Alþýðublaðið - 29.07.1988, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.07.1988, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 29. júlí 1988 MPYDUMMD Útgefandi: Blað hf. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson iJmsjónarmáöur helgarblaðs: Þoriákuf Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnauutíir og Ómar Friðriksson. Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. JÖFNUÐUR í REYND Ríkissjóöur hefur sent frá sér 35 þúsund ávísanir, sam- tals að upphæð 1.9 milljarða króna til skattborgara lands- ins sem rétt eiga á barnabótum, barnabótaaukum, hús- næðisbótum og vaxtaafslætti og endurgreiðslum sam- kvæmt nýja skattkerfinu. Alls mun ríkissjóður greiða 4 milljarða króna á árinu í framangreindar bætur til borgar- anna. Það er 122% hækkun frá því sem var á síðasta ári. Samkvæmt athugun hagdeildar fjármálaráðuneytisins hefuraukning barnabótaog barnabótaauka verið 54% frá síðasta ári. Ef miðað er við 27-28% meðalhækkun verð- lags nemur raungildi hækkunarinnar tæplega 21% Kostir hins nýja skattkerfis eru nú að koma greinilega í Ijós. Sú stefna Alþýðuflokksins að umbylta tekjuöflunar- kerfi ríkissjóðs í því skyni að treystaog efla velferðarríkið er nú farin að skila árangri. Með tilkomu staðgreiðslukerf- is skatta innheimtast skattpeningar mun betur en áður. Þannig hefur orðið um 20% aukning á innheimtu tekju- skatts. Á sama tíma hefur bætt skattkerfi gert jöfnuðinn meiri í þjóðfélaginu. Fá hinir verr settu meira fé frá hinum betur settu. Það er hugsunin í hugmyndafræði jafnaðar- mennskunnar: Að jafna kjörin og aðstöðuna í þjóðfélag- inu og draga úr forréttindum hinna efnaðri en efla stöðu hinna tekjuminni. Þessari stefnu hefur Alþýðuflokknum tekist að haldafram í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi og eins og tékkarnir sem streyma frá fjármálaráðuneyti Jón Baldvins Hannibalssonar (sessa dagana sanna best. GEF OSS NIEIRA PUDI Svonefnd vinnutímanefnd sem Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra skipaði í septembermánuði í fyrra til að leita leiðatil að stytta vinnutíma íslendinga, án þess að skerða tekjur, hefur skilað niðurstöðum sínum. í skýrslu vinnutímanefndar kemur meðal annars fram að íslending- arvinnamest í heimi og heildarvinnutími karlaá íslandi er 57 tímar á viku en kvenna 49 stundir á viku. Meðal hug- mynda sem vinnutímanefndin setur fram til úrbóta á þrælkunarvinnu íslendinga er að leita leiða til að stytta vinnutímann með þeim hætti að lækka yfirvinnukaup en hækka dagvinnukaup verulega. Nefnir nefndin lagasetn- ingu sem hugsanlega lausn. Það gefur auga leið að ís- lendingar eiga erfitt með að stunda áhugamál, fjölskyldu- líf eða nýta frítíma sinn á uppbyggilegan hátt þegar mest- ur hluti sólarhringsins fer i vinnuþrælkun. Ætla mætti að forystumenn verkalýðshreyfingarinnar fögnuðu slíkum hugmyndum sem styttavinnutímaalmenningsán þess að tekjur skerðist. En af fyrstu viðbrögðum talsmanna verka- lýðshreyfingarinnar virðist ekki raunin sú. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins og Dagsbrúnar, fór háðulegum orðum um tillögur nefndar- innarí fréttatíma Ríkisútvarpsins í fyrrakvöld og líkti þeim við jólagjafir. Formaður Verkamannasambandsins varði yfirvinnutíma verkalýðsins með kjafti og klóm í viðtalinu líkt og helsta náðarmeóal vinnandi manna væri auka- vinna. Þetta eru úrelt sjónarmið og taka ekki mið af mann- gildishugsun eða mannúð. Afkoma heimila á ekki að byggjast ástriti myrkannaámilli. Almenningurá rétt ásín- um frítíma og stund með fjölskyldu og vinum. Guðmund- ur J. Guðmundsson á að hætta aó taka undír sönginn um aukavinnuna í revíunni Járhausinn eftir þá bræður Jónás og Jón Múla Árnasyni. „Ó Guð, ó gef mér meira puð“! ÖNNUR SJÓNARMIÐ WMtrn Þjóðviljinn: Ásakaður af lesendum fyrir að hygla siðlausum gróðapung- UtP. ÞJÓÐVILJINN hefur ákveðna sérstöðu í íslensk- um blaðaheimi. Meðal annars er sérstaða Þjóðviljans sú að vera í eilífum sálarhremming- um og geðklofa milli þess að kasta skít á atvinnurekendur og verslunarstéttina en sam- timis þurfa að biðla til henn- ar varðandi auglýsingar og stuðning sem heldur blaðinu gangandi fjárhagslega. Með árunum þegar verr hefur gengið hjá Þjóðviljan- . um og þyngra á brattann að • sækja, hefur talsvert dregið úr neikvæðum skrifum um verslunarstéttina og þeir ekki kallaðir „Kapítalistar", „gróðapungar" og „óvinir al- þýðunnar" eins og oft áður. Engu að síður heldur geð- klofinn áfram í blaðinu. Og stundum reyndar hjá lesend- um. í gær til að mynda. Þá sendi einn lesandi blaðsins, Ólafur Ó. Guðmundsson að nafni, bréf til málgagnsins síns og skammaði Þjóðvilj- ann fyrir dulbúnar auglýsing- ar. Ólafur hellir sér yfir rit- stjórann fyrir að hafa sagt frá því að Bifreiðar og landbún- aðarvélar hafi tekið í notkun um daginn nýjan sýningarsal. Maður segir ekki frá slíkum „siðlausum peningapungum" að mati bréfritara enda hafi hann sjálfur keypt bíl hjá þessum mönnum sem fór hvorki meira né minna en 20 sinnum á verkstæði á 10 mánuðum! Og svo er mál- gagnið hans, Þjóðviljinn, að hampa þessum „siðlausu" mönnum! En gefum Ólafi orðið eins og texti hans kom af Þjóðvilj- anum í gær: „Mig langar til að gera athugasemd við ákveðna til- hneigingu hjá Þjóðviljanum sem ég hef orðið var við und- anfarin ár sem lesandi blaös- ins. Um er að ræða umfjall- anir blaðsins um fyrirtækið „Bifreiðar og landbúnaðarvél- ar“ sem flytur inn Lada-bif- reiðar sem kunnugt er. Birtist þessi tilhneiging blaðsins m.a. í skrifum blaðsins um flutning áðurnefnds fyrirtæk- is í nýtt og glæsilegt hús- næði fyrir skömmu. Birtist þá allstór grein á besta stað í blaðinu, vitnað var í forstjór- ann í fyrirsögn og farið fjálg- legum orðum um árangur fyr- irtækisins á undanförnum ár- um. Á ég erfitt með að skilja þetta þar sem um eitt mesta fjárplógsfyrirtæki landsins er að ræða sem beitir siðlaus- um viðskiptaháttum ef því svo hentar og er undirritaður ekki einn um að hafa orðið fyrir barðinu á þvi. Fyrir um einu og hálfu ári keypti ég af þeim bíl sem reyndist allur rammgallaöur þegar til kom. Átti ég bifreið- ina i 10 mánuði og á þeim tíma fór hún um 20 sinnum á verkstæði. Þegar ég fór fram á að fá hinni gölluðu vöru skilað, mætti mér þvilík ósvífni að öðru eins hef ég aldrei fyrr né síðar kynnst. M.a. ásakaði forstjóri fyrir- tækisins mig um fjárkúgun þegar ég reyndi að ná fram rétti mínum. Leitaði ég með málið tii lögfræðings FÍB og fékk þar upplýst að kaupandi nýrra bilá er i raun upp á náð og miskunn seljenda kominn. Kærur og málaferli taki svo langan tíma að það borgi sig engan veginn að leita réttar sins þó að hann sé ótviræður i svona tilfeflum." Og þá snýr bréfritari sér að blaðamönnum Þjóðviljans: „Vona ég að framvegis standist siðferöisþrek blaða- manna Þjóöviljans þá freist- ingu að hygla siðlausum pen- ingapungum, jafnvel þótt þeir auglýsi i blaðinu og flytji inni sovéskar vörur. Ólafur Ó. Guðmundsson Neðstaleiti 5, R.“ Það er sem sagt engin málsvörn þótt þeir auglýsi í Þjóðviljanum eða flytji inn sovéskar vörur! Nú er að sjá hvort auglýsingar frá B.o.L. birist í Þjóðviljanum á næst- unni. Steingrímur: Honum þykir vænt um alla STEINGRÍMUR Her mannsson ervinsælasti stjórnmálamaður þjóðarinnar samkvæmt nýjustu skoðana- könnuninni og undrar kannski engan. Reyndar hvfslaði góðvinur Alþýðu- blaðsins því að ritara þessara lína að vinsældir Steingríms væru eins konar barnatíma- vinsældir. Þetta ber að hafa í huga þegar hyllingarleiðari Tímans til foringjans er lesinn. Forystugrein sem birtist í gær hampar að sjálfsögðu úrslitunum og Steingrími auðvitað sérstaklega og ítrek- ar þau orð Steingríms að honum þyki vænt um tólk og segi allt sem honum búi í brjósti hverju sinni. (Þetta er reyndar ný pólitík á Islandi og felst í því að Steingrímur er alltaf með sömu skoðun og meirihluti þjóðarinnar.) En leiðarahöfundur Tímans setur fram eftirfarandi lýs- ingu á formanni Framsóknar- flokksins og vinsældum hans. „Steingrímur Hermanns- son sagöi sjálfur í sjónvarps- viðtali í tilefni af niðurstöðu siðustu könnunar, að honum þætti vænt um fólk og þá um leið þjóðina alla. Slikur þankagangur hlýtur að vera mikilsvert veganesti fyrir mann, sem lagt hefur út á ólgusjó stjórnmálanna. Fólk finnur að hann varðar um hag þess og vill láta eins gott af sér leiða og aöstæður leyfa. Þetta sjónarmið kemur und- anbragðalaust í Ijós við öll tækifæri. Sjónarmiðið er ekki tilgerð stjórnmálamanns, sem vill koma sér vel. Stein- grimur talar af einlægni um stjórnmál og segir hverju sinni það sem honum býr í brjósti og hefur reyndar hlot- ið marga skrokkskjóðu fyrir hjá andstæðingum." Það hlýtur að vera mikils- vert að þjóðin er nú klár á því að Steingrfmi þyki vænt um hana og leyfir henni að koma til sín eins og frelsarinn börnunum. EN leiðarahöfundur Tímans minnist einnig á Halldór Ásgrímsson sem kom númer tvö f vinsældakönnuninni, enda farinn aö temja sér her- kænsku Steingríms að þykja vænt um alla og þá sérstak- lega forstjóra Hvals hf. Og svo segir leiðarahöfundur Tímans, að það sé alveg sama hvað Halldór geri: allt sé þrauthugsað á undan. Þetta þykir höfundi forystu- greinar málgagns Framsókn- arflokksins sennilega ný- lunda í flokki sínum og sér sérstaka ástæðu til að geta slíkra vinnubragða. En lesum skilgreiningu Tímans á hugs- uðnum Halldóri: „Hjá Halldóri Ásgrímssyni skín traustleikinn af hverju verki sem hann vinnur. Eins og Steingrímur vill hann fóiki og þjóð vel og vinnur henni það gagn sem hann má. Afstaða hans í viökvæmum deilumálum byggir á þraut- hugsuðum grunni, þar sem miðað er að þvi að ná sem bestum árangri, standa fast við orð og gerðir og bregðast hvergi i þvi sem honum hefur verið trúað fyrir. í viðkvæm- um atriðum, eins og hvala- málinu, hefur hann jafnan gætt þess að þjóðin haldi virðingu sinni gagnvart áhlaupsliði og aðfararmönn- um.“ En þessi síðasta setning hefði reyndar getað verið um Jón Helgason og landbúnað- arráðuneytið. Hins vegar komst Jón Helgason ekki á blað í vinsældakönnuninni og verður að bíða eftir áðdá- unarleiðara í Timanum enn um sinn. Einn með kaffinu Fyrirtæki eitt hafði dregið lengi að afgreiða pöntun til viðskiptavinar. Að lokum gafst viðskiptavinurinn upp og sendi skeyti til fyrirtækisins þar sem hann afpantaði vöruna. Viðskiptavinum barst svohljóðandi skeyti nokkrum dögum síðar frá fyrirtækinu: „Getum því miður ekki sinnt afpöntun þinni í bráð vegna anna. Þú verður að bíóa þangað til kemur að þér.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.