Alþýðublaðið - 11.08.1988, Blaðsíða 1
Ríkisstjórnin
NIBURFÆRSLA Á LAUNUM,
VÖXTUM UG VERDLAGI
Niðurfœrsluleiðin virðist œtla að verða ofan á i fyrirhuguðum efnahagsaðgerðum. Beðið
verði með gengisfellingu og reynt að ná samkomulagi um stóran pakka frumvarpa og
ákvarðana í peningamálum.
Á vettvangi ríkisstjórnar-
innar er nú unnið að stórum
efnahagsmálapakka i tengsl-
um við efnahagsráðstafanir
fyrir lok mánaðarins og fjár-
lagagerð. Margir starfshópar
ráðuneyta og stjórnarflokka
eru í gangi og er þá ekki ein-
göngu einblint á störf ráð-
gjafarnefndar forsætisráð-
herra sem eina undirbúning
efnahagsaðgerða.
Ráöherrar munu, skv. heim-
ildum Alþýðublaðsins, ekki
hafa gengisfellingu á dagskrá
næstu dagana en óttast
mjög að svipað ástand skap-
ist í þjóðfélaginu og ríkti fyrir
„myrka miðvikudaginn" í maí
þegar gjaldeyrir streymdi út
úr bönkunum. Hafa stjórn-
völd nú mikinn vióbúnað
uppi til að koma i veg fyrir að
slíkt endurtaki sig.
Skipun ráðgjafarnefndar-
innar hefur mælst misvel
fyrir í stjórnarbúðunum þar
sem menn óttast að hún ýti
undir gjaldeyrisspákaup-
mennsku meðal almennings.
Nefndarmenn hafa þrátt fyrir
tilmæli hvorki viljað játa því
né neita að gengisfelling sé
meðal þeirra tillagna sem þar
„Þaö hafa allar mögulegar
leiðir verið settar upp á borð
og ég met þetta þannig að
það sé fullur vilji nefndar-
manna að skila sameiginlegri
niöurstöðu."
Þetta sagði Einar Oddur
Kristjánsson, formaöur bjarg-
ræðisnefndar ríkisstjórnar-
innar, þegar hann var spurður
um hvaða leiðir væru ræddar
til að bæta rekstrarskilyrði
útflutnings- og samkeppnis-
greinanna. Að öðru leyti vildi
hann ekki tjá sig um störf
nefndarinnar, nema hvað hún
héldi áætlun.
Nokkur gengisfellingarótti
greip um sig meðal þjóðar-
innar þegar forsætisráðherra
skipaði nefndina, sem f eiga
sæti fulltrúar atvinnulífsins
eru í smíðum, en skv. heim-
ildum Alþýðublaðsins var
25—30% gengisfelling eina
umræðuefni nefndarmanna i
fyrstu en þeir halda nú fundi
tvisvar á dag og eru farnir að
líta á aðrar leiðir í samvinnu
við Þjóðhagsstofnun.
Helst virðist mega ætla að
ríkisstjórnin ætli sér að fara
„niðurfærsluleiðina" til að
bjarga atvinnulífinu, en sú
leið hefur lítt veriö reynd allt
frá árinu 1959. Er talið að hún
geti gefið góða raun við að
draga úr verðbólgu en er ekki
sársaukalaus þar sem hún
felur í sér niðurfærslu með
handafli á öllum liðum; laun-
um, vöxtum og verðlagi.
Undanfarið hafa fjármála-
ráðherraog utanrikisráðherra
átt með sér fundi um leiöir í
efnahagsmálum og er ekki
talið ósennilegt að þeir kunni
að ná samkomulagi. Forsæt-
isráðherra er væntanlegur
heim frá Bandaríkjunum 20.
ágúst og erekki búist við
aðgerðum fyrr. Af viðtölum
við áhrifamenn í herbúðum
stjórnarinnar má ráða að
mikil óvissa er uppi um hvort
heildarsamkomulag um víð-
tækar aðgerðir næst á
næstu vikum og er talið að
og stjórnmálaflokkanna. Þeg-
ar Einar var spurður hvort
gengisfelIingarleiðin hefði
þokað fyriröðrum leiðum í
vinnu nefndarinnar sagði
hann, að nefndarmenn hefðu
orðið varir við þennan ótta
löngu áður en þeir tóku til
starfa, og fjölmiðlar hefðu
verið farnir að gera þeim upp
skoðanir.
„Ég sá ekki betur en sum
blöð væru búin að segja til
um hver niðurstaðan yrði
áður en viö hittumst eða
fengum tækifæri til aö takast
i hendur," sagði Einar Oddur
Kristjánsson.
Bjargræðisnefndin fundar
nú tvisvar á dag og henni er
ætlað að skila tillögum sín-
um í lok næstu viku.
ef ekki næst samkomulag
um róttækar aðgerðir séu lík-
ur á uppstokkun á stjórnar-
heimilinu mjög verulegar.
Þingflokkur Alþýðuflokks-
ins kemur saman í dag til að
meta þau viðfangsefni og
leiðir sem nú er unnið að í
mörgum starfshópum ráð-
herranna.
Sjá nánar'fréttaskýringu
bls. 5.
(Jmmœli
Steingríms
„EKKI
SVARA
VERГ
„Mér finnst þetta vera yfir-
lýsing af því tagi sem ekki er
svara verð.“
Þetta sagði Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra um þau
ummæli Steingríms
Hermannssonar utanríkisráð-
herra í DV í gær að sér fynd-
ist erfitt að fara í frí núna,
eins og Þorsteinn ætlar að
gera eftir að opinberri heim-
sókn hans til Bandaríkjanna
lýkur.
Þorsteinn er væntanlegur
heim aftur um aðra helgi.
Aðspurður um hvort ríkis-
stjórnin myndi bíöa heim-
komu hans áðuren væntan-
legar efnahagsráðstafanir
yrðu kynntar sagði Þorsteinn
að ekki væri verið aó bíöa
með eitt né neitt.
„Ég tæki mér ekki fimm
daga fri ef það tefði einhver
störf heirna," sagði Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra.
„Ánægjulegar
viöræður"
— segir Þorsteinn
Pálsson um fundinn
með Reagan
Bandaríkjaforseta
Vel fór á með þeim Þor-
steini Pálssyni forsætisráð-
herra og Ronald Reagan
Bandarikjaforseta þegar þeir
ræddust við i Hvita húsinu í
Washington i gær.
„Þetta voru mjög ánægju-
legar og gagnlegar viðræður,
og þær staðfestu það góða
andrúmsloft sem nú ríkir í
samskiptum þjóðanna,"
sagði Þorsteinn Pálsson í
samtali við Alþýðublaðið í
gærkvöldi.
Þeir Þorsteinn og Reagan
ræddu meðal annars við-
skipti þjóðanna og í þeim
viðræðum kom fram ósk ís-
lendinga um að tollar á ullar-
vörum sem seldar eru til
Bandaríkjanna yrðu lækkaðir
eða felldir niður. „Við höfum
áhuga á að tryggja hagsmuni
okkar til lengri tima og vió
vonum að þetta verði tekið til
skoðunar," sagði Þorsteinn.
Menningartengsl ríkjanna
voru einnig rædd og lýstu
báðir aðilar yfir áhuga og
vilja til að efla þau.
Alþjóðamálin gleymdust
ekki og Ronald Reagan gerði
Þorsteini grein fyrir viðræð-
um sínum við leiðtoga Sovét-
rikjanna og viðleitni sinni til
að ná árangri í viðræðum um
fækkun kjarnorkuvopna.
Hinn stolti laxveiðimaðursem heldur uppi feng sinum heitirTryggvi Þór
Tryggvason. Tryggvi hefur heldur betur ástæðu til að vera hreykinn, þvi
þetta er fyrsti laxinn sem hann veiðir um ævina. Mariulaxinn sem varð
þessa heiðurs aðnjótandi var í sakleysi sínu á leið upp Elliðaárnar þegar
græögin varö honum aö falli.
Bjargrœðisnefndin
Allar leiðir skoðaðar
— segir formaðurinn