Alþýðublaðið - 29.07.1988, Side 3
Föstudagur 29. júií 1988
3
FRÉTTIR
Meitillinn hf
190 STARFSMENN
FÁ UPPSAGNARBRÉF
Rekstrarskilyrði ekki fyrir hendi segir
Guðmundur Sigurðsson
Meitillinn hf. í Þorlákshöfn
hefur sent 190 starfsmönnum
sinum uppsagnarbréf. Upp-
sagnirnar taka gildi frá og
með næstu mánaöamótum
þar sem rekstrarskilyrði eru
ekki fyrir hendi lengur.
Alþýðublaðið hafði sam-
band við Guðmund Sigurðs-
son skrifstofustjóra Meitils
af þessu tilefni. Guðmundur
sagði að rekstrarskilyrði
væru einfaldlega ekki fyrir
hendi og hefðu ekki verið
það lengi, og því gripi fyrir-
tækið til þessara aðgerða.
Það sem vantaði væri að
þessu landi væri stjórnað,
það vantaði ríkisstjórn í land-
ið. Helsti atvinnuvegur ís-
lendinga, útgerðin og fisk-
vinnslan, væri á vonarvöl með-
an minniháttar hlutir eins og
fjármálasýsla gengi mjög vel.
Hér væri um einfalt fjár-
magnskostnaðardæmi að
ræða, þessi atvinnuvegur
yrði að taka við öllum kostn-
aði vegna verðbólgunnar og
vaxtastefnu ríkisstjórnarinn-
ar.
FRAMKVÆMDASTJÓRI EFTA Á ÍSLANDI
Framkvæmdastjóri EFTA,
Georg Reisch, dvelur á ís-
landi 27. til 30. júlí í boði
Steingrims Hermannssonar,
utanríkisráðherra.
Auk viðræðna við utanrík-
isráðherra mun framkvæmda-
stjórinn eiga fund með for-
sætisráðherra og viðskipta-
ráðherra auk þess sem hann
mun fara í kurteisisheimsókn
til forseta íslands. Jafnframt
mun framkvæmdastjórinn
ræða við nýskipaða þing-
nefnd, sem fjallar um Evrópu-
bandalagið og stöðu íslands
gagnvart því, svo og ráðgjafa-
nefnd íslands og EFTA.
Framkvæmdastjórinn mun
einnig heimsækja Vest-
mannaeyjar og Þingvelli.
Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráðherra heimsótti vinnustaði á ferö sinni um Vesturland. Vestlendingar
áttu einnig kost á viðtali við hana á hverjum staö. A-mynd/EG
Félagsmálaráðherra með sveitarstjórnum
MIKILL ÁHUGIÁ
KAUPLEIGUÍBÚDURH
Félagsmálaráðherra leggur til að umboðsaðilar á vegum
Húsnœðisstofnunar verði staðsettir um allt land.
NORRÆN JAFNRÉTTIS-
RÁÐSTEFNA í OSLÓ
Dagana 3. til 5. ágúst næst
komandi verður haldin í Oslo
opinber ráðstefna á vegum
Norðurlandaráðs og Nor-
rænu ráðherranefndarinnar
um jafnréttismál. Fjöldi þátt-
takenda þar er 150 manns. í
tengslum við þá ráðstefnu
verður haldin dagana 31. juli
til 7. ágúst á vegum sömu
aðila Norræn kvennaráö-
stefna, Nordisk Forum, sem
er öllum opin.
i
formaður laganefndar Norð-
urlandaráðs. Auk Eiðs
Guðnasonar sækja ráðstefnu
þessa af hálfu Alþingis Guð-
rún Helgadóttir alþingismað-
ur, fulltrúi efnahagsmála-
nefndar Norðurlandaráðs,
Salome Þorkelsdóttir alþing-
ismaður, Kristín Einarsdóttir
alþingismaður, Elin Líndal
varaþingmaður og Kristín
Karlsdóttir.
I siðustu viku sótti
Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra Vesturland
heim ásamt aðstoðarmanni
sínum Láru V. Júlíusdóttur
og starfsmönnum ráðuneytis-
ins. Markmið heimsóknarinn-
ar var að kynna sveitarstjórn-
um á Vesturiandi ýmis verk-
efni sem eru í undirbúningi
hjá ráðuneytinu og fá fram
viðhorf þeirra til þessara
mála. Þá var heimamönnum
gefinn kostur á viðtali við
ráðherra auk þess sem hún
heimsótti vinnustaöi.
Jöhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra sagði að all-
ir málaflokkar sem heyrðu
undir ráðuneytið væru i end-
urskoðun, og því væri nauð-
synlegt að kynna sveitar-
stjórnum hvernig málin
stæðu. Hún kynnti sérstak-
lega verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga en það er
stærsti málaflokkurinn sem
snýr að sveitarfélögum á
komandi þingi. Jóhanna
sagði að það væri mjög brýnt
að kynna málin úti á lands-
byggðinni og hún hefði feng-
ið margar góðar ábendingar í
þessari ferð. Mikill áhugi á
kaupleiguíbúðunum er hjá
öllum sveitarstjórnum og
náðst hefur mjög breið pólit-
ísk samstaða hjá sveitarfé-
lögum um að þetta sé kostur
en henti landsbyggðinni
mjög vel.
í framhaldi af þessari ferð
mun félagsmálaráðuneytið
skrifa Húsnæöismálastofnun
bréf þar sem farið er þess á
leit að stofnunin muni auka
mjög þjónustu sína við
landsbyggðina. Félagsmála-
ráðuneytið mun leggja til að
komið verði á fót skipulögðu
kerfi umboós um land allt
sem veiti upplýsingar og ráð-
gjöf. Ráðuneytið leggur
áherslu á að þessir þjónustu-
aðilar Húsnæðismálastofn-
unar hafi greiöan aðgang að
ráðgjafastöðunni.
Vesturland er aöeins fyrsta
kjördæmið sem félagsmála-
ráðherra sækir heim en mein-
ingin er að hún heimsæki öll
kjördæmin.
A jafnréttisráðstefnunni
verður meðal annars fjallað
um hlut kvenna á þróun efna-
hagsmála og samræmingu
fjölskyldulífs og atvinnulífs.
Jafnréttisráðstefnunni lýk-
ur með umræöum þeirra ráð-
herra á Norðurlöndum, sem
fara með jafnréttismál. Um-
ræðum þessum stjórnar Eið-
ur Guðnason alþingismaður,
Verslunarmannahelgi framundan
HVAD VERÐA SLYSIN IHÖRG?
Upplýsingamiðstöð á vegum Umferðarráðs og lögreglu
Forseta íslands
Afhent kjörbréf
Vigdísi Finnbogadóttur
forseta íslands veröur afhent
kjörbréf sitt hinn 1. ágúst fyr-
ir kjörtímabilið 1988-1992.
Hinn 1. ágúst mun Hæsti-
réttur afhenda forseta ís-
lands frú Vigdísi Finnboga-
dóttur kjörbréf hennar fyrir
kjörtímabilið, sem hefst 1.
ágúst og lýkur 31. júli 1992.
Athöfnin fer fram í Alþingis-
húsinu að lokinni guðsþjón-
ustu í Dómirkjunni, er hefst
kl. 15.30.
Verslunarmannahelgin er
mesta ferðahelgi ársins og
áætlar lögreglan að um 110
þúsund bílar verði á þjóðveg-
unum um helgina. Til að slík
umferð gangi slysalaust fyrir
sig verða allir að leggja sitt
af mörkum af ábyrgð og tillits-
semi. Umferðarráð og lög-
regla verða sem áður með þó
nokkurn viðbúnað og hafa
virkjað til þess Ijósvakamiðl-
ana sem verða með sameig-
inlegar útsendingar á klukku-
stundarfresti frá sérstakri
upplýsinga-miðstöð.
Sími upplýsingamiðstöðv-
arinnar er 26666 og þangað
geta allir hringt sem upplýs-
ingar hafa eða vilja fá leið-
beiningu. Útvarpað verður frá
miðstöðinni á klukkustundar-
fresti á báðum rásum ríkis-
útvarpsins, Bylgjunni, Stjörn-
unni og Hjóðbylgjunni á Ak-
ureyri. Þar verða fréttir af
ástandi þjóðvega, umferðar-
þunga og öðru því sem veg-
farendum getur komið að
gagni. Vegalögreglan verður
með einn bíl i hverju kjör-
dæmi og þann fimmta á há-
lendinu. Að auki verður þyrla
landhelgisgæslunnar á stöð-
ugu eftirlitsflugi. Sex FÍB-
þjónustubílar verða á þjóð-
vegunum og félagið hefur að
auki gert samninga við 73
bifreiðaverkstæði um þjón-
ustu.
Umferðarslys eru sjaldnar
algengari en einmitt um
verslunarmannahelgi. I fyrra
uröu 22 bílveltur víðs vegar
um landið, yfir 40 árekstrar,
keyrt var á 3 gangandi vegfar-
endur og 7 skepnur, aðeins á
þessum þremurdögum. Eng-
in banaslys urðu þessa daga
í fyrra. Lögregla áætlar að
umferðarþungi aukist um
10% í ár og miðað við það
má áætla á milli 80 og 90
umferðaróhöpp næstu þrjá
daga. Slysaaukning á milli ár-
anna 1986 og 1987 var yfir
20% og því gæti talan orðið
enn hærri.
Það er heldur óskemmti-
legur endir á nýbyrjuðu ferða-
lagi að enda utan vegar rétt
utan við bæinn. Fríið og
ferðalagið ónýtt, sem maður
hafði lengi hlakkað'til. Vera
jafnvel alvarlega slasaður og
billinn ónýtur. Ég minnist
jeppabifreiðar með tengivagn
sem endaði á hvolfi utan veg-
ar rétt austan við Hveragerði
á föstudagskvöldi fyrir versl-
unarmannahelgina í fyrra.
Karlmaður lá undir teppi úti í
móa, smábarn hágrét á hand-
legg einhvers nákomins og
fólk sat miður sín umhverfis.
Ég veit ekki um orsakir slyss-
ins en oftast verða slik slys
vegna stundar gáleysis þins
eða annarra í umferðinni og
hröðum akstri. Er þáekki
skynsamlegra að fara sér ör-
lítið hægar, en komast í fri-
ið?