Alþýðublaðið - 29.07.1988, Síða 8
fLÞYBIIBIfPIB
Föstudagur 29. júlí 1988
VIÐTALIÐ
Freyr Þormóösson
skrifar
Þaö hefur víst ekki fariö
framhjá neinum aö nýr kóla
drykkur er kominn á islenska
gosdrykkjamarkaöinn, í viö-
bót við hina hundrað og eitt-
hvaö, af öllum stærðum og
geröum. Þetta er drykkur Is
Cola frá Sól hf. sem framleið-
ir fjölda annarra gos- og
svaladrykkja.
Mörgum þykir djarft aö
ryöjast inn á þennan lokaöa
markaö sem fjölþjóðarisarnir
Pepsi Cola og Coca Cola
hafa veriö næstum einráðir á
í áratugi, sérstaklega þegar
fé hefur veriö eytt í margra
ára rannsóknir af hálfu Sól
hf. Fyrirtækið hefur reyndar
áður sett á markaöinn kóla-
drykk, Sól Cola, sem seldist
svo lítiö að skynsamlegast
þótti að hætta framleiðsl-
unni. Áhættan virðist því enn
meiri nú. Að vísu sýnir
reynslan að íslendingar eru
nýjungagjarnir, en þegar um
er að ræða fámennan markað
þar sem fyrir eru á annað
hundrað gosdrykkjategundir
finnst manni líklegast að
drykkurinn sé dæmdur þegar
nýjabrumið fer af honum. Því
þótti mér forvitnilegt að
spyrja forstjóra Sól hf., Davíð
Scheving Thorsteinsson,
hvernig standi á svo áhættu-
sömu ævintýri og hversu
stóra hlutdeild í markaðnum
hann þarf og gerir sér vonir
um til þess að dæmið gangi
upp. Davíð hefur reyndar
löngum vakið athygli fyrir
dirfsku í vöruframleiðslu og
markaðssetningu.
— Okkur finnst við fara
mjög varlega af stað. Ætli
þetta sé ekki svona einn tí-
undi af þvi sem Kók auglýsir
og þeir gera það allan ársins
hring. Þaö er vissulega
áhættusamt að fara inn á
markað sem fjölþjóðarisarnir
hafa verið einráðir á, en ég
held aftur á móti að fólk vilji
gjarnan prófa eitthvað nýtt.
Mér finnst ég finna það. Við-
tökurnar í þessari kynningar-
herferð okkar hafa verið afar
góðar. Við vorum áður búnir
að gera afskaþlega umfangs-
miklar markaösrannsóknir og
prófanir, aftur og aftur, þang-
að til við fengum niðurstöðu
sem við vorum ánægðir með.
Þá fyrst fórum við út i fram-
leiðslu. Við hefðum viljað
koma með drykkinn mörgum
árum fyrr, en það tók einfald-
lega þennan tima að þróa
hann.
— En dugir þaö til aö
koma með sambærilegan
drykk á viö hina kóla drykk-
náum tiu prósenta hlutdeild
á honum. Við höfum ekki
framleiðslugetu fyrir meira.
— En gengur dæmiö upp
ef þið náið svona sjö til átta
prósenta hlut?
— Já. Ef við náum tíu
prósenta markinu erum við í
myljandi gróða.
— Hvaö hafa rannsóknirn-
ar og kynningarherferðin
kostað hingað til?
— Rannsóknirnar hafa
aðallega kostað blóð, svita
og tár. Það hafa fimm mann-
eskjur meira eða minna verið
við rannsóknir síðan í
október í fyrra. Sírópið sem
við notum er okkar eigin upp-
finning, og þess vegna al-
íslenskt þó annað hráefni en
vatnið sé innfutt. Þettaer
sennilega íslenskasti drykk-
urinn á markaðnum. Dósirnar
eru búnar til hér, þær eru is-
lensk hönnun eins og vöru-
merkið og svo er drykkurinn
íslenskur líka. Vatnið er svo
undirstaða gæðanna. Við
höfum verið að laga drykkinn
að íslenska vatninu og ís-
lenskum smekk, eins og við
höldum að hann sé. I kynn-
ingunni liggur nokkurra millj-
óna fjárfesting. Við þurfum
að selja nokkuð mikið magn
fyrstu mánuðinatil að borga
kynninguna upp. Eins og er
lítur út fyrir að það takist.
Það er ekkert að marka þetta
ennþá, því dreifingin er ekki
komin í fullan gang. Viðtök-
urnar hafa verið miklu betri
en við áttum von á. Við höf-
um orðið að skammta drykk-
inn til verslana þó unnið sé í
verksmiðjunni 24 tíma á sól-
arhring. Miðað við þessar við-
tökur gegnur dæmið upp.
Stóra málið fyrir okkur í
þessu dæmi er að fá fólk til
að smakka drykkinn fordóma-
laust. Ef fólk gerir það mun
það kaupa ís Cola aftur.
— Þarftu ekki að reka
stöðugan áróður allan ársins
hring til þess að viðhalda
kynningunni, líkt og stóru
kólafyrirtækin?
— Ég veit það ekki. Tek-
urðu lengur eftir kók-auglýs-
ingunum? Ertu ekki löngu
hættur að sjá þetta hressa
og fallega fólk? Stelpurnar
eru svo grannar og strákarnir
svo stæltir. Það er svo ofsa-
fengið fjör í kringum kókið
að maður er alveg hættur að
trúa á það. Ég held ekki að
við þurfum að keppa við
þetta. Okkur nægir að fólk
gefi ís Cola tækifæri, kaupi
drykkinn í svona tíunda hvert
skipti. Þá erum við ofan á.
ís cola ryðst inn á
markað sem al-
þjóðarisarnir
Pepsi Cola og
Coca Cola hafa
nánast einokað í
áratugi.
Davíð Scheving Thorsteinsson,
forstjóri i Sól hf.
ina? Er ekki vaninn svo sterk-
ur að hann útilokar nýjungar
á þessum markaöi? Man fólk
eftir ís Cola þegar þaö kemur
í verslunina?
— Þetta er alveg rétt. Það
er búið að berja á þeim gráu í
fjörutíu ár. Sterkasta vöru-
merki í heimi er án efa Coca
Cola, en við ætlum okkur
aldrei mjög stóra hluti á
markaðnum. Okkurdreymir
ekki svo barnalega drauma
að ætla að yfirtaka markað-
inn. Við erum alsælir ef við
IS COLA ROKSELST
Milljónaœvintýrið virðist œtla að ganga upp