra á feg- urðarsamkeppni, tiskufatn- aði, snyrtivörum og fleiru af þeim toga. Er hér ef til vill kominn árangur 80 ára jafn- réttisbaráttu? Þórhildur Jónsdóttir ann- aöist útlit en myndir tók Rut Hallgrímsdóttir. Ritstjóri er Jóntna Margrét Guðnadóttir. Blaðinu verðurdreift um land allt, en fæst auk þess í áskrift hjá skrifstofu KRFÍ að Túngötu 14, s. 18156. Styrkur veittur úr minningar- sjóði Jóns Jóhannessonar prófessors Nýlega var veittur styrkur úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar prófess- ors. Styrkinn hlaut að þessu sinni Margrét Eggertsdóttir B.A. Hún er nú að semja kandídatsritgerð um viðhorf Hallgrims Péturssonar til dauðans eins og það birtist í sálmum hans og kvæðum um þetta efni. Annars vegar vinnur Margrét að textafræði- legri útgáfu á nokkrum sálm- um Hallgríms um þettaefni. Hins vegar fjallar hún frá bókmenntalegu sjónarmiði um efnistök skáldsins, hug- myndir og viðhorf. Minningarsjóður dr. phil. Jóns Jóhannessonar prófess- ors er eign Háskóla íslands. Vaxtatekjum sjóðsins er varið til að veita stúdentum eða kandídötum í íslensku og sagnfræði styrk til einstakra rannsóknarverkefna er tengj- ast námi þeirra. Bókaklúbbur AB gefur út Bilun eftir Diirrenmatt Aprílbók Bókaklúbbs Al- menna bókafélagsins var sagan Bilun eftir svissneska höfundinn Friedrich Durren- matt í þýðingu Baldurs Ingólfssonar. Sagan kom fyrst út árið 1956. Bilun segir frá vefn- aöarvörusalanum Alfredo Traps. Hann verður fyrir því að bíll hans bilar þegar hann er á leið til heimabæjar síns úr söluferð. Hann leitar skjóls i húsi nokkru og hittir þar fyrrverandi saksóknara, verjanda og dómara. Og svo er þarna einnig böðull til staðar. Traps þiggur kvöldboð og fellst á að taka þátt í leik með gömlu mönnunum þar sem þeir eru allir í sömu hlutverkum og þeir tókust á við i lífinu en hann i hlutverki sakbornings. Fram fer réttar- hald, sókn og vörn og kemur þá ýmislegt skuggalegt í Ijós sem vefnaðarvörusalinn hafði lítt gert sér grein fyrir áður. Titill verksins vlsar til vélarbilunarinnar f upphafi bókarinnar og að sjálfsögðu einnig til vitskertrar, bilaðrar veraldar. Bókin ervel skrifuð og spennandi, með næmum umhverfis- og persónulýs- ingum. Þá er fingert skop- skyn hötundarins aldrei fjarri í verki. Friedrich Durrenmatt er heimsþekktur höfundur bæði sem leik- og sagnaskáld. Meðal leikrita hans sem sýnd hafa verið á íslandi eru: Eðlisfræðingarnir, Sú gamla kemur í heimsókn, Loft- steinninn og Rómúlus mikli. Bókin er unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags Á aðalfundi Hins íslenska þjóðvinafélags sem haldinn var í síðasta mánuði var kos- in ný stjórn til tveggja ára. Bjarni Vilhjálmsson, fyrrver- andi þjóðskjalavörður, sem kosinn var forseti fyrir tveim- ur árum, andaðist í mars 1987. Einar Laxness, fram- kvæmdastjóri Menningar- sjóðs, og dr. Guðrún P. Helgadóttir, fyrrverandi skóla- stjóri, báðust undan endur- kjöri. í stjórn félagsins voru kjörin: Jóhannes Halldórsson cand. mag., forseti, dr. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússon- ar, varaforseti, dr. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri, Heimir Þorleifsson mennta- skólakennari og Ólafur Ás- geirsson þjóðskjalavörður. Endurskoðendur voru kjörnir Halldór Ásgrimsson sjávarút- vegsráðherra og Ólafur Ólafs- son deildarstjóri. Guðrún Helgadóttir alþing- ismaður tók til máls og hvatti til að Alþingi sinnti þessu aldna félagi meir en verið hefði. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sam- einaðs Alþingis, tók undir þau orð og gat þess, að fyrir- hugað væri að forsetar þings- ins tækju það mál til með- ferðar. Frú Lára Seyðisfirði Þriðjudaginn 7. júní stofn- uðu konur á Seyðisfirði hluta- félag sem hlaut nafnið Frú Lára. Tilgangur félagsins er að stuðla að aukinni félags- þjónustu og auknum atvinnu- tækifærum kvenna á Seyðis- firði. Konurnar hafa þegar fest kaup á gömlu húsi þar sem skapa á aðstöðu fyrir hinarýmsu þjónustugreinar, léttan iðnað, smásöluverslun og kaffisölu. Einnig hafa þær í huga að skapa aðstöðu fyrir ýmiss konar félagsstarf. Starfsemin verður sniðin að þörfum kvenna og getur breyst og þróast eftir áhuga- sviðum kvenna og þörfum bæjarbúa. Stofnfélagar að hlutafélaginu voru 130 og hlutafé orðið yfir 1 milljón króna. Enn sem komið er hef- ur hlutafé nær eingöngu ver- ið safnað á Seyðisfirði þar sem nú búa um þúsund manns. Konurnar hafa að undanförnu unnið að viðgerð- um á húsinu sem næst sínu upprunalegu formi. Húsið verður opnað formlega 10. júni, en þá hefði frú Lára Bjarnadóttir orðið 95 ára, og verður m.a. á boðstólum afmælisterta með 95 kertum. Sjúkrasamlag Reykjavíkur veröur lokaö frá kl. 13.00, e.h., föstudaginn 10. júní 1988 vegna útfarar fyrrverandi framkvæmda- stjóra Gunnars J. Möllers, hrl. Sjúkrasamlag Reykjavíkur AUGLYSING um lögtök fyrir fasteigna- og brunabótagjöldum í Reykjavík Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðn- um 6. þ.m. verða lögtök látin fara fram tií tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og brunabótaiðgjöld- um 1988. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, hefjast að 8 dög- um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma. Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 6. júní 1988. Laus staða Staða deildarbókavarðar í Listasafni íslands er laus til umsóknar. Um er að ræða 70% stöðugildi. Umsækjendur hafi háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræði og er áhugi á myndlist æskilegur. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneyt- inu fyrir 6. júlí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 6. júní 1988. Dregið hefur verið í vorhappdrætti krata, upp komu eftirtalin númer. 13949 2319 4138 733 5638 14984 6787 51 10760 7566 360 13387 1902 720 2862 3362 Vinninga skal vitja á skrifstofu Alþýðu- flokksins, Hverfisgötu 8-10, opið kl. 10-16, alla virka daga. Alþýðuflokkurinn uPPi. / Síma 29282 Feröaáfangar mega ekki vera of langir - þá þreytast farþegar, sérstaklega börnin. Eftir 5 til lOminútnastanságóöum stað er lundin létt. Minnumst þess að reykingar í bílnum geta m.a. orsakaö bílveiki. m|umFERÐAR Uráð

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.